Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Síða 38
54
MÁNUDAGUR 21. MARS 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
.
Goldie
Hawn
- sem hefur í nokkuð mörg ár
verið gift leikaranum Kurt Russel
- er á góðri leið með að eyðileggja
leikferil hans. Hún er svo yfir sig
ástfangin af honum að það má
enginn annar kvenmaður koma
nálægt honum. Eins og títt er um
leikara þarf Kurt Russel að leika
í mörgum eldheitum ástaratrið-
um en nú heimtar Goldie stað-
gengil í þau hlutverk. Kurt Russel
er um þessar mundir að leika í
mynd á móti Kelly McGilIis en
fær ekki að komast í nána snert-
ingu við hana.
Hér eru allir verðlaunahafarnir samankomnir úr flokki 16-24ra ára I standard dönsum (ballroom), það eru vínarvals, quick step og tangó.
Meistarar í
samkvæmis-
dönsum
Árshátíð Frjálsrar fjölmiðlunar:
Fjölmenni, glaumur og gleði
Tom
Selleck
- sem þykir ekki síður myndar-
legur - kvæntist danskonunni
Jillie Mack fyrir fiórum mánuð-
um. Þá höfðu þau verið nánir
vinir í fiögur ár og allt gengið vel
milli þeirra, en nú er annað uppi
á teningnum eftir að þau giftust.
Þau hafa tilkynnt að þau séu að
skiija. Jillie heldur því fram að
hann vilji ekki vera neitt annað
en piparsveinn og lifa lífinu með
mörgum konum, og það gat Jillie
að sjálfsögðu ekki þolað.
Sigurður Hákonarson danskennari var stoltur af árangri skóla síns, en full-
trúar frá honum fengu 17 gull af 20 mögulegum á mótinu. Hjá honum standa
Steven Werall og Helen Jessop sem þjálfuðu í nokkrar vikur hjá skóla Sig-
urðar fyrir keppnina.
íslandsmeistaramót í samkvæmis-
dönsum var haldið fyrir skömmu á
Hótel íslandi. Rúmlega tvö hundruð
pör tóku þátt í keppninni og keppt
var í 9 aldursflokkum og einum at-
vinnumannaflokki.
Yfirdómari keppninnar var John
Knight frá Englandi en keppendur
voru frá fimm mismunandi skólum
víðs vegar af landinu. Af einstökum
skólum stóð Dansskóli Sigurðar Há-
konarsonar sig best. Dansarar frá
honum fengu lungann af verðlaun-
unum, þar af 17 gull af 20 möguleg-
um.
Framfarir eru miklar og greinileg-
ar í íslenskum samkvæmisdönsum
og var haft á orði að sjá mætti mik-
inn mun frá keppninni árið á undan.
Þetta er einungis í þriðja sinn sem
þessi keppni er haldin hér á landi.
Timothy
Dalton
- sem þykir meö myndarlegri
piparsveinum - hefur tilkynnt að
hann ætli að ganga í hjónaband
á næstunni. Sú heppna er 10
árum eldri en hann og þau hafa
verið nánir vinir árum saman.
Vanessa Redgrave heitir hún og
er ein frægasta leikkona Breta.
Þau hafa undanfamar vikur unn-
ið saman við leik í Young Vic
leikhúsinu í London og mega nú
vart hvort af öðm sjá.
Um síðustu helgi gerðu starfsmenn
Frjálsrar fiölmiðlunar upp árið hjá
sér með hressilegri árshátíð sem
haldin var í Átthagasal Hótel Sögu.
Hartnær tvö hundruð manns mættu
að þessu sinni og hefur sjaldan eins
stór hópur starfsmanna mætt á árs-
hátíðina eins og í þetta sinn.
Gerðu menn mat og víni góð skil
aö vanda og nutu skemmtiatriða sem
stóðu langt fram eftir kvöldi. Ómar
Ragnarsson gaf sér tíma til þess aö
mæta á staðinn en að öðru leyti sáu
starfsmenn um skemmtiatriði sjálfir.
Fulltrúar auglýsingadeildar fluttu
meðal annars fiölbreytilegt söng- og
dansatriði og létu sig ekki muna um
að „rappa“ við góðar undirtektir
gesta. Skemmtiatriði voru miklu
fleiri og átti hver deild sinn fulltrúa.
Fastur siður er að -gefa út „dag-
blaðið" Skúbbið fyrir hveija árshátíð
þar sem ritaðar eru innanhúsfréttir
um starfsmenn blaðsins. Efni blaðs-
ins er þess eðlis að ritstjóramir neita
alfariö að taka ábyrgð á því og er því
ekki hægt að lögsækja neinn.
Maturinn þótti sérlega ljúffengur.
í forrétt var heitreyktur silungur
Guöríöur Haraldsdóttir, skrifstof-
ustúlka, Gísli Kristjánsson blaöa-
maður og Ásdís Rafnsdóttir
gjaldkeri á góðri stund. Fyrir aftan
situr Dagfríöur Pétursdóttir, eigin-
kona Sveins Þormóðssonar.
með piparrótarsósu, aðalrétturinn
var heilsteiktur nautahryggur með
rauðvínssósu og í eftirrétt var romm-
ís með rúsínum.
Sveinn Þormóðsson, ljósmyndari
blaðsins, var að sjálfsögðu meðal
gesta en hann gaf sér þó tíma til þess
að taka nokkrar myndir.
Auglýsingadeild DV flutti söng- og
dansatriði sem vakti mikla lukku.
Það eru Ásdis, Klara, Hanna, Fjóla,
Maja og Ragnar sem þarna taka
nokkur glæsispor.
Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður, sem á árum áður var í hljómsveit
Svavars Gests, tekur þarna lagið fyrir dansgesti. DV-myndir S
Á matseðilinn voru prentaðir söng-
textar og voru þeir sungnir á milli
rétta. Við þetta borð drógu menn
ekki af sér við sönginn. Frá vinstri
eru Jóhanna Jóhannsdóttir, Sigurð-
ur Már Jónsson, Jóna Björk
Guðnadóttir, Jón M. Jónsson og
Sigrún Gissurardóttir.