Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. Viðskipti__. _________________________dv Átókin innan Sláturfélags Suðuriands: SSbýrvið lausafjáreriíðleika en eiginfjárstaðan er traust - tap síðasta árs nemur nokkrum tugum milljóna Þegar tilkynnt var í síðustu viku að Jón H. Bergs, forstjóri Sláturfé- lags Suðurlands, SS, í alls 31 ár, hefði sagt upp sem forstjóri eftir ágreining við stjóm félagsins fór einkennilegur kliður um viðskiptalífið. Fáir trúðu þessu. Það gat ekki verið að hann hætti svona. En þetta reyndist satt. Og meira til, yfirverslunarstjórinn, Jóhannes Jónsson, sem unnið hefur hjá fyrirtækinu í 25 ár, var látinn Qúka nokkrum dögum síðar. Þetta er sérstök saga í 84ra ára tíð Sláturfé- lagsins og hún hefur verið skráð á spjöld SS-sögunnar. Jón var í andstöðu við stjórnina En hvers vegna er Jón H. Bergs aö Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggö Sparisjóðsbækurób. 19 20 Ib.Ab Sparireikningar 3jamán. uppsögn 19 23 Ab.Sb 6mán uppsögn 20 25 Ab 12mán. uppsögn 21 28 Ab 18mán. uppsögn 32 Ib Tékkareikningar, alfn. 8 12 Sb Sértékkareikninqar 9 23 Ab Innlan verötryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir. 6 mán. uppsögn 3,5 4 Ab.Úb, Lb.Vb, Bb.Sp Innlán meðsérkjörum 19 28 Lb.Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 5,75 7 Vb.Sb Sterlingspund 7,75 8,25 Úb Vestur-þýsk mörk 2 3 Ab Danskarkrónur 7,75-9 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 29,5 32 Sp Viöskiptavíxlar(forv-) (1) kaupgenqi Almennskuldabréf 31 35 Sp. Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5 36 Sp Utlan verðtryggö Skuldabréf 9.5-9.75 Allir nema Úb Utlántilframleiðslu Isl. krónur 30,5 34 Bb SDR 7.75 8.25 Lb.Bb, Sb Bandaríkjadalir 8,75 9,5 Lb.Bb, Sb.Sp Sterlingspund 11 11,5 Ub.Bb, Sb.Sp Vestur-þýsk mork 5 5,75 Ub Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5 9 Dráttarvextir 45,6 3.8 á mán. MEÐALVEXTIR Óverðtr. april. 88 35.6 Verðtr. april. 88 9.5 VlSITÖLUR Lánskjaravisitala april 1989stig Byggingavísitala april 348stig Byggingavísit.ala april 108,7 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 6% 1. apríl. VERÐBRÉFASJÓOIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávoxtunarbréf 1,5063 Einingabréf 1 2.763 Einingabréf Z 1,603 Einingabréf 3 1,765 Fjölþjóðabréf 1,268 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,767 Lífeyrisbréf 1.389 Markbréf 1,440 Sjóðsbréf 1 1,339 Sjóðsbréf 2 1,221 Tekjubréf 1,367 Rekstrarbréf 1,08364 HLUTABRÉF Sóluverð að lokinni jöfnun m.v, 100 nafnv.: Almennartryggingar 128 kr. Eimskip 215 kr Flugleiðir 200 kr. Hampiðjan 144 kr. Iðnaðarbankinn 148kr. Skagstrendingur hf. 189 kr. Verslunarbankinn 105 kr Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr. Tollvörugeymslan hf. 100kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Bændur eiga Sláturfélag Suðurlands. Þeir vilja að lögð sé áhersla á framleiðslu og vinnslu. Þeir segja aö á því sviði hafi SS yfirburði og þar eigi að eyða kröftunum fremur en í verslunarrekstur í Reykjavík. Fréttaljós Jón G. Hauksson smásöluverslunin. Þar hefur ekki gengið sem skyldi enda feikileg sam- keppni í smásöluversluninni. Stjóm félagsins heldur því fram að það hafi yfirburöi í slátrun og fram- leiðslu kjötvara og að stefnan sé núna að einbeita sér að þeim málum þar sem fyrirtækið er fremst á sínu sviði. Ekki sé lengur eftir svo miklu að slægjast í smásöluversluninni og þess vegna sé lítil eftirsjá í því að leyfa Hagkaup, Miklagarði