Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Page 15
MÁNUDAGUR 21. MARS 1988. 15 Stílhrein ímynd Taktur og tíska nútímans í per- sónulegu áróðursútspili felst í því að skapa eftirsótta ímynd, sem hef- ur það meginmarkmið að tjá og túlka veruleika óskhyggjunnar, oft íórafjarlægð við það raunverulega. Á þetta við bæði um menn og mál- efni. Lítil sála getur orðið að stórum persónuleika ef tekst að skapa um hana glæsta ímynd í hugum fólks- ins. Sama gildir um málefnin. Bak- svið hvers<og eins þeirra þarf að vera geislandi ímynd, þá er öllu borgið. Nú gagnar ekki lengur að ætla að vinna sig upp í forystuhlutverk með góð áform og göfugar hugsjón- ir að leiðarmerkjum. Sérhveijum manni er léttvægt i þeirri baráttu, að ætla sér einungis að vera hann sjálfur, til dæmis líkt og Þórbergur Þóröarson var á sínum tíma. Honum ber fyrst og síðast að koma sér upp háleitri og heillandi ímynd í hugum sem flestra. Þá er hann vís með að vinna sér aðdáun og traust æði margra í samfélagi sem vill fremur lúta æskilegri ímynd en óæskilegum veruleika. Þetta þýöir að vel heppnuð ímynd gerir alla nákvæmni og jafnvel sannsögli óþarfa. Og tölfræðin get- ur líka nýst í samræmi við ósk- hyggjuna, ef góð ímynd stendur að baki, og sannað allt sem geðþóttinn gimist. í þeim efnum viröast mögu- leikamir eiga sér fá takmörk. ímynd hamingjunnar í eina tíð heíði verið sett sama- _ semmerki milh orðsins ímynd í nútímamerkingu ög sýndar- - mennsku. En orðið sýndar- mennska er ljótt og neikvætt og því ekki í takt við tímann. Þegnum hamingusömustu þjóðar heims ber að vera jákvæðir og una glaðir við sitt. Við lifum í lýðræðislandi og veljum okkur fuUtrúa tU þing- setu samkvæmt bestu vitund. í því sambandi mikið talað um tvær þjóðir í landinu í upphafi síðastUð- ins árs. Nú vitna sömu aðilar um eina hamingjuríka þjóð í landinu, enda ætti rétt ímynd að geta sann- fært hvem og einn um að allir fái í sinn hlut hámark þess sem at- vinnuvegir og þjóðarafkoma frek- ast leyfir. En ekki virðast þó alUr kunna að tileinka sér rétta ímynd. Það er nöldraö yfir háu verði á ýmsu, nú síðast frönskum kartöflum. Líklega hefur rétt ímynd varðandi þjóð- hagslegt gildi þeirrar verðákvörð- unar ekki komist nægjanlega til skila. Sama máh gegnir um sitt- hvað fleira sem snertir verðlag og þjónustu. Auðvitað má afgreiða allt slíkt á einn veg: skortur á næmi fyrir réttri ímynd. „Er hið hefðbundna, flokkstrygga stjórnmálafylgi tekið að þynnast og rofna, líkt og ósonlagið í háloftunum yfir heimskautasvæðunum?“ Kjallariim Jakob G. Pétursson kennari í Stykkishólmi Finnist okkur orð þeirra og gjörðir á Alþingi í Utlu samræmi við fögur fyrirheit sömu manna í erfiðri kosningabaráttu, þá megum við vita aö aðstæður hafa breyst og ekkert viö því að segja. Munum að okkar hlutverk er að bergja af brunni vinnugleðinnar og sötra í okkur sætleika hefllandi ímynda sem eftirrétt. Og við matborðið er Util ástæða fyrir hamingjusaman þjóðþegn að velta vöngum yfir dýr- keyptum kostföngum, jafnvel þó hann gruni að ýmsir aðrir borði frítt. AlUr vita að öfundin á enga sam- leiö með hamingjunni. Þá ættu launakjörin ekki að spiUa ímynd hamingjunnar. Að