Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987. Iþróttir Ribbeck ekki áfram með Leverkusen Sigurður Bjöms., DV, V-Þýskalandi; Það vakti mikla athygli hér í gær þegar Erik Ribbeck, þjálf- ari Leverkusen, sem er talinn einn hæfasti þjálfari í Bundes- ligunni, tilkynnti að hann yrði ekki áfram með félagið eför þetta keppnistímabil. Leik- mönnum Leverkusen kom þetta mest á óvart. Ribbeck sagði að ástæðan fyr- ir þessu væri að hann væri óánægður með aðstæður hjá félaginu og einnig að forseti fé- lagsins skipti sér of mikið af störfum hans. -SOS Lúxemborgar- menn óttast ólátabelgi frá Skotlandi - mæta þeir Skotum í Metz? Það var ákveðið í gær að landsleik- ur Lúxemborgarmanna og Skota í Evrópukeppni landsliða 2. desember verði ekki leikinn á hinum 50 ára gamla leikvelli í höfuðborg Lúxem- borgar - Lúxemborg. Ástæðan fyrir þessu er að Lúxemborgarmenn ótt- ast ólátabelgi frá Skotlandi. Þeir hafa tvisvar áöur orðið fyrir barðinu á ólátabelgjum frá Bret- landseyjum -1977 og 1983 þegar þeir léku gegn Englendingum. Leikurinn fer annaðhvort fram í Esch-Sur Alzette, sem er bær í Suð- ur-Lúxemborg, eða í Frakklandi, í borginni Metz, sem er 50 km fyrir sunnan Lúxemborg. SOS • Mark Hateley var hress og kátur á æfingu hjá Monaco fyrir mánuði. gær, þá fyrstu siðan hann var skorinn upp i London Símamynd Reuter/Eric Gaillard Deildaleikir færðir til vegna Evrópuleiks enskra: Robson valdi Mark Hateley og Waddle - í landsliðshóp sinn þratt fyrir að þeir hafa átt víð meiðsíi að striða Enski landsliðseinvaldurinn Bobby Robson valdi í gær 22ja manna landsliðshóp fyrir Evrópuleikinn þýðingarmikla við Júgóslavíu 11. nóvember nk.í Belgrad. Fátt kom á óvart í vali Robsons, helst að hann Heimsafrekaskráin í frjálsum: Vésteinn og Einar í fremsta flokki Vésteinn Hafsteinsson ogEinar Vilhjálmsson eru framarlega í flokki yfir afreksmenn heims í fijálsum íþróttum. Þeir eru báðir á skrá yfir tíu bestu afrek í sínum greinum á heimsafrekaskránni. Vésteinn kastaöi kringlunni 67,20 m í Klagshamn í Svíþjóð í sumar og setti íslandsmet. Bandaríkjamaðurinn Paul Pow- ell hefur náð lengsta kastinu það sem af er árinu. Hann kastaöi 72,08 m - einnig í Klagshamn. Annar á afrekaskránni er Svíinn Stefan Fernholm með 69,80 m. • Vésteinn er kominn í 42. sæti á listanum yfir bestu kringlu- kastara frá upphafi. Einar Vilhjálmsson setti Norð- urlandamet í spjótkasti er hann kastaði 82,96 m á Húsavík í sum- ar. Það er 12. besta afrekið í heiminum í ár. Árangur Einars er jafnframt 14. besta afrekið með nýja spjótinu frá upphafi. Þess má geta að Einar á 23. besta afrek- ið frá upphafi með gamla spjótinu - 92,42 m. -SOS valdi Ghris Waddle og Mark Hateley í hópinn þó þeir eigi við meiðsli að stríða. Enskir hafa ekki fengið á sig mark í riðlinum en ef þeir tapa leikn- um í Belgrad komast þeir ekki í úrslitakeppnina í Vestur- Þýskalandi næsta sumar. Stjóm deildakeppninnar hefur vegna mikilvægi leiksins