Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988.
íþróttir
• Wimbiedon tapaði 1-2
heimavelU fyrir Coventry í 1.
deild ensku knattspyrnunnar á
þriðjudagskvöldið síðasta. Luton
og Sheff.Wed. skildu jöfh, 2-2. '
2. deild vann Leicester 2-0 sigur
á Birmingham og komst meö því
úr fallhættu.
• Celtic vann St. Mirren 2-0
skosku úrvalsdeildinni sama
kvöld. Andy Walker og Paul
McStay skoruðu mörkin.
• Norman Whiteside, norður
írski landsliösmaðurinn, má
yfírgefa Manchester United, fé-
laginu að meinalausu. Hann fór
fyrir nokkru framá aö veröa seld-
ur og Alex Ferguson fram-
kvæmdastjóri sagði nú í vikunni
að þaö væri ekki stefna félagsins
að halda kyrrum leikmönnum
sem vildu ekki leika fyrir félagið.
• Johan Cruyff tekur við þjálf-
un spænska knattspymustór-
veldisins Barcelona í sumar - ef
marka má fregn í spænskri út-
varpsstöð á þriðjudaginn. Fréttin
er byggö á ummælum forseta fé-
lagsins, Jose Luis Nunez, í þá átt
- en taismaöur Barcelona hefur
hins vegar neitaö alfarið að segja
nokkuö um málið. Engin tilkynn-
ing verður gefin út um hver verði
næsti þjálfari Barcelona fyrr en
eftir 30. júni í sumar.
• Nigel Clough framheiji þjá
Nottingham Forest hefur fengið
gimilegt tilboð frá ítalska knatt-
spymuféiaginu Pisa. ítalimir eru
reiöubúnir aö greiöa Forest 1,5
milljónir punda fyrir hann. Faöir
hans, Brian, sem er fram-
kvæmdastjóri Forest, segir að
hann ætli að gera allt sem í sinu
valdi standi til aö halda syninum
og fá hann til að skrifa undir
nýjan samning.
• Knattspyrnusamband Evr-
ópu tilkynnti á þriðjudag að
ákvörðun um hvort enskum fé-
lögum yrði hleypt inn í Evrópu-
mótin næsta vetur jyröi ekki tekin
fyrr en 1 lok júní. Aöur hafði ver-
iö reiknað meö niöurstööu í
málinu í maibytjun. Hegðun
enskra áhorfenda á leikjum Evr-
ópukeppninnar í Vestur-Þýska-
landi í júní kemur sennilega til
með að ráða úrslitum.
• Ceser Luis Menotti hefur
skrifað undir 18 mánáða samning
viö argentínska knattspyraustór-
veldiö River Plate, samkvæmt
frétt í þarlendu dagblaöi. Menotti
stýrði landsliði Argentinu til sig-
urs í heimsmeistarakeppninni
1978 og hefur siðan veriö einn
virtasti þjálfari heims, en hann
var þó rekinn úr starfi sem fram-
kvæmdastjóri Atletico Madrid á
Spáni í síðasta mánuði. Menotti
stýrði erkifjendum River Plate,
Boca Juniors áður en hann fór
til Spánar.
• Verona ó Ítalíu hefur reyndar
höggvið skarð í leikmannahóp
River Plate - keypti á þriðjudag-
inn Claudio Caniggia frá argent-
ínska félaginu fyrir 2 miUjónir
dollara.
• Maccabi Tei Aviy frá ísrael og
Tracer Milano frá Ítalíu leika til
úrslita um Evrópumeistaratitil
félagsliða í körfuknattleik. Þau
mmu undanúrslitaleikina sl.
iriðjudag með sömu stigatölu,
17-82, Maccabi sigraði Partizan
íelgrad nokkuð óvænt og Tracer
lagði ArisSaloniki frá Grikklandi
að veili. Báðir leikimir fóm fram
Gent í Belgíu. Bandaríkjamaö-
urinn Bob McAdoo var í aöal-
hlutverki hjá ítalaka liðinu og
skoraði 39 stig en landi hans Ric-
key Brown geröi 28,
Úvslitakeppni KKÍ:
Liði Hauka
skeltt á
Suðurnesjum
- ÍBK vann Hauka, 83-67
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Keflvíkingar lögöu Hauka aö velli
á Suðurnesjum í gærkvöldi meö 83
stigum gegn 67. Staðan í leikhléinu
var 40-41 fyrir Hauka.
