Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. 21 DV 1 ega fagnað er hún kom heim með fyrsta eins og fram kom í DV fyrr í vikunni. DV-mynd KAE öld: 1 sigurs lollendingum í kvöld með 2-0 sigri á Austur-Þjóðverjum. Það tap er það eina sem Austur-Þjóðverjar hafa orðið fyrir í keppninni og virðist ætla að kosta þá farseðlana til Seoul. Loks kom naumt 2-1 tap í Portúgal, í leik sem allt eins hefði getað endað með íslenskum sigri. íslendingar hafa gert óvænta hluti Það má segja að með þremur stigum í fyrstu fjórum leikjunum hafi Island fengið þremur stigum meira en reiknað var með í upphafi. Þótt draumurinn um Seoul lifl fyrir leikinn hér í Doetinchem í kvöld er rétt að vera á varðbergi. ís- lenska hðið er að hefja sitt keppnistíma- bil og hægt er að búast við öllu, frá sigri til stórtaps. Fjarvera Guðna Bergssonar er áfáll, bæði sálfræðilegt fyrir liðið og styrkleikann. En ég er sannfærður um að eitt veigamikið atriöi hafi íslensku strákarnir fram yfir hina hollensku mótherja sína - þeir hafa meiri metnað fyrir því að standa sig og vera sér og sinni þjóö til sóma, og ég hef grun um að það lóð verði þungt á vogarskálinni hér á Stadion De Vijverberg í kvöld. íþróttir Frjálsar íþróttir - Spjótkast: Bjartsýnn á að Einar og Siggi bæti sig verulega - segir Stefán Jóhannsson, þjálfari þeina Einars Vilhjálmssonar og Sigurðar Einarssonar „Ég er mjög bjartsýnn á góðan ár- angur hjá þeim Einari Vilhjálmssyni og Sigurði Einarssyni á komandi keppnistímabili í spjótkastinu. Þeir eru báðir alhliða sterkari en þeir voru fyrir ári og hafa báðir tekið miklum framfórum á þeim sviðum sem hafa verið þeirra veikari hlið- ar,“ sagði Stefán Jóhannsson, þjálf- ari í fijálsum íþróttum, en hann er þjálfari spjótkastara'nna Einars Vil- hjálmssonar og Sigurðar Einarsson- ar. Nokkrar líkur eru á því að við ís- lendingar getum teflt fram þremur spjótkösturum í Seoul á ólympíuleik- unum. Hvað segir Stefán Jóhannsson um þann möguleika? „Hélt að það væri metnaðar- mál að eiga þrjá menn í Seoul“ „Frjálsíþróttasamband íslands hef- ur lagt það til við ólympíunefnd -að lágmarkið fyrir þijá spjótkastara fyrir OL í Seoul verði 77 metrar þrátt fyrir að alþjóðlega lágmarkiö fyrir þrjá menn sé 76 metrar. Þetta á máð- ur erfitt með að skilja, því ég hélt að það væri metnaöarmál fyrir okkur að eiga þijá spjótkastara á ólympíu- leikunum. Það eru sárafáar þjóðir í heiminum sem geta teflt fram þrem- ur spjótkösturum á OL og vissulega væri gaman ef okkur tækist að vera í þeim hópi.“ Sigurður Matthíasson hefur kastað 75,20 metra Þriðji spjótkastarinn sem hér er átt við er að sjálfsögðu Sigurður Matthí- asson sem dvalið hefur undanfarið ár við æfingar í Bandaríkjunum. Lengst hefur hann kastað 75,20 metra og á því greinilega möguleika á að komast til Seoul. „Eiga báðir að geta kastað yfir 85 metra“ - Nú þjálfar þú Einar Vilhjálmsson og Sigurð Einarsson. Hverju vilt þú spá um frammistöðu þeirra á kom- andi keppnistímabili? „Byrjunin lofar mjög góðu. Sigurð- ur var til að mynda að kastá rúma 78 metra á dögunum þrátt fyrir að hann sé í miðju mjög erfiðu æflnga- tímabih. Báðir eru þeir alhliða sterkari en í fyrra og hraðinn er meiri. Ég tel að þeir eigi báðir mögu- leika á að kasta yfir 85 metra í sumar en það hefur aðeins þremur spjót- kösturum tekist til þessa í heiminum. Auðvitað er erfitt að segja til um hve mikið þeir munu bæta árangur sinn en ég tel að þeir eigi báðir eftir að bæta sig verulega í sumar. Þó á ég ekki von á því að þeir baeti árangur sinn verulega fyrr en í Seoul. Báðir verða þeir á mjög erfiðu æfingatíma- bih í allt sumar en síðan á þetta að koma í Seoul." Þjálfarinn á íslandi en lær- lingarnir