Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1987.
9
Markaðurinn að
enduriieimta tapið
Verðbréfamarkaðurinn i New York hefur rétt snarlega við.
Símamynd Reuter
Ólafur Amaison, DV, New Yorlc
Æðið á Wall Street heldur áfram.
Verðbréf rjúka upp og gærdagurinn
varð annar metdagurinn í röð. Dow
Jones vísitalan hækkaði um 186,84
stig og endaði í 2027,85 stigum. Hefur
markaðurinn nú endurheimt nær
þrjá flmmtu hluta tapsins frá því á
mánudag.
Það hefur því sýnt sig að með réttri
stjómun í peningamálum er hægt að
afstýra því að hrun á verðbréfamark-
aðnum sé óstöðvandi og hljóti að
koma af stað kreppu.
Afleiðingar hrunsins á mánudag á
fjármálaheiminn koma nú betur í
ljós með degi hverjum. Mörg fyrir-
tæki urðu illa úti. í gær var tilkynnt
að þremur verðbréfafyrirtækjum,
sem urðu sérstaklega illa úti á mánu-
dag, yrði framvegis bannað að versla
með verðbréf á Wall Street.
En þrátt fyrir að aUt virðist
blómstra á verðbréfamarkaðnum í
Kjölfar hrunsins eru þó enn hættu-
merki á lofti. Bandaríska þingið telur
meginverkefnið nú vera að lækka
fjárlaga- og viðskiptahallaim. Það
vilja þingmenn gera með skatta-
hækkunum og höftum. Hætt er við
að það geti haft alvarlegar afleiðing-
ar fyrir verðbréfamarkaðinn ef
Reagan forseti felst á skattahækkan-
ir nú, sérstaklega þar sem sveiflum-
ar á verðbréfamarkaðnum eru nú
meiri en nokkru sinni fyrr.
Það veldur mönnum nokkrum
áhyggjum hve hækkimin á Dow Jo-
nes vísitölunni hefur verið mikil frá
því á mánudag. Vissulega er jákvætt
að takast skyldi að stöðva hrunið en
svona mikil hækkun getur valdið
óstöðugleika og ýtt updir spákaup-
mennsku. Ef svona mikil hækkun
heldur áfram næstu daga er hætt við
að væntingar skapist um að markað-
urinn hljóti að lækka aftur. Slíkt
mun nær örugglega valda þvi aö
söluæðiö mun grípa um sig og mark-
aðurinn hrynja á nýjan leik. Hvort
það hrun yrði eins gífurlegt og á
mánudag er ómögulegt að segja til
um. Hitt er víst að mun erflðara yrði
að stöðva slíkt hrun vegna þess hve
menn yrðu hræddir við óstöðugan
markaðinn.
Efhækkunin á Dow Jones minnkar
1 dag og á morgun, án þess þó að
lækkun verði á visitölunni, má búast
við að hlutimir taki á sig eðlilega
mynd. Ef hins vegar markaðurinn
hækkar í dag og lækkar á morgun
gæti skapast skelfing sem myndi
hafa alvarlegar afleiðingar í næstu
viku.
Seðlabanki Bandaríkjanna hefur
skilað sínu hlutverki til að stöðva
hrunið á Wall Street með sóma. Að-
gerðir hans nú verða í framtíðinni
bomar saman við aðgerðir sama
banka eftir hmnið 1929 og notaðar
sem kennslubókardæmi um það
hvemig skynsamleg stjómun í íjár-
málum getur snúið við hruni á
verðbréfamarkaðnum. Öfugt við það
sem gerðist 1929 er seðlabankinn jók
á hmnið og kom af stað heims-
kreppu.
Bandaríski hagfræöingurinn Ro-
bert Solow, sem í gær hlaut nóbels-
verðlaunin í hagfræöi 1987, hefur í
vikunni lýst því yflr aö hann telji
fjárlagahallann og lántökur banda-
ríska ríkisins orsök hmnsins á
mánudag. Segir hann áhyggjur fjár-
málamanna af áhrifum fjárlagahall-
ans á verðbréfamarkaðinn hafa
valdið því að þeir ákváðu að koma
sér út af markaðnum.
