Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988. Spumingin Hver er uppáhaldsdrykkur þinn? Sigurður Freyr Guðbrandsson: Tvö- faldur Bacardiromm í kók. Júlíus Hafsteinsson: Malt og Mix eru góöir drykkir, en mjólkin er þó best. Sigríður Kristinsdóttir: Mér finnst kóka kóla best Guðmundur Hilmarsson: ískaldur I bjór, og þá helst Heineken. ! Lesendur Frá Vancouver í Kanada. Þar skipa brýr stóran sess í umferðinni. Toifusamtökin vilja tengja: EHt stykki undirgöng Guðjón Guðmundsson skrifar: Það eru nú fleiri en Torfusamtökin sem myndu vilja tengja götur meö neöanjarðargöngum. Auðvitað er hugmyndin sem slík ekkert fráleit. Þetta er ekki annað en gert er í borg- um um víða veröld. Undirgöng eru eitt það hagkvæmasta sem gert er í samgöngumálum. Um það eru flestir sammála. En það er hins vegar bjartsýnin sem felst í því að viðra þessa hug- mynd hér á landi, sem er fréttnæm. Það dettur engum heilvita manni í hug að hér verði nokkru sinni byggð undirgöng að neinu marki og allra síst í þéttbýliskjarnanum Reykjavík eða nágrenni. Einfaldlega vegna þess að engir peningar eru til fyrir þeim framkvæmdum - og ef þeir eru til fara þeir í að hygla landsbyggðinni svokölluðu eða dreifbýlinu. Það hefur í alvöru komið til tals að bora göng á Vestfjörðum á ein- hverjum útnára sem engin umferð verður um, nema ef vera kynni af þeim sem ætla að flytja suður til Reykjavíkur. Og það eru nú víst flest- ir á landsbyggðinni að hugsa um og lái þeim hver sem vill. En aftur til Torfusamtakanna og hugsanatengsla þeirra neðanjarðar. „Þetta er leið sem margar borgar- stjórnir á Vesturlöndum hafa valið,“ segir formaður Torfusamtakanna um hugmyndina um að tengja Hring- brautina við Sætúnið með neðan- jarðargöngum. - Það er laukrétt hjá formanninum - en þar er bara ekki saman að jafna, jafnvel ekki við Fær- eyinga sem hafa sambærilegar áætlanir á prjónunum. - Þar borga Danir bróðurpartinn. Við íslendingar erum nánast gjald- þrota þjóð að því er snertir alvöru- gjaldmiðil og höfum ekki einu sinni efni á að gera Reykjanesbrautina að aðalbraut með tvöfaldri akrein. Sannleikurinn er einfaldlega sá að hvorki verður gert átak í alvöru gatnagerð í Reykjavík né annars staðar vegna þess hve við erum fá- menn þjóð og fjárvana. Miðborgin ber þess t.d. ljóslega vitni hvemig ástand höfuðborgar- innar er, sé litið niður eftir einni fjölförnustu umferðargötunni, Bankastræti, blasa við kofaræksni, skakkir og skældir, ómálaðir og nán- ast ekki annað en eldiviðarmatur. Þetta sýnir í hnotskurn það hrika- lega starf sem framundan er, þegar og ef einhvem tíma verður fjármagn til reiðu til alvöruframkvæmda. Við íslendingar höfum margsinnis átt þess kost að fá fjármagn og aðstoð við að byggja upp vegakerfi okkar, þjóðvegi sem og aðkeyrslur til höfuð- borgarinnar, en sakir stærilætis, þjóðrembu og flokkadrátta innan- lands höfum við glutrað niður öllum tækifærum til slíkra stórfram- kvæmda. Það sem nauðsynlegast er af öllu má ekki minnast á, að þjappa byggð saman í fáa byggðakjarna og flytja fólkið frá afskekktum, óarðbærum og óbyggilegum stöðum til þessara byggðakjama. Ef um það næðist samstaða myndi margt annað leysast af sjálfu sér. Skammarieg þingræða H. Sig. skrifar: Fyrir nokkram dögum var útvarp- að á rás 1 umræðum frá Alþingi um háskólakennslu á Akureyri. Einn varaþingmaður Alþýðuflokksins, sem er háskólakennari, lét í ljósi efa- semdir um málið og að margt væri þar loöið og óklárt. Hvort sem menn voru sammála ræðumanni eða ekki verður að segj- ast að hann talaði málefnalega um þetta og var með engar persónulegar skammir eða skæting. Því næst hlusta landsmenn á það að Halldór Blöndal alþingismaður tekur til máls og hundskammar fyrri ræðumann og eys persónulegum svívirðingum. Talar um að hann sé loðdýraættar, sennilega minkur eða refur, og ann- að