Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987. 37 5000 manns voru vel með á nótunum í Reiðhöllinni þar sem Nleat Loaf skemmti. Meat Loaf vinsæll á íslandi Maður verður að halda formfogrum línum sínum, gæti Meat Loaf verið að hugsa. DV-myndir KAE Meat Loaf er hinn ánægðasti með koss frá íslenskum aðdáendum. Þarna er verið að ná i einn sem fékk aðsvif á tónleikunum ... Fimm þúsund manns mættu á hljómleika Meat Loaf í Reiöhöllinni um síðustu helgi. Þessi hressi rokk- ari vakti fyrst á sér athygli í hlut- verki mótorhjólagæjans Eddie í sígildu kvikmyndinni, Rocky Horror Picture Show. Síðan sló hann eftir- minnilega í gegn er hann fór að syngja stórgóð lög, samin af Jim Steinman, og er plata hans, Bat out of Hell, að margra áliti, meðal sí- gildra platna rokksins. Kjöthleifurinn hefur sýnilega grennst frá mestu frægðarárum sín- um enda var ástandið þá þannig að hann þurfti á stöðugri súrefnisgjöf að halda á tónleikum sínum. Á tónleikunum sýndi hann svo og sannaði að hann hefur engu gleymt. Áhorfendur, sem voru fjölmargir, voru alhr vel með á nótunum en ólætin á eftir settu þó svartan blett á tónleikana. ... og það var gott að fá afdrep til þess að jafna sig. Sviðsljós Ólyginn sagði... Katharine Hepburn lét þess getið nýverið að hún hefði í upphafi ekki viljað leika í kvikmyndinn African Queen. Þetta er ein frægasta kvikmynd hennar og talin með betri kvikmyndaverkum sögunnar. Ástæða þess að hún var ófús að leika í mynd- inni var sú að henni þótti handritið með eindæmum lé- legt. En hún sló til aðeins vegna þess að hana langaði að skoða Afríku. Meryl Streep er þessa dagana í Ástralíu að leika í þarlendri kvikmynd sem byggð er á sannsöguleg- um atburðum. Hún leikur konu, Lindy Chamberlain, sem ákærð var árið 1980 fyrir morð á tveggja mánaða gömlu barni sínu. Konu þess- ari var sleppt í júní á þessu ári en mál hennar þykir furðu- legt og vekur enn deilur í Ástralíu. Að sögn ríkir tals- verð óánægja með að Streep skuli leika aðalhlutverkið því að fjölmargar ástralskar leik- konur eru atvinnulausar og fá ekkert að gera. Rachel Ward, leikkonan fallega, er ekki mik ið fyrir samkvæmislífið. Þeim tíma sem hún er ekki að leika eyðir hún á afskekktum bú- garði sínum með eiginmanni sínum, Bryan Brown. Þar sinnir hún störfum eins og venjuleg bóndakona, mjólkar kýrnar og sér um hænsn og sauðfé að auki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.