Keflvíkingar byijuðu þennan leik
mun betur en gestirnir og réð þar
miklu um góður leikur Axels Niku-
lássonar. Skoraði hann 6 stig í röð í
byrjun án þess að Haukar næöu að
svara fyrir sig. Bilið jókst síöan
smám saman.og eftir átta mínútna
leik var staðan orðin 20-8. Þá fyrst
fóru Haukar að bíta frá sér með Ivar
Ásgrímsson í fylkingarbijósti. Gerði
hann þá fjölmargar körfur og var
heimamönnum erfiður ljár í þúfu
allt til loka. Náðu Haukar síðan aö
jafna og komast yfir rétt fyrir hlé
meö glæsilegri þriggja stiga körfu
Pálmars Sigurðssonar.
í síðari hálfleik var jafnræði með
liðunum til að byrja með. Liðin skipt-
ust á að hafa fmmkvæðið. Var þá
mikil barátta í öllum leikmönnum
og lítið eða ekkert gefið eftir. Um
miðjan síðari hálfleik var staðan
57-58 en þá settu Keflvíkingar upp
öll segl og fengu byr. Sigldu þeir þá
fram úr Haukum og áttu Hafnfirð-
ingar ekkert svar viö góðum leik
Keflvíkingannna og biðu því lægri
hlut:
„Keflvíkingar komu undirbúnir til
leiks og þeir vita hvert þeir stefna.
Við hins vegar þurfum svo sannar-
lega að setjast niður og ráða ráðum
okkar. Við vorum þungir og óstyrkir
og náðum okkur aldrei á strik," sagöi
Pálmar Sigurösson, þjálfari Hauka,
eftir leikirin í gærkvöldi.
„Keflvíkingar unnu þetta tauga-
stríð en það er á hreinu aö viö
munum knýja fram þriöja leikinn,"
sagöi Pálmar.
„Ég er virkilega ánægöur með leik-
inn. Undirbúningurinn fyrir úrslita-
keppnina er aö skila sér,“ sagði hins
vegar Gunnar Þorvarðarson, þjálfari
Keflvíkinga. „Viö spiluðum mjög
góða vöm en samt óttaðist ég um
tíma áð Haukarnir ætluðu aö brjóta
hana á bak aftur. Það var gaman að
sjá hvemig yngri leikmennirnir
spjömöu sig í svo erfiðum og þýðing-
armiklum leik. Þeir áttu stóran þátt
í þessum sigri.“
Liðsheildin skóp þennan sigur
Keflvíkinga en Jón Kr. Gíslason átti
engu að síöur stórleik. Hann átti 21
sendingu sem gaf körfu, það gerir 42
stig. Sjálfur skoraði hann síðan 18.
Hjá Haukum voru þeir Pálmar og
ívar Ásgrímsson bestir, gerðu 50 af
þeim 67 stigum sem Hafnfirðingar
skoruöu í leiknum.
ÍBK-Haukar
83-67 (40-41)
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 19, Jón.
Kr. Gíslason 18, Hreinn Þorkelsson
12, Magnús Guðfinnsson 12, Axel
Nikulásson 12, Sigurður Ingimund-
arson 4, Albert Óskarson 2, Brynjar
Harðarson 2.
Stig Hauka: ívar Ásgrímsson 27,
Pálmar Sigurðsson 23, Ingimar Jóns-
son 5, Tryggvi Jónsson 4, ívar
Webster 4, ðlafur Rafnsson 2, Henn-
ing Henningsson 2.
