Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987. Útlönd Togara saknað Óttast er aö spánskur togari með þrjátíu og fiögurra manna áhöfn hafi farist í gær út af suðurodda Nýfúndnalands. Að sogn kanadísku strandgæsl- unnar er togarans, sem ber nafhiö Hosanna, saknað og er taliö aö hann hafi sokkiö um tvö hundruö og fimmtiu mílur suð-austur af Nýtúndnalandi. Mikill stormur og stórsjór var á þessu svæði í gær. Síðast heyrðist frá spænska tog- aranum um hádegi í gær. VSUa skjóta úrlausn Stjórnarflokkamir á Italíu vifja allir fá skjóta úrlausn stjómar- kreppunnar í landinu. Segjast leiðtogar fiokkanna fimm reiöu- búnir til þess að jafiia ágreinings- efni sín og binda þar með endi á stjómarkreppuna sera ríkt hefúr frá þvi Giovanni Goria forsætisráð- herra baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á laugardag. Francesco Cossiga, forseti Ítalíu, átti í gær fundi með leitogum allra stjómarflokkanna og þeir munu aÚir hafa lýst sig fúsa til að halda stjómarsamstarfi áfram. Fæiri hermenn en sagt er Stjórnvöld í Suöur-Afríku neita aö gefa upp hversu margir s-afrískir hermenn taka nú þátt í bardögum í Angóla en segja aö þeir skipti hvergi nærri þeim þúsundum sem stjómvöld í Angóla halda fram. Jose Eduardo dos Santos, leiðtogi Angóla, sagði á sunnudag aö um þrjú þúsund suöur-afrískir hermenn tækju nú þátt í bardögum í suðurhluta landsins. Hann sagði aö ennfremur væm um þrjátiu þúsund s-afrískir hermenn til viöbótar staðsettir í Namibíu við landamæri Angóla. Talsmenn s-afríska hersins neita aö gefa upp fjölda hermanna f An- góla. Þeir segja hins vegar að flokkur hermanna hafi farið um tvö hundmð og fimmtíu kílómetra inn íu Angóla til að hiálpa viö að stöðva sókn stjóm- arhers landsins gegn uppreisnarmönnum. Stjóm Angóla nýtur stuðnings Sovétríkjanna en uppreisnarmenn í landinu fylgja vestrænum ríkjum að málum. Að sögn talsmanna hafa nær sex hundmð menn úr stjórnarher Angóla falliö í bardögum i þessum mánuði. Átelur þingmann Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seti, átaidi í gær forseta fulltrúa- deiidar bandaríska þingsins, Jim Wright, fyrir þátttöku hans í fund- um þar sem leitað var leiða að vopnahiéi í Nicaragua. Sagði for- setinn að Wright hefði skapað óvissu með nærvem sinni á fund- inum. Wright segist hafa tekið þátt í viðræðum milli Daniel Ortega, for- seta Nicaragua, og Miguel Obando y Bravo kardínála. Fundir þessir fóm fram í Wasliington í síöustu viku. Herinn eykur viðbúnað Herinn í Bangladesh hefur stór- aukiö viöbúnað súm vegna verk- falla þeirra sem nú hafa staðið í Dacca, iiöfuöborg landins, í sjö daga. Verkfallsmenn krefjast þess að forseti landsins, Hossain Mo- hammad Ershad, segi af sér. Nú em um átta þúsund hermenn komnir til höfuöborgarinnar. Tvö þúsund vom fluttir þangað tii við- bótar í gær eftir aö handsprengja særði tuttugu manns, þar á meðal fjóra lögreglumenn. Stjórnarhermenn hreinsa til á vígvellinum I gær. Simamynd Reuter Felldu tuttugu skæruliða Stjórnarhermenn Nicaragua felldu að minnsta kosti tuttugu af skæruhð- um kontrahreyfingarinnar, í bardög- um sem stóðu um síöustu helgi. Bardagarnir hófust með því að um þrjú hundruð kontraskæruliðar réð- ust á bæinn San Marcos, um hundrað og fimmtíu kílómetra