Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 21
20
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
21
fþróttir
Iþróttir
Tobbi Jens
fékk tveggja
mánaða bann
Gunnlaugur A. lónsson, DV, Sviþjóð:
Þorbjörn Jensson, fyrrverandi fyr-
irliði íslenska landsÚðsins í hand-
knattleik, sem starfar nú sem þjálfari
2. deildar liðsins IFK Malmö í Sví-
þjóð, er nú kominn í slæmt mál í
Svíþjóð. Þorbjörn hefur verið dæmd-
ur í tveggja mánaða bann og er á
þessum tíma útilokaður frá öllu sem
heitir handknattleikur. Rökin fyrir
þessum dómi eru þau að Þorbjöm á
að hafa lagt hendur á dómara og
tímavörð í bikarleik IFK Malmö og
Trælleborg í haust. IFK Malmö var
á sínum tíma gefínn kostur á að
skýra málið fyrir dómstólum en ein-
hverra hluta vegna fórst það fyrir
hjá forráðamönnum liösins.
„Ég neita því alfarið að hafa lagt
hendur á dómarann eða tímavörð-
inn,“ sagði Þorbjörn Jensson í
samtali viö DV. „Ég viðurkenni það
fúslega að ég reifst við dómarann
sem hafði dæmt fáránlega aUan leik-
inn. Hann rak mig af leikvelli og ég
gekk þá að stól utan við völlinn og
sparkaði í hann. Þá kom tímavörður-
inn æðandi að mér og veifaði penna
framan í mig. Ég sló þá pennann úr
hendinni á honum en meira gerði ég
ekki. Ég veit að þetta er ekki íþrótta-
mannsleg framkoma en dómurinn
er mjög harkalegur og bitnar auðvit-
að fyrst og fremst á mínu liði en ekki
mér sjálfum. Ég er ekki síbrotamað-
ur á þessu sviöi og hef aldrei fengið
svo mikið sem áminningu sem þjálf-
ari hér í Svíþjóð," sagði Þorbjörn.
„Útilokaður frá öllu sem heitir
handbolti 12 mánuði“
„Þessi dómur gerir það að verkum
að ég er útilokaður frá öllu sem heit-
ir handbolti í 2 mánuði. Ég má ekki
stjórna liðinu í næstu leikjum sem
þjálfari hvað þá að spila með. Við
ætlum að áfrýja þessum harkalega
Forseti
íhugar
afsögn
- hjá Kaiseislautem
Sigurður Bjömsson, DV, Þýskalandi:
Ekki batnaði ástandið innan her-
búða Kaiserslautern eftir tapleikinn
gegn Nurnberg á heimavelli um síð-
ustu helgi. Allt er í upplausn hjá
félaginu.
Orðrómur er á kreiki um að forseti
félagsins, Jurgen Friedrich, segi af
sér. Hann ætlar á næstu dögum að
hugsa sinn gang og í framhaldi af því
að taka ákvörðun -JKS
dómi og reyna að skýra málið frá
okkar sjónarhorni,“ sagöi Þorbjöm.
Þorbjörn áhorfandi á leik H-43
og iFK Malmö
Um síðustu helgi lék IFK Malmö
gegn H-43 og horfði Þorbjöm á leik-
inn úr áhorfendastæðum. Leiknum
lauk með jafntefli, 32-32, en með
góðri stjórn af varamannabekknum
hefði IFK Malmö án efa sigrað í
leiknum. Það var greinilegt að Þor-
björns var sárt saknað. Lið Þorbjörns
er nú efst í nyrðri hluta 2. deildar
með 11 stig eftir 7 leiki og stendur
vel að vígi hvernig sem framhaldiö
verður.
Þorbergur er meiddur
Lið Þorbergs Aðalsteinssonar, sem
leikur í syðri hluta 2. deildarinnar,
er einnig efst, með 14 stig eftir 8 leiki
ásamt Hellas. Þorbergur lék ekki
með Saab um síðustu helgi þegar
Saab sigraði Hellton, 23-20. Þorberg-
ur lék ekki vegna meiðsla en hann
hafði fyrir leikinn skorað 40 mörk í
7 fyrstu leikjunum. -SK
• Þorbjöm Jensson fékk strangan
dóm í Svíþjóð
íionola
• Liam Brady.
, .Þetta er hrottalegt, hreint ótrú-
legt. Ég hef aldrei vitað til þess fyrr
aö leikmaður væri settur í fjögurra
leikja bann eins og nú hefur komið
á daginn,“ sagði Jackie Charlton,
landsliösþjálfari írlands, eftir aö
hann frétti að UEFA, knattspymu-
samband Evrópu, hefði dæmt írska
landsliðsmanninn Liam Brady í
Qögurra leikja bann í landsleikjum.
