Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1987, Page 40
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
^litstjörn - Auglýsingar - Ás 3krift - Dreifing: Simi 27022
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1987.
Hólmatíndur, Eskifírði:
Fékk afburða
gott verð í
Bremerhaven
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Skuttogarinn Hólmatindur, SU 220,
seldi ísfisk í Bremerhaven í gær, alls
152 tonn, fyrir 10.543 þúsund krónur.
Meðalverð fyrir kílóið reyndist 69,31
króna sem er afburða gott verð enda
það hæsta sem fengist hefur í ís-
lenskum krónum það sem af er
árinu. Uppistaða aflans var karfi og
ufsi.
Verðið, sem fékkst fyrir karfann,
var rúmar 73 krónur en um 56 krón-
ur fengust fyrir ufsann. Skipstjóri á
Hólmatindi í þessari ferð var Árbjörn
Magnússon.
Að sögn Ara Halldórssonar hjá
Lubbert, umboðsaðila togarans í
Þýskalandi, er þetta eitthvert allra
hæsta verð sem fengist hefur fyrir
skipsfarm af ísfiski í Þýskalandi og
er raunar ótrúlega hátt miðað við þá
sérstöku markaðsaðstöðu sem verið
hefur þar í landi í kjölfar ormafársins
sem þar greip um sig.
Ari taldi þó að menn ættu að var-
ast að sprengja markaðinn með of
miklu framboði þar sem hann væri
afar viðkvæmur um þessar mundir
en tók fram að full ástæða væri til
bjartsýni með framtíðarverð, sér-
staklega með tilliti til jákvæðrar
fjölmiðlaumfjöllunar upp á síðkastið
og matvælasýningarinnar „Anuga“
í Köln.
Bjórinn á Alþingi
Búist er við bjórfrumvarpi á Al-
þingi á næstu dögum. Sjálfstæðis-
mennimir Jón Magnússon og Geir
H. Haarde eru að safna þingmönnum
úr öllum flokkum til að flytja með
sér frumvarp um að heimilt verði að
selja áfengt öl í verslunum ÁTVR.
Eftir þingkosningar síðastliöið vor
kannaði DV afstöðu þingmanna til
bjórsins. Meirihluti reyndist þá
styðja hann.
Af 63 þingmönnum kváðust 34
meðmæltir bjórnum en 17 andvígir.
10 þingmenn voru óákveðnir en í 2
þingmenn náðist ekki. -KMU
ÞROSTUR
68-50-60
VANIR MENN
- segir hana reyna að stela af sér heilsusaltsuppfinningu
Danskur uppfinningamaður, verkefni íyrir heimsmark- hafa bolraagn til þess að kaupa Sjó- en sambærileg vörumerki i Dan-
Gunnar Sundien hjá Sunpol Con- að. efnavinnsluna eða gerast eignarað- mörku.
sultAPS.hefurskrifaðiðnaðarráð- Daninn hefur þegar sótt um iliaðhenni. ' Samkvæmt skeyti Danans hefúr
herra og fjármálaráðherra og einkaleyfi á uppfinningu sinni í að Ljóst er af skeyti, sem Daninn hann átt í viðræðum við forráða-
óskað eftir viðræðum um kaup á minnsta kosti 15 löndum oghefur sendi DV varöandi þetta mál, að menn Sjóefnavinnsluimar og
Sjóefnavinnslunni hf. þegar fengið það samþykkt í Dan- hann ætlar aö njóta uppfinningar Pharmaco siðan í janúar 1986, án
Hann hefur jafnframt sakað forr- mörku. Hann býst við að fá einka- sinnar. Hann segist hafa áhuga á árangurs. Nýjustu upplýsingar
áðamennfyrirtækisinsumtilraun- leyfi viðurkennt hér í mars. Að framleiðslu hér en semjist ekki um segja að Pharmaco sé dottið út úr
ir til þess að stela uppfinningu sögn Sigurgeirs Siguijónssonar hanatakihannuppþráðinnannars dæminu um endurstópulagningu
sinni á framleiðslu heilsusalts en hæstaréttarlögmanns, sem er um- staðar. Hannhefur þegarskráðhér Sjóefnavinnslunnar hf.
það er tahð geta orðið framleiðslu- boðsmaður Danans, telur hann sig vörumerkin Sagasalt og Sagavatn, -HERB
Húsnæðislán skert:
180 fermetra
íbúð of stór
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hyggst leggja fyrir
Alþingi í dag stjómarfrumvarp um
breytingar á húsnæðislöggjöfinni.
