Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987. 23 DV Erlendir fréttaritarar Deilt um staðsetningu nýs aðalflugvallar í Noregi Björg Eva Eriendsdótdr, DV, Osló: Undanfarin ár hafa Norðmenn unnið að áætlunum um gerð nýs aðalflugVallar fyrir landið. Erfiðlega hefur þó gengið að ná samkomulagi um hvar sá flugvöllur skuii staðsett- ur. Eftir margra ára rökræður og bollaleggingar er enn óvíst hvar honum mun valinn staður. Fomehu flugvöllur í Osló er orðinn alltof lítill og aðstaða þar öll léleg. Flugstöðin er úr sér gengin og gam- aldags og þykir brýnt að bæta úr þessu ástandi sem fyrst. Þrír möguleikar era fyrir hendi, og sá staður sem hefur verið talinn líklegastur er Gardermoen flugvöll- ur en þangað er ríflega klukkutíma akstur í norðurátt frá Osló. Annar möguleiki er Hurum, suðvestur af Osló og mun nær. Þar þarf að byggja alveg nýjan flugvöll og það hafa Norðmenn álitið of dýrt. Margir vilja hafa Fomebu áfrarn sem aðalflug- völl fyrir allt áætlanaflug, bæði innanlands og utan, en láta Gard- ermoen hafa leiguflugið eins og gert er nú. Augljósir gallar Fomebu er þægilega staðsettur fyrir flesta farþega, bæði erlenda og innlenda. Er flugvöllurinn nálægt hjarta Oslóborgar. Umhverfis flug- völlinn er einnig fjöldi fyrirtækja af ýmsum gerðum sem em mjög háð góðum samgöngum. En gallamir, sem fylgja flugvelli inni í sjálfri borginni, em einnig augljósir. Tugþúsundir, sem búa í nágrenni við völlinn, verða fyrir margvíslegum óþægindum af hon- um. Hávaði og mengun eykst með hveiju ári og álagið á vegakerfið í nágrenni flugvallarins er fyrir löngu orðið til vandræða. Og nú er svo komið að yflrvöldum finnst ekki lengur forsvaranlegt að auka flug- umferð til Fomebu. Mismunandi fjárhagsáætlanir Ríkisstjóminni þykir Gardermoen ákjósanlegasti staðurinn og til skamms tíma leit út fyrir að þaö væri besti og ódýrasti kosturinn. En margvíslegar mismunandi fjár- hagsáætlanir hafa verið lagðar fram og sú nýjasta sýndi fram á að flug- völlur í Hurum væri ódýrari en Yfirvöldum i Noregi finnst ekki lengur forsvaranlegt að auka flugumferð tii Fomebu fiugvallar sem er nálægt hjarta Oslóborgar. Ekki gengur þó auð- veldlega að komast að samkomulagi um hvar byggja skuli nýjan flugvöll. stækkun á Gardermoen. Samtímis kom það í jjós að norski flugherinn, sem nú hefur aðsetur sitt á Gard- ermoen, taldi öll vandkvæði á að hafa starfsemi sína í návígi viö aöal- flugvöll landsins. Kvaðst flugherinn þá þurfa nýjan flugvöll fyrir sig. Flugvallardeilumar virðast mest bera keim af slagsmálum milli hags- munahópa þar sem hver otar sínum tota. Sifellt koma í ljós nýjar upplýs- ingar um galla og kosti hvers staðar og oft undarlegt að þau atriði skuli ekki hafa komist tÚ tals í byrjun umræðunnar. Sem dæmi má nefha að þegar nýj- asta reikningsdæmið fyrir Hurum var lagt fram gátu andstæðingar Hurums strax sýnt fram á aö þar væri ómögulegt að hafa flugvöll vegna þoku. Þeir gátu vísað til margra ára veðurrannsókna máli sínu til stuðnings. Apaspil En fljótlega fundust veðurfræðing- ar sem höfðu aðra skoðun á málinu og nú í dag er staöan sú að enginn virðist vita hvor flugvöllurinn verð- ur dýrari né heldur á hvorum staönum veðurskilyrðin em betri. Skyldi þó ætla að hægt væri að kom- ast að niðurstöðu ef hlutlausir menn stæðu að þessum rannsóknum. Almenningur í Noregi er búinn að missa alla trú á deiluaöilunum og lítur á umræðuna eins og eitthvert apaspil sem engan endi muni taka. Og fæstir búast við því að úr flug- vallarbyggingu verði á næstunni. Villibráð og gerjuð vínberjasaft í boði Vinberjatinslan er hafin i Frakklandi og bráðum má búast við nýjum vinum á markaðinn. Bjami Hnrikssan, DV, Boideaux: Með komu haustsins og lækkandi hitastigi hefst tímabil víns og veiöa hjá Frökkum. Þann 20. september var byssubúnum mönnum hleypt inn á veiðilendur að því tölskildu auðvitað að þeir hefðu öll nauðsynleg leyfi. Og eftir því hvað lendumar eða hæfni veiðimanna bjóða upp á geta franskar húsmæður nú matbúið nýveidda fugla, héra eða annað þaö sem eigin- mennimir púðra niður. Til þess að mega veiða þarf auðvitað byssuleyfi, veiðiskírteini á fimm þús- und krónur sem allir verða að kaupa og svo veiðileyfi á þeim stað sem freist- ar veiðimannsins. Þar er ómögulegt að segja til um eitthvert meðalverð því veiöilendumar em misgjöfular, mis- vel staösettar og ýmist í eigu einstakl- inga eða ríkisins. Þetta er eins og með laxinn. Fréttaritari þekkir miðaldra flöl- skyldumann sem heldur heimili úti á landsbyggðinni en er þar einungis um helgar þvi virka daga vikunnar vinnur hann í París. Meðan á veiðitímabilinu stendur bregst ekki að annar dagur helgarinnar, jafnvel báðir þegar hæst stendur, fer í skytterí. Eins og alvöru- veiðimanni sæmir elur hann upp sína eigin veiðihunda sem hlaupa út um allar jarðir þangað til sjón eða lappir gefa sig. Síðustu vikur hefur vínbeijatínsla staðið yfir og bráðum má búast við nýju vínunum á markaðinn. Hver ein- asti smábóndi á sinn smáskika undir- lagðan vínviði sem gefur af sér svona eins og nokkur hundmð lítra, nóg fyr- ir fjölskylduna og vini sem eiga leið framþjá. Ef farið er í heimsókn út í sveit er boðiö upp á vínbeijasaft sem ólgar og kraumar af geijun og verður orðin að víni eflir um það bil tvær vikur. Þessi gerjun getur verið hættuleg sem sési best á því að á hveiju ári farast nokkr- ir menn úr „geijun" í vínkjöllurum sveitabæja, það er að segja þrýstingur- inn verður það mikill að saftin beinlín- is sprengir utan af sér flöskumar. Mjög erfltt er að segja til um gæði vínsins þetta árið, til þess var veður í sumar of breytilegt. Júlí var fremur svalur og votviðrasamur, ágúst ekkert sérstakur en september hins vegar með endemum heitur. Þó er hægt að fullyrða að vínmagnið verður minna en í fyrra því sökum rigninga em vín- berin vatnsmeiri en vanalega. Viðskiptaferð til Ausfurtanda? - Arnarflug og KLM - besti kosturinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.