Þaö þýöir að Brady, þekktasti leik-
raaður írska lýðveldisins, getur
ekki leikið í úrslitum Evrópu-
keppninnar í Þýskalandi næsta
sumar nema írland leiki til úrslita
í keppninni.
írska knattspymusambandiö
hefur þegar áfrýjaö dómi UEFA.
Brady var rekinn af velli í Evrópu-
leik Irlands og Búlgaríu í 7. riðli í
Dublin 14. október sl. þegar sjö
mínútur voru til leiksloka. í dómi
aganefhdar UEFA segir aö hann
hafi verið dæmdur í leikbanniö fyr-
ir „sérlega ofsalega framkomu".
Liam Brady, sem oft hefur leikiö
hér á landi, hefur leikið 67 lands-
leiki fyrir írMnd en aldrei leikið í
úrslitum þýðingarmikillar keppni.
Hann hefur aldrei verið rekinn af
velli fyrr en hins vegar fékk hann
tvívegis áminningu 1984 i Evrópu-
leikjum. Var þá dæmdur í eins leiks
bann.
•hsím
ÞjáHar Pleat
Ragga Margeirs?
Olympiakos, gríska meistaraliðið, sem
hefur hug á því að fá Ragnar Margeirs-
son til sín og reyndi án árangurs á
dögunum að fá Lárus Guðmundsson
sem lánsmann frá Kaiserslautern, er
einnig að leita að nýjum þjálfara. David
Pleat, fyrrum stjóri Tottenham og Lut-
on, hefur verið nefndur í því sambandi
og í gær ræddi hann við forráðamenn
félagsins. Olympiakos varð grískur
meistari í knattspyrnu í vor og hefur
fimm sinnum oröið meistari frá 1980 -
langfrægasta félag Grikklands með 25
meistaratitla og 18 bikarsigra. Panat-
hinaikos kemur næst með 14 meistara-
titla og 9 bikarsigra.
í haust hefur liðinu gengið mjög illa.
Það hefur ekki sigrað í sjö fyrstu leikj-
un-
um í deildinni og fyrir tveimur vikum
hætti þjálfarinn, Alketas Panagóulias;
þoldi ekki álagið. Hann var eitt sinn
landsliðsþjálfari USA í knattspyrnunni.
-hsím
Fjórir leikir
voru leiknir i Islandsmótinu í blaki um helgina. A Akureyri tóku KA-ingar
á mótFHK bæði í karla- og kvennaflokki. I 1. deild karla unnu heimamenn, 3-1, og sýndu ágætan leik. Segja má
að Akureyringar hafi leikið á als oddi og höfðu Kópavogsbúar lítið i þá að segja. Þeir unnu 1. hrinuna eftir mikla
baráttu, 17-15. Næstu hrinu unnu HK-ingar svo, 15-9. KA-menn sigruðu I næstu tveimur hrinum, 15-9 og 15-8, og
þar með leikinn. Bestur hjá KA-mönnum var Stefán Magnússon sem var eins og klettur í hávörninni en hjá HK
bar mest á Einari Ásgeirssyni. Hafsteinn Jakobsson lék nú sinn fyrsta leik í vetur með KA og var sterkur i sókninni.
• Sömu lið áttust við í 1. deild kvenna. Þar sigruðu HK-stúlkurnar, 3-1. Þær unnu tvær fyrstu hrinurnar, 15-8 og
15-2, en i þriðju hrinu skorti þær leikreynslu til að gera út um leikinn og töpuðu þeirri hrinu, 14-16. Þær unnu
hins vegar síðustu hrinuna, 15-5. Best í liði HK var Heiðbjört Gylfadóttir og hjá KA spilaði Freydís Arngrímsdóttir
vel upp þrátt fyrir lélegt framspil. Myndin að ofan er úr leik KA og HK.
• Á Neskaupstað áttust við Þróttur, N„ og Þróttur frá Reykjavík. í karlaflokki sigruðu Reykvíkingarnir, 3-1, en
þeir léku án Leifs Harðarsonar og Samúels Erlingssonar. Þeir unnu 1. hrinu, 15-9, en töpuðu þeirri næstu, 9-15.
