Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987. 33 Fólk í fréttum María Ingvadóttir María Ingvadóttir viöskiptafræð- ingur, formaöur Hvatar, hefur verið í fréttum DV vegna aðalfund- ar Hvatar sem var haldinn nýlega. María Elínborg er fædd 27. sept- ember 1946 á Svalbarðseyri en fluttist eins árs til Akureyrar. Hún vann við bókhaldsstörf á Akureyri 1974-1979 og lauk stúdentsprófi frá MA 1979. María varð viðskipta- fræðingur frá HÍ 1983 og var viðskiptafræðingur á hagdeild Verðlagsstofnunar 1983-1984. Hún var deildarstjóri hagdeildar Sam- bands íslenskra samvinnufélaga í Rvík 1984-1987 ogíjármálastjóri hjá Útflutningsráöi frá því í apríl 1987. María hefur verið formaður Hvatar flokkinn frá 1987. María giftist 1966 Jónasi Þórar- inssyni, f. 26. febrúar 1944, mat- reiðslumanni, forstjóra Bautans á Akureyri, en hann lést 13. mars 1974. Foreldrar Jónasar eru Þórar- inn Vilhjálmsson, starfsmaður Landhelgisgæslunnar og síðan Slippstöðvarinnar í Rvík, og kona hans, Guðrún Georgsdóttir, en hún lést 1963. Börn Maríu og Jónasar eru Guðrún, f. 21. febrúar 1967, og Yngvi, f. 14. maí 1973. Systkini Maríu eru Herdís, f. 12. nóvember 1948, skrifstofumaður hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri, og á hún tvö böm; Jón Grétar, f. 9. janúar 1950, lyfjafræðingur í Rvík, giftur Hjör- er Oddur Sigurðsson tækniskóla- nemi og eiga þau eitt barn; og Ingvi Júlíus, f. 9. október 1962, vélaiðn- tæknifræðingur í Rvík, og er sambýliskona hans Unnur Guð- mundsdóttir röntgentæknifræöi- nemi. Foreldrar Maríu era Ingvi Júlíusson, tæknimaður hjá Vega- gerð ríkisins á Akureyri, og kona hans, Guðrún Jónsdóttir verslun- armaður. Faðir Ingva var Júlíus, b. og fræðimaður, Jóhannesson, b. á Litlutjörnum Jónatanssonar. Móðir Jóhannesar var Kristín Tómasdóttir, b. á Stórulaugum Magnússonar. Móðir Tómasar var Guðlaug Árnadóttir. Móðir Guð- laugar var Kristveig Marteinsdótt- rúnar var Guðrún Jónasdóttir, b. á Veturliðastöðum, Bjarnasonar. Móðir Yngva var Herdís Þorbergs- dóttir, b. á Litlulaugum, Davíðs- sonar. Móðir Þorbergs var Kristjana, systir Björns, afa Stein- gríms Steinþórssonar forsætisráð- herra. Kristjana var dóttir Björns, b. í Landamótsseli, Nikulássonar Buch, forfóður Buchættarinnar. Móðir Kristjönu var Þorbjörg Bergþórsdóttir, b. á Öxará, Jóns- sonar, b. á'Þverá, Bergþórssonar, bróður Þuríðar, móður Guðrúnar, formóður Illugastaðaættarinnar. Guðrún er dóttir Jóns, b. á Brekku i Aðaldal, Bergvinssonar, b. á Brekku, Þórðarsonar, b. á María Ingvadóttir. frá 1985 og setið í stjórn Neytenda- samtakanna frá 1986. Hún hefur verið í stjórn Fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna í Rvík frá 1985, formaður húsnæðismálanefndar Sjálfstæðisflokksins frá 1987 og varaþingmaður fyrir Sjálfstæðis- dísi Arnardóttur lyfjatækni, og eiga þau fjögur börn; Bjarni Rafn, f. 10. maí 1953, matreiðslumeistari á Ak- ureyri, giftur Rósu Þorsteinsdótt- ur, og á hann fimm börn; Áslaug Nanna, f. 26. ágúst 1960, hjúkrunar- fræðingur, sambýlismaður hennar ir, bróður Þorgríms í Baldurs- heimi, forfóður Hraunkotsættar- innar. Móðir Júlíusar var Guðrún Bjarnadóttir, b. og fræðimanns á Sellandi, Jóhannessonar, bróður Guðlaugs, afa Hlyns Sigtryggsson- ar veðurstofustjóra. Móöir Guð- Hrauni, Jóhannessonar, b. á Geit- eyjarströnd, Þorsteinssonar, bróður