norður af Maragua, höfuðborg Nicaragua. Hinir föllnu lágu á víð og dreif umhverfis þorp í nágrenni bæjarins þegar fréttamenn komu á vettvang í gær. Að sögn sjónarvotta virtust þeir flestir vera unglingar, um eða innan við sautján ára aldur. Stjórnarherinn tók töluvert her- fang eftir bardaga helgarinnar. Meðal þess voru bandarískur her- klæðnaður og bakpokar og sovéskir AK-47 rifílar. Að sögn talsmanna stjórnarhersins féll aðeins einn maöur úr hði þeirra í bardögunum. Að sögn stjórnarhermanna voru aðeins fáeinir kontraskæruliðar felldir í árásinni á San Marcos. Flest- ir þeirra féhu þegar stjórnarhernum tókst að koma þeim aö óvörum þar sem þeir sátu að snæðingi. Að sögn stjórnvalda voru þetta þó sveitir skæruhða sem tekið höföu þátt í árá- sinni á bæinn, en síðan flúið vegna harðrar mótstöðu stjómarhersins. LHvörður drottningar skaut viðvörunarskotum Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmarmahöfn; Lifverðir Margrétar drottningar skutu á sunnudagskvöld við- vörunarskotun að einum eða fleiri mönnum er áttu leið um bannsvæði við Fredensborgarhöll á Norður- Sjálandi. Lögreglu var strax gert viðvart og var sleginn hringur um hölhna, meöal annars með vegatálm- um en enginn fannst. Hefur lögreglan alla helgina leitað að manni er sást við hölhna á föstu- dagskvöld en þá skaut lífvöröurinn einnig viðvörunarskotum eftir við- vörunarköh til mannsins. Þá var drottningin í hölhnni en á sunnudagskvöld fór hún meö lest til Parísar ásamt Henrik prins. Á aðal- jámbrautarstöðinni var meiri fjöldi öryggisvarða en vanalega vegna þessara atburða. Þessar óleyfilegu mannaferðir á lóð drottningarinnar hafa leitt til þess aö hirðin og lögreglan endurskoða öryggisráðstafanirnar í kringum drottninguna með eílingu þeirra fyr- ir augum. Vitni í nágrenni Fredensborgar- hallar hafa sagt lögreglunni frá dularfuhum sendiferöabíl með þrem- ur mönnum er keyrðu á ofsahraða frá höhinni um svipað leyti og skotið var. Leyniþjónusta lögreglunnar úti- lokar ekki að hefndarverkamenn hafi verið á ferð. Drottningin tók atburðum þessum með ró og gat ekki skihð að nokkur vhdi henni eða fjölskyldu hennar nokkuð iht. Samkvæmt reglum lífvarðarins á að skjóta föstum skotum næst er sést th grunsamlegra mannaferða á bannsvæði hahar drottningar. Und- irstrikar lögréglan því hættuna á að voga sér of nálægt drottningunni að næturlagi. Irakar segjast viðbúnir Olíuflutningaskipið Esso Freeport á siglingu í Hormuzsundi eftir að ráðist var á það í gær. Símamynd Reuter írak, sem styrkst hefur í stöðu sinni gagnvart íran vegna trausts stuðnings bandamanna sinna, kveðst munu brjóta á bak aftur ahar árásir írana. íranskir byltingarverðir héldu áfram árásum á hafnarborgina Basra í gær og einnig nokkrar borgir við landamærin í norðri. Fehdu þeir tíu manns og særðu þrjátíu og tvo. Einnig voru gerðar árásir frá írönskum hraðbátum á Persaflóa í gær á tvö olíuflutningaskip. Utanríkisráðherra Iraks var thbú- inn til viðræðna við aðalritara Sameinuðu þjóðanna á föstudag en hélt kyrru fyrir í Bagdad eftir að hann frétti að íran myndi ekki senda samningamann. íranir hafa ekki th- greint hvenær þeir senda fulltrúa th New York th vopnahlésviðræðna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.