Þeir gerðu siðan út um leikinn með þvi að sigra í tveimur næstu, 15-10 og 15-9. í kvennaflokki sigraði Þróttur, R„
3-0, en þær léku án Bjargar Björnsdóttur og Lindu. Þær sigruðu í 1. hrinu, 15-0, en urðu fyrir því óhappi að
Anna Einarsdóttir sneri sig og lék ekki meira með þeim. Þær náðu þó að merja tvær næstu hrinur, 13-15 og 14-16.
• Á fimmtpdaginn sigraði ÍS HSK, 3-0. -B og GK, Akureyri
Ekkert óvænt þegar lands-
liðshópurinn var kynntur
- Framundan evu tveir leikir gegn Pólverjum og alþjóðlegt mót á Akureyri og Húsavík
Bogdan Kowalczyk, þjálfari ís- BrynjarKvaran........KA HermannBjömsson........Fram hafa einnig hafið undirbúning sinn
lenska landsliðsins í handknattleik, GuðmundurHrafnkelsson.UBK BirgirSigurðsson.Fram fyrir ólympíuleikana. Meöal leik-
hefur vahð 17 manna hóp sem mætir GísliFelixBjamason.....KR • Fyrri leikur íslands og Póllands á manna Pólveija er Bogdan Wenta,
Pólveijum í tveimur landsleikjum í AÐRIR LEIKMENN miðvikudagskvöldið hefst kl. 20.30 einn sterkasti handboltamaður í
Laugardalshöllinni á miðvikudags- ÞorgilsÓttarMathiesen.....FH og strax á eftir leika Portúgalir og heiminum í dag.
kvöld og fimmtudagskvöld. Síðan Jakob Sigurðsson.......Valur íslenska unglingalandshðið skipað íslendingar og Pólverjar hafa inn-
halda þessar þjóðir ásamt Portúgöl- Bjarki Sigurðsson...Víkingur leikmönnum 21 árs og yngri. Seinni byrðis leikið 29 sinnum. Pólverjar
um og ísrael til Akureyrar og KarlÞráinsson.......Víkingur leikur íslands og Pólveija á fimmtu- hafa sigrað 20 sinnum, Islendingar
Húsavíkur en á þessum stöðum verö- Siguröur Gunnarsson.Víkingur dagskvöldið hefst kl. 20.30 en á undan unnið í 8 leikjum og einu sinni hefur
ur um næstu helgi haldið KEA Alfreð Gíslason......Essen eða kl. 18.30. leikur íslenska ungl- prðið jafntefli.
4-þjóða handknattleiksmót. Mótið er Páh Ólafsson....Dusseldorf ingalandsliðið gegn ísrael. íslendingar hafa unnið í tveimur síð-
einnig haldið í tengslum við 125 ára Guömundur GuðmundssonVíkingur Islenska unglingalandsliðið fær ustu viðureignunum með einu
afmæh Akureyrarbæjar. KristjánArason.Gummersbach þarna gott tækifæri til undibúnings marki. í Moskvu i fyrra, 22-21, og í
• Landshð íslands veröur skipað Geir Sveinsson...Valur fyrir HM-keppnina sem hefst í byrj- Wismar á Polar Cup á þessu ári,
eftirtöldum leikmönnum; SigurðurSveinsson....Lemgo un desember í Júgóslavíu. 29-28.
MARKVERÐIR Atli Hilmarsson.......Fram Pólverjar koma hingað til lands -JKS
Einar Þorvarðarson...Valur JúlíusJónasson..........Valur með sitt aUra sterkasta liö en þeir
Siguröui Ðjámsaon, DV, Þýskakndi:
,JÉg er mjög ánægður meö leik-
inn gegn Bayem Múnchen um
síöustu helgi. Arie Haan, þjálfari
liðsins, undirbjó Uöiö sérstaklega
vel fyrir leikinn og kom leik-
mönnum í skilning um þaö aö Uð
Bayem væri ekki óyfirstiganleg-
ur hjalli og þegar á hólminn kom
var þetta ekki svo erfitt,“ sagöi
Ásgeir Sigurvinsson í viötah við
þýska íþróttatímaritið Kicker í
gær..
• Asgeir fær mjög góða dóma
fyrh- leikinn gegn Bayem oe fékk
tvo í einkunn sem þýðir lanqsliös-
klassi.! fyrirsögn segir aö Asgeir
hafi sýnt frábært „come back‘Ten
hann hafði ekkert lelkiö meö
Stuttgart í fimm vikur vegna
meiösla. Hann er sagöur hafa veriö
bestur í Uöi Stuttgart ásamt Klins-
mann og þeir hafl lagt grunninn
að sigri Stuttgart.
