Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987. 37 Sviðsljós ■ . : ■ . \ X; . Hérna sýna sjúkraflutningsmenn hvernig nýja bifreiðin nýtist við meðferð á slösuóum. Magnús Helgason varðstjóri hefur tekið að sér hlutverk hins slas- aða og Einar Þór Einarsson brunavörður stumrar yfir honum. Guðbrandur Bogason brunavörður stendur yfir þeim en Kjartan Kolbeinsson brunavörður er lengst til hægri á myndinni. DV-myndir S Neyðarflutningar í Reykjavík eru nú líklega með þeim bestu í heimin- um eftir að tvær nýjar og glæsilegar sjúkrabifreiðar bættust í flotann. Það var Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands sem réðst í kaup á þessum bifreiðum og voru alls keyptar þrjár bifreiðar. Þeirri þriðju er ætlað það hlutverk að þjóna sem sjúkrabifreið á Djúpavogi. Sjúkrabifreiðarnar voru keyptar „hráar“ til landsins, sem þýðir að þær voru innréttaðar hér á landi. Meðal nýjunga má nefna sjúkrabör- ur inni í bílunum sem hafa sérstakan demparabúnað til að taka af hnjask í götuakstri. Bílar þessir voru til sýnis fyrir nokkrum dögum í Slökkvistöðinni við Öskjuhlíð og voru þá þessar myndir tekhar. Hér afhendir Arinbjörn Kolbeinsson, formaður Reykjavikurdeildar RKÍ, Nýju sjúkrabifreiðarnar eru með þeim fullkomnari sem gerast í heiminum, Rúnari Bjarnasyni slökkviliðsstjóra lyklana að bílunum. ein fer á Djúpavik, en tvær til þjónustu i höfuðstaðnum. Loksins hefur einni tekist að bremsa glaumgosann Jack Nicholson af, Anj- elica Houston heitir sú heppna. Stórbrúðkaup í vændum Jack Nicholson er frægur fyrir að vilja ekki festa ráð sitt og vilja heldur rokka á miili kvenmanna. Hann er sagður hafa verið í tygjum viö ansi marga kvenmenn. Svo nokkrar séu upp taldar má nefna Meryl Streep, Bette Midler, Candice Bergen, Faye Dunaway, Jerry Hall, Michelle Philipps, Diana Ross, Goldie Hawn, Britt Ekland og Dolly Parton. Jack kvæntist fyrir mörgum árum en það hjónaband entist ekki lengi. Konan hét Sandra Knight og þau eiga saman dótturina Jennifer sem nú er 24 ára gömul. Síðan þá hefur Nichol- son ekki viljað binda sig og fundist það óþarfi, enda er hann frægur fyr- ir það hve lunkinn hann er við að ná sér í kvenfólk. Þær standast þaö víst fáar þegar hann skrúfar frá sjarmanum. En nú virðist sem Jack sé á góðri leiö með að festa ráð sitt. Síöustu tvö árin hefur hann haldið nánum tengslum við Anjelicu Houston sem er dóttir leikstjórans kunna, John Houston. Nicholson og John Houston voru mjög nánir vinir og sagt er að leikstjórinn hafi á dánarbeði sínum tekið af Jack það loforð að kvænast henni. Anjelica er víst síður en svo mót- fallin ráðahagnum, svo nú eru líkur til þess að tveir óskarsverðlauna- hafar gangi í eina sæng saman á næstunni. Ólyginn sagði . . . Diana Ross þeldökka söngkonan sem er gift norska milljónamæringn- um Arne Næss þarf nú að fara að endurskoða feril sinn. Hún hefur ekki átt lag sem hefur náð hátt á vinsældalista í heil sjö ár, síðan lagið „Upside down" kom frá henni. Hún var á plötusamn- ingi hjá stórfyrirtækinu RCA en nú hafa þeir sagt upp samningnum við hana því þeir hjá RCA sjá enga framtíð í henni lengur. Það er því hugsanlegt að aldrei framar heyrist topplög frá þessari stjörnu. Jane Seymour er mikill dýravinur, eða var öllu heldur. Um daginn aumkvaði hún sig yfir flæk- ingshund sem hún kenndi í brjósti um. Það hefði hún ekki átt að gera því hundurinn launaði þakklætið með því að bíta dóttur hennar í andlit- ið. Jane Seymour þurfti að fara með dóttur sína í plast- íska aðgerð til að reyna að bjarga henni frá því að fá Ijót ör. Madonna hefur hingað til látið framann ganga fyrir öllu. Illar tungur hafa sagt að hjónaband hennar og leikarans Sean Penn standi á brauðfótum. En Madonna er á öðru máli. Hún hefur tilkynnt að hún stefni á að verða ófrísk áður en árið er liðið og vilji helst eignast tvíbura. Að sjálf- sögðu á Sean að verða faðir- inn. Einlægir aðdáendur hennar mega því búast við að hlé verði á færibandaút- gáfu hennar af lögum ef af þessu verður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.