Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Síða 20
20
MÁNUDAGUR 21. MARS 1988.
Fréttir
Eskfirðingar:
Vatnsskorturinn á Eskifirði
Safha
vatni í
baðkarið
, JFólk lætur renna í gotta og ker
þegar vatnið kemur. Eg fylli lika
baðkerið til að vera viss um að
eiga nóg,“ sagði Aðalheiöur Ingi-
mundardóttir á Eskiiiröi. Mikið
vatnsleysi hefur verið á Eskifirði
undanfamar vikur. Efst í bænum
kemur vatnið og fer yfir allan
daginn.
„Þetta er hábölvanlegt," sagði
Aðalheiður. „Ég þvæ sloppa fyrir
frystihúsið og verö stundum að
fara að þvo klukkan sex á morgn-
ana eða vera að þvo langt fram
eftir nóttu. Þaö væri miklu betra
ef vatnið færi á vissum tímum.
Ég verð að vakta þvottinn því aö
ef vatniö fer þá eyðileggst vélin.“
Alls óvíst er af hverju vatns-
skorturinn stafar. Litlar líkur eru
á því að úr rætist fyrr en í leysing-
unum í vor. Þangað til veröa
Eskfirðingar að safna vatni þegar
þaö gefst Vinnsla í frystihúsinu
hefur þó enn ekki stöðvast en
vatn er þar nú mun minna en
vanalega. Skorturinn er mestur í
efstu húsunum.
„Þaö þýöir ekkert að snikja
vatn í næsta húsi, hér er ekkert
vatn,“ sagði Aðalheiður.
-gse
Algjörlega óþolandi og
ekki búandi við lengur
- segir Hrafnkell A. Jónsson forseti bæjarstjómar
Emil Thorarensen, DV, Eskifiröi;
Talsverður vatnsskortur hefur
verið á Eskifirði sl. mánuð þannig
að fjölmörg hús hafa ekki fengið
dropa af vatni dögum saman. Að
sögn Hrafnkels A. Jónssonar, forseta
bæjarstjómar, hefur þetta ófremdar-
ástand aðallega ríkt í ofanverðum
götum innbæjarins, svo sem Fögru-
hlíð og Bleiksárhlíð. Sagöi hann þetta
ástand algjörlega óþolandi og ekki
búandi við það lengur.
Ástæðuna fyrir vatnsskortinum
taldi hann vera fyrst og fremst þá
að neysla vatns væri meiri en það
vatn sem fyrir hendi væri auk þess
sem stöðugar frosthörkur hefðu ver-
ið síðastliðna viku og bætti það ekki
úr. Þá taldi Hrafnkell að breyting
sem gerð var sl. haust á dreifikerfi
vatnsveitunnar, þar sem ný lögn var
tekin í notkun, hefði komið þannig
Hrafnkell A.Jónsson. DV-mynd Emil út að vatnsþrýstingur hefði aukist til
muna í bænum með þeim afleiðing-
um að notkunin hefði aukist vem-
lega frá því sem var og án þess að
fólk almennt gerði sér grein fyrir
því. Hann kvað þó bæjarstjóm vera
búna aö samþykkja inn á fjárhags-
áætlun fyrirhugaða virkjun Beljanda
og vænti þess að farið yrði í þaö verk-
efni í sumar.
í Bleiksárhlíð, sem er fjölmennasta
gatan, er eðlilega mikill kurr í fólki
vegna þessa. Einn ibúi, sem fréttarit-
ari ræddi við, sagði að ástandið væri
ferlegt og algjörlega óþolandi. Þar
hefði fjölskyldan þurft að fara í önn-
ur hús, sem standa neðar í bænum,
til þess að fara í bað og nota salerni.
Hann væri búinn að búa við þetta
sl. vikur, að bera vatn heim í fötum
sem notað væri til brýnustu þarfa.
Það væri ekki með glöðu geði að
hann greiddi vatnsskattinn til bæjar-
félagsins sem nú væri til innheimtu
með fasteignagjöldunum.
Stjómsýslumiöstóð á Akureyn:
VaHýr ráðinn
forstöðumaður
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyn:
„Þaö leggst mjög vel í mig að taka
við þessu starfi, þetta verður án efa
skemmtilegt verkefni sem þó á eftir
að móta enn frekar," sagði Valtýr
Sigurbjamarson, bæjarstjóri á Ólafs-
firði, í samtali viö DV en hann hefur
verið ráðinn forstöðumaður Stjóm-
sýslumiöstöðvar Byggöastofnunar á
Akureyri.
„Þaö er mikið í húfi að vel takist
til,“ sagði Valtýr. „Þetta verður
fyrsta fyrirtæki sinnar tegundar hér
á landi og því væntanlega aö ein-
hveiju leyti fyrirmynd ef ákveðið
verður að koma fleiri slíkum stofn-
unum á fót
Það fylgir því auðvitað söknuöur
að fara frá Ólafsfiröi en það sýnir þó
ekki annað en að mér hafi liöið vel
hér,“ sagði Valtýr.
Þess má að lokum geta að Benedikt
Guðmundsson hefur verið ráðinn
ráögjafi sljómsýslumiðstöðvarinnar
varðandi atvinnumál en Benedikt
hefúr að undanfómu starfað hjá
Henson í Reykjavík.