Blaöiö segir einnig að Lothar
Matheus hafl algjörlega falhð í
skuggann af Asgeiri Sigurvins-
syni.
Þ0r Og IBV, tvö efstu liðin í 2. deild kvenna í handbolta, léku á
Akureyri um síöustu helgi. Liðin léku tvo leiki, en þrefóld umferð er leikin í
2. deild kvenna. Liðin skiptu sigmnum með sér að þessu sinni. Þór vann
fyrri leikinn, 19-16, eftir að ÍBV hafði leitt í leikhléi, 7-9. Inga Huld Páls-
dóttir skoraði 9 mörk fyrir Þór en markahæst hjá ÍBV var Ingibjörg Jónsdóttir
með 5 mörk.
• í síðari leiknum var ÍBV nær ajltaf yfir, leiddi í leikhléi, 10-13, og ÍBV
vann síðan ömggan sigur, 21-26. Andrea Atladóttir skoraði 8 mörk fyrir ÍBV
en hjá Þór var Inga Huld markahæst með 6 mörk. Myndin að ofan er frá
viðureign Uðanna um síðustu helgi. DV-mynd GK/Akureyri
Inter Milano keypti
innska inarkaskðrarasii
Allt bendir nú til þess að Mika áfram í 3. umferð UEFA-keppninn-
Aaltonen verði fýrsti Finninn í ít- ai* *. Forráöamenn Inter voru rojög
ölsku knattspymunni. Inter Milano hrifnir af Aaltonen í UEFA-keppn-
hefur þegar keypt hann en Aaltonen inni og sýndu þaö í verki þegar þeir
er nú atvinnumaöur hjá svissneska tryggöu sér Ieikmanninn. Næsta
félaginu BelUnzona og verður þar leiktimabil er reiknaö með aö Finn-
fyrst um sinn sem lansmaöur frá inn leiki á Ítalíu, ekki þó meö Inter
Inter. heldur sem lánsmaður hjá einhveiju
Það hefUr margt breyst hjá þessum ööm ítölsku féiagi. Slíkt er mjög al-
flnnska landsUðsmanni fra því hann gengt á ItaUu og má f þvi sambandi
skoraði eina markið í Milano á dög- nefna Danann Michael Laudrup sem
unum i leik Inter og TPS Turku. lék sem lánsmaður með Lazio fýrst
Hins vegar tapaöi finnska liðið eftir aö Juventus keypti hann.
heimaieiknum, 0-2, svo Inter komst -hsim
• Asgeir Sigurvinsson.
Frábært
„comeback“
hjá Ásgeiri
- segír í fyrirsogn Kicker
Stórsigur
hjá KR-ingum
- unnu UBK, 86-48
KR-ingar áttu ekki í neinum
erfíöleikum með aö leggja afar
slakt Uö BreiöabUks aö velU er
liöin léku í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik um síðustu Uelgi.
Lokatölur urðu 86-48 eftir aö
staðan haföi verið 41-22 f leik-
hléi. Lið BreiðabUks á greinilega
langt í land í körfunni og veröur
örugglega án stiga í vetur.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 20,
Ástþór Ingason 15, Guðni Guðna-
son 14, Símon Ólafsson 14,
Matthías Einarsson 5, Bjöm 4,
Hörður Gauti 2, Ámi Blöndal 2
og Ámi Guðmundsson 1.
Stig Breiðabliks: Kristinn Al-
bertsson 11, Guðbrandur Lárus-
son 11, Ólafur 10, Hannes 6, Bjöm
4, Lárus3, Jón Gauti 2, Hjörtur 1.
• Góðir dómarar voru þeir Sig-
urður Valur Halldórsson og
Gunnar Valgeirsson.
Guðný formaður
Guðný Eiríksdóttir var kosin
formaður Tennissambands íslands
á stofiifundi þess sem haldinn var
í íþróttamiðstöðinni í Laugardal
ura síðustu helgi. Skráðir iðkendur
tennisíþróttarinnar em ura eitt
þúsund. í stjórn með Guðnýju voru
kosin, Amar Arinbjamar, Árai
Tómas Ragnarsson, Guömundur
Eiriksson og Margrét Svavarsdótt-
ir. Halldór Arason og Ingveldur
Bragadóttir vom kosin i vara-
stjóm.
• David Pieat. Simamynd Reuter
Guðný Eiríksdóttir, fyrstl 1or-
maður nýstofnaös Tennlssam-
bands íslands.
