Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Page 34
3-1
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
Jarðarfarir Menning
Sigríður Guðmundsdóttir lést 8.
nóvember sl. Hún var fædd 31. ágúst
1923, dóttir hjónanna Kristínar
Hjartardóttur og Guðmundar Sæ-
mundssonar. Sigríður starfaði lengst
af við saumaskap. Eftirlifandi eigin-
maður hennar er Guðmundur Ingi
Bjarnason. Útfór Sigríðar veröur
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Klara Kristiansen hárgreiðslu-
meistari er látin. Hún fæddist á
Seyðisfirði 10. ágúst 1910, dóttir hjón-
anna Mattíu Þóru Þórðardóttur
Kristjansen og Jentofts Kornelíusar
Kristiansen. Klara starfaði alla tíð
að hárgreiðslu og rak um tíma hár-
greiðslustofuna á Seyðisfirði. Hún
gjftist Jóni Sigurðssyni, en þau shtu
samvistum. Útfór Klöru verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Jón Ingi Rósantsson lést 9. nóvemb-
er sl. Hann fæddist á Efra-Vatns-
horni í Kirkjuhvammshreppi,
V-Húnavatnssýslu 20. apríl 1928, son-
ur hjónanna Rósants Jónssonar og
Þórunnar Maríu Jónsdóttur. Jón
Ingi lauk námi í klæðskeraiðn hjá
Andrési Ándréssyni klæðskera-
meistara árið 1949. Fljótlega eftir
nám hóf hann störf hjá Gefjun,
Kirkjustræti, og þegar fataverk-
smiðjan Gefjun íluttist aö Snorra-
braut 56 varð hann verkstjóri og
síðar verksmiðjustjóri. í fataverk-
smiðjunni Geíjun vann Jón Ingi
meðan heilsa entist. Eftirlifandi eig-
inkona hans er Guðbjörg Pálsdóttir.
Þeim hjónum varð fjögurra barna
auðið. Útför Jóns Inga veröur gerð
frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Útför Kristínar Ingvarsdóttur,
Hvassaleiti 3, Reykjavík, fer fram frá
Háteigskirkju fimmtudaginn 19. nóv-
ember kl. 10.30. Jarðsett verður að
Hlíðarendá í Fljótshlíð þann sama
dag.
Aldný Magnúsdóttir, Norðurbrún
1, verður jarðsungin miðvikudaginn
18. nóvember kl. 15 frá kapellunni
við kirkjugarð Hafnarfjarðar.
Hámenning í Vatnsmýrinni
Hafliðadagur II
Seinni Hafliðadagur Norræna
hússins var á sunnudaginn. Þá
voru stórir tónleikar þar sem komu
fram margir listamenn; Pétur Jón-
asson gítarleikari, Kolbeinn
Bjamason flautuleikari, Halldór
Haraldsson píanóleikari, Hamra-
hlíðarkórinn undir stjórn Þorgerö-
ar Ingólfsdóttur og Kammersveit
Reykjavíkur undir stjórn Hafliða,
og svo lék Hafliði sjálfur á sellóið
sitt og útskýrði verkin í fáum vel
völdum orðum.
Þarna heyrði maður Jakobstig-
ann, yndislegt gítarverk sem Pétur
lék af sinni alkunnu snilld. Þá léku
þeir Pétur og Hafliði Tristiu, átta
súrrelískar glansmyndir fyrir gítar
og selló, svo unun var að heyra.
Kolbeinn lék með Hafliða Verse I
sem einu sinni fékk verðlaun á ítal-
íu, held ég, og var vel að þeim
kominn, og svo léku þeir Hafliði
og Halldór Fimmu, dulúðugt verk
Tónlist
Hafliði Hallgrimsson
Leifur Þórarinsson
fyrir selló og píanó. Þá kom hlé.
Allur var þessi hljóðfæraleikur
framkvæmdur af miklum hæfileik-
um og kunnáttu og var gaman að
heyra að Hafliði hefur engu tapað
við sellóleikinn þrátt fyrir annir í
öðrum sóknum. Þá var söngur
Hamrahlíðarkórsins ekki dónaleg-
ur. Að vísu er ekki hægt að segja
að þéttofin hljómgerð sorgaróðsins
Triptych sé gerö fyrir ungar radd-
ir, en hún snerti ekki síður við
manni fyrir það.
