Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987.
31
Sandkom
Að vera eða
vera ekki
„spúttnikk"
í Helgarpóstinum síöastlið-
inn fimmtudag eru „ungir
spúttnikkar" gerðir að um-
talsefni og er ekkert nema
gott um það að segja. Þama
greinir frá ungum fram-
kvæmdastjórum eða forstjór-
um fyrirtækja sem hafa
stóran hóp manna í vinnu,
svo sem þeim Jóni Ásbergs-
syni í Hagkaup og Jóni
Sigurðarsyni í Álafossi hf. og
fleirum. Allir eru þessir ungu
menn „stjórar" í efstu eða
næstefstu tröppu og bera
ábyrgð á og stjóma nokkur
hundmð starfsmönnum. Það
er dálítið skondið að í þessum
hópi er'Sigurður Kolbeins-
son, titlaður fjármálastjóri
Stöðvar 2, en er í raun aðstoð-
armaöur Ólafs H. Jónssonar,
eins eigenda fyrirtækisins
sem stjómar þar fjármálum.
„Batteríið“ undir Sigurði er
líka heldur smávaxið í sam-
anburði við hina „uppana“,
samtals fimm manns ef allt
ertalið.
Bros í gegn-
um tárin
Sorgin hefur verið nokkuö
til umræðu að undanfómu
enda hafa nýlega verið stofn-
uð samtök um sorg og sorgar-
viðbrögð. Þetta er þarfur
félagsskapur sem getur kom-
ið góðu til leiðar því margir
hafa farið mjög illa út úr sorg-
inni. Nú er nýkomin út bók
um þetta viðfangsefni, sorg-
ina, og nefnist hún Þegar
ástvinur deyr. Bókina þýðir
séra Gunnar Bjömsson frí-
kirkjuprestur og ferst honum
það vel úr hendi. Það þykir
kannski sumum heldur
kaldranalegt að brosa að því,
Séra Gunnar Björnsson þýöir bókina
Þegar ástvinur deyr, enhún fjallar
um sorgina og viðbrögð við hennl.
en útgefandi þessarar bókar
um sorg og sorgarviðbrögð
er Útgáfufélagið Bros!
Fyrstir með
fréttimar?
Stöð 2 birti greinargóða
frétt af miklu hassmáli í
fréttatíma sínum á mánu-
dagskvöldið. Fréttinni var
„slegið upp“ eins og sagt er í
faginu, eins og um glænýja
stórfrétt væri að ræða. Þetta
er svo sem gott og blessað ef
ekki hefði verið fyrir þá stað-
reynd að fréttin var umorðuð
endursögn úr frétt sem birtíst
á baksíðu DV 28. nóvember.
Steininn tók þó fyrst úr þegar
fréttastofa Ríkissjónvarpsins
endursagöi hálltíma gamla
frétt úr Stöð 2 sem var 16
daga gömlu frétt úr DV og
hafði sem sína einustu heim-
ild fréttina úr Stöð 2 og
vitnaði til samkeppnisaðil-
ans. Síðar um kvöldið tók svo
fréttastofa Ríkishljóðvarps-
ins þessa frétt upp og vitnaði
líka til Stöðvar 2. Skyldi DV
ekki vera borið út á þessum
stöðum?
Þorsteinn Pálsson forsætisráöherra
hlýtur þá aö vera skipstjóri i reis-
unni miklu.
Áfyrsta
farrými
Það væri synd aö segja að
hávaðalaust hefði gengið að
koma fjárlögunum í gegn og
jafnvel eitilharðir stuðnings-
menn stjórnarflokkanna og
ríkisstj ómarinnar hafa látíð
í ljósi efasemdir um einstaka
málatlokka. Einn stuðnings-
maður ríkisstjómarinnar,
sem er háttsettur innan Sjálf-
stæðistlokksins, var spurður
álits á fjárlagaumræðunni og
fjármálum þjóðarinnar al-
mennt. Hann svaraði að
fjármálin væm að fara með
þjóðina til heRítis. „Bjarta
hliðin á þessu máh er þó sú
að við ferðumst þangað á
fyrstafarrými."
Langirfundir
Þingfundir hafa verið lang-
ir og erfiðir síöustu dagana
þar sem reynt hefur verið að
afgreiða fjárlagafmmvarpið.
í fyrrinótt stóðu fundir til að
mynda til klukkan þij ú um
nóttina og vom þá aðeins tólf
þingmenn eftír i húsinu en
51 var farinn heim til að sofa
svefni hinna réttiátu. Mikil
skelfing greip um sig er Al-
bert Guðmundsson hótaði að
leggja fram breytíngartillögu
en það þýddi að þingforseti
hetði þurft að rífa svefnþurfi
þingmennina upp úr rúmun-
um og hefði hann hlotið litlar
vinsældir af slíku tiltæki.
Sem betur fer þurftí ekki að
koma til þess. Meðal þeirra
sem fluttu ræður í fyrradag
var Sighvatur Björgvinsson.
í frétt í DV í gær var sagt að
ræðan hefði verið löng og
fiallað um fjárlagafmmvarp-
ið og breytíngartillögur
fjárveitingamefndar við
gjaldaliði frumvarpsins. Af
mynd af ræðuhöldum Sig-
hvats, sem fylgdi fréttínni,
má helst ráða að Sighvatur
hefði fremur kosið að vera í
hópi þingmanna sem fóm
heim að sofa á guðlegum tíma
en að hlusta á sjáifan sig og
aðra flytja langar ræður.
Sighvatur Björgvinsson er heldur
þreytulegur á myndinni enda stóöu
þingstörf Iram á rauöanótt.
Umsjón:
Axel Ammendrup
OG
STEYR 8070
Opið fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag.
Hljómsveit Mánaklúbbsins leikur föstudags- og
laugardagskvöld. Opið annan í jólum og nýárskvöld.
Pantið borð í tíma hjá veitingastjóra í síma 23333.
Sjáumst öll í góða skapinu.
BRAUTARHOLTI 20
MÁNAKLUBBSFELAGAR ATHUGIÐ!
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Flatahrauni 29, 220 Hafnarfjörður. sími 91-651800
Ömmur, afar
og annað gott fólk
Fallegar jólagjafir handa unga fólkinu
BARNAJÓL 1987
Einstáklega fallegur og vandaður jólaplatti. Hann
er úr vönduðu postulíni, kóbaltblár að lit og á
hann er málað með 24 karata gulli. Tilvalin gjöf,
t.d. vegna bamsfæðingar eða skímar á árinu, og
til allra bama og bamavirta.
Falleg gjafapakkning kr. 2.150.
BARNAMATARSETT
Djúpur og grunnur diskur og drykkj-
armál úr vönduðu postulíni og með
skemmtilegum myndskreytingum.
Falleg gjafapakkning kx. 1.300.
TÉKKN
KRIMTILL
Laugavegi 15 - sími 14320
Kringlunni - sími 689955