Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. Fréttir Skattkerfisbreytingamar: Ráðuneytið fer með árangur- inn sem hernaðarleyndarmál Fjármálaráðuneytið neitar að gefa DV upplýsingar varðandi saman- burð á innheimtum ríkissjóðs eftir skattkerflsbreytingar og samkvæmt gamla skattakerfmu. Þær upplýsing- ar, sem DV hefur verið neitað um, voru upphaflega unnar upp að beiðni blaðsins. Þegar þær síöan lágu fyrir í ráðuneytinu lagði aðstoðarráðherr- ann, Stefán Friðfinnsson, blátt bann viö að þær færu út úr húsi fyrr en ríkisstjórninni yrði kynnt hvað í þeim fælist. Upphaf þessa máls var að fyrir um segir gögn sem unnin voru fyrir DV frumgögn handa ríkisstjóminni mánuði óskaði DV eftir því við Snorra Olsen, deildarstjóra í fjár- málaráðuneytinu, að hann aflaði blaðinu upplýsinga um innheimtur ríkisins. Þar skyldi koma fram, sund- urliðað eftir mánuðum, innheimta ríkisins frá janúar 1987 til mars 1988. Jafnframt skyldi innheimtan sund- urliðuð eftir sköttum; það er sölu- skatti, tekjuskatti, eignaskatti og svo framvegis. Snorri sagði að slík vinna hefði aldrei áður verið unnin af ráðu- neytinu og að hún tæki töluverðan tíma. Þó féllst Snorri á að setja menn í þetta starf. Verkið dróst dálítið á langinn og kostaði það ófá símtöl milli ráðuneyt- isins og DV. Þaö var síðan í síðustu viku aö verkinu lauk hjá Ríkisbók- haldi. Á mánudagsmorgun sagði Snorri að Indriði Þorláksson væri að vinna upp úr þessum gögnum súlu- og línurit til skilningsauka. Eftir sem áður var fallist á það að DV fengi upplýsingarnar seinna um daginn. Stuttu síðar kom hins vegar í ljós að í ráðuneytinu hafði verið ákveðið að sitja á þessum upplýsingum. Stef- án Friðfinnsson, aðstoðarmaður ráðherra, rökstuddi ákvörðunina á tvennan hátt; annars vegar að hér væri' um flóknar upplýsingar að ræða sem DV gæti rangtúlkað (sjálf- ur sagðist Stefán ekki skilja upp né niður í þeim), hins vegar að þetta væru frumgögn fyrir ríkisstjórnina varðandi þriggja mánaða uppgjör ríkissjóðs. Þessar upplýsingar væru því trúnaðarmál þar til þær hefðu verið kynntar fyrir ríkisstjórn. Eins og áður sagði er hér um upp- lýsingar að ræða sem ráðuneytið hefur ekki tekið saman áður. Þetta eru reyndar sömu summur og það fæst viö í uppgjörum sínum en þær höfðu aldrei áður verið sundurliöað- ar með þessum hætti. Það var fyrst gert að beiðni DV. Þegar niðurstöður úr þeirri sundurhðun blöstu við voru upplýsingarnar, sem DV haíði verið lofað, stimplaðar sem trúnaðarmál. Hér er þó ekki um upplýsingar varð- andi vamir ríkisins að ræða heldur skattamál. -gse Auglýsing um eyðni: Viljum frekar vera ásókuð fyrir að gera of mikið en of lítið „Það er skylda Landlæknisem- bættisin9 aö benda fólki á að eyðni er banvænn sjúkdómur sem í allf- lestum tilfellum er hægt er að koma í veg fyrir með því aö gæta varúð- ar. Þessi auglýsing er ein aðferðin til að benda á þaö en það var alls ekki ætlun okkar að hneyksla fólk heldur aö ná til þess hóps sem tem- ur sér áhættusamt líferni. Allt orkar tvímælis en þegar upp er staöiö vfljum við heldur vera ásök- - segir landlæknir uð fyrir að gera of mikið heldur en of htið,“ sagði Ólafur Ólafsson landlæknir í samtah viö DV þegar hann var spurður að því hvers vegna Landlæknisembættið hefði gripiö til þess ráðs aö sýna mjög djarfa auglýsingu í sjónvarpi til að minna á eyöni. Auglýsingin hefur vakið mikla athygh og jafnvel hneykslan manna. Ólafur sagðist sjálfur hafa fengið jákvæð viðbrögð við auglýsing- uirni. Á næstunni, strax og fjárveit- ing fæst, verður álit almennings á eyðnifræöslunni kannað og þá um leið áht fólks á auglýsingunni. Sami háttur var hafður á þegar eyðniherferðin meö smokkaplaköt- unum svoköhuöu var komin af stað og voru niöurstööur þær aö um 50-60% voru sáttir við fræðsluna. 