Hans, langafa Dóru Þór- hallsdóttur, móður Þórhalls Ás- geirssonar ráðuneytisstjóra. Móðir Jóns var Elínborg Jónsdóttir, b. á Björgum, Einarssonar, b. í Svartár- koti, Ásmundssonar, bróður Helga á Skútustöðum, forföður Skútu- staðaættarinnar. Móðir Guðrúnar var Margrét Sigurtryggvadóttir, b. á Litluvöllum í Bárðardal, bróður Friöriku, móður Jón Sigurgeirs- sonar, skólastjóra á Akureyri. Andlát Afmæli Jón Ingi Rósantsson Jón Ingi Rósantsson klæðskeri, Bogahlíð 22, Reykjavík, lést 9. nóv- ember sl. Jón fæddist á Efra-Vatns- horni í Húnavatnssýslu 20.4. 1928. Hann flutti til Akraness 1934 og til Reykjavíkur tveimur árum síðar. Jón lærði klæðskeraiðn hjá Andr- ési Andréssyni og lauk námi 1949. Tveimur árum síðar hóf hann störf hjá SÍS og vann þá sem klæðskeri hjá Gefjun-Iðunni í Kirkjustrætinu en árið 1961 flutti fyrirtækið starf- semi sína á Snorrabrautina og hét þá Fataverksmiðjan Gefjun. Þar starfaði Jón til dauðadags. Jón var virkur félagi í Oddfellow-reglunni. Eftirlifandi kona Jóns er Guð- björg Pálsdóttir, f. 27.9.1928, en þau giftu sig 17.6. 1949. Jón og Guðbjörg eignuðust íjögur börn: Þórlaug Rósa innkaupastjóri, f. 5.2.1946, er gift Stefáni Svavars- syni, dósent í viðskiptafræðideild HÍ, en þau eiga þrjá syni, Jón Inga, f. 24.1.1971, Egil Vigni, f. 18.12.1975, og Svavar Gauta, f. 10.3. 1981; Óskar, rafmagnsverkfræðingur í Reykjavík, f. 21.2. 1951, er giftur Ingveldi Hafdísi Aðalsteinsdóttur kennara og eiga þau tvö börn, Guð- björgu Hrönn, f. 21.8. 1975, og Styrmi, f. 5.5.1978; Ingibjörg mynd- listarmaður, f. 18.4. 1959, er gift Friðriki Kristjánssyni lyfjafræð- ingi; Þórunn, f. 11.3. 1965, er við nám í fatahönnun í París. Systir Jóns er Ragna, skrifstofu- stúlka í Reykjavík, f. 31.1.1932, en hún er gift Pálma Theodórssyni skrifstofumanni. Foreldrar Jóns: Rósant Jónsson, barnakennari og b. á Efra-Vatns- Jón Ingi Rósantsson liorni, f. 14.4.1904, d. 22.12.1933, og Þórunn M. Jónsdóttir, f. 10.1.1897. Jón verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju í dag, 17. nóvember, klukkan 13.30. Olafur Ofeigsson, skipstjóri og útgerðarmaður í Reykjavík, lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði laug- ardaginn 7.11. sl. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í dag klukkan 10.30. Ólafur fæddist í Keflavík 28.7. 1900 og ólst upp hjá föðurbróður sínum og konu hans, Ólafi Ófeigs- syni og Þórdísi Einarsdóttur. Olafur hóf sjómennsku frá Kefla- vík fimmtán ára að aldri. Hann lauk farmanna- og eimvélaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1920, var á togurum frá Boston og Nova Scotia á árunum 1920-25, stýrimaður á togurum hér heima frá 1925-29 og skipstjóri á íslensk- um og enskum togurum upp frá því og þar til hann hætti til sjós 1952. Ólafur var einn af stofnendum og eigendum útgeröarfyrirtækisins Mars hf. en eftir að hann kom í land vann hann ýmis störf hjá því fyrirtæki svo og Júpiter hf. Hann var t.a.m. yfirverkstjóri á Kirkju- sandi um árabil. Ólafur var farsæll skipstjórnarmaður en hann bjarg- aði áhöfn vb. Hansínu VE á Sel- vogsbanka 1937 og einnig bjargaði hann sextíu og tveggja manna áhöfn af flutningaskipinu Bahia Blanca norðvestur af Látrabjargi í Olafur Ófeigsson janúar 1940. Ólafur var sæmdur riddarakrossi fálkaoröunnar 1942. Fyrri kona Ólafs