Stjómarandstaðan deilir um launamál
Launamál urðu tilefni mikilla
umræöna á Alþingi á miðvikudag
vegna þess ástands sem nú er í
þjóðfélaginu. Fyrir Alþingi liggja
nú þijár þingsályktunartillögur og
eitt lagafmmvarp sem stjómar-
andstöðuflokkarnir hafa lagt fram
til að taka á launamálum þjóðfé-
lagsins.
Umræða varð um þingsályktun-
artillögu Kvennalistans um lög-
bindingu lágmarkslauna. Um leið
lögðu þær kvennahstakonur fram
þingsályktun um samstarfshóp til
að tryggjajákvæðáhrif lögbinding-
ar lágmarkslauna en tillaga þessi
er til stuðnings fyrri tillögunni.
Fyrir stuttu urðu miklar umræð-
ur um þingsályktunartillögu
Borgaraflokksins um launabætur
og í gær lagði síðan Alþýðubanda-
lagiö fram tillögur sínar í launa-
málum. Þaö er því Ijóst að
stjórnarandstöðuflokkarnir reyna
allt hvað þeir geta til að viöra sínar
skoöanir á launamálum.
Þaö er einnig ljóst aö töluvert ber
á milli í hugmyndum flokkanna.
Kvennalistinn segir að tillaga
Borgaraflokksins sýni vantrú á
getu fyrirtækja til aö greiða mann-
sæmandi laun og því sé ríkinu gert
að greiöa mismuninn. Um leiö seg-
ir Alþýöubandalagið að tillögur
Kvennahstans taki ekki á launam-
ismuninum sem sé aðalvandamáhö
í þjóðfélaginu.
Tillaga Alþýðubandalagsins
Þingsályktunartillaga þeirra Al-
þýöubandalagsmanna er um
laun^jöfnuð, lágmarkslaun og nýja
launastefnu. Á blaðamannafundi
sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins, að
í tíhögunum fæhst einkum tvennt
- að stjóma lágmarkslaunum og
vera tæki gegn launamisrétti í
þjóðfélaginu.
„Við viljum ákveðinn launajöfn-
uð og skapa samstöðu um það,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon. í
tíhögunni er kveðið á um að lau-
namunur í landinu nemi á næstu
árum ekki hærri upphæð en sem
nemur fjórfóldum lágmarkslaun-
um og á hveijum vinnustað verði
lægstu laun aldrei lægri en 1/3 af
hæstu launum sem þar eru greidd.
Þá er gert ráð fyrir sérstakri lág-
markslaunavísitölu sem miðist við
nauðsynleg útgjöld venjulegs fólks
til heimihshalds. Þessi nýja lág-
markstala verði reiknuö fjórum
sinnum á ári. Ef kjarasamningar
tryggja ekki laun í samræmi vð
lágmarkslaunavísitölu veröi
lægstu laun sett í lög.
Þeir Alþýðubandalagsmenn
sögðu að aörar tillögur tryggðu
ekki aö launabætur gengju upp ah-
an launaskalann en með þeirra
hugmyndum væri ætlunin að taka
ærlega á launamismuninum. Þeir
Ólafur og Steingrímur sögðu að
verkalýðsforkóhar þeirra hefðu
veriö með í tihögugerðinni og
nefndu þar til Bjöm Grétar Sveins-
son.
Tillögur Kvennalistans
Þórhildur Þorleifsdóttir fylgdi
máh Kvennahstans um lágmarks-
laun úr hlaði og sagði þegar í
upphafi að launabótatillögu Borg-
araflokksins fylgdi of mikill upp-
gjafartónn, það ætti ekki að þrnfa
opinbera styrki til að tryggja lág-
markslaun. Hins vegar, sagði
Þórhildur, hefur ekki verið gert
nóg til að hækka grunnlaun og ef
það tækist ekki með góðu þá yrði
að gera þaö með ihu - semsagt lög-
binda lágmarkslaun eins og tillaga
Kvennalistans kveður á um.
Þórhildur sagöi aö aðilar vinnu-
markaöarms hefðu brugðist hlut-
verki sínu og þess vegna hefði þetta
lagafrumvarp verið lagt fram.
Steingrímur J. Sigfússon sagði í
umræðu um tihöguna að hún væri
óheppilega tímasett nú á meðan
kjarasamningar stæðu yfir.
Einar Guðfinnsson gagnrýndi tíl-
löguna og sagði að miklir tæknileg-
ir annmarkar væru á því að koma
hugmyndinni að baki í fram-
kvæmd og þessi launahækkun
myndi bara hlaupa upp allan
launaskalann.
-SMJ
útreikningar á
kostnaði við rekst-
ur einkabils.
Einkabillinn reynd-
ist dýr í rekstri en
55 ódýrari valkostir
aka hins vegar um
götur borgarinnar
dag hvern. Það eru
að sjálfsögöu
strætisvagnarnir,
þessi þrætuepli
sem verða í
brennidepli IDV á
morgun. Allt um
strætó I Lífsstíl á
morgun.
Einkaflug er iþrótt
sem nýtur sivaxandi
vinsælda hér á landi.
í Lifsstfl á morgun er
fjallað um einkaflug,
flugnám og fylgst með
lofthræddum manni
sem hættir sér í sinn
fyrsta flugtima. Ýmsir
hafa ráðið bót á flug-
hræðslu með því að
hefja flugnám og er
rættvið einn slikan
sem nú er orðinn illa
haldinn af flugbakter-
iunni. Alltum einka-
flug í Lífsstíl á
morgun.
I Lifsstíl á dögun-
um voru birtir