30% töldu of lítiö gert en 10% töldu of mikið gert. -JBj Tunnurnar voru hifðar um borð með krókum og eins gott af hafa vakandi auga með öllu saman. DV-mynd Jóhann Pálsson Vopnafjörður: Lestað til sovéskra Jóhairn Amason, DV, Vopnafirði: Urriðafoss lestaði 1790 tunnur hér á Vopnafirði aðfaranótt 13. apríl sl. fyrir Rússlandsmarkað. Þetta var næstsíðasta útskipun á síld héðan eftir vertíðina því nú eru aðeins eftir 1000 tunnur sem fara í skip sem kem- ur á næstu dögum. Á vertíðinni var saltað í rúmar 13000 tunnur hjá söltunarstöð Tanga h/f. Síldin var söltuð fyrir markað í Finnlandi og Svíþjóð auk Sovétríkj- anna. I dag mælir Dagfari____________________ Ættstórir kaupmenn Verslunarmenn hafa staðíð í verkfahi eins og ekki hefur farið framhjá nokkrum manni. Alþýðu- dómstólar á þeirra vegum hafa geyst út um borg og bí og kveðið upp dóma á staðnum um það hveij- ir megi hafa lokað og hveijir ekki og er búið að vera mikið íjör í þessu verkfahi. Sérstaklega á verkfahs- vaktinni, sem hefur notið þessa hlutverks út í æsar, enda er það draumur sérhvers íslendings að taka völdin. Fer ekki á milli mála hveijir hafa völdin þessa dagana og lögreglan hefur verið í við- bragðsstellingum þegar orðsend- ingar hafa komið frá verkfahsvakt verslunarmanna sem gefur út til- skipanir um lögregluaðgerðir þegar verkfallsveröirnir springa á hmminu. Ljóshærðar stúlkur, sem hingað til hafa verið fyrirferðarhtlar á bak við tölvumar og símaborðin á ómerkilegum kontórum, gamhr skrifstofumenn, sem hafa verið að gróa við skrifstofustólana, dagfars- prúðir lagermenn og búðarstrákar og svo að sjálfsögðu verkalýðsfor- ingjarnir úr forsetastólum bæjar- stjómanna, hafa notið þessa nýfengna frelsis og forréttinda í athafnalíflnu. Þetta lið hefur safn- ast saman á verkfallsvöktunum í þágu stéttarbaráttunnar og bylt: ingarinnar og berst nú blóðugum átökum fyrir rétti sínum og laun- um. Skrifstofufólkið hjá verslunar- mannafélögunum í Reykjavík og annars staðar, sem var næstum því búið að gleyma hvort það vann hjá verkalýðsfélagi eða vinnuveitanda, vaknar nú skyndilega til lífsins og hefur uppgötvað að það er heilmik- ið af fólki í félögunum hjá þeim, sem það vissi ekki um áður. Meðan verkamenn og fisk- vinnslufólk, Sóknarkonur og ófaglært iðjufólk hefur gefiö verka- lýðsbaráttuna upp á bátinn og sætt sig við þrælahaldið í frystihúsun- um, í verksmiðjunum og á eyrinni, hafa prúðbúnir verslunarmenn sótt fram í nafni öreiganna undir forystu hins eina og sanna verka- lýðsforingja í landinu. Má mikið vera ef Magnús L. Sveinsson verö- ur ekki einróma kjörinn forseti Alþýðusambands íslands á næsta ASÍ-þingi, enda er leitun að öðrum eins byltingarmanni og baráttu- manni fyrir bættum kjörum hins vinnandi manns. Þetta eru auövitað tímamót í verkalýðsbaráttunni á íslandi og verkfall verslunarmanna er sögu- leg stund í þeirri framþróun sem smám saman hefur verið að gerast hér sem annars staðar, að verka- menn nenna ekki lengur að beijast fyrir auknum launum en milhstétt- in og hvífhbbamir taka völdin. Verkalýðsforingjamir sem búa í einbýlishúsunum og keyra um á milljónadrossíunum og hafa til- finningu fyrir lífsbaráttunni, þaö eru þeir sem krefjast mannsæm- andi launa og fórna mannorði sínu í þágu alþýðunnar. Það eina, sem skyggir á þetta verkfah, er að það skiptír ekki máh. Kröfumar skipta ekki máh, því þær verða aldrei samþykktar, vinnustöðvunin skiptír ekki máh, því engu er lokað. Vandamál þessa verkfalls er nefnilega sú merkilega staðreynd að 1 Ijós kemur að kaup- sýslustéttin á íslandi er svo vel ættuð að bæði venslamenn og ná- komin skyldmenni geta rekið fyrirtækin og haldið búðunum opn- um án þess að það komi að sök. Verslunin í landinu er að uppgötva að verslunarfólkið sjálft er að meira eða minna leyti óþarft starfs- fólk og í rauninni til hreinnar óþurftar. Um leið og verkfahið skall á spruttu fram ættíngjar og fjölskyldulið verslunareigenda og héldu viðskiptalífinu gangandi og kaupmaðurinn á horninu blómstr- ar sem aldrei fyrr, loksins þegar verslunarfólk leggur niður vinnu. Hér eftir hlýtur það að verða meg- inkrafa kaupsýslumanna að versl- unarfélög séu sem oftast í verkfalli til að búöimar beri sig og viðskipt- in aukist. Verslunarmannaforyst- an vinnur tvíþætt verk meðan hún marsérar um göturnar meö al- þýðudómstóla sína. Annars vegar stuðlar hún að byltingunni sem kommarnir gátu ekki framkvæmt og hins vegar eflir hún íjölskyldu- tengshn hjá kaupmönnunum sem græða nú á tá og fingri. Þetta verk- fah er greinilega mikið þjóðþrifa- starf og er nú vonandi að það standi sem lengst. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.