Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988.
29
Lífsstm
Kuldakast hafði ekki skað-
vænleg áhrif á gróðurinn
Ráðlegt að huga að áburði
Lykill að fallegum og heilbrigðum gróðri er vel nærður garður. Tilbúinn áburður er til í handhægum 5 kílóa
pokum fyrir grasflatir, trjágróður eða hvað sem tilheyrir garðinum. Verðið er um 200 krónur.
Ek)ci mun gróður hafa skaðast að
neinu ráði af völdum kuldakastsins
sem hér hefur nýlega gengið yfir,
a.m.k. ekki sunnanlands. ErOðara
er að gera sér grein fyrir því sem
legið hefur undir snjóalögum á
norður- og austurlandi.
- Á suðvesturhominu hefur hins
vegar verið ágætis tíð. Þegar svo
ber undir er hættan aUtaf sú að
brum og aðrir viðkvæmir vaxta-
þættir tijáplantna fari að opnast.
Síðan ef kulda fer að gæta aftur,
eins og nýverið, getur gróðurinn
skaðast. Svo mun ekki vera að
þessu sinni. Þegar kuldakastið
gekk yfir hafði gróður ekki opnast
að ráði þótt ýmsar plöntur hefðu
sýnt brum, hafði það ekki opnast
þannig að skaði hlytist af.
Það verður að huga sem endra-
nær að greinum á trjágróðri sem
hefur kalið og klippa slíkt í burtu.
Kal á tijágróöri sést best á litamun,
kalnar greinar eða hlutar greina
er kalið hafa eru ljósari en þær er
eftir lifa. Að sögn garðyrkjumanna
má ætla að gróður verði fljótur aö
ná sér á þessu ári, ef ekki komi til
áfóll sem skapist af völdunj annars
kuldakasts.
Húsdýraáburður
Það er ekki of seint núna að fara
að útvega sér húsdýraáburð til þess
að bera á í göröum, bæði á gras-
flatir og í beð. Þess verður að gæta
þegar skíturinn er kominn á að
velta þessari náttúruafurð við einu
sinni í viku, þ.e.a.s. raka og hreyfa
.við með hrífu. Einnig verður að
gæta þess aö rigni vel úr skítnum
og bleyta hann ef ekki rignir. Á
vorin þegar garðaeigendur fara að
huga að görðum sínum fylgir því
oft mikil kátína þegar bílar renna
í hlaö með þessum líka ágæta ilm.
Þetta minnir sjálfsagt margan á
þegar mokaður var flórinn hér áö-
ur fyrr.
Húsdýraáburð ætti ekki að vera
mjög erfitt að nálgast, svo framar-
lega sem menn geta náð sér í litla
vagna sem setja má aftan í bíla.
Þegar hrossaskít ber á góma má
segja að tvær flugur séu slegnar í
einu höggi hvað viðvíkur hesthús-
um. Hesthúsaeigendur eru manna
fegnastir að losna við skítinn sem
haugast upp fyrir framan hjá þeim.
Óhætt er að mæla með því að um-
hyggjusamir garöeigendur fari á
þá staði sem hesthús eru og spyij-
ist fyrir um hvort ekki megi „að-
stoða“ hestaménn við aö losna við
óæskilegan afrakstur hestamenns-
kunnar.
Tilbúinn áburður
Ekki er nóg að nota húsdýraá-
burð einan og sér. Einnig er ráðlegt
að nota tilbúinn áburð sem ætlaður
er fyrir tún og tijágróður. Kostnað-
ur við slíkt er hverfandi miðað við
þann árangur sem þaö skilar.
Fyrstu áburðardreifingu má miða
við þann tíma sem augljóst er að
spretta er að hefjast. Þetta gefur
gróðrinum gott veganesti á aðal-
vaxtartímabilinu. Hins vegar skal
aögæta að bera ekki áburðinn of
snemma á af hættu viö að kulda
gæti með vorinu. Gefa þannig
gróðrinum of mikinn byr viö vöxt-
inn. Síðan þegar líða fer á sumarið
er tilvalið aö gera aðra áburðar
Heimilið
dreifingu, t.d. um mánaðamótin
júní/júlí. ■
Margs konar áburð er hægt að
kaupa hjá garðplöntustöðvum sem
-öðrum söluaðilum: alhliöa áburð,
túnáburö, garðáburð eða tijákom.
Magn og reglur um dreifingu er
uppgefið á umbúðum. Einnig er
vert aö spyrja söluaðila eða garð-
yrkjumanninn um notkun áburð-
arins.
AUir skyldu síðan hafa í huga að
bæta mold í garöa sína, sérstaklega
ef fariö er að sjást í rætur plantna
í beðum. Ef bílakostur er ekki fyrir
hendi, má benda á að hafa samband
viö vörubílastöðvar sem hafa hönd
í bagga með garðeigendum við
slíkt. -ÓTT.
DUKDALF
á þessu ári og
bjóðum því upp á
afmælisafslátt
Sendum í póstkröfu
e^agertfy
Eyjagötu 7, Örfirisey,
Reykjavik - simi 621780
Iðffi