Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987. 31 Ein er upp tilfjalla En hún er það víst ekki lengur, blessuð litla ijúpan. Veiðitíminn hófst í morgun og hætt er við þ ví að þá hafi margir haldið af stað til fjalla víðs vegar um land til að leita að ijúpu í jólamatinn. Undan- fama daga hafa landeigendur og lögregla auglýst í fjölmiðl- um og vakið athygli á að ijúpnaveiðitíminn hæfist ekki fyrr en í dag. Það hefur nefnilega verið þannig und- anfarin ár að einstaka veiði- menn hafa þótt vera óeðlilega fengsælir fyrsta leyfilega veiðidaginn. Skýringuna vita flestir. Margir hafa haldið til veiða fyrr en leyfilegt hefur verið. Þeir hafa þá skotið vel, falið síáan fenginn vel og vandlega og komið klyfjaðir ijúpu til byggða að kvöldi fyrsta veiðidags. Þeir hafa svo yfirleitt fengið mun minna næst þegar þeir hafa haldiðtilveiða. Þá eru þær ekki óhultar lengur, blessaðar rjúpurnar, því að nú er rjúpnaveiðitiminn genginn i garð og skotglaðir veiðimenn skrönglast um uppi á háheiðum. Dýr pylsuskúr Talsverðumræða hefur verið að undanfómu á Akur- eyri um hönnunarkostnað ýmissa mannvirkja og eftirlit með opinberum framkvæmd- um. Hefur hönnunin oft þótt fara úr böndunum kostnað- arlega og berast böndin jafnan að embætti húsa- meistara bæjarins. En ekki liggur þó öll sökin þar ef marka má orð eins starfs- manns húsameistarans en hann sagði að margir húsa- meistarar væm starfandi í bænum. Það sem hann átti við er að oftlega em bygging- ar hannaðar án vitundar embættisins og þá vill hönn- unarkostnaðurinn hlaupa verulega upp. Nýjasta dæmið um þetta er þegar byggður var „pylsuskúr" fyrir íþróttavöllinn síðastliðið sumar. Arkitekt var fenginn til að teikna skúrinn án vit- undar húsameistarans. Kostnaðaráætlun mun hafa hljóðað upp á 500 þúsund krónur sem þótti eðlilegt. Skúrinn uppkominn kostaði hins vegar 1100 þúsund krón- ur sem þykir óeðlilegt. Skúrinn mun meðal annars hafa verið burðarþolskann- aður sem einnig telst óeðli- legt. Framkvæmdastjóri íþróttaráðs, sem lét teikna skúrinn, sagði að kostnaður við byggingu hans hefði farið fram úr áætlun en heildar- kostnaður á svonefndum stofnbúnaði hefði verið 1390 þúsund krónur. Inni í þeirri tölu væri reyndar fjórhjól til að nota á vellinum en er ekki einnig óeðlilegt að slíkt farar- tæki sé reiknað inn í bygg- ingu „pylsuskúrs"? Fötin á fram- leiðsluverði Það er víða barist um vinn- andi hendur þessa dagana. Alls staðar vantar fólk til starfa og þá þarf auðvitað að bjóða betur en aðrir til að laða fólkið að. Fyrirtæki í Að stofna fyrirtæki Tvær hressar konur segja frá þvi í viðtali í Degi á Akur- eyri hvemig þær stofnuðu fyrirtæki sitt á Húsavik sem ber nafniö Ofsettstofan Örk. Önnur þeirra, sem heitir Sigrún, segist á laugardegi hafa séð fyrirtækið auglýst til sölu og sama kvöldið hafi hún hringt í Grétu vinkonu sína sem var í sumarleyfi á Ítalíu. Sú hafi komið í símann og Sandkom Reykjavík, sem framleiðir Don Cano sportfatnað, aug- lýsti á dögunum eftir fólki til saumastarfa. í auglýsingunni var tíundað að tekjumögu- leikar væru góðir þ ví að bónuskerfi væri viðhaft. I lokin var það svo tekið fram að starfsfólk fyrirtækisins fengi Don Cano fatnað á kostnaðarverði. - Það hlýtur að hafa ráðið úrslitum. Bjartsýni Og í tilefni af fyrsta rjúpna- veiðideginum þá segjum við sögu af tveimur Hafnfirðing- um sem fóru til ijúpna. Annar þeirra kom að hinum þar sem hann lá grafkyrr á jörðinni og miðaði stöðugt. Féiaginn skellti sér niður hjá honum og spurði: „Hvað ertu búinn að fá margar?" - „Uss,“ sagði hinn. „Þegar ég er bú- inn að skjóta þessa, sem ég er nú aö miða á og tvær í við- bót, þá er ég búinn að fá þijár.“ spurt: „Hæ, elskan, ertu að koma?“ því hún hafi verið dálítiðaödjamma. „Skrifaðu bara undir hvað sem er fyrir mig,“ sagði síðan Gréta í djamminu. „Þetta gekk allt saman vel en nú þorir Gréta ekki að fá sér í glas af ótta við að hún muni kaupa eitt- hvað eða selja," sagði Sigrún. Og hún bætir við: „ Allavega fær hún sér ekki í glas ef ég er einhvers staðar nálægt síma.