Lokaverkið, Dagdraumar og tölu-
staflr, mun samið fyrir nemenda-
hljómsveit í Finnlandi og er stíllinn
auðvitað eftir því. Það mátti heyra
margt geðugt en ekki fannst mér
meðferðin á þjóðlögunum sérlega
hugkvæm eða heillavænleg. Hafliði
stjórnaði þarna strengjasamsteypu
undir vörumerki Kammersveitar
Reykjavíkur en annars voru þetta
næstum allt hljóðfæraleikarar úr
sinfóníunni. Og þeir léku vel og
vandlega, enda kemur ekki annaö
til greina undir stjórn Hafliða.
Það ber að þakka Norræna hús-
inu fyrir þessa dýrlegu Hafliðatví-
dægru sem mun bæta alin við hæð
hámenningar í Vatnsmýrinni.
-LÞ
Skák
Fjórtánda einvígisskákin í Sevilla:
Hvorki fugl né fiskur
Heimsmeistaraeinvígið í Sevilla
hefur tekið nýja og óskemmtilega
stefnu. Heimsmeistarinn Garrí Ka-
sparov reynir ekki að auka forskot
sitt er hann stýrir hvítu mönnun-
um og um leið slær Karpov ekki
hendinni á móti jafntefli á svart.
Fjórtánda skákin var jafnlítið
spennandi og tíunda og tólfta skák-
in - hvorki fugl né fiskur. Eftir 21
leik og þriggja stunda taflmennsku
bauð Kasparov jafntefli sem
Karpov þáði án umhugsunar. Ka-
sparov hefur hlotið 7'A v. en
Karpov 6'/2 er tíu skákum er ólok-
ið. Kasparov nægir jafntefli í
Skák
lauk með snöggsoðnu jafntefli. So-
véski stórmeistarinn Gufeld hristi
hausinn yfir byrjanavali Karpovs
sem er undir í einvíginu og þarf að
fara að herða sig. „Karpov getur
mest fengið jafntefli á þessa stöðu,“
sagði Gufeld.
Sérfræðingar í Sevilla höfðu á
orði að síðar í einvíginu gæti það
komið Kasparov í koll hversu bit-
laust hann teflir með hvítu
mönnunum. Karpov hefur náð að
skapa sér meiri færi er hann hefur
haft hvítt. Hann á fimm tilraunir
eftir. Ef honum tækist að vinna
eina skák myndi hann hleypa mik-
illi spennu í einvígið og gera
aðstöðu Kasparovs erfiða.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Caro-Kann vörn.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Rf3 Rgf6 6. Rxf6+ Rxf6 7. c3
Bg4 8. h3 Bx£3 9. Dxf3 Dd5!
Kasparov teflir sama afbrigði og
í 10. skákinni þótt hann hefði ekki
komist langt áleiðis. Hugsanlega
hefur hann og menn hans haft end-
urbót í huga. Því er Karpov fyrri
til að breyta út af. Leikurinn er
mjög í anda byrjunarinnar. Þrátt
fyrir að hvítur búi yfir biskupapar-
inu sem gæti nýst í endatafli getur
svartur boöið drottningakaup því
að staða hans er svo traust.
10. Be2 e6 11. 0-0 Bd6 12. Dd3 Bc7
13. Bf3 Dd7
Virðingin sem þeir bera hvor fyr-
ir öðrum er svo mikil að Karpov
reynir ekki einu sinni að hóta máti.
Leikurinn 13. - Dd6 er heldur ekki
upp á marga fiska því að 14. g3 fell-
ur vel inn í áætlun hvíts.
14. Hdl 0-015. c4 Had816. Db3 De7
Vitaskuld er b-peðið eitraðra en
nokkru sinni fyrr. Ef 16. Dxb7?? þá
16. - Bh2+ og drottningin fellur.
17. g3 Bb8 18. Be3 Hd7 19. Hd2 Hfd8
20. Hadl h6 21. a3
Jón L. Arnason
einvíginu, 12-12, til að halda heims-
meistaratitlinum.
„Það er eins og einu baráttuskák-
imar í einvíginu séu teíldar þegar
Karpov hefur hvítt,“ sagði norski
stórmeistarinn Simen Agdestein,
sem eins og flestir aðrir sagði 14.
skákina „óspennandi“. Kasparov
lék kóngspeðinu fram og Karpov
svaraði með Caro-Kann vörn. Sú
byrjun varð einnig upp á teningn-
um í 10. skákinni sem sömuleiðis
Litt spennandi jafntefli hafa einkennt síðustu skákir Karpovs og Ka-
sparovs.
Lengri varð skákin ekki. Jafntefli
samið áhorfendum til lítillar
ánægju. Kasparov á rýmri stöðu
og hefði vafalaust teflt áfram ef
staöan í einvíginu hefði boðið upp
á það. -JLA
Aðalheiður Kristín Helgadóttir,
Hátúni 10, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 18. nóvember kl. 15.