og öðmm stórmörkuðum að bítast um þann bita. Steinþór Skúlason, 29 ára gamall verkfræðingur, tekur við starfi for- stjóra Sláturfélags Suðurlands á sögulegum timum fyrirtækisins. Jón H. Bergs, forstjóri SS i 31 ár. Kliður fór um viðskiptalifið i síðustu viku þegar hann hætti skyndilega sem forstjóri eftir sögulegan ágrein- ing við stjórn félagsins. hætta á þennan hátt - það býr eitt- hvað mikið að baki? hafa flestir í viðskiptalífinu spurt sig að undan- förnu. Svarið er í stuttu máli að tekist er á um grunnstefnu fyrirtæk- isins, hvort það eigi frekar að framleiða kjötvörur eða selja þær. Stjórnin vill fyrst og fremst fram- leiða. Jón H. Bergs hélt þeim hugmyndum á lofti að það væri ekki nóg að framleiða vöruna, það þyrfti að selja hana líka. Tap upp á nokkra tugi milljóna Heimildir DV innan Sláturfélags- ins segja aö tap hafi orðið á rekstrin- um á síðasta ári; árinu 1987, og að þetta tap nemi nokkrum tugum millj- óna, sé í kringum 40 milljónir. Útilokað hefur þó verið að fá nokk- urn af forsvarsmönnum fyrirtækis- ins til að staðfesta þessa tölu. Eiginfjárstaða félagsins var í upp- hafi síðasta árs jákvæð um 415 milljónir króna. Með öðrum orðum, eignir félagsins voru um.415 milljón- um umfram skuldir. Tap síðasta árs hefur minnkað eigið féð sem tapinu nemur. Eiginfjárstaðan er því.sterk ennþá. Tímabundnir greiðsluerfiðleikar Það sem helst er sagt hrjá rekstur félagsins eru tímabundnir greiðslu- erfiðleikar vegna vaxta- og birgða- gjalda af kjöti og ennfremur „Þetta er sterkt félag“ „Það er af og frá að félagið sé að fara á hausinn eins og þú spyrð um. Þetta’ er sterkt félag sem á eignir og við höfum mikið traust í viðskiptalíf- inu,“ segir Páll Lýðsson, stjórnar- formaður Sláturfélagsins. Að sögn Páls hefur félagið gert upp við bændur frá sláturtíðinni í haust. „Að vísu alltof seint. Samkvæmt lög- um eiga sláturhús að vera búin að gera upp við bændurna fyrir 15. des- ember en við gerðum upp við þá í síöustu viku,“ segir Páll. Bændur fengu 40 milljónir á einu bretti Það er athygiisvert að Sláturfélagið gerði upp við bændurna daginn eftir hinn sögulega stjómarfund hjá SS, þegar Jón H. Bergs sagði upp starfi sínu. Sláturfélagið greiddi þá bænd- unum á einu bretti um 40 milljónir króna. Dæmið var gert upp. Heimild- ir DV segja að aðrir sláturleyfishafar eigi enn eftir að gera upp þannig að félagið hafi sýnt þarna góöa takta gagnvart bændunum. í þessu sambandi er rétt aö athuga hveijir eiga samvinnufélagiö Slátur- félag Suðurlands. Það eru bændur og þeirra fólk á Suðurlandi. Þetta er ékki neytendafélag heldur fyrirtæki sem er fyrst og fremst í eigu framleið- enda, hændanna sjálfra. Sem mest fyrir vörurnar Þetta er lykilatriði. Bændunum er nokk sama hvort þeir sjálfir selja kjötið eða Hagkaup, Mikligarður og aðrir stórmarkaðir. Aðalatriðið er að kjötvörumar seljist og að þeir fái sína peninga fyrir þaö. Þarna getur reynst hluti af skýringunni á því hvers vegna SS hefur komið slælega út úr verökönnunum að undanfömu. Stefnan er sú að fá sem mest verð fyrir vömrnar svo að eigendur SS, bændurnir, fái sem mest fyrir sinn snúð. Ekki er samt hægt að fara of hátt í verðinu. Það gerir samkeppnin. Það eru fleiri sem framleiða kindakjöt en SS og á neytendamarkaðnum ríkir grimm samkeppni. Sú samkeppni ræður í raun veröinu. Bændurnir orðnir óþolinmóðir Bændur innan SS munu hafa verið orðnir ansi óþolinmóðir að fá ekki uppgert aö fullu löngu eftir að