Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Page 11
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987.
11
Utlönd
Nýir menn,
nýjar leiðir
Nýjum mönnum fylgja nýir siðir
og gúdismat breytist ekki síður en
annað. Allt frá árinu 1949 hefur það
þótt einn helsti kostur kínverskra
leiðtoga að hafa tekið þátt í göngunni
miklu meö Mao Tsetung, hafa verið
virkir í byltingu kommúnista. Þessir
leiðtogar hafa nú flestir annaðhvort
safnast til feðra sinna eða eru teknir
að eldast mjög, komnir yfir áttrætt.
Þeir eru að hverfa úr kínverskum
stjórnmálum og þeir yngri, sem nú
eiga að taka við, hafa aldrei barist
með vopnum, geta ekki skírskotað
til hetjudáða og fómarlundar í bylt-
ingunni.
Þeir hafa þó engu að síður háð sína
hildi, hafa þurft að stika sér leið
gegnum vígvöll kínverskra stjórn-
mála sem oft hefur reynst jafnhættu-
legur og jarðsprengjusvæði í
vopnuöum átökum. Að sögn hefur
reynsla þeirra gert þá að snúnum og
þroskuðum stjórnmálamönnum með
sterka sjálfsbjargarhvöt.
Eitt þessara „ungmenna" er Hu
Quili, fimmtíu og átta ára embættis-
maður sem talið er að hreppa muni
eitt af valdameiri embættum kín-
verska kommúnistaílokksins á
flokksþinginu sem nú stendur yfir.
Hann er talinn nokkuð dæmigerður
fyrir þennan nýja hóp stjórnmála-
manna.
Hu fæddist árið 1929 í Shaanzi-
héraði í norðvesturhiuta Kína. Hann
læröi á stjómmál og hlaut eldskírn
sína í háskólum en ekki í skæruliða-
búðum eins og fyrirrennarar hans.
Þegar á íimmta áratug þessarar
aldar og fram á þann sjötta var hann
kominn í valdamikil embætti innan
ungliðahreyfingar kínverska kom-
múnistaflokksins. Hann varð þá eitt
af fómarlömbum Rauðu varðlið-
anna, þegar Mao setti þá til höfuðs
stofnunum flokksins, árið 1967, og
hvarf af sjónarsviðinu. Töldu varð-
liðarnir hann einn af fylgismönnum
Liu Shaoqi sem sakaður var um að
vera tól í höndum kapítalista.
Um nokkurra ára skeið spurðist
ekki til Hu. Raunar var það ekki fyrr
en á áttunda áratug aldarinnar að
hann kom aftur fram á sjónarsviðið,
þá sem lágt settur héraðsembættis-
maður í örsnauðu héraði. Eftir dauða
Mao og upphaf markaðshyggju í
Kína tókst ferill Hu hins vegar á loft.
Hann reis upp gegnum raðirnar og
var fljótlega orðinn einn af valda-
meiri-embættismönnum flokksins.
Þegar harðlínumenn í flokknum
komu Hu Yaobang úr embætti og
sökuðu hann um að hafa ekki barist
nóg gegn borgaralegri frjálshyggju í
Kína lá við að Hu fyki sömu leið.
Honum tókst þó að halda velli og nú,
þegar umbótasinnar virðast orðnir
traustir í sessi í Kína, er búist við
að hann haldi áfram að sópa að sér
völdum.
Andstæöingar Hu telja hann tæki-
færissinna. Aðrir, og þar á meðal
vestrænir stjórnarerindrekar, segja
hann bráðskarpan stjórnmálamann
sem tekist hafi að losa sig við hug-
sjónaspennitreyju þá sem hélt hinum
eldri af leiötogum Kína fóngnum.
Viðurkenna fylgismenn Hu að hann
trúi ef til vill ekki endilega á kom-
múnismann, enda hafi hann á ferli
sínum séð ýmsa annmarka á kenn-
ingum hans. Þeir telja hins vegar að
Hu sé verðugur fulltrúi þeirrar kyn-
slóðar Kínverja sem nú er að taka
við, kynslóðar sem trúi á völd og
framkvæmdir, jafnheitt og þeir
gömlu trúðu á gönguna löngu.
Stolin málverk fund-
ust hjá sofnurum
Lögreglan í Tókýó hefur fundið
þekkt frönsk málverk, máluð á nítj-
ándu öld, sem stolið var úr frönsku
listasafni fyrir þrem árum. Tals-
maður lögreglunnar sagði í gær að
verkin, sem talin eru máluð af
franska málaranum Jean Baptiste
Cmille Corot, hafi verið á heimilum
hstaverkasafnara þar í borg.
Listaverkasafnararnir fullyrða
að þeir hafi ekki vitaö að verkin
voru stolin.
Lögreglan fann þrjú af fimm
verkum sem stolið var en neitaði í
gær að tjá sig um það hvort talið
væri að hinum tveim hefði einnig
verið smyglað til Japan.
Hu Qili, sem talinn er ein skærasta rísandi stjarna kínverskra stjórnmála um þessar mundir, ræðir hér við Yu
Qiuli hershöfðingja við setningu flokksþings kinverska kommúnistaflokksins um síðustu helgi. Simamynd Reuter
JEPPADEKK:
Gott úrval af White Spoke
felgum fyrirliggjandi.
31X105X1 5, kr. 8.500
31X115X15, kr. 8.700
33X125X15, kr. 9.100
35X1 25X15, kr. 9.950
kr 4.036
kr. 5.441
kr 3,900
kr 4,989
kr. 5.481
650x14,
700x15,
600x16,
650x16,
700x16,
OPIÐ LAUGARD. 10-13.
ARMULI 1 105 REYKJAVIK SIMI 91-685533
raumari
ypottinum.
sem ekki gekk út síðasta laugardag, leggst við fyrsta vinninginn núna. Spáðu íþað!
- Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111