Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988.
7
Fréttir
Iðnaðarbankinn stendur best allra banka varðandi lífeyrisskuldbindingar
starfsmanna en þó vantar þar um 40 milljónir kr.
Seðlabankinn setur bönkunum reglur:
Skuldbindingar
vegna lífeyris
komi fram á efna-
hagsreikningi
I efnahagsreikningum bankanna
koma ekki fram lífeyrissjóðsskuld-
bindingar þeirra, en í samtali við-
Þórð Ólafsson, forstöðumann Banka-
eftirlits Seðlabankans, kom fram að
Seðlabankinn ætlar að setja bönkun-
um nýjar reglur, þannig að lífeyris-
sjóðsskuldbindingar þeirra komi
fram í efnahagsreikningum og verði
skuldfærðir þar eins og aörar skuld-
bindingar.
„Við höfum alltaf gert okkur grein
fyrir því að lífeyrisskuldbindingar í
efnahagsreikningum bankanna
væru vanmetnar. Búast má því við
aö þær verði teknar að fullu inn í
efnahagsreikninga bankanna innan
skamms, eins og hverjar aðrar skuld-
bindingar. Fram til ársins 1986 giltu
engar formlegar reglur um framsetn-
ingu lífeyrisskuldbindinga í árs-
reikningum bankanna. Það hefur nú
breyst með tilkomu nýrra laga um
viðskiptabanka," sagði Þórður Ólafs-
son.
Nú vilja þeir Seðlabankamenn
stíga skrefið til fulls og skylda bank-
ana til að tíunda nákvæmlega til
hvaða skuldbindinga hver banki hef-
ur stofnað í lífeyrismálum. Er þess
að vænta að þessar breytingar fari í
gegn fljótiega, en viðræður standa
nú yfir á milh Seðlabankans og end-
urskoðenda bankanna um hvernig
framkvæmd á þessum málum verði
háttað.
Eigið fé Útvegsbankans
dugði ekki fyrir lífeyri
Það kom berlega í ljós hjá Útvegs-
bankanum að mjög var ógreinilegt
hveijar lífeyrissjóðsskuldbindingar
bankans voru. Metið var að 500 til
600 miiljónir kr. þyrfti fyrir skuld-
bindingum starfsmanna og 222
milljónir fyrir lífeyri bankastjóra -
til samtals 720 til 820 milljónir. Þessi
upphæð étur upp bókfært eigið fé
Útvegsbankans 1984, áður en áfólhn
dundu yflr, og framreiknað til verð-
lags í apríl 1987. Það er því ljóst aö
eigið fé Útvegsbankans hverfur alveg
í lífeyrisskuldbindingarnar.
Ef efnahagsreikningar Útvegs-
bankans 1986 eru skoðaöir sést að
þar var gert ráð fyrir lífeyrisskuld-
bindingum upp á tæpar 66 mihjónir
- sem reyndist vera um 700 mihjón-
um of lágt, eins og kunnugt er nú.
Þá var hlutafé bankans tahð vera 50
mhljónir.
Það er ljóst að þaö tekur bankana
langan tíma að lagfæra lífeyrissjóði
sína. Ef tekið er dæmi af Iðnaðar-
bankanum, sem að sögn Þórðar
stendur einna best að vígi, þá er tahö
að lífeyrisskuldbindingar starfs-
manna 1987 séu 128 mhljónir. Th eru
90 mihjónir á móti þessum skuld-
bindingum, þannig að tæpar 40
milljónir vantar. Iðnaðarbankinn er
ungur og því er vandi hans mun
minni en þeirra sem eldri eru.
Leiðréttá 10árum
Framlag bankanna í lifeyrissjóði
hefur farið vaxandi og að sögn Þórð-
ar þá eru uppi hugmyndir um að
þessar skuldbindingar yrðu leiðrétt-
ar á næstu 10 árum. Bankamir
mundu þannig greiða niður '/ af
skuldbindingunum á næstu 10 árum,
þannig að hfeyrissjóðirnir verði
komnir í eðhlegt horf 1998.
Það er þó hald manna að bankam-
ir muni reyna að fá þennan niður-
greiðslutíma lengdan, enda muni
þetta reynast þeim þungt í skauti á
meðan á leiðréttingunni stendur. »
-SMJ ,
Vestmannaeyjar:
Þrir teknir við
ólöglegar veiðar
Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjuni;
Varðskipið Ægir tók þrjá báta að
ólöglegum veiðum við Vestmanna-
eyjar, tveir þeirra, Gæfa og Gígja,
voru teknir 30. mars en togarinn
Keihr 31. mars. Gæfa, sem er trhla,
sem var á netaveiðum, og Gígja VE
á loðnuveiöum, voru á veiðum á
bannsvæði við Kaplana mhli lands
og Eyja. Varðskipið færði bátana th
hafnar þar sem máhð var tekið th
dómsrannsóknar og að henni lokinni
lauk málum beggja skipstjóranna
með dómssátt.
Daginn eftir, 31. mars, var togarinn
Keilir RE staðinn aö ólöglegum veiö-
um - var með of þétt riðinn trohpoka.