visu var Réttur stíll Annað mikflvægt, sem frammá- menn í stjórnmálum hafa fundið út sér tfl vegsauka, er stílUnn. Þeg- ar illa hefur gengið í atkvæðasmöl- un talar viðkomandi flokksforusta um að breyta þurfi um stfl. Þörf á uppstokkun málefna er sjaldan nefnd. Auðvitað er réttur stíll ómetan- legur þáttur í því að koma á framfæri æskflegri ímynd. Og ef vel tekst tfl að láta þetta fara sam- an, þá stendur fátt i vegj fyrir góðri þjónustu við óskhyggjuna. En ekki er aflur vandi úr sögunni þó vel heppnist að koma tfl skila hagstæðri ímynd með góðum stíl- brögðum. Eins og einhvers staðar Flestir virðast vera að tapa fylgi, nema Kvennalistinn. Hann þýtur uppá- við eins og kraftmikil eldflaug, segir m.a. i greininni. stendur, er oft erfiðara að gæta fengins fjár en afla þess. Sama á við um ímyndina. Þess vegna má aldrei slaka á. Það gæti orðið kald- ranalegt fyrir stjórnvöld, sem náð hafa að skapa um sig þá ímynd í huga hins aimenna horgara að þau standi í striðu við að leysa þjóð- nauðsynleg vandamál, ef þau létu það svo viðgangast að sú traust- vekjandi ímynd rynni út í sandinn. Þess vegna varðar miklu að halda stöðugt áfram markvissri umfjöll- un í réttum stíl, til að viðhalda hinni æskUegu ímynd, hvað sem líður veruleikanum. í því forvarn- arstarfi eru fjölmiðlar ómissandi, sérflagi sjónvarp. Blikur á lofti En þótt rétt ímynd gagnvart stjórnvöldum megi sín mikUs um þessar mundir eru samt bhkur á •lofti. Samkvæmt nýlegri skoðana- könnun um fylgi stjórnmálaflokka kom í ljós að þeir virðast flestir vera að tapa fylgi, en aðrir standa í stað. Nema Kvennalistinn. Hann þýtur upp á við eins og kraftmikil eldflaug. Hvemig má það ske að stjórn- málahreyfing, sem ekki hefur komið sér upp neinni guUskreyttri ímynd, hvorki á andUtum fyrir- fólks síns né málefnum, og þar að auki hirt lítt um sérhönnuð stíl- brögð, fær þvílíkan byr í seglin? Er hamingjuþjóðin hætt að meta menn og málefni í takt við tímann? Veit hún ekki lengur að þunga- miðja allra valkosta á sviði stjóm- málanna felst í glæstri ímynd og gáfulegum stíl? Er hiö hefðbundna, flokkstrygga stjómmálafylgi tekið að þynnast og rofna, Ukt og óson- lagið í háloftunum yfir heim- skautasvæðunum? Hingað til hefur rétt ímynd öllu bjargað. Hún hefur snúið háskött- un matvæla til hægræðis fyrir neytendur, gert vaxtaokur að þjóð- hagsnauðsyn, verðbólguspár, sem aldrei hafa ræst, að óskadraumsýn, gert fjarlæg fyrirheit um hús- næðislán að hagstæðri íbúðareign, og það sem mest er um vert, sann- aö að fólk með rúmlega þrjátiu þúsund í mánaðarlaun má vel una sínum hag eftir nýafstaðið átak viö launajöfnun í landinu. Ef uppsveifla í fylgi Kvennalista, eða annarra óábyrgra hópa, ætlar að ógna æskilegri ímynd stjórn- valda er aðeins eitt til ráða: Það verður að sminka betur hina einu, sönnu ímynd svo hún nái mark- visst að heilla hina hamingjusömu enda á það ekki að kosta mikið þar sem snyrtivörur hafa lækkað svo blessunarlega mikið í verði. Upp með hina stílhreinu ímynd sem öllu fær bjargað. Jakob G. Pétursson. Draugasaga í maí 1987 framdi Verðlagsráð sjáv- arútvegsins sjálfsmorð með því að gefa almennt fiskverð frjálst. Flest- ir voru