Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988.
Fréttir
Seðlabankinn lokar reikningum fyrir 1987:
Seðlabankinn tap-
aði 1.100 milljónum
Nýja húsið meðal annars ástæðan fyrir tapinu
Seðlabankinn tapaði tæpum 1.100
milljónum á síðasta ári. Þetta er í
fyrsta sinn síðan 1983 að bankinn
skilar ekki hagnaði. Forráðamenn
bankans sögðu ástæðuna fyrir tapi
bankans annars vegar vera vegna
mismunar á vaxta- og gengisþróun
en hins vegar vegna kostnaðar vegna.
Seðlabankahússins.
Bankinn tók í vexti rúmlega 3,4
milljarða króna en þurfti sjálfur að
greiða rúmlega 3,1 milljarð. Hreinar
tekjur af lánastarfsemi urðu því rétt
rúmar 300 milljónir króna. Auk
þessa hafði bankinn tæpar 260 millj-
ónir í aðrar tekjur og munar þar
mest um 170 milljónir frá viðskipta-
bönkunum í viðurlög vegna lausa-
fjárstöðu þeirra. Samtals urðu því
hreinar tekjur bankans um 560 millj-
ónir.
Rekstrarkostnaður bankans varð
rúmar 350. milljónir og er það stærsti
kostnaðarliðurinn ásamt kostnaði
vegna húsbyggingarinnar við Kalk-
ofnsveg. Hann varð á árinu 321
milljón króna. Samkvæmt upplýs-
ingum forráðamanna bankans er
þetta lokaáfangi bankans í því að
greiða fyrir þetta hús.
í reikningum bankans kemur ekki
fram hvað það hefur kostað bank-
ann. Brunabótamat húsins er 1.181
milljón. Bankinn hefur hins vegar
lagt til byggingarinnar 922 milljónir
króna í gegnum árin á verðlagi hvers
árs. Raunvirði þess framlags er því
töluvert hærra.
-gse
Jóhannes Nordal seðlabankasijóri:
Lofaði og varði fastgengisstefnu
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
mælti harðlega gegn því að fallið
yrði frá fastgengisstefnunni í árlegri
ræðu sinni á aðalfundi Seðlabankans
sem nú var haldinn í fyrsta skipti í
nýja húsinu við Kalkofnsveginn. Jó-
hannes rakti ófarir í efnahagslífinu
frá því fastgengisstefna var gefin upp
á bátinn árið 1973 og þar til hún var
aftur upp tekin 1983. Hann sagði ba-
tann sem náðst hefði síðan þá að
stórum hluta að þakka þessari
stefnu.
Jóhannes íjallaöi síðan um hávær-
ar kröfur um gengisfellingu nú.
Hann benti á nokkur atriði sem hafa
bæri í huga þess vegna. Að fast gengi
og stöðugleiki væri undirstaða allra
launasamninga síðan 1983. Að vandi
margra þeirra greina sem ættu í
mestu erfiðleikum lægi í of lítilli
framleiðni eða öðrum vanda innan
fyrirtækjanna sjálfra. Að misgengi
erlendra gjaldmiðla ætti að mæta
með aðlögun í framleiðslu og útflutn-
ingsstarfsemi. Að gengisfelling
myndi aðeins draga úr viðskiptahall-
anum, að hún leiddi ekki til víxl-
hækkana launa og verðlags en slíkt
myndi grafa úndan trausti á fast-
gengisstefnuna sem undirstöðu
samninga á vinnumarkaði.
Jóhannes vildi þó ekki mæla með
algerum ósveigjanleika varðandi
fastgengisstefnuná. Hann benti á
versnandi stöðu samkeppnisgrein-
anna nú en sagöi það vanda stjóm-
valda að meta það hvort slíkt kallaði
á gengisfellingu. Hann vildi þó benda
á að það væri skylda stjómvalda að
Jóhannes Nordal í ræðustól á fyrsta aðalfundi Seðlabankans i nýju húsakynnunum. Ráðherrar sitja undir lestrinum.
DV-mynd GVA
marka grundvallarstefnu, en þeir
samningar sem gerðir væm á þeim
gmndvelli væm á ábyrgð fyrirtækja,
einstaklinga og aðila vinnumarkað-
arins.
„Það getur hins vegar ekki leitt
nema til ófarnaöar ef þessir aðilar
taka ákvarðanir sínar og semja um
kaup og kjör í trausti þess að ríkis-
valdið hlaupi sífellt undir bagga og
leysi menn undan afleiðingum gerða
sinna með gengisbreytingum eða
öðrum hliðstæöum hætti. íslending-
ar þekkja afleiðingar þeirrar stefnu
og inn á þá braut má ekki aftur
halda," sagði Jóhannes í lok ræðu
sinnar.
-gse
Verkamannafé-
lagið Hlíf boðar
verkfall í Alverinu
- búist við að fleiri félög geri það einnig á næstunní
Á fundi í trúnaðarmannaráði
Verkamannafélagsins Hlífar í
Hafnarflrði í gær var samþykkt aö
boða til vinnustöðvunar í Álverinu,
en verkfalliö hefur enn ekki verið
tímasett. Að sögn Sigurðar T. Sig-
urössonar, formanns félagsins,
verðiu- haldinn samhingafundur í
dag og veröur beðið með að dag-
setja verkfallið fram yfir þann
fund.
Það yar á fundi með Hlífarmönn-
um 1 Álverinu sem samþykkt var
að fara þess á leit viö trúnaðar-
mannaráð félagsins að verkfall
yrði boðaö.