George Stigler, sem hlaut nóbels-
verðlaunin í hagfræði fyrir nokkram
ámm, segir þessa skýringu út í hött.
Bendir hann á að verðbréfamarkað-
urinn hafl verið í fimm ára sam-
felldri uppsveiflu á meðan fjárlaga-
halli hafi stóraukist. Einnig hafi
markaðurinn rétt svo snarlega við
eftir hrnnið að það bendi síður en svo
til þess aö menn hafi áhyggjur affjár-
lagahallanum.
Nóbelsverðlaun Solows nema 350
þúsund dollumm. Vegna breyttra
skattalaga í Bandaríkjunum verður
í ár í fyrsta skipti í sögunni að greiða
skatt af verðlaununum. Þar kemur
vel á vondan. Solow hefur nefnilega
haldið því stíft fram að nú þurfi að
hækka skatta til að draga úr fjárlaga-
hallanum.
Verðbréfamarkaðurinn í London
var sterkur í gær. í morgun hækk-
uðu verðbréf í Tokýo ennfremur
mikið í verði. Það er ómögulegt að
segja meö vissu hvað verður á Wall
Street í dag. Ástandið annars staðar
í heiminum bendir til þess að upp-
sveiflan haldi áfram. Er jafnvel
hugsanlegt að allt tapið frá því á
mánudag verði horfið fyrir helgi.
Eins og áður sagði þarf það ekki að
vera jákvætt því það gæti ýtt undir
spákaupmennsku.
Umsjón:
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir
°g
Halldór K. Valdimarsson
Sextán manns hurfu
Þann 24. ágúst 1980 hurfu sextán
talsmenn verkalýðs í Guatemala,
þeirra á meðal ellefu félagar úr
verkalýðshreyfingu landsins og
fimm nemendur í verkalýðsfræð-
um við háskólann í San Carlos.
Hvarf þeirra bar að með þeim hætti
aö hermenn og lögregla réðust inn
á ráðstefnu sem hópurinn sat og
handtóku mennina sextán. Hefur
ekki til þeirra spurst síðan.
Framkvæmdastjóri ráðstefnu-
miðstöðvarinnar í Emaus, þar sem
fundur sextánmenninganna var
haldinn, Jose Luis Pena Soberanis,
var svo numinn á brott að kvöldi
dagsins sem hópurinn var hand-
tekinn. Lík hans fannst síðar á
víðavangi.
Þeir sextán menn, sem saknað
hefur verið frá 24. ágúst 1980 og
talið er að sitji í fangelsi án ákæm
eða réttarhalda og án þess að fá að
njóta lágmarks mannréttinda, eru
eftirfarandi: Gustavo Adolfo Bejar-
ano Oscal, Rafael Enrique Giron
Merida, Alfonso Obdulio Molina
Merida, Jordan Gilberto Salazar
Urizar, Augusto Yacht Ciriaco,
Germónimo Alberto Moreno Pa-
lencia, Guillermo Turcios Garcia,
Juan Guerra Castro, Edgar de la
Cruz, Juho César Perez Galvez,
Rosario Leal, Nery Robledo Esp-
inoza, Adalberto Juarez, José Ruiz,
Ilena Minera og Victor Herrera
Castillo.
í tilefni af Amnesty-vikunni, sem
nú stendur yfir, fer Amnesty Int-
emational þess á leit aö fólk skrifi
rannsóknardómara, sem hæstirétt-
ur Guatemala hefur skipað, og óski
eftir rannsókn á mannshvörfun-
um. Skriflð til: Lic. Olegario
Antonio Labbé Morales, Juez Ejec-
utor de Exhibiciones Personales, 4
to Nivel, Torre de Tribunales,
Centro Civico, zona 1, Guatemala,
Guatemala.
Útlönd
Tfu ára gamall þeldökkur dreng-
ur var hálshöggyinn, svartur
unglingur var stungínn til bana og
hundrað sjötíu og þrír vom hand-
teknir í bænum Pietermaritzburg i
Suður-Afríku í gær, að sögn lög-
reglunnar þar.