“ Umsjón: Gylfi Kristjánsson Stofnun fyrirtækja getur greinilega oröiö meöýmsu móti á Húsavik. Ári eftir leiðtogafundinn í Reykjavík: í hreinskilni sagt í flugvélinni, sem flutti mig til Kaupmannahafnar á ferðalagi mínu til hins nýja vinnustaðar míns í Reykjavík, fór ég að ræða við starfs- bróður minn af Vesturlöndum. Eins og í gamni sagði hann, en vitað er að í hverri fyndni er sannleikskom: „Við vitum hvað þið eruð að að- hafast. Ertu ekki að fljúga til íslands til þess að reka áróður fyrir gildru- kenningu Gorbatsjovs?" „Og hvað er það nú eiginlega?" spurði ég í einlægni. Viðræðumaður minn svaraði: „Leiðtogi ykkar heillar alla með því að hvetja til afvopnunar og heldur því fast fram að aðeins allsherjarör- yggiskerfi útrými hættunni á kjam- orkuhörmungum." KjáHarinn Valdimir Verbenko yfirmaður APN á íslandi „Er það svo slæmt? Friður öllum til handa - hvað þarf maðurinn fleira? Hvaða gildra er falin í þessu?" Ég fékk nokkrar upphrópanir sem svar. Og síðast: „Þetta em bara orð- in tóm, almennt hjal, ekkert bita- stætt. En þama liggur sennilega fiskur undir steini." Ég vona að þessi samferðamaður minn um skamma hríð, sem kynnti sig ekki, hafi kynnt sér „Múr- mansk-áætlun Mikhails Gor- batsjovs. Eða ætti kannski að kalla þetta „kenninguna um norðrið"? - en auðvitað er nafnið ekki aðalatrið- ið. Er þetta ekki bitastætt? „Einfalt reikningsdæmi" - sex gagnorð at- riði: Frá því að vera reiðubúnir til hvers kyns viðræðna og mögulegs brottflutnings sovéskra kjamorku- kafbáta með ballistískum eldflaug- um til víðtæks samstarfs í landnámi norðursins og umhverfisvemdar á þeim slóðum. Hér er allt ipjög skýrt og ljóst - aðeins ef fyrir hendi er gagnkvæmur vilji. Og þessar nýju tillögur eru bein afleiöing af Reykjavíkurfundinum sem sovéski leiðtoginn fór jákvæð- um orðum um í þessari ræðu (sem og næstum öllum sínum ræðum á undanfornu ári) og sagði að þar hefði verið um „söguleg tímamót" að ræða, „undanfara raunverulegrar afvopnunar". En við munum að fyr- ir ári vom sumir á móti fundinum í íslensku höfuðborginni og reyndu að afskræma eðli hans og hrópuðu að Reykjavíkursamkomulagið væri „algerir draumórar" og að hér væri um „augljósa gildru" að ræða. Það væri ágætt að fá meira af svona „gOdrum". Valdimír Verbenko „Hér er allt mjög skýrt og ljóst - aðeins ef fyrir hendi er gagnkvæmur vilji.“ . Frá leiðtogafundinum í Reykjavik fyrir ári. Hárgreiðslustofan Klapparstíg Pantanasími 13010 Rakarastofan Klapparstíg Pantanasími 12725 REYKJMJÍKURBORG HFJ Jlcuctovi Sfödun ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR ALDRAÐRA Dalbraut 27. Laust er til umsóknar 100% starf á vakt, morgun- vaktir, kvöld- og helgarvaktir. Starfssvið: Aðstoð og ummönnun aldraðra. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377. BAKARI ÓSKAST Bakari eða maður vanur bakstri óskast til starfa hið fyrsta. Á sama stað óskast afgreiðslufólk. Upplýsingar í síma 12590 eftir kl. 13.00. Siglufjarðarkaupstaður Lausar stöður 1. Staða félagsmálafulltrúa. Viðkomandi mun hafa með æskulýðs-, íþrótta- og félagsmál að gera, þ.m. t. sjúkrasamleg. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun á félagssviði eða reynslu af sambærilegum störfum. Staðan er laus frá 1. janúar nk. 2. Staða bókara er laus frá 1. desember nk. Krafist er góðrar þekkingar á bókhaldi og notkun tölvu. 3. Staða skrifstofumanns er laus frá 1. desember. Starfssvið er launaútreikningar, skrifstofuaðstoð við tæknideild o.fl. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í skrifstofustörfum. Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf, sendist undirrituðum fyrir 25. október nk. Bæjarfógetinn Siglufirði Litakynning. Permanettkynning. Strípukynning. Buick Sky Hawk, v 6, 3,6 I, '79, ek. 56 þ. m. V. 250 þ., skipti. Wagoneer Limited, leðurklæddur, '79, ek. 86 þ. km. V. 560 þ., skipti. Dodge Ram Van, 6 cyl., '81, ek. 125 þ. km. V. 390 þ., skipti á ód. Renault Trafic dísil '83, ek. 96 þ. km. V. 490 þ. Stöðvarleyfi. Langur, 1500 G.L.X. ’85, ek. 57 þ. km. V. 380 Þ- ________________________________________ Mercury Capri, 2 d., v 6, 3,6 I, '83, ek. 45 þ. km. V. 540 þ., skipti. M. Benz 190 E, beinsk., ‘83, ek. 77 þ. km. V. 800 þ., skipti á jap. jeppa. Hef kaupanda aö M.M.C.L 300, 4x4, 8 far- þega. BÍLASALAIM HLÍÐ Borgartúni 25, R. SÍMI 17770 - 29977 Dodge Diplómat, T-toppur, '78, ek. 100 þ. km. V. 370 þ., skipti. x

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.