Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Side 4
4 MÁNUDAGUR 21. MARS 1988. Fréttir Hið sigursæla lið Menntaskólans f Reykjavík að loknum sigri yfir Fjölbrautarskóla Garðabæjar í mælsku- og ræðukeppni framhaldsskóla á íslandi. DV-myndir GVA MR-ingar unnu mælsku- keppni um vHsmunaverur Um helgina lauk mælsku- og ræöukeppni framhaldsskóla á ís- landi, MORFÍS, með sigri ræðufé- lags Menntaskólans í Reykjavík yfir Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Umræöuefni úrshta- keppninnar var hvort vitsmuna- verur væru á öðrum hnöttum. MR hélt því fram í sínum ræðum að svo væri en Fjölbrautarskólinn í Garðabæ hafnaði hugmyndinni. Að sögn Birgis Ármannssonar, hðsstjóra hins sigursæla hðs MR, var keppnin mjög jöfn og spenn- andi og mæting góð. Þetta er í flórða sinn sem MORFÍS heldur slíka keppni og í þriðja sinn sem MR fer með sigur af hólmi. Það er athyghsvert að sömu hö kepptu til úrshta í ár og í fyrra, en þá sigraöi FG. Að sögn Birgis úthlutar fram- kvæmdastjórn keppninnar mælskuhðunum umræðuefni og hvaða afstöðu þau skuh taka til þess, viku áöur en sjálf keppnin fer fram. Keppninni er skipt í tvær umferðir og flytur hver ræðumað- ur eina ræðu í hvorri umferð. Dómarar gefa hverjum ræðumanni stig, flest geta stigin oröið 300, sem síðan eru talin saman fyrir hvert lið fyrir sig. Það lið sem flest stig hlýtur fer með sigur af hólmi og fær í verölaun farandbikar. Dómarar velja einnig ræðumann kvöldsins, sem í þetta sinn var val- inn Sigmar Guðmundsson frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ. -StB Sigmar Guðmundsson hlaut flest stig einstaklinga í ræðukeppni fram- haldsskólanna. Vertíðarstemning í Vestmannaeyjum Ómar Garðarsson, DV, Vestmaimaeyjum: Hjól atvinnulífsins fóru strax að snúast eftir að Snótarkonur frestuðu verkfalh sínu á fostudaginn. Sem dæmi má nefna aö frá klukkan 16 á föstudag voru átta skip tohafgreidd. Voru þetta ýmist loðnuskip, togarar að koma úr sighngu eða vöruflutn- ingaskip að koma að utan. Mikfll ys og þys var við höfnina. Bátar að koma og fara og nokkur loönuskip biðu löndunar og má segja að þarna hafi veriö komin hin eina sanna vertíðarstemning. landað til frystingar i vestmannaeyjum siðastliðinn laugardag. DV-mynd: Ómar Vestmannaeyjar: Loðnu Loðnufiysting hafin Ómar Gardarsson, DV, Vestmarmaeyjum: Þótt htið sé eftir af loðnukvótanum ætla frystihúsin í Vestmannaeyjum að reyna aö ná til sín eins miklu af loðnu til frystingar og hrognatöku og hægt er. Strax á laugardaginn var byijað að landa loðnu til frystingar úr GuUbergi VE og í gær kom Bergur VE með 300 tonn sem einnig var landað til frystingar. Loðnan er orðin frekar léleg, hálf- hrygnd, en reynt verður aö frysta eins mUdð og mögulegt er. í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja var unniö aö hreisun á loðnuhrogn- um í gær og sagði Óskar Óskarsson verkstjóri að í dag yrði hrognunum pakkaö og þau fryst. Þessi afli var upp úr Guömundi VE en von var á Sigurði RE inn til löndunar og átti að vinna hrogn úr farmi hans. Skódanum stolið og skilað eftirveltu Eigandi Skódabifreiðar í Grinda- vík varð fyrir óskemmtUegri reynslu um helgina. Aðfaranótt laugardags- ins var bifreiðinni stohð og henni skUað aftur um nóttina mikiö skemmdri. Hafði Skódanum þá verið velt. Lögreglunni í Grindavík tókst að hafa uppi á þjófnum og hefur hann viðurkennt verknaðinn. Hann er grunaður um ölvun. -GK I dag mælir Dagfari Af steinaldarmönnum Á síðum Morgunblaðsins fer fram ritdeila sem reyndar teygir sig yfir í tilvitnanir úr öörum blöðum þannig að þar kennir margra og merkra grasa. RitdeUa þessi stend- ur mUU Markúsar Arnar Antons- sonar, útvarpssjóra Ríkisútvarps- ins, annars vegar og Jóns Óttars