Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
3
Fréttir
Terra:
Opið til að svara
spumingum
Fundur fyrrverandi stjórnar ferða-
skrifstofunnar Terru hófst klukkan
9 í morgun og var þar til umræöu
framtíð ferðaskrifstofunnar.
Svo sem kunnugt er seldu fyrrum
eigendur ferðaskrifstofunnar hana
tveimur mönnum, en þeir vilja nú
rifta kaupunum vegna þess að staða
Terru sé önnur og verri en þeir höfðu
álitið. Hafa þeir gengið út, en í for-
svari fyrir fyrirtækinu er nú Torfi
Ásgeirsson, einn fyrri eigenda.
Torfi sagði í samtali við DV að
bæði Flugleiðir og Arnarflug heföu
tekið farmiða sína úr söiu hjá Terru
og engar ferðir væru nú seldar á
vegum ferðaskrifstofunnar, en opiö
væri til þess aö svara spurningum.
Ekki sagði Torfi að þeir sem búnir
væru að fá farmiða þyrftu að óttast
að þeir töpuðu þeim ferðum sem þeir
hefðu greitt fyrir. Ekki vildi Torfi
fortaka að fólk gæti lent í erfiðleikum
í útlöndum, en ef svo yrði myndi fólk
fá aukakostnað vegna þess endur-
greiddan.
Samkvæmt upplýsingum DV er
ekki ljóst enn hvernig fer með riftun-
arkröfu kaupenda Terru, en hitt
virðist ljóst að Terra er nú fyrirtæki
sem enginn vill eiga.
-ój
Sjomannasambandið:
Mótmælir leigu
erlendra skipa
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyri:
Formanna- og sambandsstjórnar-
fundur Sjómannasambands íslands á
Akureyri lýsir áhyggjum sínum
vegna þróunar í íslenskri kaupskipa-
útgerð og mótmælir harðlega
takmarkalausum leigutökum ís-
lenskra kaupskipaútgerða á erlend-
um kaupskipum sem mönnuð eru
erlendum sjómönnum.
í samþykktinni segir að enn blasi
við fækkun íslenskrar farmanna-
stéttar í ljósi þeirrar staðreyndar að
sífellt íjölgar erlendum leiguskipum
sem stunda reglubundnar siglingar
að og frá landinu.
Þessi kona, sem heitir Herdis Haupfelt, keypti egg í góðum friði i gær.
Sagðist hún spara 1200 krónur með því að kaupa eggin fyrir hækkun.
DV-mynd GVA
Eggjahamstur allsráðandi í gær:
„Það uröu
slagsmál
um síðustu
bakkana“
„Við seldum vikuskammt á þrem-
ur tímum, eggin kláruðust i hádeg-
inu,“ sagði Guðmundur Viðar
Friðriksson, verslunarstjóri í Hag-
kaupi, þegar hann var spurður að
því hvort lífleg eggjasala hefði, verið
í gær, eftir fréttir um fyrirhugaða
hækkun á eggjaverði.
„Fólk keypti allt upp í 20 bakka af
eggjum en kílóverðið hjá okkur var
64 krónur. Það urðu slagsmál um
síðustu bakkana," sagöi Guðmund-
ur.
Guðmundur sagði að átökin hefðu
oröiö þegar afgreiðslumanni varð
þaö á, aö segja að þarna væru nú síð-
ustu eggin í búðinni. Flýtti þá maður
nokkur, sem búinn var að taka
nokkra eggjabakka og setja í inn-
kaupavagninn, sér að taka það sem
eftir var. Bar þá að konu eina sem
heyrt hafði til afgreiðslumannsins og
skipti það engum togum aö hún sveif
á manninn og reyndi að ná einhverju
af eggjunum af honum. Maðurinn
vildi ekki láta sinn hlut og hlutust
af þessu nokkur átök. Guðmundur
sagöi að endirinn hefði oröið sá að
konan hefði fengið eitthvað af því
sem maðurinn hafði náð.
..Það hefur verið alveg gífurlega
mikil sala hér," sagði verslunarstjóri
í SS-búðinni í Austurveri í gær. „Við
höfum ekki undan að verðmerkja,
það eru fjórar manneskjur í því, og
það eru enn til egg hjá okkur."
Verslunarstjórinn í Miklagarði tók
í sama streng: mikiö hefði verið að
gera. Þar kláruðust öll egg á hádegi.
-ój
Verðlagsstofnun:
Eggjabændur á fund
„Ég mun kalla þessa menn til fund-
ar til að ræða þessi mál,“ sagði Georg
Ólafsson verðlagsstjóri. þegar hann
var spurður um það hver yrðu við-
brögð Verðlagsstofnunar við ákvörð-
un eggjabænda um samráð um
eggjaverö.
„Við munum reyna að benda þeim
á það að samráð um verðlagningu
er ólöglegt og ef það gengur ekki
munum við leita annarra ráða."
sagöi Georg.
Ekki vildi Georg újá sig um til
hvaða ráðstafana yrði gripið en sagði
að þar kæmi kæra til álita. bann eða
það að eggjaverðlagning yrði tekin
undir verðlagsákvæði.
-ój
FJÖLDI
..
Mazda 929 LTD ’82, ekinn 55 þús.,
sjálfsk., vökvastýri, rafm. rúður og
læsingar, topplúga o.fl. Verð kr. 330
þús., útb. 90 þús., eftirstöðvar til
12 mán.
Chevy Malibu 79, V6, sjálfsk.,
vökvastýri, ekinn 110 þús., mjög
gott eintak. Verð aöeins 190 þús.,
útb. 40 þús., eftirstöðvar til 12 mán.
Peugeot 104 ’82, ekinn aðeins 42
þús., toppbill, sumar- og vetrar-
dekk. Verð kr. 160 þús., útb. 90
þús., eftirstöðvar til 12 mán.
Dodge Aries station ’82, sjálfsk.,
vökvastýri, ekinn aðeins 60 þús.,
toppeintak. Verö kr. 400 þús.
Volvo 244 DL 77, fallegur bíll í góðu
lagi. Verð 150 þús., útb. 20 þús.,
eftirstöðvar til 12 mán.
Nissan Micra '85, ekinn 25 þús.
Verð kr. 250 þús., útb. 70 þús., eftir-
stöðvar til 12 mán.
Dodge Aries ’81, 4 cyl., framdrif,
sjálfsk., vökvastýri, fallegur bill.
Verð kr. 320 þús., útb. 90 þús., eftir-
stöðvar til 12 mán.
Peugeot 505 SR ’82, vökvastýri,
topplúga o.fl., ekinn 100 þús. Verð
kr. 340 þús., útb. 70 þús., eftirstöðv-
ar til 12 mán.
Mazda 626 ’80, sumar- og vetrar-
dekk, huggulegur bill. Verð 150
þús., útb. 20 þús., eftirstöðvar til
12 mán.
Volvo 244 DL '82, ekinn aðeins 40
þús., sem nýr, einn eigandi. Sjón
er sögu rikari.
Notaðir bflar
FRABÆRU VERÐI E
JÖFUR HF
BÍLA Á