Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988.
5
Fréttir
Gervihnattamóttakari við Asparfell i Breiðholti: kapalkerfi sem tengt er við
móttakarann hefur nú verið kært til rannsóknarlögreglunnar.
Rétthafar á myndböndum:
Kæra kapalkerfi
til lögreglunnar
Samtök rétthafa á myndböndum
hafa krafist opinberrar rannsóknar
á kapalkerfi sem starfrækt er í fjöl-
býhshúsi viö Asparfell í Breiöholti.
Samtökin telja að starfræksla kerfis-
ins, sem tengt er við gervihnattamót-
takara, hafi brotiö í bága viö
höfundarrétt. Auk þess telja samtök-
in að allar tilskildar heimildir vanti
til þess að þessi starfsemi sé lögleg.
Að sögn Magnúsar Kjartanssonar,
starfsmanns samtakanna, eru 192
íbúðir tengdar við þetta kerfi. Sam-
kvæmt útvarpslögúm ber að sækja
um sérstaka heimild til þess að starf-
rækja slíkt kerfi ef fleiri en 36 íbúðir
eru við það tengdar. Samkvæmt upp-
lýsingum Þórunnar Hafstein, ritara
útvarpsréttarnefndar, hefúr engin
slík umsókn borist og því ekkert leyfi
verið veitt.
Magnús Kjartansson sagðist telja
að starfsemi þessa kapalkerfis bryti
í bága við höfundarrétt. Hann sagðist
til dæmis hafa vissu fyrir því að í
þessu kerfi hefði ákveðin mynd verið
sýnd tveimur dögum áður en hún
kom á dagskrá Stöövar-2. Hann
sagðist þess fullviss að gervihnattar-
réttur hérlendis hefði ekki verið
keyptur. Sýning þessarar myndar í
kerfinu hefði þvi auðsjánlega brotið
gegn rétti á sýningu í lokuðu sjón-
varpskerfi sem Stöð-2 hefði keypt.
Magnús sagði að þess væru fleiri
dæmi að gervihnattakerfi eins og
þetta hefðu einnig brotið gegn rétti
þeirra sem keypt hefðu myndbanda-
rétt á kvikmyndum.
Þórir Oddsson, vararannsóknar-
lögreglustjóri, sagði að þessi kæra
hefði enn ekki verið tekin til með-
ferðar, en það yrði gert innan tíðar.
-gse
Höfundarréttarmál í Hæstarétti:
Sektir og myndbönd
skulu gerð upptæk
Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm
í máli þar sem tekist er á um höfund-
arrétt á myndböndum. Málið var
höfðað gegn eigendum myndbanda-
leigu í Reykjavík. Eigendur mynd-
bandaleigunnar höfðu keypt
myndbönd í verslun erlendis, flutt
þau til íslands og leigt þau út. Há-
skólabíó og Laugarásbíó höfðu
samning við framleiðanda mynd-
anna.
Eigendur myndbandaleigunnar,
karl og kona, voru dæmd í sektir,
hann til að greiða 50 þúsund krónur
og hún til aö greiða 10 þúsund krón-
ur til ríkissjóðs. Hæstiréttur staðfesti
ákvörðun héraðsdóms um ónýtingu
myndbanda og myndbandahylkja.
Karlmaðurinn sá um innkaup á
myndböndunum erlendis. Konan
hafði borið þvi við að hún vissi ekki
um að myndböndin væru leigð út í
blóra við lög um einkarétt. A þetta
féllst Hæstiréttur ekki og taldi það
ekki firra konuna refsiábyrgð.
Um áramótin 1986/87 lagði lögregla
hald á um 15 þúsund myndbands-
spólur í myndbandaleigum. Eitt
þeirra mála er nú til meðferðar hjá
embætti ríkissciksóknara. Það mál
var tekið eitt til rannsóknar og þykir
víst að hin málin fái svipuð endalok
og það sem rannsakað hefur verið
þar sem málin eru öll mjög svipaðs
eðlis. Ekki er á þessari stundu vitað
hvort og hvenær ákæra veröur gefin
út í máhnu.
-sme
Steingrímur Njálsson:
Viðeigandi hælis leitað
Á vegum dómsmálaráðunéytisins
er verið að leita að viðeigandi hæli
fyrir kynferðisafbrotamanninn
Steingrím Njálsson. Hæstiréttur
dæmdi Steingrím til 15 mánaða vist-
ar á viðeigandi hæli. Steingrímur
lýkurfangelsisafplánun ekki síðar en
27. ágúst í sumar.
Þegar Hæstiréttur hafði kveðið upp
dóm sinn, sagði Þorsteinn Geirsson,
ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu, að slíkt hæli væri ékki til
hér á landi. Það voru margir fleiri
sem lýstu undrun sinni yfir dómi
Hæstaréttar.
Þorsteinn Geirsson sagði í samtali
við DV í gær að ekki væri hægt að
svo stöddu að segja til um hvaða
lausn fengist á þessu máli. Hann
sagði þetta viökvæmt mál og varðist
frekari frétta.
-sme
Jónatan Þórmundsson um Hafskipsmálið:
Von um að rannsókn
Ijúki síðsumars
Jónatan Þórmundsson, sérstakur
ríkissaksóknari í Hafskipsmálinu,
segir að rannsókn á málinu Ijúki
væntanlega síðsumars. Hann sagði
að fleiri aðilar hefðu verið kallaðir
fyrir í þeirri rannsókn, sem nú fer
fram, en í þeirri fyrri.
Þegar hann var spurður hvort
bankaráð Útvegsbankans og stjórn
Hafskips heföu verið kölluð fyrir,
sagðist hann ekkert vilja segja um
hveijir það væru sem talað hefði
verið.
Jónatan Þórmundsson segir að
rannsókninni miði á svipaðan hátt
og hann hafi reiknað meö. „Ég hef
haft gott fólk en haldist illa á því,“
sagði Jónatan. Tryggvi Gunnarsson
lögfræðingur, sem verið hefur að-
stoðamaður Jónatans, er nú settur
borgardómari. Hann starfar að hluta
til við rannsókn Hafskipsmálsins.
„Það var slæmt að missa hann. Ég
hef átt gott samstarf við rannsóknar-
lögreglu og endurskoðendur," sagði
Jónatan Þórmundsson.
-sme
Stefán Hilmarsson
LAUGARDAGSKVÖLD
9. APRÍL
FÖSTUDAGSKVÖLD
8. APRÍL
Tommy
10 GERÐIR AF
LEÐUR-
HVÍLDARSTÓLUM
MEÐ SKEMLI
FRÁ
Opið
alla
helgina
Hafið þið heyrt
um betra verð?
TM-HÚSGÖGN
Síðumúla 30 - Sími 68-68-22