Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. 15 Nú reynir á Reagan „Nú er þess skammt að biða að réttarhöld hefjist í malunum gegn Poindexter og North.“ - John Poindexter (t.v.) og Oliver North. Allt frá tímum Nixons hefur Bandaríkjamönnum þótt brýnt að hengja að minnsta kosti eitt hneykslismál um háls forseta sinna og vonglaðir blaðamenn bæta þá ,,-gate“ við hvert það mál sem upp kemur. Það ,,-gate“, sem Reagan hefur fengiö á sig, er kallað „Iran- gate“, en einhvem veginn logar illa sá eldur sem blaðamenn reyna að kynda undir Reagan. Hann hefur verið kallaður „teflon" forsetinn vegna þess að ekkert virðist loða við hann. Samt er þetta mál í eðli sínu alvarlegt. Ef í ljos kemur að forsetinn og starfsmenn hans hafa af ráðnum hug farið á bak við þing- ið er sjálfur grunnur stjórnvaldsins í húfí, með öllu því sem shkt tákn- ar í augum Bandaríkjamanna. „Irangate“ og Líbanon Upphaf þessa máls er að rekja til byltingarinnar í Nicaragua 1979 þegar Somoza einræðisherra var steypt og við tóku vinstri sinnaöir sandínistar, vopnaðir sovéskum vopnum. Þetta þótti sumum Bandaríkjamönnum bein ögrun við sig og kváðu upp úr um það að gjörvöll Vesturálfa væri í hættu af framsókn kommúnismans og nú yrði að bregðast við hart í nafni frelsis og lýðræðis og kollvarpa sandínistum. Ronald Reagan gerði það að for- gangsmáli, þegar hann tók við embætti, að berjast gegn kommún- isma í Miö-Ameríku og studdi contraliða óspart og reyndar einnig hægri menn í E1 Salvador. Ekki voru þó allir sammála því að nauð- synlegt væri að endurreisa stjórn- arfar Somozas í Nicaragua og efla leifamar af her hans, sem eru uppi- staðan í contrasveitunum, og svo fór að Bandaríkjaþing stöðvaöi hernaðaraðstoð við contraliða um sinn. Aðstoð var reyndar leyfð aftur skömmu síðar, en á meðan gerðust Kjallariim Gunnar Eyþórsson fréttamaður þeir atburðir sem svokallað „Iran- gate“ snýst um. Víkur þá sögu til Líbanons. Bandaríkjamenn ætluðu þar að skerast í leikinn með friðar- sveitum en urðu frá að hverfa eftir mikið mannfall. Upp úr því voru nokkrir Bandaríkjamenn teknir í gíslingu í Beirút. Þetta vakti skelfi- legar minningar í Bandaríkjunum um niðurlæginguna í íran frá árs- lokum 1978 til ársbyijunar 1981 þegar sendiráðsmönnum í Teheran var haldið í gíshngu og Bandaríkin voru máttvana beygð í duftið. Reagan hét því hvað eftir annað að gera aht sem hægt væri til að frelsa gíslana í Beirút með öllum tiltækum ráðum, öðrum en að semja um lausnargjald fyrir þá. Þá kemur að þætti írana, óvina Bandaríkjanna. Þeir áttu þá og eiga enn í blóðugu stríði við írak og vantaði vopn. Þeir öfgamenn, sem héldu bandarísku gíslunum í Beir- út, voru hallir undir ajatollana í íran og þess var vænst að þeir mundu hlýða fyrirmælum þaðan að sleppa gíslunum ef íranir fengj- ust til að gefa þau fyrirmæh. Skýlaust brot á fyrirmælum Þá kom Oliver North undirof- ursti, staðgengih Poindexters, öryggismálaráðgjafa Reagans, til sögunnar. Hann sá sér leik á borði að slá tvær flugur í einu höggi, afla fjár til contranna og frelsa gíslana í Beirút. Þetta snjahræði var að selja írönum vopn úr vopnabúri ísraelsmanna og fá ísraelsmenn sem millihði gegn því að þeir fengju nýjustu bandarísku vopnin í stað- inn og nota hagnaðinn til að fara i kringum bann Bandaríkjaþings við hemaðaraðstoð við contrana. Þetta var