upp- gjörsdagurinn, 15. desember, var liöinn, en þá mun hafa verið búið að gera um 80 prósent af kjötinu upp við bænduma. En á sama tíma sáu þeir fjárfestingar á verslunarhúsinu Nýjabæ á Seltjarnarnesi og það skil- aði tapi en ekki hagnaði. Þama mun hafa komið upp ákveðin vanlíðan hjá bændunum, eigendum SS. Margir fóm að hafa orð á því áð viturlegra væri að haga rekstrinum þannig aö þeir fengju greitt á réttum tíma í staö þess að standa í einhveiju brölti á verslunarsviðinu eins og í Nýjabæ sem rekinn hefur verið með tapi og hefur átt erfitt uppdráttar. Hagnaður á síðasta ári Sláturfélag Suðurlands skilaði 27,6 milljóna króna hagnaði á árinu 1986 eftir nokkur tapár þar á undan. Þetta er ekkert smáfyrirtæki. Heildarvelta þess þetta ár var um 2,5 milljarðar króna. Þetta er með stærri fyrirtækj- um í landinu. Hreint eigið fé var, eins og áður segir, um 415 milljónir króna í lok ársins 1986. Heildareignir námu 1,5 milljörðum, þar af vora fastaijár- munir skráðir á tæplega 700 milljónir króna. Miðað við hagtölur fyrirtækja var SS á fínu róli þetta ár, hlutfall veltu- íjármuna og skammtímaskulda í kringum einn. Og á móti tæplega 700 milijóna króna fasteignum kom eigið fé upp á 415 milljónir króna og lang- tímaskuldir upp á 285 milljónir. Miklar fjárfestingar Svona fyrirtæki deyr ekki á einum degi. Það segir sig sjálft. Samt má ekki horfa fram hjá því að aldrei er of varlega farið í fjárfestingum. SS hefur fjárfest mikið á síðari árum. Það er að byggja rándýra vinnslustöð í Laugarnesi og á nýtt, dýrt og mjög fullkomið sláturhús á Hvolsvelli. Jafnframt var farið út í kaup á versl- unarhúsinu Nýjabæ á Seltjarnar- nesi, sem kostaði sitt. Það er dýrt að byggja Það er dýrt að byggja og lán dýr. Þessu hefur félagið fundið fyrir á undanförnum árum. Vinnslustöðin í Laugarnesi er til dæmis lítið nýtt ennþá þó kostnaður við hana sé kom- inn yfir 200 milljónir króna. Það er kostnaðarsamt þegar fiárfestingar eru lengi í byggingu og skila seint tekjum. Allir þekkja umræðurnar um fækkun sláturhúsa í landinu, að um offiárfestingu sé nú að ræða og með fækkun þeirra verði komið við bæði betri nýtingu og hagræðingu sem skili lægri sláturkostnaði. Helstu eignir Sláturfélags Suður- lands era fimm sláturhús, vinnslu- stöðin í Laugamesi, sútunarverk- smiöja og verslunarhúsnæði í Nýjahæ og Austiirveri. Fyrirtækið leigir húsnæðið í Glæsibæ og að Laugavegi 116. Bergs-feðgarnir SS er fyrirtæki á gömlum merg. Það er 84 ára að aldri og þar hafa þeir Bergs-feðgar gegnt lykilhlut- verki. Faðirinn, Helgi Bergs, var forstjóri frá 1924 til 1957 og sonurinn, Jón H. Bergs, frá 1957 til 18. apríl 1988. Saga Bergs-feðganna nær því yfir 64 ár hjá fyrirtækinu. Þetta er einstakt. Fyrsti forstjóri SS var Hannes Thorarensen. Hann var forstjóri frá 1904 til 1924. Aðeins þrírstjómarfór- menn höfðu til síðastiiðins vors verið hjá SS. Þá tók við sá fiórði, Páll Lýðs- son í Litlu-Sandvík í Flóa. Páll er bóndi. Hann er háskóla- menntaður, lauk sagnfræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1959. Eftir sagn- fræðina fór hann beint í búskapinn. Páll er sagnfræðingur Páll hefur að vísu staðið í ströngu á fleiri stöðum en SS að undanfórnu. Hann samdi spurningamar og var dómarinn í spurningakeppni fram- haldsskólanna og þar með í sögulegri keppni Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund í beinni útsendingu í sjónvarpinu á dögun- um. . -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.