Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1987, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1987.
13
Meiming
Eitt af góðskáldum
Norðurlanda
Bo Carpelan
Ferð yfir þögul völn
Ljóðaþýöingar Njaröar P. Njarövik
Urta gefur út, 1987
Höfundurinn er fmnsk-sænsku-
mælandi skáld, f. 1926. Hann er
mikill menntamaöur og fær á s\döi
ýmissa tungumála, eins og þýöingar
hans á ljóðum frá ýmsum málum
sýna. Eftir hann hafa komið út slík-
ar sýnisbækur. Og hann er ritfær á
finnska tungu. Ekki veit ég hvort
hann hefur alist upp viö hana og er
jafnvígur á bæöi mál lands síns.
Carpelan hefur gefiö út mikið úr-
valssafn finnskumælandi ljóö-
skálda, einkum hinna yngri minnir
mig.
Bókmenntir
Jón úr Vör
Eg man ekki heldur, því ég las
bókina erlendis þegar hún kom út
fyrir nokkrum árum, hvort hann
þýddi öll kvæðin sjálfur, þó hálf-
minnir mig það. Skáldskapur hrein-
finnskra ljóðskálda virtist mér oft
æði myrkur og stundum eins og úr
öðrum menningarheimi, að ég ekki
segi beint úr öðrum heimi en hinna
sænskmæltu landa þeirra. Ekki ætla
ég í þessu sambandi að gefa Bo Carp-
elan nokkra þýðandaeinkunn, til
þess ekki fær.
Eins og allir bókmenntamerm vita
hlaut Bo Carpelan bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs 1977 og þótti
vel undir þeim standa. Síðan hefur
hann komið hingað til lands og ýms-
ir rithöfundar hér kynnst honum.
Þetta er alúðlegur maður.
Dimmar og bjartar vistarverur
Ég skírði verðlaunabók hans þegar
í huga mér er ég hafði lesið hana:
Dimmar og bjartar vistarverur. Og
hefði einhveijum komið til hugar að
biðja mig að reyna að þýða hana
hefði ég líklega strax lagt út í það.
En það datt auðvitað engum í hug
og ég ónýtur við að bjóða mig fram
til eins eða neins. En ég las bókina
með ánægju. Kannski mætti segja
með nokkurri sjálfsánægju því ég
fann til töluverös skyldleika milli
okkar í hugsun og framsetningu og
ályktaði sem svo að báðir hefðu
nokkuö lært af sama fólki.
Nú hefur Njörður P. Njarðvík,
háskólakennari og áður menningar-
sendiherra okkar hjá nokkrum
frændþjóðanna, þýtt btið úrval ljóða
Bo Carpelans og gefið út í snoturri
bók, að öllu leyti vel gerðri. Njörður
Bo Carpelan. Ljósm. E. Ól.
er, eins og allir vita, vandvirkt skáld
sjálfur og ferst þetta verk vel úr
hendi. Dæmi:
Víðáttumeira en hafið, dýpri
en himingeimurinn
þessi kveðja er sögð er þú kemur
aftur
og kuldinn í grasinu.
Kvæðið heitir Kveðja. Síðar nefni
ég annað.
Börn seinna stríðsins
Sagt er í formála að í verkum höf-
undarins þyki gæta áhrifa frá
sænskum módemistum fimmta ára-
tugarins. Annað væri undarlegt. En
sem betur fer minni en ætla mætti.
Þeir voru böm seinna striðsins, inni-
lokunaráhrifanna og ógna liðins
tíma. Mér persónulega fannst þeir
vera á villigötum, of fljótt og að
óþörfu horfið frá skáldatíma öreiga-
stefnu höfundanna sem kenndir
vom við áratuginn á undan. Tvö
helstu ljóðskáld Finna vora þar ein-
mitt helstu boðberamir ásamt Harry
Martinson og Artur Lundkvist með-
al Svíanna, svo að aðeins helstu
mennimir séu nefndir.
Mér tft mikillar gleði sé ég að Bo
Carpelan hefur ekki síður lært af
þessari eldri ftjóu og menneskjulegu
kynslóð. Sú næsta var þýsk-franskt,
spænsk menntað fólk, mennta-
mannalið sem kom fram fyrir alvöra
rétt eftir seinna stríð: formalistar og
útlenskusnobbarar. Eða svo komu
þeir mér fyrir sjónir þegar ég kom
til Svíþjóðar rétt eftir stríðið.
