Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Side 3
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1987.
3
DV
Kókaínmálið:
Taka út sína
refsingu hér
Fíkniefnalögreglan kannar nú
meðal annars hugsanlega aðild ís-
lendinga að kókaínmálinu. Einnig er
verið að afla upplýsinga um fólkið
erlendis frá. Eins og kunnugt er
handtók lögreglan brasilísk hjón
með 450 grömm af kókaíni. Þetta er
langmesta magn af kókaíni sem
fundist hefur hér á landi.
Áður höfðu 20 grömm mest fundist
í einu. Var það fyrir tveimur árum.
í það skipti var líka um að ræða par
frá Brasilíu. Ekki er tahð að tengsl
séu á milli þessara mála.
Brasilíska fólkið, seni tekið var fyr-
ir tveimur árum, tók út sína refsingu
hér. Var því vísað úr landi strax aö
lokinni afplánun. Amar Jensson
sagðist gera ráð fyrir að sömu vinnu-
brögð yrðu í því máh sem nú er í
rannsókn.
-sme
Hafskipsmálið:
Tala verður við
alla aðlla á ný
Jónatan Þórmundsson, sérstakur
saksóknari í gjaldþrotamáli Hafskips
og málum sem tengjast því, sagði í
gær að rannsókn málsins væri hafin
á ný. Hann sagðist gera ráð fyrir því
að ræða þyrfti við alla þá aðila sem
rætt var í fyrri rannsókn og sjá hvort
þeir hefðu frekari upplýsingar. Fyrri
rannsókn verður endurmetin. Hann
sagði að réttargæslumenn sakbom-
inga legðu áherslu á að það yrði gert.
Hann sagði að fyrir lægju gögn úr
fyrri rannsókn og yrði áfram stuðst
við þau. Jónatan sagði að mikið
vinnuálag fylgdi rannsókninni, bæði
hjá sér og sínu samstarfsfólki og eins
hjá starfsmönnum RLR. Allir væm
ákveðnir að vinna að málinu í mik-
ihi og góðri samvinnu.
Jónatan segir að þaö sé eins og spá
í veður vikur fram í tímann að segja
til um hvenær málinu komi til meö
að ljúka. Til að nefna einhvern tíma
sagðist hann vonast th að það yrði á
næsta ári.
-sme
Vatnsendi fyrir
lokuðum dyrum
300 ára gömul deila til umræðu
Fuhtrúar Reykjavíkur og Kópa-
vogs, sem hittust á mánudag um
svokahað Vatnsendamál, bundust
þagnarheiti og máhð er því rætt fyr-
ir lokuðum dyram.
Rétt fyrir fundinn var haft eftir
Magnúsi Óskarssyni borgarlög-
manni að hann skildi ekkert í æsingi
Kópavogsmanna út af 300 ára gam-
alh deilu um landamerki.
Eins og rakið hefur verið samdi
borgin við bóndann á Vatnsenda um
kaup á 41 hektara af landi jarðarinn-
ar til þess að ljúka áralangri deilu
um bætur vegna vatnslagnar yfir
jörð hans til Kópavogs. Landið er
aðahega efst við Elhðaámar og er
mest innan bæjarmarka Kópavogs
sem hefur forkaupsrétt. Borgin ósk-
aði eftir því að Kópavogsbær félli frá
honum.
Bæjarráð Kópavogs taldi að ef
ganga ætti að kaupum borgarinnar
þyrfti að hreinsa landamerki milh
sveitarfélaganna víðar og jafna
ágreining um nýtingu Fossvogs. Var
skipuð þriggja manna nefnd th þess
að ræða við borgaryfirvöld um þessi
mál öh áður en beiðni borgarinnar
yrði svarað.
Borgarlögmaður er í forsvari fyrir
borgina í máhnu og sagði hann DV
að aðilar væru sammála um að segja
ekki orð viö fjölmiðla um máhö fyrr
en greiddist úr því. Kristján Guð-
mundsson, bæjarstjóri í Kópavogi,
gaf hið sama í skyn.
