Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987. Fréttir Ólafsfjörður: Höfnin í stórhættu Gylfi Kristjámsson, DV, Akureyii: „Viö erum stöðugt að reka á eftir þessu, en því miður án árangurs til þessa,“ sagði Valtýr Sigurbjam- arson, bæjarstjóri á Ólafsfirði, en fé hefur ekki fengist til að gera við skemmdir sem urðu á höfninni þar í óveðri snemma í haust. Skemmdirnar urðu aðallega á hafnargarði í vesturhöfninni, niðri á svokölluðum Norðurgarði. Val- týr sagði að Ólafsfirðinga hefði vantað um 10 milljónir króna til að hægt væri að ráðast í þetta verk og vinna að nauðsynlegum við- gerðum. „Við ræddum við þingmenn í lok október og fórum fram á að þeir þrýstu á að hafnabótasjóður gæti sinnt hlutverki sínu í þessu máli, en því miður án árangurs enn sem komið er,“ sagði Valtýr. „Það er grábölvað að hafa ekki getað notað góðviðriskaflann að undanförnu til þessa verks. Eins og ástandið er í dag er mikil hætta á enn frekari skemmdum ef við fáum slæmt veður. Það má segja að höfnin sé í stórhættu. Veð- rið í haust, þegar skemmdirnar urðu, var ekki með verstu veðrum sem hér koma og ef við fáum hér óveöur og brim þá eru mannvirki í stórhættu. Ef við lítum til hátíðanna, sem fram undan eru þegar flotinn verð- ur allur í höfn, verður ástandið ekki glæsilegt ef gerir slæmt veður hér. Þá eru það ekki bara mann- virki sem verða í hættu heldur einnig skiþin. Við erum því mjög uggandi,“ sagði Valtýr. Vegagerð við Hólmavík: íbúar óhressir með mjókkun vegarins Að imdanförnu hefur Vegagerð- ir þessar breytiiigar, auk þess verði er hækkaður um 30-40 cm og þaö in unniö aö því að styrkja þjóðveg- mjög erfitt fyrir bíla að mætast á gerir það aö verkum aö snjó festir inn sunnan Hólmavíkur. Til þess svo míóum vegi. síöur á honum. Það er ekki talin að drýgja fjármagn það sem úr er Magnús Guðmundsson, verk- svo mikil umferð á þessum kafla að spila greip Vegageröin til þess stjóri hjá Vegagerðinni, sagði í aö það komi að sök þó vegurinn sé ráös að mjókka veginn úr 6,5 metr- samtali viö DV aö allar götur hefði mjókkaöur. Þaö má náttúrlega um niöur í 5,5 metra svo aö styrkja veriö mikil aurbleyta á vorin á deila um þessar firamkvæmdir en mætti lengri kafla. Eru íbúamir á þessum kafla vegarins sem nú væri fólk verður að hafa þaö í huga að Hólmavík gramir vegna þessarar verið að styrkja. „Ég held aö allir þegar vegurinn veröur heflaður, ráöstöfunar þar sem þeir tefja að veröi fegnir aö eiga ekki yfir höföi heflast hann smám saman út og vegurinn lokist f'rekar í spjóum eft- sér drullusvaö á vorin. Vegurinn breikkarþarafleiðandi.“ -J.Mar Anna bigófisdóttir, DV, Egilsstöóum: Nýlega hélt Austurlandsdeild Sam- taka um jafnrétti milli landshluta fund á Egilsstöðum. Þar var m.a. eft- irfarandi ályktun samþykkt sam- hljóða: Fundur Austurlandsdeildar Sam- taka um jafnrétti milli landshluta, haldinn í Valaskjálf á Egilsstöðum, rifjar upp hversu kosningastefnu- skrár allra flokka voru þrungnar umhyggju fyrir landsbyggðinni. Tel- ur fundurinn furðu sæta hversu margt úr þeim hefur ekki einasta glatast á ekki lengri tíma heldur gengið þvert á fyrirheit. Ber þar hæst nýlega fram komið frumvarp til fjárlaga 1988, þar sem niöurskurð- ur virðist einkum bitna á undir- .stöðuatvinnuvegunum og ýmsum atriðum sem máli skipta fyrir við- hald búsetu í hinum dreiföu byggð- um. Þá telur fundurinn brýnt, til að Frá fundi Austurlandsdelldar Samtaka um jafnréttl milli landshluta. DV-mynd Anna Ingólfsdóttir koma í veg fyrir frekara hrun byggð- stjómum svo fljótt sem auðið er og ar víða um land, að komið verði á fót þeim fengið veruleg verkefni og íjár- lýðræðislega kjörnum landshluta- ráð. Austuriandsdeild Samtaka um jafhiétti milli landshluta: Kosningaloforðin gleymd Þessi beið eftir pillunni DV-mynd GK Akureyrartiundar fengu pilluna Gylfi Rristjánsson, DV, Akureyri: Það var dálítið lævi blandið, loftið í gömlu Gróðrarstöðinni á Akureyri á laugardagsmorguninn. Þar fór þá fram hin árlega hundahreinsun bæj- arins og hundamir streymdu á staðinn með eigendum sínum. Þeir voru þar af öllum gerðum og stærðum og var ekki laust við að sumir þeirra væra örlítið hræddir að vera innan um hina. Aðrir virtust til í allt og reyndu aö komast að þeim sem næstir vom. Sumir urraðu grimmdarlega en eigendur þeirra héldu fast í ólamar svo frekari látum var afstýrt. „Þetta er lögboðin hundahreinsun sem fer fram einu sinni á ári,“ sagði Valdimar Brynjólfsson heilbrigöis- fulltrúi sem var á staðnum og fylgd- ist með að allt færi fram samkvæmt settum reglum. Hundunum vom gefnár litlar pillur sem í er band- ormalyf og vom ýmsar aðferðir notaðar til þess að fá hundana til að gleypa pillurnar. i sumum tilfellum var pillunni hreinlega troðið niður í kok hundsins með langri töng en flestir innbyrtu hundamir pillumar eftir að búið var að fela þær í fransk- brauði. Ein kona kom þó með lifrar- pylsu í poka og bað um aö pillan fyrir sinn hund yrði sett í lifrarpylsuna. Það var gert og hundurinn át svo allt saman með bestu lyst, greinilega mikill lifrarpylsuhundur þar á ferð! „Ef strangt væri fariö eftir reglu- gerð ætti að baða hundana," sagði Valdimar, þegar við spurðum hann hvers vegna því heföi verið hætt. „Þetta var hins vegar voöaleg með- ferð á þeim, þeir vom lokaðir inni í húsi og látnir laxera áður en þeim var dýft í lýsisblöndu og svo lyktuðu þeir af þessu í heila viku á eftir. Það var því hætt að nota þá aðferð og pillan tók við,“ sagði Valdimar. Hann upplýsti að á Akureyri væm nú um 160 hundar. Akureyri: Nýja Glerárbrúin tilbúin Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyii: Framkvæmdum við hina nýju brú yflr Glerá á Akureyri er nú lokið. Malbikunarframkvæmdum beggja vegna brúarinnar lauk á föstudag og var þá aðeins eftir lítils háttar frá- gangur. Hin nýja brú tengir saman Hjalt- eyrargötu og Krossanesbraut. Við það opnast leið milli Oddeyrar og Óseyrar rétt ofan Slippstöðvarinnar og er ekki að efa að brúin mun létta talsvert á umferð á Glerárgötu og Hörgárbraut. Auk þess er talið að talsverð umferð af Hlíðarbraut í átt að miðbænum muni fara þama um. Nýja brúin er fjórða brúin yfir Glerá þar sem hún rennur gegnum Akur- eyri. DNG Akureyri: Afkastagetan aðeins fyrir innanlandsmarkað Raufarhöfn: Axnþór PáJssan, DV, Ranferhiöfn: Á fundi sveitarstjómar Raufar- hafnar iL nóvember sl. var samþykkt bókun þar sem beint er mótraælum tU Halldórs Ás- grímssonar. í bókuninni segir „Sveitarstjórn Raufarhafnar inótmælir harölega þeim hug- myndum sjávarútvegsráðuneyt- isins sem fyrh' liggja um kvóta á smábátum. Ljóst má vera aö þær munu koma mjög illa niður á landsbyggöinni og ef af verður mikil eignaupptaka eiga sér staö hjá stórum hópi manna.“ Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: „Við höfum ekki möguleika á að framleiða meira en fyrir innanlands- markaö eins og staðan er í dag,“ sagði Kristján E. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri rafeindafyrirtækisins DNG á Akureyri, en geysilega mikið hefur verið að gera hjá fyrirtækinu við framleiðslu á færavindum að undanfömu. Kristján sagði að á sjávarútvegs- sýningunni, sem haldin var í Reykja- vík í haust, hefði DNG selt um 100 færavindur. Um helmingur þeirra verður framleiddur fyrir áramót. Fyrirtækið fékk einnig fjölda fyrir- spuma erlendis frá og m.a. annars hafa aðilar á Nýja-Sjálandi, írlandi og í Frakklandi sýnt áhuga á vindun- um. „Að sjálfsögðu getur verið að þetta sé upphafið að einhverju en við förum okkur hægt, enda afkastaget- an ekki meiri nú en svo að við önnum innanlandsmarkaði." DNG flytur í nýtt húsnæði um ára- mótin og sagöi Kristján að þá myndi ástandið batna. Hann sagði varðandi framhaldið á sölu á DNG-vindunum innanlands að nú væri mikil spenna meðal þeirra sem gera út minni báta. „Menn bíða spenntir eftir nýrri fisk- veiðistefnu og það getur ráðið mjög miklu um framhaldiö hver sú stefna verður," sagði Kristján. Síldarftysting gengur vel JúKa Imsland, DV, Hö&U Mikil vinna hefúr verið í Fiskiðju Kask viö síldarfrystingu undanfar- ið og er búið að vinna og frysta 1700 tonn. Á sama tíma í fyrra var búið að frysta 1000 tonn. Um 100 manns vinna viö síldarfry 9tinguna. Síldarsöltun hefur gengið vel og nú vantar bara tunnur. Fyrir rúmri viku kom tunnuskip og fékk þá söltunarstöðin Skinney í sinn hlut 1600 tunnur og Fiskimjöls- verksmiðjan 2300. Söltun stöðvast þegar saitað hefur verið í þessar tunnur. Um framhaldið er óvíst. Hjá Skinney hafa verið saltaöar 7400 tunnur og hjá Fiskimjölsverk- smiðjunni 12500. Á sama tíma í fyrra höföu verið saltaðar 4320 tunnur í Fiskimjölsverksmiðjunni. Skinney hf. keypti söltunarstöðina Stemmu og endurbætti þar hús og tæki og hófet vinna þar í haust. Framkvæmdastjóri Skinneyjar er Ásgrímur Halldór9son.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.