Ósjálfstæði eyðilagði fljótt af-
bragðsmann eins og Harry Martin-
son og gerði Artur Lundkvist að
undalegri fígúru svo ekki sé meira
sagt. Báðir komust í sænsku Aka-
demíuna og sá síöamefndi beindi
athygli Svía að fjarlægum bók-
menntum sem enginn þekkti og
hefur varla áttað sig á enn.
Dæmi um þetta er snobbbók-
mennta- og þýðingarstefna Guð-
bergs og Thors sem þó era báðir
hæfileikamenn af sjáifum sér en
hafa vafasöm áhrif á stefnu okkar
nú og verða líklega aldrei sjálfir þau
skáld sem efhi þeirra standa til.
Á villigötum
Nútíma ljóðlist er nú á villigötum
meiningarlausrar eftiröpunar nær
aldargamals súrrealisma sem átti
rétt á sér þá en síst af öllu á tíma
atómshættu og þjóðaslátrana á svo-
kölluðum friðartímum, sem við
tökum blindir þátt í undir merkjum
Ameríkumanna, Breta og Rússa.
Þetta sem ég hér segi á við um ljóð-
list Svía, Dana, okkar og að nokkra
leyti Finna og Norðmanna. Síðan
þessi vitleysa hófst era nú liðnirfjór-
ir áratugir rúmir og ekki sjást
nokkur teljandi batamerki. Ekki
bætir úr skák hér dálæti ritdómara
á ljóðagerð okkar síðustu ára sem
minnir fremur á krossgátur en
kvæði, ætla þó ekki að gera lítið úr
lestri orðþrauta, það dund á fullan
rétt á sér, viðheldur orðminni og
vissri tegund menntunar. En þessi
ljóðagerð getur orðið ungu fólki dýr,
lesendum ekki síður en skáldum, og
sýnir lærdómsfólk okkar í bók-
menntum í óþarflega furðulegu ljósi.
Þökk fyrir bók Bo Carpelans. Hér
kemur annað dæmi úr henni, bæði
valin af Trandahófi. Kvæðið heitir
Sumamótt:
Nú hljóðnar allt í nánd við rúm
og himin,
gluggar opnast, stjömum er
stráð
yfir þögul tré
í eldhúsinu skelfur ísskápurinn
ákaft.
AUt er snurfusað, aðeins tvö glös
með myrkri
hjá björtum glugganum.
Það er þögn, eins og hönd, opin,
ósjálfráð
á hvítu líni, þama, úti í dimm-
unni.
Þú vaknar við rödd og veist ekki
hvar þú átt heima.
Jón úr Vör
LAUS
iV
ALUR
Iréttaröð
Allir í rétta röð.
Nýtt og fullkomiö tölvustýrt símaborö tryggir srtögga sím-
svörun og afgreiðslu eftir réttri röð. Þegar þú hringir i Hreytil
og heyrir lagstút, veistu aö þú hefúr náö sambandi viö
skiptiboröið og færð afgreiöslu von bráðar.
Hafnarfjör&ur, Gar&abær og Mosfellssveit.
Höfum opnað nýjar biðstöðvar við Ásgarð i Garðabæ,
Esso-stöðina við Reykjavíkurveg i Hafnarfirði og við Þverholt
í Mosfellssveit. Þetta tryggir enn betri þjónustu.
HöfuAborgarsvæði& er nu eitt gjaldsvæði.
