Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987. Ji ■■■%■% | |M aISJímS wiiðSi ðo u|j|j Ui sinm - segir Guðmundur J. Guðmundsson sem telur spá Þjóðhagsstofnunar hæpna „Ég tel aö spá Þjóðhagsstofnunar mannasambandsins, í samtali við spá væri rétt. vöxt að ræða í helstu viöskiptal- heild rétt. séhæpinogmannigætidottiðíhug DV. Þórðui- Friðjónsson, forstjóri öndum okkar. í dag verður haldinn samninga- aö hún sé gerö eftir pöntun. Því Guðmundur sagði að nýir kjara- Þjóöhagsstoíhunar, var inntur áiits Hann sagði ennfremur aö enda fundur milli Verkamannasam- miöur er ég mjög svartsýnn á að samningaryrðuekkigerðiránþess á þessari gagnrýni Guðmundar. þótt nokkur óvissa væri í spá um bandsins og Vinnuveitendasam- samningar séu í nánd, miklu frekar að kjör fiskvinnslufólks yrðu stór- Hann sagði aö öllum ætti að vera afkomu fiskvimislunnar, sem gerir bandsins og er taliö að þar geti óttastégaðuppúrþeimslitnifljót- lega bætt. Vinnuveitendur sagði Ijóst aö viðskiptakjör heföu versn- ráð íyrir að hún sé rekin með 3% orðiö um mikiisverðan fund að lega ef ekki verður umtalsverð hann skáka í skjóli þjóðhagsspár að. Gengj dollarans hefði lækkaö til 4% tapi, þar sem um meðaltal ræða breyting á viöhorfi vinnuveitenda um slæma stöðu fiskvinnslunnar, mjög mikið og verðbréfahrun á eraðræöa,þáværisúheildarmynd -S.dór til samninga,“ sagöi Guömundur einkum frystingarinnar. Hann mörkuðum erlendis myndi valda sem dregin hefur verið upp varð- J. Guömundsson, formaöur Verka- sagði vægast sagt efast um að þessi því aö ekki yrði um aukinn hag- andi afkomu sjávarútvegsins í Guðrún Helgadóttir: Kemur ekki á óvart „Þetta kemur mér alls ekki á óvart, flestum er Tjörnin mjög kær og þess vegna held ég að fólk vilji hafa hana í friði,“ sagði Guðrún Helgadóttir alþingismaður í morgun um niður- stöður í skoðanakönnun DV. „Fólk treystir því ekki að fuglalífið haldist á Tjörninni við það rask sem er fyrirsjáanlegt ef ráðhúsiö kemur þar. Og það er margt annaö sem fylg- ir, umhverfið hlyti að breytast mikiö með stóraukinni umferö. Þessi skoð- anakönnun ætti að segja borgaryfir- völdum að þeim ber að endurskoða afstöðu sína. Þetta annars fallega hús fellur ekki að umgerö Tjarnarinnar og væri bet- ur komið til dæmis niðri við Skúla- götu eða fyrir neðan Höfða. Það eru til nógir staðir fyrir ráðhús borgar- innar þar sem það spillir ekki umhverfinu heldur sómir sér vel.“ -HERB Flosi Ólafsson: Gleðilegar niðurstöður „Þetta eru auðvitað gleöilegar nið- urstöður og óskandi að tekið sé tillit til þeirra. Ég held að þetta hvetji menn til að hugsa sinn gang,“ sagöi Flosi Ólafsson leikari um niðurstöð- ur skoðanakönnunarinnar. „Ég er í sjálfu sér ekki á móti ráð- húsi, ég er bara á móti því á þessum stað. Ég er á því að það hefði átt aö byggja yfir stjórnsýsluna, hvort sem það er þinghús, ráðhús eða menning- arhöll á flugvallarsvæðinu. Annars má segja að það sé erfitt að taka vit- urlegar ákvarðanir þegar ekkert ráðhús er til að taka þær í.“ -SMJ Bjami P. Magnússon: Fer ekki eför pólitískum línum „Niðurstaðan kemur ekki á óvart,“ sagði Bjarni P. Magnússon, borgar- fulltrúi Alþýðuflokksins, um niður- stöður skoðanakönnunarinnar um ráðhúsið. „Við sem höfum verið þeirrar skoðunar að ráðhúsinu ætti að finna annan stað höfum fundið þennan vilja meðal fólks. Þetta mál fer ekki eftir neinum pólitískum lín- um. Ég vona bara að þeir sem tóku afstöðu meö ráðhúsinu skoði þessar niðurstöður vandlega. Ég er ánægður með að DV tók þetta mál til könnunar því menn hafa reynt að neita því að þessi vilji sé fyrir hendi.