Því máli lauk einnig með dómsátt að
lokinni rannsókn. Málin voru tekin
fyrir hjá bæjarfógeta í Vestmanna-
eyjum. Dómari var Jón Ragnar
Þorsteinsson héraðsdómari.
SAGAN
UM SIGVALDA
OG FJÓRHJÓLIÐ!*
Þetta er sagan um Sigvalda, sem vann stóra vinninginn í happdrættinu. Hvorki meira
né minna en Mercedes Benz. Hann seldi bílinn þegar í stað og keypti sér Kjarabréf
í staðinn. Þetta er svo sem ekki óvenjuleg saga, ef það væri ekki staðreynd að Sigvaldi
ekur nú, eins og greifi, á Mercedes Benz, konan hans á Toyota Coroila og
dóttursonur þeirra var tekinn úr umferð á nýju fjórhjóli í fyrradag.
Þetta byrjaði með miða...
Þú kannast ábyggilega við hann Sigvalda. Hann er búinn að vinna hjá borginni í
fjöldamörg ár. Konan hans, hún María, vinnur á lögmannastofunni austur í bæ. Þú
þekkir þau ábyggilega þegar þú sérð þau. Sigvaldi er mikill útilííismaður. Hann er
alltaf í einhverju ferðastússi allan ársins hring. Þess vegna komst hann ekki hjá því
að kaupa happdrættismiða á árshátíð ferðaklúbbsins. Hann keypti að vísu ekki nema
tvo miða.
Vinningur í maí
Árshátíðin var í mars, árið 1985. Nokkrum vikum seinna var dregið í happdrættinu.
Það er að segja þann 20. maí 1985. Vinningurinn, Mercedes Benz 190 E árg. 85,
kom á númerið hans Sigvalda. Nú voru góð ráð dýr. Venjulegir borgarstarfsmenn
eins og Sigvaldi aka ekki um á borgarstjórabílum. Slíkt bara gerist ekki.
Happdrættismiði til sölu
Það er ekki hægt að segja að hann Sigvaldi sé bjáni. Síður en svo. Að minnsta kosti
segir hún María, að hann hefði átt að skella sér í pólitíkina, — í stað þess að vera
félagi í SFRB. Það var ekki liðinn dagurinn þegar Sigvaldi var búinn að selja
happdrættismiðann.
„Ég fór bara og talaði við nokkra bíladellukarla. Einn þeirra borgaði miðann út í
hönd,“ sagði Sigvaldi þegar hann kom heim með úttroðið veskið, rúmlega eina
milljón í vasanum!
Peningarnir á fast...
Hún María gat ekki sofið um nóttina. Hún bylti sér á alla enda og kanta í rúminu.
Hún sá fýrir sér innbrotsþjófa, gengisfellingar og alls kyns hörmungar. Sigvaldi aftur
á móti svaf eins og ungabarn — með veskið undir koddanum. Morguninn eftir fór
hann og ræddi við hann Pétur, ráðgjafa hjá Fjárfestingarfélaginu. Pétur ráðlagði
honum að kaupa Kjarabréf, og aðstoðaði hann við kaupin.
Þremur árum síðar...
Laugardagurinn tuttugasti febrúar nítjánhundruð áttatíu og átta var stór dagur í
lífi þeirra hjóna, Maríu og Sigvalda. Þau heimsóttu nýju söluskrifstofuna hjá
Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni strax og opnað var um morguninn. Þar fengu þau
kaflSsopa hjá Stefáni ráðgjafa og aðstoð við sölu á Kjarabréfunum frá 1985.
... nýr bíll og meira til!
Þegar Sigvaldi seldi happdrættisvinninginn árið 1985 fékk hann 1.050.000 krónur
fyrir miðann. Hann keypti Kjarabréf fyrir 1.049.580 krónur. Við sölu Kjarabréfanna
flékk hann 2.685.422 krónur. Þannig gat hann samdægurs keypt sér 1988 árgerð af
Mercedes Benz. Nákvæmlega sama bíl og var í vinning á sínum tíma, en auðvitað
spánýjan. Bíllinn kostaði hann 1.360.000 krónur sléttar. Hann keypti þar að auki
Toyota Corolla bíl fýrir Maríu. Corollan kostaði 505.000 krónur. Þar af leiðandi átti
hann efltir 820.422 krónur, sem nægðu honum til að gefa Jónasi dóttursyni sínum
splunkunýtt fjórhjól í fermingargjöf. Þá átti Sigvaldi ennþá efltir 630.422 krónur, sem
hann vill ekki segja hvað hann gerði við. Hann Stefan hjá Fjárfestingarfélaginu veit
allt um það, þó að hann segi engum flrá því. Hann Stefan selur nefnilega Kjarabréf.
• Petta er alveg satt. Sögunni og nöfiium hefur að vísu verið breytt — af augljósum ástæðum!
FIÁRFESTINGARFHAGÐ
Kringlunni 123 Reykjavík S 689700
ósaríslA