gert og allir græddu, eða hvað? Tveimur gíslum var sleppt, íranir fengu flugskeyti og milljónir dohara fóru inn á leynireikninga í Sviss, sem ætlaðir vora tU vopna- kaupa. En nýir gíslar voru nærri strax gripnir, bandarísk flugskeyti eru nú í höndum írana á Persaflóa og lítið varð úr vopnakaupum til contraliða. Reyndar er lítið vitað hvað varð um peningana, annað en það sem fór í milliliði. Vikublað í Beirút kom síðan upp um allt saman og aUt fór í háaloft í Bandaríkjunum. Þingið hafði bannað fjárframlög frá Bandaríkjunum til contraskæru- Uöa, en þegar hér var komið haíði nokkur fjárveiting reyndar verið samþykkt. Hún breytti ekki því að þetta var skýlaust brot á fyrirmæl- um þingsins, sem forsetinn hefur engan stjórnarskrárrétt tU að hunsa. Þetta er því lagalega mjög alvar- legt mál fyrir Reagan og hann getur ekki afsalað sér ábyrgð. Þar að auki, sem sumum svíöur sárar, braut Reagan með þessu framferði loforð sitt, að eiga enga samninga við hermdarverkamenn, sem hann haíði undirstrikað meö loftárásum á Líbýu. Afleiðing af þessu varð síðan endanlegt bann þingsins viö allri hernaöaraðstoð við contrana í Nicaragua og í raun skipbrot stefnu Reagans í Mið-Ameríku. Nú reynir á „teflonið“ En sú spurning, sem ekki hefur fengist svar við, er: hvað vissi Re- agan? Á almenningur aö trúa því að hann sé svo afskiptalaus aö hann láti undirmenn sína reka sjálfstæða utanríkisstefnu, án ábyrgðar gagnvavt honum sjálfum eða þinginu? Hvernig er hægt að treysta slíkum forseta í utanríkis- málum? Eða lýgur Reagan? Það þykir ekki líklegt, menn eru flestir á því nú orðið að Reagan hafi að- eins haft óljósa hugmynd um hvað North og Poindexter voru aö bralla. En hann hefur fengiö miklar skammir fyrir að virðast ekki sjá neitt athugavert við þetta. Hann hefur sagt að North sé hetja og aö hann og Poindexter hafi ekk- ert gert rangt. Nú er þess skammt að bíða að réttarhöld hefjist í mál- unum gegn Poindexter og North. Ef þeir verða sakfelldir í sumar, eins og allar líkur eru taldar á, get- ur svo fariö að jafnvel tefloniö bjargi ekki Reagan. Það er of langt hðið á kjörtímabiliö til að búast megi við kröfum um að hann fari frá eins og Nixon; en þaö er of snemmt að slá því fóstu að hann sleppi heill á húíi. Gunnar Eyþórsson „Þar aö auki, sem sumum svíður sár- ar, braut Reagan með þessu framferði loforð sitt, að eiga enga samninga við hermdarverkamenn, sem hann hafði undirstrikað méð loftárásum á Líbýu.“ Vélfryst skautasvell „Akureyringar, sem búa i (imm sinnum minna bæjarfélagi, hafa komið upp vélfrystu skautasvelli,“ segir í greininni. Eg vil vekja máls á því hvort ekki sé kominn tími til þess að þeir sem hafa umsjón með íþróttamál- um borgarinnar fari að gera öllum (íþróttagreinum jafnt undir höfði. Það eru jú til fleiri íþróttagreinar en handbolti, fótbolti og skíði. Á sama tíma og settur er upp gervi- grasvöllur í Laugardal, skíðalyft- um hrúgað upp í Bláfjöllum fyrir tugi milljóna og verið er að tala um að byggja rándýra handboltahöll þá sitja flestar aðrar íþróttagreinar á hakanum. Flestar greinar fá þó einhvern „smápening“ í samanburði viö hin- ar þrjár sem ég nefndi. Þó er ein íþróttagrein sem á undaníomum árum hefur verið látin alveg full- komlega afskiptalaus og allt hefur verið gert til að drepa hana niöur. Það er skautaíþróttin. Melavöllurinn Fyrir u.