Um nokkuð langan tíma hafa
staðið yfir samningaumleitanir
milli forráðamanna Álversins og
þeirra 10 verkalýðsfélaga seni aö
aöild eiga að kjarasamningum við
Álverið, en án nokkurs árangurs,
að sögn Sigurðar T. Sigurðssonar.
Önnur verkalýðsfélög en Hlíf,
sem aöild eiga að þessum samning-
um, munu vera að afla sér heimild-
ar til verkfallsboðunar í Álverinu.
Að sögn Siguröar eru hart nær
60% starfsmanna í Álverinu félag-
ar í Hlíf eða menn sem félagið gerir
kjarasamninga fyrir.
-S.dór
Viðskiptabann á S-Afríku:
Ágreiningur í
ríkisstjóminni
Utanríkisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, kynnti á ríkisstjórn-
arfundi í gær lagafrumvarp um að
setja viðskiptabann á S-Afríku. Vafa-
samt er hvort frumvarpið verður lagt
fram á þessu þingi enda mun það
hafa mætt nokkurri andstöðu í ríkis-
stjóminni.
,',Það er ekkert til fyrirstöðu af
minni hálfu að leggja þetta frumvarp
fram núna. Þetta er fyrst og fremst
táknrænt og er í raun viljayfirlýsing
okkar um aö við stöndum með Norð-
urlandaþjóðunum og öðrum þjóðum
sem sýna andstöðu sína á kynþátta-
stefnunni," sagði Steingrímur. Hann
sagði að það hefði valdið okkur leið-
indum í samskiptum við aörar
Norðurlandaþjóðir að við skulum
ekki vera búnir að samþykkja bann
sem þetta. Bannið þýðir að tekið
verður fyrir öll viöskipti við S-Afr-
íku.
Steingrímur sagði að efasemdir um
réttmæti svona aðgeröa hefðu komið
fram á ríkisstjómarfundi enda
byggðum við íslendingar mikið á
fijálsri verslun. Hann teldi þó að í
þessu tifelli gæt'u íslendingar ekki
skorist úr leik.
Þá má geta þess aö þingsályktunar-
tillaga um viöskiptabann frá Al-
þýðubandálaginu, sem lögð var fram
fyrr í vetur, er nú væntanleg frá ut-
anríkismálanefnd. Er taliö að þessi
tillaga njóti verulegs stuðnings, m.a.
frá þingmönnum Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks. -SMJ
Jóhannes Nordal ítrekaði i ræðu
sinni á aðalfundi Seðlabankans að
samningar á grundvelli stefnu
stjórnvalda væru á ábyrgð þeirra
sem þá gerðu. Það leiddi til ófarnað-
ar að ríkið greiddi bakreikninga
vegna þeirra. DV-mynd GVA
Seðlabankinn:
Skuldar 264
milljónir
í eftiriaun
Samkvæmt tryggingafræðilegri út-
tekt námu skuldbindingar Seðla-
bankans vegna eftirlauna starfs-
manna hans um síðustu áramót 462
milljónum króna. Bankinn hefur þó
ekki greitt í eftirlaunasjóð starfs-
manna sinna nema 198 milljónir.
Bankinn skuldar því nú um 264 millj-
ónir vegna eftirlauna starfsmanna.
Sú skuld er annars vegar til komin
vegna þess að sumir starfsmenn
hans hafa samið um eftirlaun án
þess að greitt sé í eftirlaunasjóðinn,
hins vegar vegna þess áð eftirlauna-
réttindi þeirra sem eru í sjóðnum
hafa verið vanmetin.
í fyrra greiddi bankinn 14,5 millj-
ónir í eftirlaunasjóðinn. Ekki kemur
fram í reikningum bankans hversu
mikið var greitt út úr sjóðnum. Hins
vegar kemur fram að bankinn
greiddi 13 milljónir í eftirlaun, án
þess að tilgreint sé hvort þar sé um
þá að ræða sem ekki eru í sjóðnum
og/eða hina sem í honum eru. Þegar
litið er til skuldbindinga bankans
vegna eftirlauna í heild kemur í ljós
að höfuðstóll þess sem lagt hefur
verið til hliðar vegna þessara skuld-
bindinga óx ekki um nema 1,5 millj-
ónir í fyrra. Það er um 0,5 prósent
af því sem bankinn hefur lofað um-
fram það sem hann hefur lagt til
hliðar. -gse
sundurvegna
vatnavaxta
Þorlákshafnarvegur, frá
Hveragerði aö Þorlákshöfn, lok-'
aðist í gær vegna vatnavaxta við
Hjalla. Vatnið tók meö sér ræsi
og viö þaö fór vegurinn í sundur.
Grafningsvegur vestri fór einnig
í sundur í gær. Vegurinn er í
sundur skammt frá Biskups-
ttmgnabraut. Viögerðir á þessum
vegum fara ekki fram fyrr en
vatnsmagn hefur minnkað.
Mikil þíða er nú um land allt. í
Ölfusi hefur rignt mikið og þegar
þíðan bætist við og frost er í jörðu
þá flýtur vatnið ofan á.
Viö þaö er hætta á miklum
vatnavöxtum. Vegagerðin hefur
takmarkað öxulþunga á hliöar-
vegum í RangárvaUasýslu vestan
Markarfljóts, í Árnessýslu,_ á
Snæfellsnesi og í Noröur-ísa-
fjaröarsýslu og Strandasýslu. í
þrjú ár hefur ekki komiö til þess
að þurft hafi aö takmarka öxul-
þunga frá Reykjavík og allt til
Húsavíkur og eins frá Reykjavík
og austur á land. Ein undantekn-
ing er þar á. Takmarka varð
öxulþunga í Breiðdal í fyrravor.
-sme