Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987. Laust starf hjá biskupsstofu Starf skrifstofustjóra hjá biskupsstofu er laust til umsóknar. Hér er um nýtt starf að ræða, en skrifstofu- stjóri á m.a. að hafa yfirumsjón með öllum fjármálum biskupsembættisins. Laun skv. kjarasamningum ríkisstarfsmanna. Umsóknir, er greini nám og fyrri störf umsækjenda, sendist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir 12. jan- úar 1988. 11. desember 1987. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið. BÍLA-HAPPDRÆTTI HAI\ID- KNATTLEIKSSA MBANDS fSLANDS 14. desember 1987 var dregið um 15 bíla í bílahapp- drætti Handknattleikssambands íslands. 5 Suzuki Fox komu á eftirtalin númer: 9401 13709 70457 75462 98385 10 Suzuki Swift komu á eftírtalin númer: 42457 44260 53685 63614 65235 68125 85377 85568 89571 104540 Handknattleikssamband Islands þakkar stuðning þinn og minnir á að 18. janúar nk. verður dregið um 35 bíla. Viltu spara? Nýkomið mikið úrval af ódýrum slrnm Odýri skómarkaðurinn Hverfisgötu 89 f Góðar jólagjafir Skartgripaskrín Skólaúr L fyrir stúlkur og pilta Imeöal Magnús E. Baldvinsson Kringlunni - sími 31199 Fréttir Formaður Einingar í Eyjafirði: „Geysileg átök eru framundan“ Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri: „Þaö er hugsanlega erfltt aö dæma um þaö á þessu stigi en mér sýnist aö ef atvinnurekendur neita áfram að ræöa um sérstaka kauphækkun . til þeirra lægst launuðu séu geysilega hörð átök framundan á vinnumark- aönum,“ segir Sævar Frímannsson, formaður Verkalýðsfélagsins Ein- ingar í Eyjaflrði. Sævar sagði að það væri nokkuð ljóst að ekkert myndi gerast í þessum málum á næstu dögum og ekki fyrr en eftir áramót. „Ef ekkert hefur gerst í þessu um miöjan janúar þykir mér einsýnt að bæði Alþýðusam- bandið og Verkamannasamband íslands muni ganga í það aö fara að huga að verkfóllum," sagði Sævar. Sævar sagði einnig aö hann teldi að heildarsamílot verkalýðshreyf- ingarinnar í samningunum, sem framundan eru, væri æskilegast. Nú þyrfti að beita öllum tiltækum vopn- um til þess að knýja á um kjarabæt- ur, sérstaklega til þeirra lægst launuðu. DV-mynd Ægir Kristinsson Á fundi sjúkrabílstjóra og fleiri um málefni sjúkraaksturs. Fáskrúðsfjörður: Ný sjúkrabifreið væntanleg Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúösfiröi: Nú eru rétt tíu ár síðan fyrsta sjúkrabifreiðin var keypt til Fá- skrúðsfjarðar og þjónaði sú bifreið einnig Stöðvarflrði og Breiðdalsvík í fyrstu. Af því tilefni komu bílsijórar sjúkrabifreiðanna og fleiri til fundar í félagsheimilinu Skrúð og ræddu málefni sjúkraílutninga og hvað skyldi gera við tvær gamlar sjúkra- bifreiðir en nú er væntanleg ný og fullkomin sjúkrabifreið af gerðinni Ford Econoline sem verður notuð í stað þeirra eldri. Áætlað verð á hinni nýju bifreiö er væntanlega um tvær milljónir og verður hún í eigu Rauða kross íslands. Málverkasýning í Breiðdal Pétur og Marríetta við nokkur verka sinna. DV-mynd Sigursteinn Siguistemn Melsteð, DV, Breiðdalsvflc Nýlega héldu Maríetta Maissen og Pétur Behrens myndlistasýningu í Staðarborg. Þar sýndu þau einkum vatnslitamyndir frá síðasta ári. Maríetta lauk námi við Myndlista- og handiðaskóla íslands á sl. vori og er þétta í fyrsta skipti sem hún sýnir opinberlega. Pétur hefur haldið einkasýningar, tekiö þátt í samsýningum erlendis og hér á landi en þetta er önnur sýn- ing hans í Staðarborg. Þessi sýning þótti ánægjulegt framlag til menn- ingarmála á staðnum. Fyrsta snyrtistofan á Blönduósi Þórdís Vithjálmsdóttir i snyrtistofu sinni. DV-mynd Baldur Baldur Danielsson, DV, Blönduósu Þórdís Vilhjálmsdóttir hefur opnað snyrtistofu að Húnabraut 3, Blöndu- ósi. Er þessi stofa sú fyrsta sinnar tegundar á staðnum. Þórdís sem er snyrtifræðingur að mennt nam við The Academy of Be- auty Cultre í Englandi. Á snyrtistofu hennar er boðið upp á alla almenna snyrtiþjónustu svo sem andlitsböð, húðhreinsun, handsnyrtingu, fótsnyrtingu o.fl. auk þess sem þar fást hinar ýmsu snyrtivörur. Að sögn Þórdísar hafa viðbrögð Húnvetninga verið mjög góð enda þykir þjónusta sem þessi sjálfsögð í nútímaþjóðfélagi. Hafnarey seldi III iwiiÆmi jtini 11■Wifi*»* 'flt H namamroi Siguretenvn Melsteö, DV, Breiödalsvflc Síldarvinnsla hefúr gengiö vel í haust á Breiðdalsvfk. Saltaö var i 6950 tunnur, 150 tonn fóru í frystingu á Japansmarkaö, 130 tonn voru fryst fyrir Breta og 60-70 tonn voru fryst í beitu. Trillumar hafa veitt vel, allt að 3 tonn f róðri. Hafnarey, togari staðarins, seldi 77 tonn á flskmarkaöinum í Haöiarfírði nýlega á 2780 milljón- ir. Meöalverðiö var 35 krónur á kílóiö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.