„Geysilega eifið ákvörðun," segir Birkir Kristínsson sem varið
Birkir Kristinsson , einn snjallasti mark-
vörður landsins i knattspyrnu ákvað i gær að hætta að ieika með Akurnesingum og
mun hann á næstu dögum skrifa undir félagaskipti yfir i Fram. Framarar fagna eflaust
komu Birkis sem mun taka sæti Friðriks Friðrikssonar i Fram-liðinu en hann er sem
kunnugt er á förum til Danmerkur. Ekki er vitað hver mun standa í marki ÍA næsta
sumar en líklegt má telja aö Skagamenn hefji brátt leit að arftaka Birkis.
DV-mynd Sigurgeir Sveinsson
„Ég hef ákveðið að ganga til liðs
við Fram. Þetta var geysilega eríið
ákvörðun. Þaö sem réði þessari
ákvörðun minni var að ég er að
klára nám í Háskólanum og í fram-
haldi af því bjóðast margir mögu-
leikar í Reykjavík," sagði
knattspyrnumaðurinn Birkir
Kristinsson en hann ákvað í gær
að ganga til liðs við Framara eftir
að hafa verið markvöröur Akur-
nesinga undanfarin ár.
„Meö því að ganga til liðs við
Fram sé ég fram á tækifæri tU að
spreyta mig með mjög góðu liði og
þetta er virkilega spennandi. Ég er
mjög bjartsýnn á gengi Fram á
næsta keppnistímabili og ég vona
bara að ég falli vel inn í hópinn og
standi mig enn betur en á síðasta
keppnistímabili sem er að mínu
mati það besta hjá mér hingað til.
Mér líst mjög vel á þjálfarana hjá
Fram og þeir eiga örugglega eftir
aö hjálpa mér mikiö,“ sagði Birkir
Kristinsson.
• Fram er mikill fengur í Birki
þar sem Friðrik Friöriksson, aðal-
I
hefur mark ÍA undanfarin ár |
markvörður liðsins, mun leika i |
Danmörku næsta sumar. Birkir .
var aö margra mati besti mark- I
vörðurinn í 1. deildinni í fyrra og ■
varði mark ÍA oft af stakri snilld. ■
Hann er 23 ára og hefur leikið með I
öllum landsliðum íslands í knatt- 1
spyrnu nema a-liðinu. „Ég er mjög |
feginn aö þessum vangaveltum .
mínum skuli vera lokið og ég vil |
byrja að æfa sem allra fyrst,“ sagði ■
Birkir Kristinsson.
-JKS/SK |
---------------------------------1
Per Frimann óloglegur og sigurleikur Dana tapaður
„Danski leikmaðurinn Per Frimann
Hansen hefur þrívegis komið inn sem
varamaður í leiki Dana í heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu. Sam-
kvæmt reglum má leikmaður aðeins
einu sinni leika í HM-liði lands síns og
ekki leika allan leiktímann, 90 mínútur,
til þess að vera hlutgengur í ólympíulið-
ið. Sigur Dana, 2-0, gegn Póllandi hefur
þvi verið ógiltur og Pólverjum dæmdur
sigur, 2-0, í leik landanna í ólympíu-
keppninni,“ sagði talsmaður FIFA,
alþjóðaknattspymusambandsins, í
Zurich á föstudag, eftir aö FIFA hafði
dæmt leik Dana í Póllandi tapaðan þar
sem Per Frimann.sem leikur með And-
erlecht í Belgíu, lék með danska liðinu.
Það mátti hann hins vegar ekki sam-
kvæmt reglunum.
Þrátt fyrir þennan dóm FIFA eru Dan-
ir þó sigurstranglegastir í A-riðlinum í
Evrópu. Þeir hafa nú sex stig úr fjórum
leikjum, markatalan 15-3 eftir dóminn,
en Vestur-Þjóðverjar koma næstir með
fjögur stig úr þremur leikjum, marka-
tala þeirra 8-2. Á miðvikudag, 18.
nóvember, leika Danir og V-Þjóöverjar
í riölinum í Kaupmannahöfn. Sigri Dan-
ir í leiknum eru þeir nær öruggir með
sæti í knattspyrnukeppni ólympíuleik-
anna í Seoul eftir tæpt ár.
-hsím
Hola í höggi
Þorvaldur Ásgeirsson golf-
kennari vann það einstæða
afrek í gær að fara holu í höggi
á 3. braut Nesvallarins. Þor-
valdur hefur stundað golf í
rúm 50 ár og aldrei áður náð
draumahögginu fyrr en í gær
og varla hefur hann átt von á
þvi að gera.það um miðjan
nóvember á Islandi. -SK