Námskeið
Magnús L. Sveinsson:
Það vantar
kynningu
„Ég held að þetta sýni að það vant-
ar kynningu á ráðhúsinu, því að ég
er sannfærður um að þegar fólk áttar
sig á þvi hvaö þama á að gera skilur
þsð hvemig ráðhúsið mun eiga ríkan
þátt í aö lífga miðbæ Reykjavíkur,"
sagði Magnús L. Sveinsson, forseti
borgarstjómar, í morgun um skoð-
anakönnun DV.
„Þetta er vissulega viökvæmur
staður ogþað verður tekið fullt tillit
til þess. Eg vek athygli á að húsið
tekur sáralítið af Tjörninni sjálfri og
mun standa þar sem nú er hús fyrir
og bílastæði. Við getum hugsað okk-
ur hver yrði niðurstaða í skoðana-
könnun um veginn og brúna yfir
Tjörnina, ef hvorugt væri komið.
Samt leiddu þau mannvirki fólkið
inn á þetta fallega svæði og ef nú
yrði spurt hvort ætti að fjarlægja
veginn og brúna fengist varla mikið
fylgi við það.
Ég vísa einnig til Höfðabakkabrúar
sem olli miklu fjaðrafoki áður en hún
var byggð. Núna sjá allir hvernig
hún leiðir þúsundir í Elliðaárdalinn,
þá perlu borgarinnar, og Árbæjar-
safnið sem áður var nánast falið."
-HERB
Sænskur sálfræðingur með
námskeið
Sænski sálfræðingurinn Lena Tuulse er
væntanlegur til landsins. Hún mun halda
þriggja daga námskeið helgina 11. og 12.
desember í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Námskeiðið er öllum opið.
Þungamiðja námskeiðsins er um það
hvemig bæta megi samskipti manna á
meðal (How to create a loving relations-
hip). Nánari upplýsingar um námskeiðiö
fást í síma 75428 eftir kl. 18.
TiXkynningar
Háskólafyrirlestur
í dag 17. nóvember kl. 17.30 flytur danski
prófessorinn Lars Nordskov-Nielsen fyr-
irlestur í Lögbergi, húsi lagadeildar
Háskólans, stofu 101 um dönsku stjórnar-
farslögin nýju. Fyrirlesturinn er fluttur
í boði Lögfræðingafélags íslands og Dóm-
arafélags íslands og er öllum heimill
aðgangur.
Trúnaðarbréf afhent
Hinn 30. október afhenti Þórður Einars-
son sendiherra Dr. Mauno Koivisto,
forseta Finnlands, trúnaöarbréf sitt sem
sendiherra íslands 1 Finnlandi með að-
setri í Stokkhólmi.
Tórúeikar
Háskólatónleikar
Fimmtu háskólatónleikar vetrarins
verða haldnir í Norræna húsinu mið-
vikudaginn 18. nóvember kl. 12.30-13. Á
tónleikunum mun Richard Talkowsky
flytja svítu fyrir einleiksselló eftir kata-
lónska tónskáldið Gaspar Cassadó.
Bridge
Fundir
Kvenfélagið Seltjörn
heldur fund þriðjudaginn 17. nóvember
kl. 20.30 í félagsheimilinu á Seltjamar-
nesi. Gestir fundarins verða konur úr
Kvenfélagi Keflavíkur.
Bridgesamband Vesturlands
Undankeppni Vesturlandsmóts í sveita-
keppni verður haldin á Akranesi 21.-22.
nóvember nk. Spilaðir verða 14 32ja spila
leikir (eftir þátttöku) alhr við alla. 4 efstu
sveitimar úr undankeppninni spila svo
til úrslita um Vesturlandsmeistaratitil-
inn í byijun næsta árs. Þetta mót er opið
öllum bridgespilurum á Vesturlandi og
þurfa þátttökutilkynningar að hafa borist
í síðasta lagi 15. nóv. í síma 11080 (Ein-
ar). Núverandi Vesturlandsmeistari í
sveitakeppni er sveit Inga Steinars Gunn-
laugssonar, Akranesi.
Selfoss:
Þaö óhapp vildi til á Selfossl í
gær aö eitt af blaöburðarbömum
DV á staðnum týndi peningum
skömmu eftir hádegið. Blaðburö-
arbarniö haföi nýlokið við aö
rukka inn fyrir DV og því mikið
í húfi fyrir það aö fá peningana
sína aftur. Þeir sem kynnu aö
hafa fundið peningana em vin-
sarnlegast beðnir um að snua sér
til umboðsmanns DV á staðnum.