í Bandaríkjunum Nú hefur þú ekki haft tækifæri til að vera með þeim Einari og Sigurði í Bandaríkjunum. Er ekki nauðsyn- legt að þjálfarinn sé til staðar og þá í Bandaríkjunum í þessu tilfelli? „Það er auðvitað mjög nauðsyn- legt. Þeir Einar og Sigurður koma að vísu heim til Islands í júni en maímánuður er mjög mikilvægur í undirbúningnum fyrir OL. Sérstak- lega hef ég þá ýmis tækniatriði í huga. Ég fór til Bandaríkjanna í mars og var í einn mánuð. Þetta var mjög dýr ferð og ég veit ekki hvort ég sé mér fært að fara aftur í næsta mánuði. Ég vil þó koma á framfæri þökkum til íþróttaráðs Reykjavíkur sem veitti mér styrk til fararinnar og eins hefur ráðið styrkt Sigurð Ein- arsson. Við verðum að vona það besta en ég er ekki bjartsýnn á að komast til þeirra í næsta mánuði,“ sagði Stefán Jóhannsson. Það gefur augaleið að mjög mikil- vægt er að Stefán komist utan til aö aðstoða þá Einar og Sigurð og hjálp- fúsir aðilar verða að taka sig saman og sjá til þess að af ferð Stefáns til USA verði. -SK Stefán Jóhannsson. Stíga þessir kappar á pall í Seoul? Þeir Einar Vilhjálmsson og Sigurður Einarsson eru meðal allra fremstu íþróttamanna íslands i dag. \ Fnmann til Danavoldis Krœtján Bemburg, DV, Belgíu; ....... ............... ................................... Hinn snjalli danski knattspyrnumaður, Per Frimann, sem var félagi Amórs hjá Anderlecht, er farinn heim til Danmerkur til að spila meö Aarhus næstu tvo mánuðina. Þar er fýrir Hendrik Mort- ensen sem Anderlecht leigir einnig til danska liðsins. Var þetta gert til að Frimann kæmist í danska landsliöshópinn sem heldur til V-Þýskalands í sumar. Var það danski landsliöseinvaldurinn Sepp Piontek sem reri öllum árum til að mál þetta fengi farsælan endi en hann hefur mikla trú á Frimann. Ólympíulandsleikurinn: Lrtill áhugi hjá Niðurlendingum - félagsliðin færa landsliðin jafhvel af stalli Víðir Sigurðsson, DV, Hollandi: Áhugi heimamanna á leikjum og frammistöðu ólympíulandsliðs þeirra er merkilega lítill. Þaö virðist hafa orðið hormeka í kerfinu og svo rammt kveður að áhugaleysinu að fulltrúi knattspyrnusambandsins hollenska hér í Doetinchem gat ekki upplýst mig um úrsht í öllum leikjum Hollands í keppninni til þessa! Hann sagði jafnframt að þetta staf- aði af því að A-landsliðið væri númer eitt og síðan félagsliðin. Deildaleikj- um væri ekki hagrætt í samræmi við ólympíuleiki og því væri undir hæl- inn lagt hvaða leikmenn væru lausir hverju sinni. Félögin væru heldur ekki viljug að gefa sínum mönnum leyfi, eins og best sést á því að engir leikmenn frá Ajax og PSV skuli mæta íslandi í kvöld. Þégar liðin léku á Laugardalsvellinum í maí í fyrra og skildu jöfn, 2-2, voru í liði Holl- ands kappar á borð við Vanenburg og Koolhof frá PSV, Been frá'Feyen- oord og Menzo, markvörður Ajax. Þeir verða alhr fjarri góðu gamni í kvöld. Árangur Hollendinga í keppn- inni er líka eftir þessu. Þaö er ótrú- - legt að þjóð, sem á eitt besta landshð heims í dag og tvö félagshð í úrslitum Evrópumóta félagsliða, skuli vera í neðsta sæti í sínum riðli ólympíu- keppninnar og án sigurs í sjö leikjum til þessa! Leikurinn í Búdapest: Siggi Jóns verður með en Atli á ekki heimangengt - Atfli þarf að spila með Uerdingen á sama tíma Nú er ljóst að Atli Eðvaldsson á ekki heimangengt í landsleik íslendinga og Ungveija sem fram fer í Búdapest í næsta mánuöi. Ath þarf að spila með Uði sínu nánast á sama tíma og landsleikurinn er settur á. Siguröur Jónsson hyggst hins vegar spila og sagöi hann í samtali við DV í gær að eins og stað- an væri hjá honum nú gæti fátt breytt því að hann færi í leikinn. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.