Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Qupperneq 18
18 MÁNUDAGUR 21. MARS 1988. Lesendur r>v Forstjóri SÍS á fundi með nánum samstarfsmönnum. Byggðasjónarmið klafi á SÍS? Forsljóri ákallar Lincoln Spumingin Fylgistu með fegurðarsamkeppnum? Sigurjón Jóhannesson: Já.mérfinnst mjög gaman aö fylgjast meö fegurð- arsamkeppnum. Ég held að á íslandi séu fallegustu stúlkur í veröldinni. Sumar eru svo sérkennilega fallegar. GunnarSigurjónsson: Já,ég geri það og hef ekkert nema gott um þær að segja. Aðalbjörg Jónsdóttir: Ég hef séð þær í sjónvarpi og finnst þær alveg ágæt- ar. Guðmundur Hagalin: Nei, ég fylgist ekki með fegurðarsamkeppnum og get varla sagt að ég hafi áhuga á því. öm Arnarson: Nei, éggeri litiöað því. Lilja Ágústsdóttir: Já, mér finnst æð- islega gaman aö horfa á þær. Kristján Einarsson skrifar: Það er kannski ekki á bætandi að vera að tönnlast á þessu vandræða- máh sem skapast hefur hjá hinu fyrrum virta almenningsfyrirtæki sem Samhand íslenskra samvinnufé- laga var löngum. En þar sem ég hef nú lengstum verið fylgjandi sam- vinnuhugsjóninni finnst mér nokkuð örðugt að kyngja því að þetta mikla fyrirtæki verði fyrir viðvarandi álits- hnekki vegna klaufsku og framagirni ásamt meö eiginhagsmunapoti ör- fárra manna sem jafnvel megi einskorða við einn eða tvo einstaki- inga. Síðustu fréttir af þessu máli eru þær að nú sé offjárfesting í öllum greinum aðalvandi samvinnuhreyf- ingarinnar, samkvæmt yfirlýsingu núverandi forstjóra. Talað er um að ekki þurfi fleiri en 15 frystihús sem geti unnið allan bolfiskafla lands- manna, kaupfélögin séu alltof mörg - og það sem mér finnst athygliverð- ast, að samvinnuhreyfingin hafi of mikið og of lengi látið „byggðasjón- Elín skrifar: Undanfama daga hefur mátt sjá auglýsingu eða kynningu frá trygg- ingafélögunum um hvemig staðið skuli að útfyllingu hinna nýju tjóns- skýrslna sem menn eru skikkaðir til að hafa til reiðu í bifreiðum sínum. - Ég tek vísvitandi þannig til orða aö segja „staðið að“ þvi aö í kynning- unni virðist þaö vera svo auðvelt mál aö nota þessar tjónsskýrslur að mennimir tveir, sem koma fram í kynningunni, sjást hvergi setjast niður heldur standa upp á endann meðan þeir, að því er virðist, skegg- ræða útfyllingu skýrslunnar. Aldrei sést aö þeir þurfi að setjast niöur og enn síður þegar þeir eru að fylla skýrsluna út. En það hefði ég einmitt viljað sjá, svo og hvar og hvemig þeir fara að því í úrhellis- rigningu eins og virðist vera í kynnigarmyndinni. A.m.k. er vélar- hlíf bflsins, sem sýndur er, renn- blaut. armið ráða ferðinni á kostnað hagkvæmni“! Á fundi, þar sem forstjórinn sat fyrir svörum hjá framsóknarmönn- um, tók hann af skarið og vitnaði í fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Áhraham Lincoln, á ensku að sjálf- sögðu: „If we dont hang together we hang separately". Þetta var nú kannski ekki allra heppilegasta til- vitnunin, þar sem þessi dáði forseti Bandaríkjanna var skotinn til bana en ekki hengdur! En sem betur fer er hin nýja kynslóð innan Sam- bandsins vel að sér í erlendum málum og sá strax að þetta myndi ekki útleggjast öðm vísi en einhvem veginn svona: „Ef við höngum ekki saman höngum við aðskildir" sem á auðvitað vel við núna. - Nema hvað! Skyldi einhver kannast við taktana? Já, nú á að flytja rekstur SÍS á annað og hærra plan og reka allt eft- ir amerískri fyrirmynd og er þegar byijað í bókstaflegri merkingu meö því að „reka“ tvo. Fleiri hljóta aö fylgja því að ekki trúi ég því aö þess- Tjónstilkynning - ökutæki, heitir skýrslan. Bréfritari ber ekki mikiö traust til þessa lögskipaða forms. ir tveir einstaklingar hafi komið öllu því róti á sem nú er orðið. Þeir hafa nú þegar verið reknir og ætti þá allt að vera á lygnum sjó á ný. En brott- rekstur þeirra virðist ekki hafa dugað til því að enn er allt í skoðun og endurskoðun. Þaö virðist sem þessir tveir brott- reknu aðilar hafi í raun gert fyrir- tækinu mikið gott þegar öllu er á botninn hvolft. Þeir ættu að fá sér- staka umbun hjá fyrirtækinu fyrir að verða tflefni til svo mikillar end- urskoöunar og umbóta sem nú virðist eiga að fara fram hjá SÍS í kjölfar brottrekstursins. Og það nýjasta, sem maður heyrir úr herbúðunum frá forstjóranum, er að nú sé það stjórnmálamannanna að ákveða framhaldið! Það fari eftir þeirri byltingu í byggðamálum, sem stjórnmálamenn geri, hvort Sam- bandið nái sér á strik, ekki sam- vinnuhreyfingunni! Þetta er nýja línan í samvinnumálum, gjöriði svo vel. Þetta að fylla út tjónsskýrslu trygg- ingafélaganna er nefnilega meiri- háttar mál eða getur orðið þaö í höndum hins venjulega ökumanns sem hefur engin tæki eða aðstöðu til að fylla út neins konar form og skýrslur á víðavangi eöa í bíl sínum. Öll sýnikennsla í sjónvarpi og sýnd- armennska sem fram fer með með einhverju „allt-í-lagi“ samtali er einskis nýt fyrir hinn venjulega öku- mann. Ég sé ekki betur en aö allir öku- menn hljóti að krefjast þess að lögregla verði kölluð til í hverju ein- asta umferðaróhappi sem verður, líkt og hingað til hefur verið venjan. Ekki myndi ég hafa neina aðstöðu til að útfylla skýrslu í mínum bfl, að ekki sé nú talað um að ég myndi treysta neinum þeim sem veldur tjóni á bfl mínum að útfylla sína skýrslu, jafnvel fara með hana heim og treysta þvi að hann sendi hana til tryggingafélagsins. Fúafen fjölmiðla í smekkleysu Birgir Borgþórsson skrifar: Ég hygg að margan hafi rekið í rogastans er hlýddi á fréttaflutning útvarpsstöðvar Stjömunnar, þriðju- daginn 15. þ.m. Þar leggst fréttamað- ur í þá lágkúm að freista þess að búa til æsifrétt vegna andláts ungs íþróttamanns. Tfldrög em þau að ungur maður um tvítugt andast. Hafði hann átt við líkamlega vanheilsu að stríða frá bamæsku. Það er alltaf sárt fyrir ættingja að sjá á bak ástvinum sínum og það þekkja flestir. Ekki’síst þegar lífið er rétt að byija. Ég hygg að við kringumstæður, sem skapast eftir fréttaflutning líkan og átti sér stað í hádegisfréttum Stjömunnar, verði söknuðurinn og beiskjan enn meiri en endranær. í umræddum fréttaflutningi leiðir fréttamaður getum að því, að ungi maðurinn hafi látist fyrir tilstuðlan lyfjanotkunar. Fréttamaður ber síð- an fyrir sig heimildarmann, Skúla Johnsen borgarlækni, um að nú standi yfir ítarleg lyfiafræðfleg rann- sókn vegna þessa andláts. Við svona fréttaflutning vakna ýmsar spumingar. Af hvaða hvötum telur fréttamaður andlát þessa unga manns þess vert að þess sé sérstak- lega getið á öldum ljósvakans og órar hugans lánir reika um dánarorsök? - Hvað kemur tfl, að Skúli Johnsen borgarlæknir sér ástæðu til að ræða mjög svo persónulegt mál, sem and- lát hlýtur að teljast, við ókunnan fréttamann úti í bæ? Er ekki til hug- tak sem kallast læknaeiður er kveður á um trúnað lækna gagnvart sjúklingum og ættingjum þeirra? Það er sárt tfl þess aö vita að ungur maður, sem lengi átti við líkamlega vanheflsu að