þá á þeirri skoðun að saga þess væri öll. Svo reyndist þó ekki vera því upp var vakinn draugur fyrir tilstuðlan eins af æðstu prest- um Sambandsins. Afturgöngunni er síðan beitt í þágu stjórnvalda sem pru að reyna að hysja upp um sig brækurnar á kostnað íslenskra sjómanna. Þó eru ekki allir íslenskir sjó- menn ofurseldir Móra því að stór hluti af ferskfiski fer í gegnum fisk- markaði þar sem ekkert lágmarks- verð og ekkert hámarksverð er til. Þar ræður framboð og eftirspum verðinu. KjaHaríim Reynir Traustason stýrimaður, Flateyri „Það þótti mörgum íslenskum sæfar- anum undarleg upprisa þegar verð- lagsráð var endurvakið undir svartri messu Sambandsins.“ Heilbrigðari viðskiptahættir Fiskmarkaðimir hafa stuðlað að heilbrigðari viðskiptaháttum milh kaupendá og seljenda þar sem verðið fyrir fiskinn kemur allt inn í skipti og sjómaðurinn fær rétt hlutfall af tekjum útgerðar. En ekki eins og mjög víða tíðkaðist og tíðk- ast reyndar sums staðar enn að fiskkaupandi gerir samning við , útgerðarmannumaðskaffaveiðar- færi, olíu og fleira ef hann í staðinn leggur upp afla sinn h)á honum á folsku verði, það er lágmarksverði. Þeir fiskmarkaðir, sem upp eru komnir, em nær allir á sunnan- verðu landinu. Á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum eru engir slíkir, að undanskildum fjar- skiptamarkaði á Norðurlandi sem Við störf á hafi úti. lítið kveður að enn sem komið er. Þetta þýðir að Verðlags-Móra er beitt fyrst og fremst gegn sjómönn- um á þessum svæðum í þeim tilgangi að halda niðri hráefnis- verði fyrir illa rekin frystihús. Því þrátt fyrir að verð þetta heiti á pappírnum lágmarksverð er reyndin sú að þetta er það verð sem víðast hvar er borgað þótt til séu undantekningar þar á. Tími til kominn að rísa upp Það þótti mörgum íslenskum sæ- faranum undarleg upprisa, þegar verðlagsráð var endurvakið undir svarti messu Sambandsins, að það haföi ekki einu sinni fyrir því að búa til sitt eigið lágmarksverð sem hugsanlega hefði þó orðið rökrétt framhald af því verði sem víðast var samið um á þeim vettvangi. í stað þess „ljósrituðu“ þeir svokall- að Vestfjarðaverð sem samið var um í Alþýðuhúsinu á ísafirði og góður friður ríkti um. Reynslan af fijálsu fiskverði í framkvæmd er víðast góð þótt ein- hveijar skærur hafi orðið eins og eðlilegt hlýtur að teljast meðan menn eru að ná áttum og aðlaga sig nýjum viðhorfum. Síöla sumars 1987 var orðinn algjör friðúr alls staðar og síðasthðið haust sömdu Vestfirðingar aftur um fiskverð átakalaust. Því var ástæðulaust að afnema frjálst fiskverð undir þvi yfirskini að friður næðist ekki öðruvísi. Reyndar er nú svo komið að við síðustu verðlagsákvörðun, þegar fulltrúar kaupenda og odda- maður (með dagskipan í fartesk- inu?) ákváðu að frysta Vestfjarða- verðið öðru sinni, er kominn tími fyrir sjómenn að rísa gegn upp- vakningnum og særa hann ofan í gröf sína á ný svo hann megi Ifljóta eilífan frið. Trúlega er þetta ekki framkvæmanlegt öðruvísi en með því að sjómenn kalli út sína fulltrúa og hefji í framhaldi af því þær skærur sem duga til að kveða niður ófögnuðinn. Reynir Traustason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.