ákveðið að færa til leiki laugardaginn 7.nóvemb- er hjá þeim liðum sem eiga leikmenn í landsliðinu. Þegar hefur leikur Ars- enal - Chelsea verið færður fram til 3.nóvember. Þá hefur verið ákveðið að þrír aðrir leikir verði ekki laugar- daginn 7.nóv. Það er Derby-Man. Utd, Liverpool-Nottm. Forest, og Portsmouth-Tottenham. Everton á ekki leik. Hins vegar hefur stjórnin neitað að færa til sérstaklega leikdaga vegna Evrópuleikja Wales og írlands 11. nóvember. Þeir leikir eru þó mjög þýðingarmiklir fyrir viðkomandi lönd. Margir landsliðsmenn þessara þjóða þurfa þó ekki að leika 7.nóv- ember - að minnsta kosti ekki þeir sem leika með Liverpool og Man.Utd. Hins vegar eru öfgar í þessu. Leik Oxford og Coventry verður frestað ef Cyrille Regis verður í enska lands- liðshópnum en ekki Mark Hateley,. Monaco. Hafi Hateley náð sér vegna uppskurðar sem hann gekkst undir fyrir nokkru verður leiknum í Ox- ford ekki frestað. Þó eru nokkrir landsliðsmenn Wales í liði Oxford. En nóg um það. í enska landsliðs- hópnum eru Peter Shilton, Chris Woods, Viv Anderson, Gary Stevens, Kenny Sansom, Terry Butcher, Stu- art Pearce, Mark Wright, Tony Adams, Gary Mabbutt, Neil Webb, Peter Reid, Glenn Hoddle, Bryan Robson, Trevor Steven, Steve Hodge, Chris Waddle, Clive Allen, Gary Lineker, Peter Beardsley, John Bar- nes, Mark Hateley eöa Cyrille Regis. -hsím ð I Á fundi framkvæmdanefndar Ólympíunefndar íslands, sem haldinn var 21. október, var sam- þykkt að ísland sendi þátttakend- ur í frjálsum íþróttum, sundi og júdó, enda næðu íþróttamenn í þessum greinum því lágmarki sem nefndin hefur sett Fyrir rúmu ári vann íslenska landsliðið í handknattleik sér rétt til þátttöku i leikunum með því að verða í 6. sæti í heimsmeistara- keppninni sem fram fór í Sviss. Langt er að sækja bæði til Calg- ary og Seoul svo aö kostnaður vegna þátttöku okkar verður mikill. þaö er hlutverk ólympíu- nefndarinnar aö ábyrgjast allan kostnaö viö feröir og uppihald, svo og einnig undirbúning vegna þátttöku í ólympíuleikum. Nú þegar hefur ólympiunefhdin veitt fimm sérsamböndtun kr. 6.850.000 í þes..u skyni. Heildarkostnaður nefndarinn- ar vegna þátttöku i leikunum veröur ekki undir kr. 24.0(X).000. Þar af verður að nota um kr. 12. 000.000 í þjálfunarstyrtó. Ef nefndin nær ekki þessutakmarki er vonlítið að sá árangur náist sem stolt þjóðarinnar krefst af afreksmönnum okkar. -JKS Fimm leikmenn Red Star með matareitrun Fimm af leikmönnum Red Star Beldrad eru nú rúmfastir með matareitrun og er óvíst að þeir geti leikið með félaginu í UEFA- bikarkeppninni í næstu viku. Red Star á þá að leika í Belgíu, gegn FC Brugge. Júgóslavneska liðið vann sigur í fyrri leiknum, 3-1. Þess má geta að búið er að fresta leik Red Star í 1. deildarkeppninni í Júgóslavíu um næstu helgi, vegna veikinda leikmannanna. SOS Viðskiptaferð til Afríku? - Arnarflug og KUVI - besti kosturinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.