Nú getur Hreyfill ekið þér frá Laxnesi
að Bessastöðum eða frá Austurvelli í Straumsvík
á innanbæjartaxta Reykjavíkur
\EM3ir7
68 55 22
Nauðungaruppboð annað og síðara, á eigninni Sjávargötu 8, Bess., þingl. eigandi ísak V. Jóhannsson, en talinn eigandi Eirikur Finnsson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 23. október nk. kl. 15.45. Uppboðsbeiðend- ur eru Árni Einarsson hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Eagert Ólafsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Magnús M. Norðdahl. hdl., Olafur Axelsson hrl., Tómas Þorvaldsson hdl„ Valgarður Sigurðsson hdl. og Þórunn Guðmunds- dóttir hdl. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð annað og síðara, á eigninni Laufási 4, n.h., Gkst., þingl. eigandi Gunnar Þór isleifsson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 fimmtudaginn 22. október nk. kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru Útvegsbanki íslands, Veðdeild Landsbanka íslands og Gjaldheimtan í Garðakaupstað. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað
Nauðungaruppboð annað og síðara, á eigninni Miðbraut 2, Seltjarnarnesi, þingl. eigandi Hjört- ur Hjartarson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 23. október nk. kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Guðjón Á. Jónsson hdl., Jón Ólafsson hrl., Ólafur Áxelsson hrl. og Sveinn Skúlason hdl. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi
Nauðungaruppboð annað og síðara, á eigninni Smiðsbúð 10, Garðakaupstað, þingl. eigandi Friðrik Hróbjartsson, en talin eigandi Burstagerðin hf„ fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 23. október nk. kl. 14.15. Uppboðs- beiðandi er Gjaldheimtan í Garðakaupstað og innheimta ríkissjóðs Bæjarfógetinn í Garðakaupstað
Nauðungaruppboð annað og síðara, á eigninni Skerjabraut 5A, kj„ Seltjarnarnesi, þingl. eig- andi Sigurður Einarsson og fl„ en skuldari Elvar Þór Þorleifsson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 23. október nk. kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Reynir Karlsson hdl. og Veðdeild Landsbanka Is- lands. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi
Nauðungaruppboð annað og siðara, á eigninni Aratúni 26, Garðakaupstað, þingl. eigandi Jón S. Magnússon, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 23. október nk. kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan i Garða- kaupstað, Hlöðver Kjartansson hdl„ innheimta ríkissjóðs, Jón Þóroddsson hdl„ Ólafur Gústafsson hrl„ Sigurður G. Guðjónsson hdl„ Skúli Bjarnason hdl. og Veðdeild Landsbanka Islands. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað
Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Miðkoti 3, Þykkvabæ, fer fram i skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli, miðvikudaginn 21. okt. 1987 kl. 16.00. Uppboðsbeiðandi er Jón Hjaltason hrl. Sýslumaður Rangárvallasýslu
Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Nestúni 8A, Hellu, þingl. eign Valdimars T. Ásgeirssonar, fer fram i skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli, miðvikudaginn 21. okt. 1987 kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi er Iðnaðarbanki Islands. Sýslumaður Rangárvallasýslu
Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Bergöldu 1, Hellu, þingl. eign Sigurðar Haraldssonar, fer fram í skrifstofu embættisins, Austun/egi 4, Hvolsvelli, miðvikudaginn 21. okt. 1987 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Jón Ing- ólfsson hdl„ Baldur Guðlaugsson hrl„ Steingrimur Þormóðsson hdl. og Búnaðarbanki Islands. Sýslumaður Rangán/allasýslu
Nauðungaruppboð annað og siðara á fasteigninni Aðalstræti 41, Patreksfirði, þingl. eign Gunn- ars Snorra Gunnarssonar og Erlu Þorgerðar Ólafsdóttur, fer fram að kröfu Samvinnubanka íslands hf. og Veðdeildar Landsbanka Islands í skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, fimmtudaginn 22. okt. 1987 kl. 13.00. Sýslumaður Barðastrandarsýslu
Nauðungaruppboð annað og síðara á jörðinni Neðra-Bæ í Bíldudalshreppi, þingl. eign Kirkju- jarðasjóðs, fer fram að kröfu Byggðastofnunar og Stofnlánadeildar land- búnaðárins í skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, fimmtudag- inn 22. okt. 1987 kl. 11.00. Sýslumaður Barðastrandarsýslu
Nauðungaruppboð annað og siðara á fasteigninni hraðfrystihús á Vatneyri, Patreksfirði, þingl. eign Vatneyrar hf„ fer fram eftir kröfu Gunnars Sæmundssonar hrl„ Bruna- bótafélags islands hf„ Andra Árnasonar hdl„ Guðmundar Ágústssonar hdl„ Skúla Pálssonar hrl„ Fiskveiðasjóðs islands, Byggðastofnunar, Gunn- ars Guðmundssonar hdl„ Hallgríms B. Geirssonar hrl„ Sveins Skúlasonar hdl„ Landsbanka Islands, Guðmundar K. Sigurjónssonar hdl. og Garðars Garðarssonar hrl. í skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, fimmtu- daginn 22. okt. 1987 kl. 10.00. Sýslumaður Barðastrandarsýslu
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 35., 47. og 50. tbl. Lögbirtingablaðsins á fasteigninni Lækjarbakka, Tálknafirði, þingl. eign Herþerts Guðbrandssonar, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka islands hf. í skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, fimmtudaginn 22. okt. 1987 kl. 14.30. Sýslumaður Barðastrandarsýslu