var Grace Alle- son, en hún lést 1938. Eftirlifandi eiginkona hans er Daníelína Svein- björnsdóttir frá ísafirði, f.16.3.1913. Ólafur og Daníelína eignuðust eina dóttur, Hrafnhildi Grace, f. 26.1.1946, en synir Hrafnhildar eru Ólafur William og Stefán Kramer. Ólafur var fimmti í röðinni tíu systkina, en átta þeirra komust til fullorðinsára. Þau eru auk Ólafs: Tryggvi, útgerðarmaður í Reykja- vík, en hann lést sl. vor; Ófeigur, læknir í Reykjavík; Þórdís, hús- freyja sem nýlega er látin; Björn, sem unnið hefur við verslunar- störf; Guðmundur, sem unnið hefur við útgerðarfyrirtæki bræðra sinna; Anna, sem er látin; og Jóhanna, sem einnig er látin. Tvö af fjórum fóstursystlúnum Ól- afs eru á lífi. Þau eru Ásgeir Ólafsson dýralæknir og Halldóra Zoega, ekkja Geirs Zoega togara- umboðsmanns. Foreldrar Ólafs voru Ófeigur á Brunnastöðum á Vatnsleysu- strönd, Ófeigsson, og kona hans, Jóhanna frá Hvammi í Langadal í Húnavatnssýslu, Frímannsdóttir. Föðurforeldrar Ólafs vqru Ófeigur, b. á Fjalli á Skeiðum, Ófeigsson og kona hans, Vilborg Eyjólfsdóttir, hreppstjóra í Auðsholti, Guð- mundssonar. Ófeigur á Fjalli var sonur Ófeigs hreppstjóra hins ríka á Fjalli, Vigfússonar, b. á Fjalli, Ófeigssonar, forföður Fjallsættar- innar. Móðir Ófeigs Ófeigssonar var Ingunn, dóttir Eiríks, hrepp- stjóra og dbrm. á Reykjum á Skeiðum, Vigfússonar, forfóöur Reykjaættarinnar, en af þeirri ætt má nefna Guðlaug Tryggva Karls- son hagfræðing og Pétur Sigur- geirsson biskup. Jóhanna, móðir Ólafs, var dóttir Frímanns, b. að Hvammi í Langadal, Björnssonar, en meðal systkina Jóhönnu má nefna Guðmund Frímann skáld og Jóhann Frímann skólastjóra. Frí- mann var sonur Björns Þorleiffe- sonar í Mjóadal, Þorleifssonar á Svínavatni, Ólafssonar. Móðir Þor- leifs var Steinunn Björnsdóttir, b. á Guðlaugsstöðum, Þorleifssonar, forfööur Guðlaugsstaðaættarinn- ar, en meðal afkomenda hans má nefna Hannes Hólmstein Gissurar- son og Pál Pétursson á Höllustöö- um. Þorlákur Björnsson frá Eyjarhól- um, Mýrdal, andaðist á sjúkrahús- inu á Selfossi 14. nóvember. Ester Sighvatsdóttir frá Ragnheið- arstöðum, Flóa, lést sunnudaginn 15. nóvember í Landspítalanum. Laufey Guðmundsdóttir, Hraun- stíg 7, Hafnarfirði, lést aö morgni 16. nóvember í Sankti Jósefsspítala, Hafnarfirði. Ásta Pálsdóttir andaðist 15. nóv- ember í Sankti Franciskusspítalan- um í Stykkishólmi. Halldór Stefánsson vistmaöur Hér- aðshælinu, Blönudósi, er látinn. Rögnvaldur Rögnvaldsson, Munkaþverárstræti 22, Akureyri, andaöist að morgni sunnudagsins 15. nóvember á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Tryggvi Sigmundsson, Ytra-Hóli, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 14. nóv- ember. Ólína Hjálmarsdóttir, Hvanneyrar- braut 56, Siglufirði, lést í Sjúkra- húsi Siglufjaröar að kvöldi 13. nóvember. Friðrik Sigurjónsson, fyrrverandi hreppstjóri, Ytri-Hlíö, lést í sjúkra- deildinni á Vopnafirði fóstudaginn 13. nóvember. Jenný Magnúsdóttir, Kvistum, Ölf- usi, andaðist á heimili sínu föstu- daginn 15. nóvember. Sveinbjörn A. Magnússon frá Syðra-Hóli lést að heimili sínu á Blönduósi 13. nóvember. Þórgunnur Loftsdóttir Þórgunnur Loftsdóttir, Bjarkar- götu 9, Dalvík, er sjötíu og fimm ára í dag. Þórgunnur er fædd á Böggvisstöðum í Svarfaöardal og ólst upp í foreldrahúsum. Hún stundaði framhaldsnám í Héraðs- skólanum að Laugum og í Kvenna- skólanum á Hallormsstað. Einnig var hún í Reykjavík og lærði kjóla- saum. Maður hennar er Ásgeir Pétur Sigurjónsson kennari. Ásgeir er fæddur á Fornustekkjum í Horna- firði 30.12. 