Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Síða 16
16
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1987.
Spumingin
Ætlar þú á skíði í vetur?
Kristin Guðmundsdóttir: Já, ég æfi
talsvert og fer í vetur eins og venju-
lega.
Gréta Guðmundsdóttir: Nei, ég er
hestamaður. Held að það sé stór-
hættulegt að vera á skíðum.
Valgerður Hallgrímsdóttir: Það er
aldrei að vita. Hef ekki farið á skíði
nokkur síðastliðin ár. Hins vegar er
maðurinn minn með skíðadellu og
því er hugsanlegt að ég drífi mig.
Sigurður Lúðviksson: Já, fer annað
slagið á veturna.
Tryggvi Eiríksson: Já, ég æfi á skíð-
um og fer mjög mikið á skíði.
Jón Otti Gislason: Hef aðeins einu
sinni stigið á skíði og hef ekki hug
á þvi í bráð.
Lesendur
Augu piparhlunkanna opnast: xiii
l/yr n nynai ^iaunn a oii!
Nýir útgjaldaliðir verða stundum otviða óbreyttu seðlaveski.
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Mikið afskaplega er ég feginn og
heppinn að vera ei giftur þegn á
nýju verðlagsári. Og nú skil ég loks
af hvaöa ástæðu eiginmenn vinna
alla þessa yfirvinnu.
í fyrstu áleit ég og fleiri að slíkur
gjörningur væri til að framfleyta
sér og sínum nánustu í dýrtíðinni
og nýju 10% hækkuninni er dynur
yfir landsins lýð, þvert á fyrri lof-
orð.
En ég og hinir piparhlunkamir
sjáum að hér er ekki nema hálfur
sannleikurinn sagður. Hér 'er m.ö.
o. afskaplega mikill misskilningur
á ferð meðal okkar piparsvein-
anna.
Samkvæmt vísindalegri, og um
leið háalvarlegri könnun viður-
kenndra fræðimanna, kostar
nefnilega heilar tuttugu og sex þús-
und krónur að fá konuna úr
nærhaldinu.
Þannig má ljóst vera, að dýr verð-
ur „Gunna" greyið öll, samkvæmt
verðlagi dagsins í dag.
Hver heilvita maður hlýtur því
að koma auga á að áður nefnd
myrkraverka- eða feimnisathöfn
tekur allvænan slurk úr óbreyttu
seðlaveski. Einkum og sér í lagi ef
áðurgreindar leikfimiæfmgar eru
stundaðar mörgum sinnum í viku,
eins og gjaman tíðkast meðal
þeirra eitilhörðu.
Hæstvirtur fjármálaráðherra:
ekki skera niður fjölskyldubæturn-
ar, „plís“.
Leiðinlegar
myndir
Bíógestur skrifar:
Nú fær fámenn menningarkiíkan
enn eina kvikmyndahátíðina til aö
smjatta á og að sjálfsögðu er allt
svallið borgað af okkur skattborgur-
unum. Að vanda eru sýndar myndir
sem enginn nennir að horfa á, þung-
ar myndir, fullar af heimspekilegum
vangaveltum um lífið og tilveruna.
Svona hátíð er ekki fyrir venjulegt
fólk, myndirnar eru flestar útlensk-
ar, og undrast ég að nokkur dirfist
að bera svona efni á borð fyrir okk-
ur, alþýðu þessa lands.
Nei, við sem vinnum myrkranna á
milli til að borga svona menningar-
sukk hvorki getum né viljum sjá
svona myndir. Þær era flestar „list-
rænar“ en það þýðir að ekki er
nokkur leið fyrir mann að skilja þær
nema maður haíi verið eilífðarstúd-
ent á ríkisstyrk í fjarlægum löndum.
Og svona til að tryggja það að ekki
komi aðrir en menntamenn þá eru
myndirnar allar textaðar á erlenda
tungu, ekki er nú virðingin meiri
fyrir móðurmálinu.
Þessir menntamenn era nú farnir
að verða fullfyrirferðarmiklir í þjóð-
félaginu. Og ekki er nú þakklætið
meira þjóðinni sem ól þá upp og kost-
aði til mennta til handa en að þeir
skirrast ekki við að reka hníf í bak
henni og vilja vernda hvali þegar
þeir vifa vel að undirstaða þess að
þeir geti lært við heimsins dýrustu
og finustu skóla er einmitt sjávarút-
vegur, þar með talið nytjar á fiski-
stofnun.
Ég legg til að þessum blessuðúm
menntamönnum verði gert kleift að
koma sér úr landi sem fyrst svo þeir
geti séð allar þær dellukvikmyndir
sem þeim sýnist og leyft okkur hin-
um að hafa okkar vinnu og okkar
Rambo í friði.
Nokkrir hundaeigendur með dýr sín.
Bannið bílaumferð
um Geírsnef
Hundavinur skrifar:
Það er til háborinnar skammar
hvernig hundaeigendur eru að fara
með Geirsnefið við Elliðaámar með
því að keyra þama um allt svæðið
og láta hundana hlaupa á eftir bílun-
Með sama áframhaldi verður þetta
allt orðið eitt forarsvað. Borgaryfir-
völd ættu að girða svæðið af hið
bráðasta til þess að hundaeigendur
geti gengiö um svæðið nokkurn veg-
inn óhultir.
um.
Baliskákin er gífurlega vinsæl hér, segir bréfritari. Hér sést einn góðkunn-
ur borgari munda kjuðann.
Fáum við ??snoker“
á skjáinn?
Vilhjálmur skrifar:
Mig langar til að vita hvort Ríkis-
sjónvarpið eða Stöð 2 hafa í hyggju
að sýna frá mótum í „snoker“ (billj-
ard eða ballskák, hvort heldur sem
réttara er) í íþróttaþáttunum.
Þessi íþrótt er gífurlega vinsæl hér
á landi, sérstaklega eftir að við feng-
um nasasjón af henni í RÚV. Því
miður er aðeins sýnt frá HM í snóker
í byijun júní, og svo ekki meir!
Þeir á Stöð 2 hafa verið að sýna frá
golfmótum í allt sumar, og allt fram
á vetur á hveijum laugardegi, og
sýna svo vikulega í vetur frá amer-
íska körfu- og fótboltanum.
Ríkissjónvarpið verður, eins og
áður, með ensku knattspyrnuna þótt
vitað sé að menn (konur) séu farnir
að fá leiða á henni.
Snóker er langvinsælasta sjón-
varpsefnið á Bretlandseyjum og eru
konur þar í landi áhugasömustu
áhorfendurnir.
Það væri fróðlegt að fá svar frá
stöðvunum tveimur um það hvort
þær ætla að sýna frá þessari
skemmtilegu nákvæmnisíþrótt.
Hringið í síma 27022
milli kl. 13 og 15,
öAa cV'ví fí A
vUd bJxXlllUi