Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988.
Viðskipti
Guðmundur Valur Stefánsson, annar bræðranna sem hafa gert mjög at-
hyglisvert forrit fyrir fiskeldisstöðvar. Þeir hafa þegar selt tvö forrit til Noregs
og fyrir liggur pöntun frá irskri stöð. Þeir bræður hafa sett stefnuna bæði
á alþjóðamarkaðinn og íslenska markaðinn. Samvinna þeirra bræðra er
samvinna fiskeldismanns og forritara. DV-mynd GVA
TVeir bræður að
slá í gegn með
forrit fyrir fiskeldi
Tveir íslenskir bræður, Guðmund-
ur Valur og Valþór Stefánssynir,
hafa gert forrit fyrir fiskeldisstöðvar.
Forritið hefur þegar vakið mikla at-
hygli ög hafa tvær stöðvar í Noregi
keypt það og fyrir liggur pöntun frá
einni írskri stöð. Ein íslensk fiskeld-
isstöö hefur keypt forritið. Sala til
fleiri stöðva er í bígerð. Markaðurinn
er stór og miklar tekjur í húfi, slái
forritið endanlega í gegn.
Að sögn Guðmundar Vals, sem er
líffræðingur og menntaður í Noregi,
er forritið fyrir bæði lífræna og efna-
hagslega stjórnun í fiskeldi.
„Með því að ýta á einn takka er
hægt að sjá vaxtarhraðann, hversu
mikið fóöur eigi að gefa í ákveðnum
kerum, fóðurkostnað, og ef kerin eru
þúsund talsins, er hægt að sjá hversu
stórir fiskarnir eru í hveiju keri,
hvernig þeir hafa vaxið og spá um
hversu stórir þeir verða," segir Guð-
mundur Valur um nokkra mögu-
leika forritsins.
Efnahagslega dæmið birtist meö
þeim hætti að hægt er að sjá verð-
mæti fiskanna, hversu margir fiskar
eru af ákveðinni stærð, til dæmis á
bilinu 5 til 6 sentimetrar, 6 til 7 senti-
metrar eða hvaða stærð sem stjórn-
andinn biður um.
Samvinna þeirra bræðra er sam-
vinna forritara og fiskeldismanns.
Guðmundur er fiskeldismaðurinn,
Valþór forritarinn. Reyndar býr Val-
þór í Svíþjóð. Forritið er engin
smásmíði, það er heilar tvö hundruð
síður.
Þeir bræður eiga fyrirtækið Fisk-
eldisþjónustuna hf. í samvinnu við
nokkra íslendinga og verkfræöistofu
í Noregi, sem hannar og byggir fisk-
eldisstöðvar. Norska verkfræðistof-
an á 20 prósent í fyrirtækinu.
Fiskeldisþjónustunni er ætlað að
markaðssetja Ðskeldisforrit bræðr-
anna. Markaðurinn er stór og
möguleikarnir miklir.
-JGH
Aðstoðarbankastjórar Landsbankans:
Ráðningum seinkar
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 19 20 Ib.Ab
Sparireikningar
3jamán. uppsogn 19 23 Ab.Sb
6mán. uppsögn 20 25 Ab
12 mán. uppsogn 21 28 Ab
18mán.-uppsogn 32 Ib
Tékkareikningar, alm. 8 12 Sb
Sértékkareiknmgar 9 23 Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsögn 3.5 4 Ab.Úb. Lb.Vb. Bb.Sp
Innlán með sérkjörum 19 28 «-b,Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 5.75 7 Vb.Sb
Sterlingspund 7.75 8.25 Ub
Vestur-þysk mork 2 3 Ab
Danskar krónur 7.75-9 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv) 29.5 32 Sp
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 31 35 Sp
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr) 32.5 36 Sp
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 9.5-9.75 Allir nema Úb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 30,5 34 Bb
SDR 7,75 8.25 Lb.Bb. Sb
Bandarikjadalir 8.75 9.5 Lb.Bb. Sb.Sp
Sterlingspund 11 11.5 Úb.Bb, Sb.Sp
Vestur-þýsk mork 5 5.75 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5 9
Dráttarvextir 45,6 3.8 á mán.
MEÐALVEXTIR
överðtr. feb. 88 35.6
Verðtr feb. 88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala april 1989 stig
Byggingavisitalaapríl 348 stig
Byggingavísitala apríl 108,7 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 6% 1. april.
VERÐBREFASJOÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Avoxtunarbréf 1.4803
Einingabréf 1 2.732
Einingabréf 2 1.587
Einingabréf 3 1.744
Fjölþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1.0295
Kjarabréf 2.725
Lifeyrisbréf 1.374
Markbréf 1,417
Sjóðsbréf 1 1,253
Sjóðsbréf 2 1.365
Tekjubréf 1.391
Rekstrarbréf 1.06086
HLUTABRÉF
Söluverð aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 128 kr.
Eimskip 210kr.
Flugleiðir 189 kr.
Hampiðjan 144kr.
Iðnaðarbankinn 148 kr.
Skagstrendingurhf. 189 kr.
Verslunarbankinn 105kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. .30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Pétur Sigurðsson, formaður
bankaráðs Landsbanka íslands, seg-
ir að enn hafi ekki verið gengið frá
ráðningu þriggja aðstoðarbanka-
stjóra Landsbankans. Samkvæmt
auglýsingunni um stöðurnar var
ráðning tveggja aðstoðarbankastjór-
anna bundin við 1. apríl og ein við
næstu áramót. Bankaráðið fékk
þriggja til fjögurra vikna frest hjá
Pétur Sigurðsson, formaður banka-
ráðs Landsbankans, bað starfs-
mannafélagið um 3ja til 4ra vikna
frest til að ráða i stööur aðstoðar-
bankastjóra Landsbankans. Félagið
sagði já en itrekaði í leiðinni að
ráöið yröi i stöðurnar úr röðum
starfsmanna.
starfsmannafélagi bankans þann 28.
mars síðastliðinn til að ráða í stöð-
urnar.