stríða en með eljusemi og dugnaði komst langt með aö vinna bug á henni með ræktun líkama og sálar, skuli hverfa á æðri vitsmuna- stig með slíkar dylgjur og ranghermi í fararnesti sem fréttamaöur Stjörn- unnar framreiðir fyrir almenning. Sumum finnst sem þeir „svífi“ eftir t.d. fótsnyrtingu, - öðrum ekki. Sagaafsnyrtíngu Ein vonsvikin skrifar: Ég haföi hugsað mér aö skrifa nokkrar línur um ferð mína á snyrti- stofu hér í borginni. Það var fyrir svona hálfum mánuði að ég pantaöi mér tíma í fótsnyrtingu og andlits- hreinsun eftir að ég hafði heyrt talað um að þetta væri alveg „draumur". Fólk hreinlega „svifi“ eftir fótsnyrt- inguna og húðin angaði af hreinleika eftir andhtssnyrtinguna. En ég fann ekki fyrir neinu slíku. Ég var hölt í rúma viku, vegna sára á tánum, og heföi helst þurft að ganga skólaus vegna þess að allir skór meiddu mig. Og húðin í andlitinu var svipuð og áður, sem sé fílapenslar og fleira. Nú, ég bað ungu stúlkuna, sem haföi mig til meðferöar, að mæla með góðu dagkremi sem passaði fyrir mig. Jú, jú, hún gerði það, en viti menn! Ég varö rauðflekkótt í framan og flagnaði á nefinu og þar í kring. Fyrir þetta borgaði ég 3000 krónur og alls tók þetta ca. 65 tfl 70 mínútur sem mér skflst að sé allstuttur tími fyrir hvort tveggja. Heyrt hef ég aö fólk fari allt að þvi einu sinni í mánuði í svona meðferð. Ég segi ekki annað en aö það þarf að vera nokkuð frábrugðið þessu sem ég lenti í, til þess að þetta megi kallast notalegt. Ég vil að lokum taka þaö fram aö ég er ekki nema tæplega þrítug og ekki með nein líkþom eða fótasár sem hefðu átt að meiða mig. Ég varð hins vegar slæm í tánum, vegna skinnsins sem rifið var upp meðfram tánöglunum. Fróðlegt væri að heyra frá einhverjum sérfróðum hvort þetta teljist eðlilegt. Vextir og dráttaivextir: Hvað myndi ráðherva gera? Svanur Pálsson skrifar: Ég get ekki orða bundist lengur og vil koma eftirfarandi á fram- færi, vegna allra þeirra skatta sem fjármálaráðherra hefur tekist að koma í gegn á hinu háa Alþingi. - Annars er það kannski hrein vit- leysa að ætla að maður fái þau svör sem maður býst nú við því menn eru þjálfaöir í að snúa sig út úr öllum óþægilegum spurningum. En hvað um það. Eg varpa samt fram fyrirspurn og er það ekki að ástæðulausu því þaö er ekki sama séra Jón og Jón Baldvin. Hvað myndi ráðherra gera við mann sem fer ekki aö lögum hvað varðar vexti og dráttarvexti? Ég stend í þeirri trú að hæstu lögleyfðir vextir séu þeir sem Seðlabankinn gefur upp og sé vikið frá þeim sé um lögbrot að ræða og skuli sá sem það gerir svara tfl saka, eiga yflr höföi sér fangelsi eða fjársektir. Mér sýnist að hæstu vextir frá bankanum séu eins og hér segir: dráttarvextir er leggjast við höfuð- stól á mán. fyrir hvem byrjaðan mánuö, 4,1% - dráttarvextir er leggjast við höfuðstól á mán., 5,59% - dráttarvextir er leggjast við höf- uöstól á 12 mán. fresti, 4,5% - dráttarvextir er leggjast við höfuð- stól mánaðarlega, 3,5%. Hvað meinar ráðherra (ef hann svarar þessu); er það ekki svínslegt að bjóða þeim er þurfa að borga söluskatt að greiða 20% vexti, ef ekki er greitt á gjalddaga, og er þetta ekki okurstarfsemi? - A að líöa þetta? Að lokum: Ekki þurfa alþýðu- flokksmenn að furöa sig á því þótt þeir dah í skoðanakönnunum. Annars er þaö gott að mönnum sé refsað fyrir slæm vinnubrögð. Tjónsskýrslur tryggingafélaganna: Klúðursleg kynning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.