Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
Utlönd
Stjómvöld i Kenýa fyrirskipuöu
í gær lokun háskólans í Nairobi og
Daniel Arap, forseti landsins, sagöi
að óeiröir stúdenta viö skólann á
sunnudag sýndu að þeir stæðu í
tlokki meö hvítum mönnum í Suð-
ur-Afríku.
Flestir stúdentar háskólans
fluttu út úr stúdentagörðum hans
í gær samkvæmt fýrirskipan skóla-
yflrvalda. Alls bjuggu um sjö
þúsund stúdentar á görðunum.
Hundmð stúdenta lentu í átökum
við sveitir óeirðalögreglu á sunnu-
dag. Vora stúdentamir að
mótmæla handtöku fimra leiðtoga
sinna, þeirra á meðai nýkjörins
formanns stúdentasamtaka skól-
ans.
Pólska lögreglan réðst í gær inn
á blaðamannafund sem pólski sós-
íalistaflokkurinn, sem nú er reynt
að endurvekja, hélt í Varsjá.
Nokkrura mínútum áðiu- en lög-
reglumenn réðust til inngöngu í
íbúðina þar sem fréttamannafund-
urinn var haldinn var rafmagn
tekið af henni.
Átta fréttamenn voru handteknir
á fundinum og þeim haldið í þtjár
klukkustundir. Þá varð ástralskur
stjómarerindreki að sæta sömu
meðferö.
Rannsókn stendur nú yflr á tildrögum og hugsanlegum orsökum flug-
slyssins í Denver í Bandarikjunura á sunnudagskvöld. Tuttugu og sex
manns létu lífið i slysi þessu þegar DC-9 farþegaþota frá Continental Airl-
ines rann til á flugbraut, hvolfdi og brotnaði i þrjá hluta.
Taiið er hugsanlegt að veður hafi átt þátt í slyslnu. Vonskuveður var
á flugvellinum þegar það átti sér stað. Töluveröur vindur var, kafalds-
bylur með aðeins tvö hundruð metra skyggni og hálka á flugbraut.
Þegar þotunni hvolfdi gereyðilögöust vængir hennar þegar í stað. Stélið
brotnaði síðan af henni og loks brotnaði stjómklefinn frá skrokknum.
Eftir slysið voru um þijú hundraö raetrar á milli stéls og nefs þotunnar.
Björgunarmenn segja að ekki leiki vafi á aö mun fleiri af þeim 81 far-
þega, sem í þotunni var, hefðu farist ef komið heföi upp eldur í braki
hennar. Erfiöiega gekk aö komast að fólkinu og losa það úr sætum sín-
um. Héngu margír öfugir í sætisólum klukkustundum saman eftir slysið.
Viðuríkennir óréttmæti aðskilnaðar
Pix Botha, utanríkisráðherra
Suður-Afríku, viðurkenndi í gær
að aöskilnaðarstefna stjómvalda í
S-Afríku myndi veröa að hverfa,
en varaði um leið við því aö þving-
unaraðgerðir annarra ríkja myndu
skaða nágrannaríki þau sem
stjómað er af þeldökkum meira en
S-Afríku sjálfa.
Ráðherrann sagði í gær að s-
afrísk stjómvöld gerðu sér grein
fyrir nauösyn breytinga og að
yfirráö hvftra myndu taka enda.
Arabarfki era nú óðum að sætt-
ast viö Egypta og taka upp sfjóm-
málasamband við þá aö nýju eftir
tíu ára kulda í sambúð við þá. í gær
lýstu Saudí Arabía og Bahrain því
yfir aö tengsl þeirra við Egyptaland
hefðu veriö endumýjuð og þar með
hafa tólf af tuttugu og einu riki
Arababandalagsins opnað að nýju
sendiráö sín í Kairó.
Ekki hafði verið búist við þvl aö
verulegur hugur fylgdi máli í yfir-
lýsingum þeim sem komu út af
fundi arahaleiðtoga um síðustu
helgi en svo virðist sem raunveru-
legar sættir séu að takast
Unnið að björgunarstörfum við slysstaðinn í Lerum í Svíþjóð þar sem tvær lestir rákust saman í gær. Tíu létust
við áreksturinn og hundrað slösuðust. Simamynd Reuter
Tíu létust í lest-
arslysi í Svíþjóð
Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi:
Ta'a þeirra er létust í lestarslysinu
í Lerum fyrir utan Gautaborg í gær
hefur nú hækkað í tíu. Er óttast að
sú tala kunni að hækka því enn í
morgun haíði björgunarmönnum
ekki tekist að leita í gegnum alla
vagnana. Yfir hundrað manns slös-
uðust og margir þeirra mjög alvar-
lega.
Ekki er enn fyllilega ljóst hvað olli
slysinu en viðgerð á sjálfvirku stýri-
kerfi hafði átt sér stað skömmu fyrir
slysið og er talið að ástæðunnar sé
með einhverjum hætti að leita þar.
Það var um klukkan hálíþrjú í gær
sem slysið átti sér stað. Lest frá
Stokkhólmi kom inn á röngu spori
og rakst á lest frá Gautaborg á mikl-
um hraða. Vitni hafa sagt að gífurleg-
ur smellur hafi orðið og lestirnar
hafi eins og klifrað hvor upp eftir
annarri. Eldur kviknaði þegar.
„Þetta var eins og í helvíti. Reykur-
inn lá yfir öllu svæðinu og blóðið
flaut meira og minna um alla vagn-
ana,“ sagði eitt vitnanna frá atburð-
inum.
Áður en lögregla og hjúkranarfólk
kom á staðinn hafði almenningur á
svæðinu brugðið við skjótt og hafiö
björgunarstarf. Margir hættu lífi
sínu þegar þeir fóru inn í brennandi
vagnana til að hjálpa fólki. Björguð-
ust þannig margir sem ella hefðu
vafalaust orðið eld og reyk að bráð.
Þetta er versta járnbrautarslysið
sem átt hefur sér stað í Svíþjóð á
þessum áratug.
Áætlan-
ir um
árás á
Manila
Heryfirvöld á Filippseyjum sögðu
í morgun að handtaka háttsetts
flokksmeðlims kommúnista hefði
þegar borið árangur. Hefði Juanito
Rivera greint frá áætlunum um mikl-
ar árásir á Manila í smáatriðum.
Hermenn eru nú í viðbragðsstöðu
þar sem búist er við hefndaraðgerð-
um vegna handtökunnar á Rivera á
sunnudaginn. Þó hefur verið gefið í
skyn að Rivera hafi verið svikinn
vegna uppstokkunar í flokknum.
Um tíu manns látast á degi hverj-
um í uppreisninni á Filippseyjum og
samkvæmt upplýsingum hersins eru
flestir þeirra kommúnistar. Heryfir-
völd segjast hafa fellt íjórtán hundr-
uð skæruliða kommúnista það sem
af er ársins en misst tæplega þúsund
hermenn.
Skæraliðar kommúnista eru taldir
vera tuttugu og þrjú þúsund og er
það skoðun vestrænna leyniþjón-
ustumanna að þeim fari fjölgandi.
Mótmælaganga f Manila fram hjá bandaríska sendiráðinu.
Simamynd Reuter