Þingflokkar Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks hafa hins vegar
fyrirvara um viss efnisatriði frum-
varpsins.
Með frumvarpinu er ætlunin að
tryggja þeim forgang sem mesta þörf
hafa fyrir húsnæði.
Gert er ráð fyrir að Húsnæðisstofn-
un verði veitt heimild til að skerða
lánsrétt þeirra sem eiga fleiri en eina
íbúö eða skuldhtla íbúðareign sem
er stærri en 180 fermetrar brúttó.
Ennfremur er heimild til að láta fjöl-
skyldustærð hafa áhrif á forgangs-
röð.
Þá verður ríkisstjórninni veitt
heimild til að ákveða mismunandi
vexti eftir lánaflokkum. -KMU
Landsbankinn:
Allt kjötið fundið
„Það er von á lokatölum í dag, eins
og sagt er í kosningum, og aht bend-
ir til þess að birgðfr af kindakjöti séu
þær sem sláturleyfishafar töldu. Þar
með er allur ótti um nærri 700 tonna
vöntun úr sögunni," sagði Helgi
Bachmann, forstöðumaður hagdehd-
ar Landsbankans, í morgun.
„Skýringar á þessum ótta manna
eru margar. Bankamir eru að fram-
kvæma þessa talningu í fyrsta sinn
og þetta er töluvert flókið verkefni
þótt við ujótum þjálfaðra eftirhts-
manna okkar sem fylgjast með
fiskbirgðum viðskiptavinanna. Það
hafa komið í ljós ýmis mistök í taln-
ingunni, misskhningur þar sem
sumir áhtu að aðrir væru að telja og
ekkert var talið og fleira í þeim dúr.
Við höfum allir lært mikið af þessu
og höfum núna langtum betri yfirsýn
yfir allar þær krókaleiðir sem kjötið
fer um,“ sagði Helgi.
Birgðastöðvar kindakjöts munu
vera 60-70 og síðan er jafnan talsvert
magn á leið mihi staða, „á ýmsum
stöðum í pípunum" eins og það var
orðað. -HERB
Alain Prost var hálfþreytulegur eftir átökin í Mexikó en brosti þó framan í
Ijósmyndara DV í anddyri Hótel Loftleiða. DV-mynd S
Heimsmeistari á íslands
Margfaldur heimsmeistari og einn
frægasti kappakstursmaður heims,
Frakkinn Alain Prost, hafði viðkomu
hér á landi í nótt.
Kappinn var á heimleið eftir að
hafa tekið þátt í formúlu 1 kapp-
akstri í Mexíkó um helgina. Þar hafði
hann ekki árangur sem erfiði en
Englendingurinn Nigel Mansell sigr-
aði þar en Prost lenti í árekstri og
varð að hætta keppni. Hann er nú í
4. sæti í keppninni um heimsmeist-
aratitihnn.
Prost sagöist næst keppa í Japan
eftir hálfan mánuð. Hann kvað sér
lítast vel á það sem hann hafði séð
af landinu en átti nú ekki von á því
að eiga eftir að keppa hér þó hann
væri vissulega áhugamaður um rah.
LOKI
Er þetta ekki bara ný
dönsk nýlendustefna?
Veðrið á morgun
Snjókoma
og slydda
fyrir norðan
Á morgun verður norðanátt um
vestanvert landið en breytileg átt
austanth. Snjókoma eða slydda
verður norðanlands. Rigning á
Austurlandi en þurrt á Suðurlandi.
Hlýjast verður suðaustanlands, 4
th 7 stiga hiti, en kaldast á Vest-
fjörðum, um eða rétt undir frost-
marki.
Víðir kaupir
Kjöt og fisk
Víðisbræður, Matthías og Eiríkur
Sigurðssynir, sem reka Verslunina
Víði í Austurstræti, hafa keypt mat-
vöruverslunina Kjöt og fisk í Breið-
holti. „Við keyptum verslunina fyrir
síðustu helgi, þessi kaup bar brátt
að,“ sagði Eiríkur Sigurðsson við DV
í morgun.
Þeir Víðisbræður byggðu stór-
markað í Mjóddinni í Breiðholti fyrir
nokkrum árum en seldu KRON
verslunina fyrir ári. Nú er þar rekin
verslunin Kaupstaður. „Við erum
komnir aftur í Breiðholtið enda eru
hér góðir kúnnar,“ sagði Eiríkur.
-JGH