eftir því. Ekki eitt einasta orð um það málefni sem var til umræðu. Landsmenn setti hljóða. Ég var að borða á veitingastað, þegar þetta fór fram og tók eftir því að menn hættu samræðum meðan þingmaðurinn talaði og vora hljóðir á eftir. Kona, sem sat við næsta borð, spurði sessunaut sinn af hveiju þing- forseti stöðvaði ekki svona orðbragð. Um langa hríð hefði hún ekki heyrt annað eins. Þessi kona talaði örugglega fyrir munn flestra þeirra sem þarna voru inni, hvers sinnis sem þeir annars voru í málinu. - Hvorki jók Halldór Blöndal á virðingu sína né Alþingis í þetta sinn. Grátbið um gott kaffihús „Tepoki“ skrifar: un! Allt skítugt. Starfsfólkið sofandi nema ógeöslegt pokate. Salemin eru Ég sit hér inni á Café Hressó og (þó með einstaka undantekningum), ógeðsleg, allavega karlasalernið, horfi í kringum mig. Hvílík úrkynj- vont kaffi, vont kakó og ekkert te, minniráfyrstaflokks„rónasalerni“. » * * ! m <« e' „ j rgft | m U Bréfritari vill fá gott kaffihús í Reykjavík fyrir sumarið. - Saknar Mensu sem var til húsa á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Við félagamir erum nýbúnir að labba um öll kaffihúsin; Mokka, fullt, á Hótel Borg, hárgreiðslusýning og öll önnur hús lokuð. Við grátum Mensu. Er ekki eitthvert framtaks- samt fólk einhvers staðar sem vill opna fyrir okkur lítið, þægilegt kaffi- hús þar sem maður fær gott kaffi, gott kakó, almennilegt te (ekki poka- te og helst 3-5 tegundir) og þægilega persónulega þjónustu? Ég veit að ég ætti aö gera það sjálf- ur en ég hef einhvern veginn ekki hinn „græna fingur“ viðskiptanna og því ákalla ég ykkur: Góða fólk, sem var með Mensu og annað þægi- lega þenkjandi fólk. Ég grátbið ykkur um gott kaffihús fyrir sumarið, og helst fyrr. - Undan slæmri aðsókn þyrftuð þið örugglega ekki að kvarta. Með nostalgíukveðjum. / K.G. hringdi: Ég er ein þeirra sem bý í íbúð sem var byggð af Byggingarfélagi verkamanna og er ibúðin nú orö- in nokkuð gömul, enda í grónu hverfi hér í Reykjavík. Ég greiði á mánuði kr. 2.950.- og finnst. það alltof há greiðsla, miðað við það aö viðhald utan húss er lítiö sem ekkert og því skil ég ekki í hvað peningarnir geta farið. Fyrir manneskíu á níræðisaldri finnst mér þetta þungur baggi að bera og skora á forsvarsmenn hússjóða í svona byggingum, eins og ég bý í, að endurskoða þessar sameiginlegu greiðslur með það fyrir augum að rukka ekki nema- fyrir því sern nauðsynlegast er hverju sinni. „Free«styJe“ keppnin: Sýnið aila keppnina eða ekki Benedikta Birgisdóttir skrifar: Á laugardagskvöldi fyrir nokkru ætlaði ég að fara að horfa á danskeppni með frjálsri aöferð (Free-stylc) i sjónvarpinu. Ég get hins vegar sagt hrcint út, að ég varð hneyksluð, virkilega hneyksluö. Að sýna bara hluta úr dönsunum! Það hefm* enginn gaman af því að horfa á eitthvaö þessu líkl Ég skil ekkert í þvi hvers vegna þetta er ekki sýnt allt, eins og gert hef- ur verið undanfarið. - Annað hvort á að sýna keppnina (eða dansana) í heild sinni eða ekki neitt. Þeir sem ég hef talað \úð eru allir á sama máli. ísraelskra hermanna Margrét Sæmundsdóttir skrifar: Undanfarna daga höfum við horft á frétfamyndir sem sýna okkur hryllilegar aðfarir ísrael- skra hermanna við varnarlausa Palestínumenn, börn, unglinga, konur og karla. Þess vegna brá mér illa við ummæli forsætisráðherra i frétt- um sjónvarps, mánudaginn 21. mars sl. þar sem hann telur af og frá, að utanríkisráðherra ræði við forsvarsmenn palestínsku þjóðarinnar. Kona sem man timana tvenna horfði með mér á sjónvarpið. Eins og fólki af þeirri kynslóð, sem nú er áð hverfa er tamt, orð- aði hún hugsun okkar beggja með því að rifja upp gamla vísu. - Vís- an er svona: Vertu ekki að hafa hátt þótt hrapi einhver niður, horföu bara í aðra átt, eins og flestra er siður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.