Áhorfendur: 430.
Dómarar: Ómar Scheving og Krist-
inn Albertsson.
Næsti leikur í úrslitakeppninni fer
fram á laugardag klukkan 14. Þá
mætast Valur og Njarðvík að Hlíðar-
enda.
Sveitir MR sigruðu að vanda í boðhlaupi framhaldsskólanna
sem fram fór fyrir skömmu i þriðja sinn. Hlaupnir voru 4x1500 metrar, bæði
i karla- og kvennaflokki, karlasveitin sigraðl á 17:25 min. en kvennasveitin
á 22:37 min. Sigursveitirnar voru þannig skipaðar: Piltar f aftari röð frá
vinstri: Stefán Hjörleifsson, Sigurður Atli Jónsson, Knútur Hreinsson og
Prfmann Hreinsson. Stúlkur f fremri röð: Sigrfður Anna Eggertsdóttir, Mar-
grét Brynjólfsdóttir, Anna Gunnarsdóttir og Sigrún Óttarsdóttir.
VS/DV-mynd S
Allar skærustu stjörnur golfheimsins eru nú saman komnar í Augusta en þar stenc
US Masters. Er keppnin árlegur viðburður og ein hin mesta í heiminum. Á myn<
snillinginn, Bernard Langer, fórna höndum. Pútt hans geigaði á flöt fyrstu brautarinn
um, eins og sagt er á golfmáli. Langer, sem er V-Þjóðverji, vann US Masters á
krónum ríkari. Hann fór fyrsta hringinn nú á 71 höggi.
KöriúboHi - drengjalandsl
Silfur í Southc
- körfúknatUeikslið íslands aflaði vel á ste
íslenska drengjalandsliðið í körfu-
knattleik, skipað leikmönnum 14-16 ára,
keppti á sterku fjögurra þjóða móti í
Southampton yfir páskahelgina. Þátt-
tökuþjóðirnar voru, auk Islendinga,
Spánveijar, írar og Englendingar. Það
er skemmst frá því að segja að íslenska
liðið vann óvænt silfurverðlaun á mót-
inu, lagði tvo andstæðinga sína af
þremur.
íslensku drengirnir kepptu fyrst við
Spánveija en þeir síðartöldu eru í allra
fremstu röð í íþróttinni. íslendingar töp-
uöu, 66-77, en höfðu lengst af í fullu tré
við spánska liðið. Stigahæstir okkar
drengja í þeim leik vora þeir Óskar
Karlsson, sem var jafnbesti maöur ís-
lenska liðsins á mótinu, með 21 stig,
Hjörtur Harðarson með 8 stig og Bergur
Hinriksson, einnig með 8.
Þess má geta að Óskar þessi er búsett-
ur í Lúxemborg en hann er að margra
áliti einn efnilegasti körfuknattleiks-
maður íslands.
Næst mættu íslensku strákarnir liði
gestgjafanna, Englendingum, og höíöu
betur í tvísýnum leik, 67-65. Stigahæstir
þá voru þeir Marel Guðlaugsson með 18
stig, Bergur Hinriksson, einnig með 18
stig, og Oskar Karlsson með 13 stig.
í viðureigninni við íra, en þar réðust
úrslit um annað sætið, höfðu íslendingar
ráðin frá upphafi. Forystan var lengst
af umtalsverð og sigurinn reyndist því
ömggur, 78-68. Stigahæstir gegn írum
voru óskar Karlsson, með 22 stig og þeir
Hjörtur Harðarson og Kristinn Jónas-
son, báðir með 12 stig.
Þessi frammistaða liðsins hefur aukið
mjög hróður íslenskra körfuknattleiks-
manna og má geta þess að áöurnefndar
þjóðir hafa allar boðið íslandi þátttöku
í fjölþjóðlegum mótum, ætluðum aldurs-
flokknum 14-16 ára.