Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 21. MARS 1988.
51
Fréttir
Mikill áhugi á
íslenskum fræðum
í Manitobaháskóla
i
- rætt við Gísla Sigurðsson sem gegnir stöðu gestaprófessors í vetur
Mikil slysahætta vill myndast þar sem Bústaðavegur og Skógarhlíð mæt-
ast. Á Bústaðavegi er tvöföld akgrein en mjókkar I eina akgrein til norðurs
að Skógarhlíð. Þeir sem aka vinstri akgreinina á Bústaðavegi vilja oft verða
ýtnir við að komast á þá hægri áður en þeir komast i Skógarhliðina. Við
þær athafnir hafa orðið umferðarslys. Samkvæmt upplýsingum lögreglu
væri æskilegt að gera ráðstafanir áður en komið er að gatnamótum Bú-
staðavegar og Suðurhlíðar. -sme/DV-mynd S
*
Háskólinn á Akureyri:
Þrengsli hjá nemendum
Anna Bjamason, DV, Denver:
Gísli Sigurðsson íslenskufræðing-
ur hefur nýlega tekið við stöðu
gestaprófessors í íslensku við háskól-
ann í Manitoba sem er í Winnipeg.
Gísli tók við starfi Haraldar Bessa-
sonar prófessors en hann er nú
rektor Háskólans á Akureyri. Fast-
ráðið verður í stöðuna, sem Gísli
gegnir, næsta sumar. Gísli sagði í
samtali við blaðamann DV í New
York á dögunum að hann hygði gott
til starfsins. Mun hann kenna þeim
nemendum sem lengra eru komnir í
náminu. Ekki vissi hann gjörla hve
margir þeir yrðu en líklega 3-4. Nem-
endur háskólans í Manitoba eru 20
þús. Nemendur, sem leggja stund á
nám í íslenskudeildinni, fá að kynn-
ast íslenskri sögu og goöafræði fyrir
utan hefðbundið íslenskunám. Þá
eru haldin aukanámskeið í íslensku
og sækja þau um 10 nemendur að
jafnaði.
Gísli vann með Haraldi Bessasyni
prófessor að athugunum á kveðskap
vestur-íslenskra skálda á nítjándu
öld. Áður var hann í Dublin við nám
í heimspeki. Ritgerð hans fjallaði um
gelisk áhrif á íslandi til foma. Rit-
gerðin verður gefin út hjá Studia
Islandica í vor. Gísli sagðist fá tæki-
færi til þess að ljúka við undirbúning
útgáfunnar jafnhliða kennslunni í
Winnipeg.
Það voru íslendingar í Manitoba
•sem stofnuðu íslenskudeildina við
háskólann undir nafninu Depart-
ment of Icelandic fyrir rúmum 30
árum. Finnbogi Guðmundsson pró-
fessor var fyrsti forstöðumaður
deildarinnar en fljótlega tók Harald-
ur Bessason prófessor við stöðunni
og gegndi henni þar til á síðasta ári
að hann fluttist til íslands og tók við
stöðu rektors Háskólans á Akureyri.
Deildin nýtur styrks frá ríkissjóði
íslands samkvæmt fjárlögum.
Gísli sagði að mikill áhugi væri hjá
Vestur-íslendingum að stækka og
efla þessa íslenskudeild og væm þeir
að safna fé til þess.
Nemendurnir em fólk af íslenskum
ættum en einnig eru nemendur ann-
ars staðar að. Einn nemandi var
stúlka frá Hollandi sem kom til
Manitoba til framhaldsnáms í nor-
■rænum fræðum. Þegar hún kom til
Winnipeg var hún flugmælt á, ís-
lenska tungu en hafði aldrei til
íslands komið. Gísli er aðeins ráðinn
til bráðabirgða en fastráðið veröur í
stöðuna í sumar.
Gísli hefur dvalist á íslandi undan-
farið eitt og hálft ár. Vann hann hjá
útgáfufyrirtækinu Svart á hvítu,
stundaði kennslu og skrifaöi einnig
um bókmenntir í DV.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Nemendur í Háskólanum á Akur-
eyri hafa mátt búa við mikil þrengsli
í kennslustofum sínum í vetur. Þær
eru reyndar í íþróttahöllinni, í stof-
um sem ekki voru hugsaðar fyrir
kennslu. Þrengsli eru þar mikil, lýs-
ing afarslæmog húsnæðið óhentugt
að öllu leyti.
Skrifstofur skólans eru í húsi Verk-
menntaskólans við Þingvallastræti,
og þangað er áformað að flytja alla
kennslu þegar húsnæðið losnar.
Á fundi skólans nýlega var sam-
þykkt að bókasafnsrými, sem
ákveðið er í 5. áfanga A á Eyrarlands-
holti, veröi innréttað sem kennslu-
stofur. Þær verði innréttaðar sem
bráðabirgðahúsnæði fyrir deildir
sem nú eru á tæknisviði skólans við
Þórunnarstræti svo að rýma megi til
þar fyrir Háskólann á Akureyri.
Skilyrði fyrir þessum breytingum
á nýtingu húsnæðisins eru þau að
íjárveiting fáist frá ríkissjóði til að
flýta framkvæmdum sem áætlað er
að muni kosta um 22 milljónir króna.
Skólanefndin lagði til að bæjar-
stjóra yrði faliö að ræða við fjármála-
ráðherra og leita eftir aukaíjárveit-
ingu á þessu ári í samræmi við
framangreinda samþykkt.
Hver er munurinn áþessum myndum?
Verðmunurinn
í 11. tölublaði Verðkönnunar
VERÐLAGSSTOFNUNAR sem gefin var út
18. mars, kemur fram ótrúlegur verðmunur á
fermingarmy ndatökum.
Á ljósmyndastofu Jóns K. Sæmundssonar
kostar myndatakan 4000 kr., og er ekkert
aukagjald þó hún fari fram á fermingardegi. Hjá
Svipmyndum kostar fermingarmyndatakan 8000
kr., og aukagjald tekið ef hún fer fram á
fermingardegi, kr. 1000. Hér er verðmunurinn
4000 kr. eða 100% - Það munar um minna.
VERÐLAGSSTOFNUN kannaði verðlagningu
hjá ljósmyndastofum á höfuðborgarsvæðinu.
Könnunin náði til fermingarmynda, stækkana og
skilríkjamynda. Hjá Ljósmyndastofu Kópavogs
kostar fermingarmyndatakan enn meira en
áðurnefnt dæmi sýnir eða 13000 kr. og eru þá
innifaldar tvær stækkanir (18x24 cm). Þetta sýnir
okkur að vissara er að hafa augun opin þegar fólk
ber saman verð hjá ljósmyndastofum.
Það er augljóst að það borgar sig að gera
verðsamanburð á milli ljósmyndastofa og
sérstaklega nú þegar férmingarnar eru skammt
undan.
VERUM Á VERÐI
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