„í kjarasamningi okkar segir að
starfsmannafélagið geti óskað eftir
því að stöðurnar verði auglýstar aö
nýju líði 30 dagar frá því umsóknar-
fresturinn rennur út án þess að ráðið
sé í stöðurnar. Og þetta ákvæði nær
til stöðu aðstoðarbankastjóranna.
Ennfremur segir að starfsmannafé-
lagið geti veitt frest og það gerðum
við eftir að Pétur Sigurðsson, for-
maður bankaráðsins, bað um hann,“
segir Björg Árnadóttir, formaður
starfsmannafélags Landsbankans.
Að sögn Bjargar ítrekaði starfs-
mannafélagið að aðstoðarbanka-
stjórarnir yrðu ráðnir úr röðum
starfsmanna bankans þegar það
veitti frestinn.
Pétur Sigurðsson, formaður
bankaráðsins, vill ekki gefa upp nöfn
þeirra sem sótt hafa um, en það er
enginn smáíjöldi, alls 27, þar af 21
úr bankanum og 6 utanaðkomandi.
„Það eru margir sem óskað hafa
nafnleyndar og þess vegna hef ég
tekið þá ákvörðun að gefa ekki upp
nöfn neinna umsækjenda," segir Pét-
ur.
Bankaráðið heldur fund næsta
fimmtudag. „Ráðning aðstoðar-
bankastjóranna verður rædd á þeim
fundi en ég get ekkert sagt um það
ennþá hvort gengið verður frá ráðn-
ingu þeirra þá,“ segir Pétur Sigurðs-
son.
-JGH
3 K-Trading með Budweiser
Fyrirtækið 3 K-Trading, sem er í
eigu Ingvars J. Karlssonar, fram-
kvæmdastjóra Karls K. Karlssonar
og Magnúsar Jónassonar, sem áður
Magnús Jónasson, framkvæmda-
stjóri 3 K-Trading, sem er með
umboð fyrir bandaríska bjórinn
Budweiser hér á landi.
vann hjá Karli K. Karlssyni, hefur
umboð fyrir bandaríska bjórinn
Budweiser en ekki fyrirtækið Karl
K. Karlsson, eins og fram kom í
DV í fyrradag. Það leiðréttist hér
með.
Framkvæmdastjóri 3 K-Trading
er Magnús Jónasson. Fyrirtækið
var stofnað 1985 og hætti Magnús
þá þjá Karli K. Karlssyni til að
annast rekstur þess. Það fékk um-
boðið fyrir Budweiser árið 1985 en
áður hafði þýskt fyrirtæki verið
með umboðið. Síðan þá hefur það
annast flutning og sölu Budweiser-
bjórsins til Varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli.
Fyrirtækin Karl K. Karlsson, sem
er með umboð fyrir Carlsberg og
Tuborg, og 3 K-Trading með Bud-
weiser koma því til með að keppa
á bjórmarkaðnum verði bjórinn
leyfður.
-JGH
Guðmundur Hauksson, bankastjóri Útvegsbankans, til vinstri, afhendir
Högna Þórðarssyni, útibússtjóra Útvegsbankans á ísafirði, verðlaunin fyrir
góða frammistöðu útibúsins á siðasta ári.
Ufvegsbankinn hf.:
Utibúið á ísafírði
talið það best rekna
Bankaráð Útvegsbankans hf. veitti
útibúi bankans á ísafirði verðlaun
fyrir góða frammistöðu á síðasta ári.
Þetta er í fyrsta skipti sem verölaun-
in eru aíhent en ætlunin er að veita
þau á hverju ári framvegis.
Það var Guðmundur Hauksson,
bankastjóri Útvegsbankans, sem
veitti verðlaunin, sem voru stytta
eftir Jens Guðjónsson gullsmið og 75
þúsund krónur í peningum, og tók
útibússtjórinn, Högni Þórðarson, við
þeim fyrir hönd starfsfólks útibús-
ins.
-JGH
Hæsta álverð sögunnar:
Getum ekki aukið
framleiðslu okkar
- segir Ragnar Halldórsson
„Við framleiðum þegar við full af-
köst og getum því miður ekki aukið
framleiðslu okkar,“ segir Ragnar
HaUdórsson, forstjóri ísal, en miklar
verðsprengingar hafa verið í ál-
heiminum að undanfórnu og hvert
metverðið af öðru skotið upp kollin-
um. Á þriðjudaginn var hæsta álverð
sögunnar þegar verðið fór í 1.587
sterlingspund tonnið. Ótrúleg tíð-
indi. Verðið lá á milli 800 og 900
sterlingspunda síðastliðið sumar.
Aö sögn Ragnars er hátt álverð góð
tíðindi fyrir verksmiðjuna. „Við ætt-
um að fá góða afkomu á þessu ári.“
Ragnar segist ekki hafa neinar
skýringar á hinni gífurlegu eftir-
spum sem ríkir á álmarkaðnum.
Álverksmiðjan í Straumsvík fram-
leiddi alls 84 þúsund tonn af áli í
fyrra. Það var met í magni. Til stend-
ur að framleiða 86 þúsund tonn á
þessu ári og slá metiö frá í fyrra.
-JGH
Ragnar Halldórsson, forstjóri isal,
segir verksmiöjuna þegar framleiöa
viö full afköst og ekki geta aukið
framleiðsluna aukist eftirspurnin.