Að sögn lögreglunnar vora það
flórir þeldökkir menn sem myrtu
drenginn og særðu bróður hans.
Það mun einnig hafa veriö hópur
þeldökkra manna sem myrti ungl-
inginn.
Ungur sovéskur ballettdansari
baðst í síðustu viku hælis sem póh-
tískur flóttamaður í Bandaríkjun-
um. Dansarinn, sem heitir Andrei
Ustinov, var meðal dansara
Moskvubahettsins, en hópur frá
ballettinum var i síöustu viku á
sýningaferðalagi um Bandaríkin.
Ustinov er nú staddur í Dahas þar
sem hann hélt fréttamannafund í
gær.
Skipalest um flóann í dag
Fjögur bandarisk herskip og tvö ohuflutningaskip frá Kuwait, sem sigla
nú undir bandarískura fána, búa sig nú imdir að sigla ixm á Persaílóa í
dag, að því er haft er eftir heimildum á svæðinu. j
Ohuflutningaskipin eru Ocean City, áttatíu þúsund tonn að stærð, og
Gas King, sem er fjörutiu og sex þúsund toirn, en í fylgd raeð þeira veröa
fjögur bandarísk herskip sem munu veita þeim vernd gegn hugsanlegura
árásura írana.
Tahð var í gær að skipalestin myndi hggja fyrir ankeram við strönd
Sameinuðu arabisku furstadæmanna í nótt og halda inn á flóann snemma
í morgun.
Iranir hafa haft í hótunum um hefndaraðgerðir vegna árásar banda-
ríska flotans á tvo íranska ohuborturna á Persaflóa á mánudag.
Herskipin, sem fylgja ohuskipunum tveim, eru beitiskipið Standley og
freigátumar Hawes, Ford og Raleigh. Fuhur viðbúnaður við árásum verð-
ur um borð í herskipunum og olíuskipunum og að auki hefur öryggisgæsla
verið hert verulega við öh sendiráð og aðrar miöstöðvar Bandaríkja-
manna í Persaflóaríkjum.
Þingið deilir um völd Reagans
Öldungadehd bandaríska þings-
ins hefiir lýst efasemdum vegna
þeirrar steöiu Reagans Banda-
rikiaforseta aö veita ohuskipum frá
Kuwait hervemd á Persaflóa, en
getur ekki komið sér saman um
hvort neyöa eigi forsetann til að
fara aö lögura sera takmarka heim-
ild hans th hemaöarlegra aögerða.
Öldungadehdin samþykkti i gær
tihögu sem staöfestir áframhald-
andi nærveru bandariska flotans á
Persaflóa en lýsir ura lelð efaserad-
um um flotavernd iyrir ohuskip.
Tihaga þessi hefur valdiö óánægju
hjá öhum þingmönnum.
Bofgarsljórar htttast
Borgarstjórar Austur-Berlínar og Vestur-Berlínar hittust í gærkvöldi
og er þetta í fýrsta sinn síöan Berlinarborg var skipt í tvennt, fýrir fjöru-
tiu og tveim árum, sem þessir tveir embætösmenn hittast formlega.
Eberhard Diepgen, borgarstjóri Vestur-Berlinar, og Erhard Krack, borg-
arstjóri Austur-Berlínar, hittust í gærkvöldi viö athöfn i Austur-Berlin.
Athöfnin fór fram í Marienkirche dómkirkjunni og haíði borgarstjóri
Vestur-Berlínar fáriö þangað sem elnstaklingur th þess að taka þátt í
hátíðahöldura vegna 750 ára aftnælis borgarhmar.
Munkar saksóttir
Breskum munkum, sem stunda sölu á biblíum á sunnudögum, hefur
veriö afhent viövörun frá yflrvöldum, þess efhis að meö bókasölunni
bijóti þeir lög Bretlands og megi þeir eiga von á málshöfðun ef þedr láti
ekki þegar af þessu athæð.