Landamerki mhli þessara sveitar-
félaga era mjög löng því Kópavogur
á land frá Fossvogi og aht upp um
Sandskeið í Hengh. Mestur er ágrein-
ingurinn um merkin í byggö og næst
byggðinni og er vitnað á víxl í ótal
heimildir jafnt frá þessari og næst-
liðnum öldum.
-HERB
Hasssmygl:
Með hass
Tveir ungir menn vora teknir á
Keflavíkurflugvehi meö 560 grömm
af hassi. Mennirnir voru að koma frá
Amsterdam þegar þeir voru teknir.
innanklæða
Annar þeirra hafði hmt hassið á
sig innanklæöa. Arnar Jensson hjá
fíkniefnadehd lögreglunnar sagði að
máhð væri að fullu upplýst. -sme
Ók 85 km of hratt
Lögreglan í Hafnarfírði tók öku-
mann á 135 khómetra hraða á
Reykjavegi í Mosfehsbæ í fyrradag.
A Reykjavegi er leyfður 50 khó-
metra hraöi. Ökumaðurinn verður
því að sætta sig við að ferðast með
strætisvögnum næstu vikumar þar
sem hann var sviptur ökuleyfí sínu
samstundis.
Fréttir
Þrir góðir saman á fundi undirbúningsnefndarinnar um mótun fiskveiðistefnu, Þorsteinn Gíslason fiskimálastjóri
og alþingismennirnir Matthías Bjarnason og Skúli Alexandersson. DV-mynd BG
Mótun fiskveiðistefnunnar:
Komnir í tímahrak
Ráðgjafarnefndin um mótun nýrr-
ar fiskveiðistefnu hélt enn einn
fundinn í gær en htið sem ekkert
hefur miðað í störfum hennar th
þessa. Segja þeir sem setið hafa fund-
ina að mikih tími fari í ræðuhöld og
umræður en minni í að ganga frá
einhveijum málum.
Matthías Bjamason alþingismað-
ur, sem sæti á í nefndinni, sagði í gær
að mjög mikil vinna væri enn eftir í
nefndinni. Hann sagði að menn væru
að komast í tímahrak vegna þess aö
eftir væri að fjaha um máhð á Al-
þingi og sú póhtíska nefnd, sem fjalla
á um fiskveiðistefnuna, hefur enn
ekki verið skipuð.
Skúh Alexar.dersson alþingismað-
ur á líka sæti í nefndinni. Hann sagði
i samtali við DV í gær aö mál væra
stutt á veg komin í undirbúnings-
nefndinni en mikih tími hefði farið í
ræðuhöld og umræður á fundum
hennar. Hann sagði að htið af
ákveðnum og útfærðum thlögum
lægi enn fyrir nefndinni en meira af
alls konar hugmyndum. Skúli sagði
að ef sjónarmið þeirra, sem ákveðið
hafa stutt núverandi kvótakerfi,
yrðu ofan á mundi hthla breytinga
að vænta á fiskiveiðistefnu næsta
árs. En ef sjónarmið hinna yrðu ofan
á gætu breytingar orðið miklar.
Matthías Bjarnason sagðist viss
um að umtalsverðar breytingar yrðu
gerðar á fiskveiðistefnu næsta árs
miðað við það kerfi sem nú ríkir.
Hvoragur þeirra vhdi spá nokkra
um það hvort hugmyndir Þrastar
Ólafssonar um að skipta bolfiskkvóta
mihi vinnslu og veiða næðu fram að
ganga. Matthías Bjarnason benti
hins vegar á að fyrst th stæði að setja
kvóta á rækjuveiðarnar væri mikh
vinna framundan að ákveða með
hvaða hætti það yröi gert og hvernig
skipting hans ætti að vera.
-S.dór
Nuddskemill
Loksins er kominn fótskemill sem er ætlaður fyrir kyrrsetufólk á skrif-
stofum.
Skemillinn er auðveldur í notkun og hljóðlátur. Þú kveikir á nuddskeml-
inum með fótunum og lætur hann síðan dekra við iljarnar og þú finnur
muninn um kvöldið.
-sme