Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. 3 DV Fiskmarkaðurinn í Bandaríkjunum: Fréttir Spáð er enn frekari verðlækkun á næstunni - bandarískt markaðsfyrirtæki segir verðið hafa verið orðið of hátt og það muni því lækka verulega í skýrslu, sem bandarískt mark- aðsfyrirtæki hefur sent frá sér nýlega, segir að fiskverð sé enn á niðurleið í Bandaríkjunum og það muni lækka umtalsvert í sumar. Nú er verð á íslenskri þorskblokk 1,70 til 1,80 dollarar fyrir pundið en í markaðsspánni er gert ráð fyrir að það lækki niður í 1,50 dollara í sum- ar. Þá er því spáð að verðið á flökun- um fari niður í 1,25 til 1,30 dollara pundið. í skýrslunni segir að verð á fiski hafi verið orðið of hátt í Bandaríkj- unum og því muni það lækka veru- lega á næstunni. Segir enn fremur að þegar verðfall sé hafið geti reynst örðugt að stoppa það. Þar segir enn fremur að þorskur sé vinsælasti sjó- fiskurinn á Bandaríkjamarkaði. Þorskverðið sé leiðandi og vegna þess muni verð á öðrum fisktegund- um lækka samsvarandi og þorsk- verðið. Ein af ástæðum verðlækkun- arinnar er sögð vera minnkandi fiskneysla á veitingastöðum undan- farna mánuði. Magnús Gústafsson, forstjóri Cold- water Sefood í Bandaríkjunum, sagði í samtah við DV að hann vissi um sölur á þorskblokk sem væru ekki langt frá því verði sem þama er nefnt. Aftur á móti væri erfitt að selja þorskblokk um þessar mundir vegna þess að menn hefðu skipt yfir í aðrar fisktegundir og sala verið dræm á afurðum úr þorskblokk undahfarið. Á boðstólnum hefði verið léleg þorskblokk, meðal annars frá Kanada, og því hefðu menn skipt yfir í aðrar tegundir. Aðspurður hvort hann óttaðist meiri verðlækkun á fiski frá íslandi en orðið hefði að undanfórnu sagði Magnús að mjög erfltt væri að gerast spámaður í þessum málum. Nú færi í hönd framleiðslutímabil, á íslandi fyrir Bandaríkjamarkaðinn, og því hefði hann ekki áhyggjur áf offram- boði á fiski á næstu vikum. „Það er nær útilokað að vera með einhverjar vangaveltur um hvað ger- ist á næstu mánuðum á markaönum. Við verðum að fylgjast mjög náið með þróuninni og sannleikurinn er sá að það er hægt að finna margs konar verð á markaönum, allt eftir tegundum og gæðum,“ sagði Magn- ús. Hann var spurður álits á fyrr- nefndri spá um verðlækkun vegna þess að verðið hefði verið orðið allt of hátt. „Það er engin spurning um að á markaðnum var allt of mikið af léleg- um þorski á of háu verði þegar fiskskorturinn var hvað mestur. Þetta hráefni olli viðskiptavinum vonbrigðum og þeir eru án efa til- búnir að prófa aðrar fisktegundir. Það var mjög mikil eftirspurn um tíma og þá voru of margir of kæru- lausir og settu á markaðinn lélega vöru. Sannleikurinn er sá að fiskur selst ekkert of vel um þessar mundir og samkeppnin er hörð og menn verða að horfast í augu við þá stað- reynd að fiskur hefur lækkað á markaðnum. Því verðum við bara að bíða og sjá hverju fram vindur," sagði Magnús Gústafsson. -S.dór Bjórfrumvarpið: 2. umræða á briðiudaé wr J O Bjórfrumvarpið kemur aö öllum tillaga kæmi frá nefndinni. En á líkindum til 2. umræðu í efri deild hann von á þvi að náist að afgreiöa á þriðjudaginn. Er þá miðað við að máliö fyrir þinglok? „Þaö veröur þriðja og síöasta umræða um frum- naumt en þaö ætti að takast," sagði varpið verði fimmtudaginn 5. mai, Jóhann. einum degi á undan þinglokum. Ólafur G. Einarsson, einn flutn- Formaður allsherjarnefndar efri ingsinanna frumvarpsins, sagðist deildar,JóhannEinvarðsson,sagö- ekki eiga von á ööru en að þaö ist búast við