Ragnarssonar, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2, hins vegar. Þetta er hin skemmtílegasta deila og minnir Dagfara á sín ungdómsár þegar rifrUdin stóðu sem hæst mihi strá- kanna í götunni og hijóðuöu eitt- hvað á þessa leiö: Pabbi minn er sterkari en pabbi þinn. Pabbi minn er sterkari en pabbi þinn. Pabbi minn er lögga. Pabbi minn er meiri lögga, Pabbi minn ræður við pabba þinn, pabbi minn er bestur af því að hann er sterkastur og er lögga og ræður viö pabba þinn. Pabbi minn er líka lögga, pabbi minn er sterkari en pabbi þinn. Pabbi minn ræöur viö pabba þinn. Pabbi minn er bæði bestur og sterkastur. Nei. Víst. Nei, víst og víst. Hvem- ig veisf þú aö pabbi þinn er sterkari en pabbi minn? Af því bara. Af því bara hvað? Af því barasta. Þannig gátu þessar rökfostu deU- ur haldiö áfram daginn út og daginn inn án nokkurrar niður- stöðu annarrar en þeirrar að hverjum þótti sinn fugl fegurstur. Eins og vera ber þegar menn beij- ast fyrir réttum málstað. DeUur þeirra sjónvarpsstjóranna eru í sama farvegi. Erfitt er að greina hvenær þær hófust og ekki er að sjá hvenær þær enda. Markús byijaði. Nei, Jón byrjaði. Þú byij- aðir fyrstur. Ég byijaði fyrst því aö þú byijaðir. Eftir því sem Markús segir hefur Jón Óttar gert sig sekan um hæ- versku sem fólgin er í neikvæði, rangfærslum, hálfsannleik og vís- vitandi blekkingum. Máli sínu tU sönnunar klippir Markús ýmis ummæh Jóns Óttars úr blöðum undanfarin tvö ár og er það skraut- leg lesning. Jón Óttar bætir svo um betur með því að svara fyrir sig og leggur fram langan Usta til sönnun- ar á því hversu Stöð 2 standi RÚV miklu framar. Stöð 2 er vídeóleiga, segir Markús. Ríkisútvarpið er staðnað, segir Jón óttar. Eftir því sem skUja má af lestri þessara skoðanaskipta mun til- gangurinn vera sá að sanna hvor sé meiri steinaldarmaður. Jón Ótt- ar segir að öU umræða um hina nýju miðla sé á steinaldarstigi og á þá einkum og sér í lagi við að Mark- ús Örn sé steinaldarmaöur. Markús Örn mótmælir því að vísu ekki að þeir séu báðir steinaldar- menn, en eftir að hafa birt Ustann yflr ummæU Jóns Óttars á hinum aðskfljanlegustu tímum lætur Markús lesendum sínum eftir að dæma um það hvor sé meiri stein- aldarmaður í umræðunum um íslenska fjölmiðla. Jón Óttar lætur það fylgja með í leiðinni að fyrir utan það að Mark- ús Örn sé steinaldarmaður hafi Markús falsað upplýsingar, haldi fram blekkingum og sé undir pils- faldinum á einhveijum sem hann ekki tilgreinir. Eftir þessa yfir- halningu segist Jón Óttar ekki hafa áhuga á að ræða um persónu Mark- úsar Amar. Þetta er auövitað afar fróðlegt og býsna upplýsandi vegna þess að íslenskir sjónvárpsáhorfendur hafa ekki þekkt aöra steinaldar- menn en Freddie og Wilmu. Nú hefur hins vegar komið í ljós að við höfum aöra steinaldarmenn á með- al okkar, núlifandi steinaldar- menn, sem eru báðir í forsvari fyrir þeim sjónvarpsstöðvum sem hér eru reknar. Þarf maður þá ekki lengur aö velta því fyrir sér af hverju dagskrárnar eru eins og þær eru, úr því að steinaldarmenn bera ábyrgö á dagskrárefninu og eru auk þess á því menningarstigi sem strákamir í götunni tileinkuðu sér í gamla daga. Markús segir að RÚV græði meira á auglýsingum heldur en Stöð 2. Jón Óttar segir að Stöö 2 græði meira á auglýsingum en RÚV. Minn pabbi er sterkari en þinn. Þetta er í stíl og það er yndis- legt að heyra hvað þeir græða mikið enda þurfum við þá ekki að greiða hærri afnotagjöld á meðan. Dagfari leggur til aö báðar stöðv- ar taki aftur upp í dagskrár sínar þætti um steinaldarmennina. Nú þarf ekki að hafa Freddie og Wilmu. Nú geta þeir tekið við sín- um eigin hlutverkum, Markús Örn og Jón Óttar. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.