“ -SMJ Ingibjöig Sólrún Gísladóttír: Borgarstjórí taki mark á könnuninni „Þessi niðurstaða kemur mér ekki á óvart, hún er í samræmi við það sem ég hef fundið hjá borgarbúum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennalista, um könnun DV um fyr- irhugað ráðhús. Um 61 prósent eru andvígir húsinu, en 39 prósent á móti. „Það er bara vonandi að borgar- stjórinn taki mark á könnuninni og hætti við byggingu ráðhússins,“ seg- ir Ingibjörg. -JGH Albert Guðmundsson: Skil ekki ofstopa borgarstjóra „Borgarbúar eru á móti því að byggja ráðhús við Tjömina og því kemur þessi niðurstaða könnunar- innar mér ekki á óvart. Tjörnin er perla borgarinnar og alltof viðkvæm í borgarmyndinni til aö byggt sé ráð- hús þarna. Ég skil í rauninni ekki þann ofstopa borgarstjóra að ætla sér að þvinga málið í gegn,“ segir Albert Guðmundsson, Borgaraflokki, um könnun DV vegna ráðhúss viö Tjörn- ina. Andvígir ráðhúsi eru um 61 prósent en 39 prósent fylgjandi. „Ég var sjálfur meö tillögu um ráð- húsbyggingu en að byggja þaö við Tjörnina er hrein firra,“ segir Albert. -JGH Sigrún Magnúsdóttin Ráðhúsið verður bæjarprýði „Ég er ánægð með að þessi könnun hefur verið gerð. Ég hefði þó viljað að þarna hefði verið minni munur en þetta er í sjálfu sér ekki slæm niðurstaða," sagði Sigrún Magnús- dóttir, borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins. „Ég sat í dómnefndinni um ráð- húsið og skil vel að fólk skuli ekki hrífast strax af byggingunni. Hún er eins og gott skáldverk sem kemur sífellt á óvart þegar á líður. Ég er sannfærð um að ráðhúsið verður bæjarprýði og glæðir tjömina nýju lífi.“ -SMJ Skipverjar á Sólborgu SU hreinsa lestarbúnaö eftir síldveiöina, Síldarsöltun lokið hjá Sólborgu Ægir Kristmsson, DV, Fáskxúðsfirði: Síldarsöltun hjá Sólborgu hf. lauk 10. nóvember sl. Alls var saltaö í rúmlega 4.200 tunnur í söltunarstöð- inni af afla Sólborgar SU en hluta aflans var landað á Djúpavogi þar sem hann var saltaður. Nú er verið að gera Sólborgu klára á troll og er ætlunin að sigla með aflann. Ráðhúsið og Tjómin til umræðu á Alþingi Fyrirhugað ráðhús við Tjörnina var aðalumræðuefnið á Alþingi í gær. Fjölmargir þingmenn tóku til máls um þingsályktunartillögu sex stjórnarandstöðuþingmanna úr Reykjavík um ítarlegar rannsóknir á áhrifum byggingar ráðhússins á lífrí- ki Tjamarinnar. Guðrún Helgadóttir er fyrsti flutn- ingsmaður en aðrir eru Albert Guömundsson, Guðmundur Ágústs- son, Guðrún Agnarsdóttir, Kristín Einarsdóttir og Svavar Gestsson. Þau halda því fram að Reykjavík- urborg hafi ekki farið að náttúru- verndarlögum þegar bygging ráðhúss var ákveðin. Borgaryfir- völdum hafi borið að leita álits Náttúruverndarráðs þar sem Tjörn- in og Vatnsmýrin séu á náttúru- minjaskrá. Þau sjónarmið komu fram, meðal annars frá Ólafi Þ. Þórðarsyni, Framsóknarflokki, og þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, að Alþingi ætti ekki að skipta sér af þessu máli. Það heyrði undir borgarstjórn Reykja- víkur. Ennfremur að það væri hlutverk framkvæmdavaldsins að annast framkvæmd laga. Sjálfstæðismenn sögðu að þingsá- lyktunartillagan væri hugsuð til að koma höggi á meirihluta borgar- stjórnar Reykjavíkur. Þá höfðu ýmsir þingmenn áhyggjur af því að ráöhúsið myndi þrengja að fyrirhuguðu húsi Alþingis. -KMU Kristín Ólafsdóttir: Meirihlutinn láti segjast Davíð Oddsson: Viðunandi niðurstaða „Ég tel þetta mjög viðimandi niðurstöðu miðað viö þá afskræmingu sem þetta fagra hús hefur hlot- ið af hálfu ýmissa aðila og ég er viss um að enginn annar staður hefði fengið jafnmikiö fylgi við þessar aðstæður,“ sagði Davíð Oddsson borgarsfjóri um úrsht skoðanakönnunar DV. „Þetta hús verður líftrygging fyrir Tjörnina og þegar borgarstjóm verður komin í þetta fallega og látlausa hús á bakka Tjamarinnar má bóka að borgarfulltrúar munu sjá til þess að Tjömin haldi reisn sinni og verði fegurri en nokkru sinni fyrr. Ég er sannfærður um að borgarbúar verða himin- sælir þegar ráðhúsið verður risið á tjarnarbakkan- um." -HERB „Þessi könnun staðfestir það sem áður hefur komið fram í skoðanakönnunum að borgarbúar vilja ekki bygg- ingu ráðhúss við Tjörnina. Og það yrði dapurlegt ef meirihluti borgarstjórnar léti sér ekki segjast," segir Kristín Ólafsdóttir, Alþýðubandalagi, um könnun DV. Andvígir ráðhúsi eru um 61 prósent en fylgjandi um 39 prósent. „Ég ætla rétt að vona að meirihlutinn í borgarstjórn, sjálfstæðismenn, taki mark á könnuninni. Og ég minni á að á eina fundinum hjá borgarstjórn þar sem rætt hefur verið um málið kom Alþýðubandalagið með tillögu um að kosið yrði um fyrirhugað ráðhús á þessum stað. En tillagan var felld,“ segir Kristín. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.