því að nefndin skilaði næðist að ljúka afgreiðslu málsins, frumvarpinu frá sér fyrir helgi, lík- annað væri „skemmdaverk“, lega á morgun. Sagðist hanu ekki -SMJ eiga neina von á því að breytingar- Stjórnarandstaðan mótmælir þinglokum Fulltrúar stjórnarandstöðunnar á þingi hafa mótmælt hugsanlegum þinglokum 6. maí. Segir í sameigin- legri yfirlýsingu hennar að með hliðsjón af alvarlegu ástandi í þjóð- félaginu og versnandi horfum í efnahagslífi okkar sé eðlilegt að Al- þingi staríi áfram um sinn og þar verði tekist á við þessi vandamál. Stjórnarandstöðuflokkamir segjast vera reiðubúnir til þess. Flestir þeir sem DV ræddi við voru sammála um að þinglok 6. maí settu mikla pressu á þingið. Er talað um að jafnvel verði að funda um næstu helgi en morgundagurinn er nánast ónýtur fyrir þingstörf vegna um- ræðu um vantrauststillögu stjórnar- andstöðunnar sem fer fram annað kvöld. Þaö mun hins vegar vera staðföst ætlun ríkisstjómarinnar að ljúka þingi 6. maí. Hafa ráðherrar verið beðnir að tilgreina tvö til þijú mál sem þeir vilja að verði afgreidd nú. Er þeim meira að segja uppálagt að númera máhn eftir áhersluröð. En af hveiju er verið að ljúka þingi svo snemma? „Það fer best á því,' þarna geta hvort eð er engir unnið saman,“ sagði einn stjómarþingmaður. -SMJ Grandi hf. kemur upp vinnumiðlun Forráðamenn Granda hf. og stjórn Starfsmannafélags Granda hafa sett upp vinnumiðlun fyrir þá 50 starfs- menn fyrirtækisins sem sagt hefur verið upp störfum. Verkakvennafé- lagið Framsókn er einnig með í þessari vinnumiðlun. Þeir aðilar sem eru að leita að starfsfólki geta snúið sér til Einars. SveinsÁrnasonar hjá.Granda hf. en vinnumiðlun Granda hf. skipa: Ragna Bergmann formaður Fram- sóknar, Brynjólfur Bjamason framkvæmdastjóri Granda hf., Kristján Guðmundsson formaður starfsmannafélagsins og Pjetur Árnason varaformaaður þess. Þegar hafa þrjú fyrirtæki og stofnanir leit- að eftir fólki hjá fyrirtækinu. -S.dór Bernhöftstorfan í endanlegt horf Lokaspretturinn í uppbyggingu Bernhöftstorfunnar er nú hafmn. Hafist var handa við byggingu nýrra húsa, bak við gömlu húsin sem sjást frá Lækjargötu, í janúar og er áætlað að svæöið verði komið í endanlegt horf vorið 1989. Það er Minjavemd, sjálfseignar- stofnun á vegum Torfusamtakanna, Þjóðminjasafns og fjármálaráðu- neytis, sem sér um framkvæmdim- ar. í lok janúar á þessu ári var byrjað að reisa nýbyggingar, í stað húsanna sem bmnnu árið 1977, fyrir aftan gömlu húsin við Lækjargötuna. Þorsteinn Bergsson, framkvæmda- stjóri Minjaverndar, sagði í samtali við DV að útht nýju húsanna kæmi til með taka mið af húsi Sveins bak- ara sem stendur bak við veitingahú- sið Lækjarbrekku. Áætlað er að öllum framkvæmdum verði lokið fyrir vorið 1989 en húsin eiga að vera fullfrágengin að utan í lok september á þessu ári. í apríl 1989 er áætlað að þau komist í notkun. Lagfæringar á lóðinni fyrir framan Bemhöftstorfuna, ofan brekkubrún- ar, eru að hefjast þessa dagana. Nú er ætlunin að koma svæðinu í endan- legt horf og verður m.a. sett ný gangstétt og viðeigandi gróður. -JBj Nýbyggingarnar á Bernhöftstorfunni eiga aö veróa fullfrágengnar aö utan í september. Svona mun Bernhöftstorfan líta út þegar framkvæmdum veröur að fullu lokiö. HVAÐ ER FRAMUNDAN í EFNAHAGSAÐGERÐUM? HAG-PORT Keflavík. Eigum örfáa Subaru Sedan árg. 1987 fjórhjóladrifna með vökvastýri Okkar verð frá kr. 579.000, æ Söluaóili: BÍLASALAN BUK Skeifunni 8, símar, 68-64-77 og 68-66-42

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.