Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987. . 19 Dægradvöl ræður ríkjum Það þykir gott mál og í tísku að ganga í heimasaumuðum fótum í ag. Konur á öllum aldri keppast við að bæta við það sem þær lærðu í fatasaumi og hönnun í æsku og ungar sem aldnar monta sig af heimatilbúnu fótunum sem þær ganga í: „Sko, þetta saumaði ég sjálf eftir sniði sem ég fann og ég var ekki nema nokkra klukkutíma að sauma þetta.“ Karlar hafa hins vegar lítið farið inn á þessa braut enn sem komið er enda lítil áhersla lögð á handavinnukennslu pilta í skólum, nema þá kannski helst grundvallarkennslu í hekli, út- saumi og í því að festa tölur og hnappa ef svo illa skyldi vilja til að þeir þyrftu að bjarga sér sjálfir ef í nauðir rekur. Þarna hefur jafn- réttismálum eigi verið sinnt sem skyldi og á meðan breytingar verða ekki á stendur eftir gamla þumalf- ingursreglan: Strákar smíða en stúlkur sauma! Fyrir nokkrum árum þótti ekki par fínt að ganga í heimasaumuðu. Einstaka sparsamar heimavinn- andi húsmæður hentu saman’ bútum og afgöngum og kölluðu það buxur eða skyrtur á börnin og var viss fátækrastimpill á þeim fatnaði og þeim sem klæddust heimilisiðn- aðinum var yfirleitt vorkennt af þeim kurteisu en tillitslausari tán- ingar hlógu að jafnöldrum sínum sem ekki gátu flíkað fatnaði með þekktum merkjum. Sem betur fer er öldin önnur núna. Um allt land keppast konur og stúlkur við að sauma sér fót eft- ir aðfengnum sniðum sem til eru í miklu úrvali og hægt að nálgast í efnabúðum, tímaritum og klúbb- um. Sauma- og sníðanámskeið eru í gangi og eru þau vel sótt. Þá eru margar svo langt komnar að þær geta breytt sniðunum og bætt og jafnvel búið til snið sjálfar. Sauma- gleðin er slík og stoltið yfir að ganga í heimasaumuðu að frést hefur af konum sem keypt hafa rándýran fatnað, klippt þekkt merki af og sýnt fótin sem heima- saumuö. Mikill sparnaður fylgir því að sauma fótin heima, á því leikur enginn vafi. Það er leiðarljós margra saumakvenna. Hjá öðrum vegur þyngra sú ánægja aö ganga í heimasaumuðum fótum. Þar ræð- ur sköpunargleðin ríkjum og eins sú vissa að engin önnur kona á nákvæmlega eins fatnað. Sköpunargleöi, góð efni og tísku- snið, spamaður og hagkvæmni hafa því gert það að verkum að fatahönnun í heimahúsum er í tísku. Og það sem meira er: Flestir virðast vera á einu máli um það að þetta detti ekki úr tísku í nán- ustu framtíð. -ATA Texti: Axel Ammendrup Málin rædd af mikilli alvöru á saumanámskeiði sem Nýtt af nálinni hélt i síðustu viku. DV-mynd KAE <■ fifs Það er í tísku að ganga í heimasaumuðu - sköpunargleðin Lifandi klúbbur fyrir fólk sem vill sauma sjálft - segir Ragna Þórhallsdóttir, ritstjóri handavinnuklúbbsins Nýtt af nálinni, sem er með á fimmtánda þúsund félaga „Það hefur verið geysimikill áhugi fyrir klúbbnum. Það eru á fimmtánda þúsund félagsmenn og félagarnir eru mjög virkir. í hverj- um mánuði berast okkur 6-8 þúsund lausnir við getraunum sem við erum með í blaðinu. Þá höfum við auglýst námskeið fyrir félaga og verið með nokkur slík í viku hverri fyrir félaga í Reykjavík, auk þess sem við höfum staðið fyrir námskeiðum á Selfossi, Egilsstöð- um, Akureyri, ísafirði, Akranesi og fleiri stöðum,“ sagði Ragna Þór- hallsdóttir, ritstjóri handavinnu- klúbbsins Nýtt af nálinni, sem rekinn er í samvinnu við bókafor- lagið Vaka-Helgafell. Nýtt af nálinni hefur nú verið starfrækt í rúmt hálft ár og sent frá sér sex tímarit sem innihalda tísku- myndir af fatnaði fyrir konur, karla og börn ásamt sniðum, prjó- nauppskriftum og handavinnuá- bendingum. Þá hefur fylgt sendingunum frá klúbbnum leið- beiningarrit fyrir byijendur um saumaskap og hönnun. Þá gefur Nýtt af nálinni út Klúbbfréttir mánaðarlega. „Viðtökurnar hafa verið mjög já- kvæðar. Félagamir eru afar virkir og verið duglegir við að hafa sam- band viö okkur, en við eram með leiðbeiningarþjónustu á skrifstofu- tíma hvern dag. Á hverjum degi þagnar síminn varla á milli klukk- an 9 og 17 og eru saumakonur þá að leita ráða hjá okkur. Þessi við- brögð eru afar skemmtileg og sýna að við erum með lifandi klúbb í höndunum. Þá erum við alltaf með sauman- ámskeið í gangi og þau eru vel sótt,“ sagði Ragna. Ragna sagöi að klúbbfélagar gerðu mikið að því að skrifa og senda myndir af því sem þeir væru að gera, bæði til að sýna eigin hönnun og það sem kæmi út úr leiðbeiningum og sníðaörkum Nýs af nálinni. „Áður fyrr voru konur að sauma heima til að spara. Núna er það ekki síður sköpunargleðin og án- ægjan yflr því að klæðast einhverju sem maður hefur sjálfur búið til sem ræður því að konur sauma heima. Margar konur hafa góða undirstöðumenntun í saumaskap, en við komum til móts við þær jafnt þeim sem eru byijendur í faginu 'með leiðbeiningum okkar og nám- skeiðum. Nýtt af nálinni er eiginlega fram- hald af skólanáminu í handavinnu, en úr handavinnukennslu hefur því miður dregið í grunnskólum," sagði Ragna Þórhallsdóttir. „Við höfum lítið verið með snið að hátískuvarningi enn sem komið er en við stefnum að þvi að auka mjög framboðiö af tískuflíkum og íslenskri hönnun,“ sagöi Ragna að lokum. -ATA Ásdis Jóelsdóttir, starfsmaöur Nýs af nálinni, og Ragna Þórhallsdóttir ritstjóri skoða hér flikur sem Gerður Pálmadóttir i Flónni hannaði fyrir Nýtt af nálinni. DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.