1905, sonur Sigurjóns Péturssonar og Ingibjargar Gíslad- óttur. Þórgunnur og Ásgeir eiga tvö börn: Ingibjörg, f. 3.9.1938, vinnur viö afgreiðslustörf og er gift Stefáni Jónssyni, gjaldkera hjá kaupfélag- inu á Dalvík, og eiga þaufjóra syni, Ásgeir Guðjón, Stefán Örn, Frið- finn Orra og Hákon; Ásgeir Pétur, héraðsdómari á Akureyri, f. 17.1. 1944, er giftur Jónhildi Valgeirs- dóttur. Þórgunnur átti þrettán systkini. Tvö systkini hennar dóu ung en hún á nú sex systkini á lífi. Þau eru Guðjón, búsettur á Dalvík; Garðar, búsettur í Reykjavík; Bergljót á Dalvík; Lára á Akureyri; Sigríður á Akureyri; og Hildur Björk á Dal- vík. Uppkomin systkini hennar, sem nú eru látin, voru Sigríður Lovísa; Baldvin Gunnlaugur; Aðal- steinn Friðrik; Björgólfur og Sveinn Haukur. Faðir Þórgunnar var Loftur Bald- vinsson, útvegsb. á Böggvisstöðum, sonur Baldvins Gunnlaugs Þor- valdssonar og Þóru Sigurðardóttur af Krossaætt. Móðir Þórgunnar var Guðrún Friðfinnsdóttir, dóttir Friðfinns Jónssonar frá Hóli á Upsaströnd og Guðrúnar Björns- dóttur frá Atlastöðum í Svarfað- ardal. Baldvin var bróðir Snjólaugar, móður Jóhanns Sigurjónssonar Þórgunnur Loftsdóttir skálds. Kona Þorvaldar og lang- amma Þórgunnar var Snjólaug Baldvinsdóttir, prests á Upsum, Þorsteinssonar, prests á Stærra- Árskógi, Hallgrímssonar, prests á Grenjaðarstað, Eldjárnssonar, prests í Möðruvallaklaustri, Jóns- sonar, en móöir Eldjárns var Snælaug, dóttir Þorsteins, b. á Frostastöðum í Skagafirði, Jóns- sonar og konu hans, Guðríðar Pétursdóttur, systur Hallgríms sálmaskálds. Bróðir Baldvins á Upsum var Hallgrímur, faðir Jón- asar skálds. Kona Baldvins á Upsum var Filippía Erlendsdóttir, klausturhaldara á Munkaþverá, Hjálmarssonar, en kona Hjálmars var Filippía Pálsdóttir, systir Bjama landlæknis sem var faðir Steinunnar, móður Bjarna Thorar- ensens, skálds og amtmanns. Kona Jóns og langamma Þórg- unnar var Gunnhildur Hallgríms- dóttir, b. á Stóru-Hámundarstöð- um, Þorlákssonar, dbrm. á Skriðu í Hörgárdal. Bróðir Hallgríms var Þorlákur, langafi Björns Th. list- fræðings. Bróðir Gunnhildar var Jón Baldvin, b. á Jarðbrú í Svarfað- ardal, afi Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra SÍS. 80 ára 60 ára Borghildur Tómasdóttir, Brekku, Djúpárhreppi, er áttræð í dag. Kristín Ingibjartardóttir, Skipholti 44, Reykjavík, er áttræð í dag. 75 ára Ólína Björnsdóttir, Fossvegi 10, Siglufirði, er sextug í dag. Áslaug Ólafsdóttir, Álfaskeiði 82, Hafnarfirði, er sextug í dag. Sveinn Hannesson, Ásgarði, Reyk- holtsdalshreppi, er sextugur í dag. Jóna Ólafsdóttir, Sóleyjargötu 12, Einar Hallsson, Laufási, Hofsós- hreppi, er sjötíu og flmm ára í dag. Vestmannaeyjum, er sextug í dag. 70 ára 50 ára María Tryggvadóttir, Reynimel 80, Reykjavík, er sjötug í dag. Jófríður Jóhannesdóttir, Skóla- braut 35, Akranesi, er sjötug í dag. Bergþóra Halldórsdóttir, Miðtúni 46, Reykjavík, er sjötug í dag. Aöalheiður S. Steingrímsdóttir, Túngötu 4, Bessastaöahreppi er fimmtug í dag. Hún verður ekki heima á afmælisdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.