Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Page 30
30
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987.
Smáauglýsingar
Fréttir
■ Verslun
íþróttabúðin býður gott úrval af golfá-
höldum. Eingöngu fyrsta flokks vörur.
20% jólaafsláttur á kylfum. íþrótta-
búðin, Borgartúni 20, sími 20011.
Fullt hús af skiðavörum: smábarna-
pakki: 6990, bamapakki: 8760, ungl-
pakki: 9950, fullorðinspakki: 11900.
Sportleigan við Umferðarmiðstöðina,
sími 13072. Póstsendum. Visa/Euro.
Lotto bómullargallar, st. S,M,L,XL fyrir
dömur og herra. H-Búðin, s. 656550,
miðbæ Garðabæjar.
Bílar til sölu
Hálf milljón í happaþrennu
Marilyn Monroe sokkabuxur með
glansáferð. Heildsölubirgðir:
S.A. Sigurjónsson hf., Þórsgötu 14,
sími 24477.
Guðrún réttir Astu vinkonu sinni 20 þúsund í sárabætur fyrir miðann góða sem hafði að geyma 500 þúsund króna
vinning.
Stálheppnarstöllur:
lánaðan en ætlaði að borga miðann
seinna. Örlögin höguðu málum
þannig að Guðrún vann 500 þúsund
en Ásta ekki neitt.
Þegar Guðrún sótti vinninginn í
Happdrætti Háskólans í gær ákvað
hún að borga Ástu vinkonu sinni 20
þúsund krónur í sárabætur fyrir
miðann góða. í samtali við DV sagð-
ist hún ætla að kaupa kjarabréf fyrir
400 þúsund en afganginn ætlar hún
að nota strax í eitthvað annað. Þess
má geta að Guðrún hefur tvisvar
áöur unnið stóra vinninga í bingói
og Ásta vinkona hennar vann einnig
50 þúsund á happaþrennu síðastliðið
sumar.
-JBj
Mercury Marquis V6 '85, sjálfskiptur,
rafm. upph. m.m. Algjör dekurbill,
ekinn ca 24 þús. km. Uppl. í síma 83473
á kvöldin og í síma 985-21980. Halldór.
Guðrún Olga Gústafsdóttir, 17 ára
Reykvíkingur og nemi í Ármúla-
skóla, datt heldur betur í lukkupott-
inn þegar hún vann 500 þúsund í
happaþrennu í gær. Guðrún skrapp,
ásamt Ástu vinkonu sinni, út í sjoppu
og keypti Ásta þá 4 happaþrennu-
miða. Guðrúnu langaði þá líka að
freista gæfunnar og fékk einn þeirra
í
Bandarískur
jólapappír
og merkimiðar
með Gretti
Líka
Grettis
loðdýr
LAUGAVHGI178, SÍMI686780.
Flskibátar þrifnir
upp úr hafnarsjó
- þött aðstaða sé til að þiffa þá úr hreinu vatni
Ríkismat sjávarafurða hefur
lengi barist fyrir því að sjómenn
hætti að þrífa lestir og þilfar fiski-
skipa upp úr hafnarsjó en noti þess
í stað hreint vatn sem nú er víðast
hvar hægt að fá við bryggju. Þetta
hefur borið nokkum árangur en
þó em skip enn þrifin úr hafnarsjó
bæði á Snæfellsnesi og á Suður-
nesjum.
í fréttabréfi Ríkismats sjávaraf-
urða er skýrt frá því að bæði í
Ólafsvík og á Rifi sé það algengt
að bátar séu þrifnir úr hafnarsjó
enda þótt hægt sé að fá hreint vatn
á báðum stöðunum. Þá er sagt að
víða á Suðurnesjum tíðkist að nota
hafnarsjó til þrifa.
Ríkismatið hefur oftsinnis bent á
að sjór í höfnum landsins sé mjög
mengaöur, bæði af olíu og sorpi,
og því ótækt að nota hann til að
þvo þá staði á skipum þar sem fisk-
ur er síðan geymdúr.
Víða, þar sem erfitt er að fá nægi-
legt vatn viö bryggju, hefur þessi
vandi verið leystur með því að nota
vatnstankana og háþrýstidælu um
borð í skipunum. Ríkismatið kallar
það „dæmalausan sóðaskap“ að
nota hafnarsj ó til að þrífa fiskiskip.
-S.dór
v
GERÐU
JOLALEGT
í GARÐINUM ÞÍNUM
40 Ijósa mislit Ijósakeðja á
aðeins kr. 1250.
Já, 1250.
(24 V straumbreytir fylgir).
Þessi keðja er viðurkennd
af Rafmagnseftirliti Ríkisins.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16, s. 691600.
Atvinnuleysi
hefur aldrei
verið minna
\
Samkvæmt upplýsingum vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðuneyt-
isins voru skráðir 5.800 atvinnuleys-
isdagar í nóvembermánuði
síðastliðnum. Svarar það til þess að
270 manns hafi verið án atvinnu sem
er 0,2% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði.
Frá mánuöinum á undan er þetta
fjölgun um 1200 vinnudaga sem er
aukning um 26% en þeim hefur
fækkað um 4.500 eða 44% ef htið er
til 12 mánaða tímabils.
Breytingin er þó enn meiri ef litið
er til lengra tímabils. Ef skoðaðir eru
nóvembermánuðir síöustu 5 ára hafa
að meðaltali verið skráöir 20 þúsund
atvinnuleysisdagar og er því skrán-
ingin nú réttur fjórðungur þess.
-S.dór