þ.b. tíu árum var Mela- völlurinn, .helsta aðstaða skauta- fólks, yfirleitt svo krökkur af fólki að varla var þverfótað þar. Þannig var þaö alla daga og öll kvöld. Samfara almennum skautaáhuga jókst áhugi á íshokkí og fer hann vaxandi ár frá ári. Gerður var ís- hokkívöllur fyrir innan almenna skautasvæðið og Skautafélag Reykjavíkur var endurvakið, auk þess sem aftur var farið að hafa bæjarkeppni milli Reykjavíkur og Akureyrar. Nú er svo komið að keppnin getur aðeins farið fram á Akureyri og við áframhaldandi aðstöðuleysi er Skautafélag Reykjavíkur dauðadæmt. Stöðugt vaxandi áhuga gætir hjá ungum strákum þannig að félagið mun koma til með að vaxa og dafna með batnandi aðstöðu. Með tíman- um fóru starfsmenn Melavallar að KjaUarinn Sigurður Trausti Kjartansson nemi í M.R. verða latir og undir lokin spraut- uðu þeir helst ekki völlinn nema spáð væri frosti hálfan mánuð fram í tímann. Svo fóru þeir líka að spara ljósin og kveiktu þau ekki ef fáir voru á svellinu þó svo að kolniða- myrkur væri úti. Þ.a.l. fækkaði þeim stöðugt sem komu á skauta þó að alltaf væri krökkt af fólki um helgar, ef það var þá svell. Tjörnin Nú eru nokkur ár síðan Melavöll- urinn var rifmn og síðan þá hefur eina aðstaða skautafólks verið Tjörnin, ef aðstöðu skyldi þá kalla. Það er þeim formerkjum háð að til undantekninga telst að hægt sé aö skauta á henni. Oftast nær er svellið svo skítugt að það virkar eins og sandpappír á skautana eða þá aö hún frýs í öldum. í vetur hefur, í fyrsta skipti síðan Melavöllurinn var riflnn, verið hægt að fara oftar en tíu sinnum á skauta yfir veturinn, þótt hvert tækifæri sé notað. Það er líklega vegna þess að vallarstarfsmenn eru að vakna af dvalanum, en þeir hafa myndast við aö halda við svellinu í vetur. En nú er mál að linni Dæmi frá Akureyri Á sama tíma og skautaiðkun borgarbúa er að lamast hafa Akur- eyringar, sem búa í fimm sinnum minna bæjarfélagi, komiö upp vél- frystu skautasvelli. Ég skora hér meö á Davíð Oddsson borgarstjóra að sjá til þess að komið veröi upp vélfrystu skautasvelli og mann- sæmandi aðstöðu fyrir skautaá- hugafólk. Strax og sú aðstaða kemur er ég ekki í vafa um að allur sá fjöldi Reykvíkinga, sem fylltu Melavöllinn hér á árum áður, myndi hrista rykið af skautunum og flykkjast á svellið. Sú ásókn, sem verið hefur á vél- frysta svellið á Akureyri, ætti að sýna borgarstjóra, sem og öðram í borgarstjóm, að oft var þörf en nú er nauðsyn. Við þetta ástand verð- ur ekki unað lengur. Allir vita að Davíö Oddsson er stórhuga maöur, en það er enginn að biðja um ein- hverja glæsihöll fyrir nokkur hundruð milljónir. Það gera sér flestir grein fyrir því að það kæmi ekki til framkvæmda fyrr en í fyrsta lagi eftir 10-20 ár og líklega aldrei. Það sem þarf er vélfryst skautasvell með tilheyrandi bún- ingsaðstöðu, sem seinna væri hægt að byggja yfir, t.d. stálgrindahús. Undanfarna áratugi hefur einungis verið talað, og nokkrum sinnum hafa verið teiknaðar skautahallir, en ekkert hefur verið framkvæmt. Nú er kominn tími til fram- kvæmda. Ég skora á skautafólk að láta nú í sér heyra. Sigurður Trausti Kjartansson. „Eg skora hér með á Davíð Oddsson borgarstjóra að sjá til þess að komið verði upp vélfrystu skautasvelli og mannsæmandi aðstöðu fyrir skautaá- hugafólk.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.