Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. Jarðarfarir Aðalsteina Jóhannesdóttir, sem lést 23. apríl, verður jarðsungin frá Kópa- vogskirkju föstudaginn 29. apríl kl. 10.30. Sigurður Þorbjarnarson, fyrrver- andi yfirvélstjóri, lést í Kaupmanna- höfn 24. apríl. Jarðarförin fer fram frá Helligándskirke fimmtudaginn 28. apríl. Vilhjálmur Kristinn Ingibergsson húsasmíðameistari, Elliheimilinu Grund, áður Byggðarholti 4, Mos- fellsbæ, sem lést 20. apríl, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 28. apríl kl. 10.30. Linda Björk Bjarnadóttir verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 28. apríl kl. 13.30. Guðlaug Eiríksdóttir, Þverspyrnu, Hrunamannahreppi, sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 24. apríl, verður jarðsett frá Hrunakirkju Luigardaginn 30. apríl kl. 14.00. Rágnar Stefánsson, Col. U.S.A. (ret) og fyrrverandi menntaskólakennari, verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni í Reykjavík nk. fimmtudag, 28. apríl, kl. 15.00. Soffía Ásgeirsdóttir frá Fróðá verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 29. apríl kl. 13.30. ' Jón Hjálmarsson, Laugateigi 11, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 28. apríl kl. 15.00. Friðrik Guðmundsson, fyrrum bif- reiðarstjóri, Nesvegi 64, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn 28. apríl kl. 13.30. Sigríður Einarsdóttir, Stangarholti 26, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 28. apríl kl. 13.30. Sigurður Auðbergsson, Hólmgarði 52, er látinn. Jaröarfórin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Einar Þorleifsson, Faxabraut 68, Keflavík, er lést 18. apríl, verður jarðsunginn frá Keílavíkurkirkju föstudaginn 29. apríl kl. 14.00. Guðrún Guðmundsdóttir, frá Nesi við Seltjörn, lést 5. þessa mánaðar í Helsingborg í Svíþjóð. Jarðarfórin hefur farið fram. Kristinn Magnússon, Skíðabraut 15, Dalvík, lést 14. apríl síðastliðinn. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrr- þey. Gunnar Ingófsson bóndi, Hámundar- stöðum, lést 19. apríl. Hann fæddist 18. september 1955, sonur Bjargar Eyjólfsdóttur og Ingólfs Guðmund- sonar. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.00. Jens Guðbrandsson lést 15. apríl. Hann fæddist 3. júní 1918 á Jörfa í Haukadal, sonur hjónanna Guð- brands Ámasonar og Ingibjargar Daðadóttur. Árið 1968 hóf hann sam- búð með Ástu Ólafsdóttur sem þá var ung ekkja með tvö börn. Þau eignuð- ust saman työ börn, Brynjólf Bjarka og Ingibjörgu. Útför Jens fer fram frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Kvikmyndir Grísk kvikmyndavika í Regnboganum: Ást, peningar og kúgun The Price of Love, frá 1984 Leikstjórn og handrit: Tonia Marketaki. Kvikmyndataka: Starvos Hassapis. Aöalhlutverk: Toula Stathoupoulou, Anny Loulou og Stratis Tsopanellis. Gríski leikstjórinn og handrita- höfundurinn Tonia Marketaki á að baki litríkan feril í kvikmyndagerð og er sögð ein sú áhugaverðasta í heiminum í dag. Fyrsta langa kvik- mynd hennar, Violent John, hlaut Qölda verðlauna á kvikmyndahá- tíðinni í Þessalóníku árið 1974. Einnig á hún hvorki meira né minna að talið er en bestu drama- tísku þáttaröðina sem gerð hefur verið fyrir Gríska sjónvarpið, alls 9 þættir. The Price of Love sópaði einnig til sín verðlaunum í Grikkíandi. Hún ber nafn með rentu og fjallar um gildi ástarinnar á Korfu um aldamótin, hvort sem er í þágu pen- inga eða ærunnar. Ungur maður af borgaraættum nær ástum un- grar lágstéttarstúlku en svíkur hana í tryggðum og hún ákveður að reyna að halda æru sinni með þvi að vinna fyrir sér. Þjóðfélagsástand endurspeglast meðal annars í mismun á velferð fólks um aldamótin, miklum mun ríkra og fátækra. Það eina sem þeir fátæku hafa til að halda er æran. En mestu skiptir fyrir borgaraætt- ina að halda fénu réttum megin. The Price of Love er alúðlega gerð mynd sem vekur fólk til um- hugsunar. Ádeila á borgastéttina skín í gegnum fátæktina og hrekk- leysið. Þrátt fyrir það er hún mjög raunsæ. Næmni einkennir verk Marketaki sem nær mjög góðum tökúm á innsta kjarna mannsins, ást, hatri, sorg og gleði. Fyrir utan að vera vel gerð er myndin mjög fróðleg og tekur á velflestu sem lýtur að grísku þjóð- félagi. Og boðskapurinn heyrir undir dýrkeypta skynsemi og stöðu konunnar. -Gkr Hljoður dauði Hljóölátur dauödagi, frá 1986. Leikstjóri: Frieda Lappa. Aðalhlutverk: Eteonora Stathopoulou, Pemy Zouni, Takis Moschos. Þessi kvikmynd hlaut verðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni í San Sebastian 1986. Auðvelt er að sjá hvers vegna. Kvikmyndataka myndarinnar er með eindæmum falleg og handrit ljóðrænt. Myndin íjallar um unga konu, Mörtu, sem er rithöfundur. Hún á við alvarleg geðræn vandamál að stríða og reyna maður hennar og sálfræðingur allt sem þau geta til að bjarga henni frá drukknun í djúpi eigin sálarflækja. Hún sting- ur þau af og eyðir rigningamóttu á flækingi um hina mannlausu borg. Hún endar á því að lenda í slagtogi með vörubílstjóra og farast þau í bílslysi. Myndin er full af vatni og blóði. Regnið streymir látlaust og stöðugt koma innskotsatriði, draumar Mörtu, þar sem blóðið vætlar og rennur saman við vatniö. Marta leitast stöðugt við að muna sína fyrri veröld en eftir því sem hún rifjar meira upp því nær er dauðinn. Mikið hefur verið rætt um kvennabókmenntir hin síðari ár. Nú eru þessi áhrif farin að skila sér i kvikmyndum og er þessi kvik- mynd gott dæmi um það. Marta er kvenpersóna, sköpuð af konu, og reynsluheimi hennar. Þessar bók- menntir hafa löngum verið litnar hornauga af karlmönnum sem kalla þær „túrbókmenntir", og víst er það að Marta hefur aldrei kom- ist yfir gelgjuskeiðið. Frieda Lappa hefur með þessari mynd gert hugarheimi Mörtu góð skil og eru sum myndskeiðin ægi- fögur. Marta leitar að sögu og finnur hana en á meðan streymir regnið og í slíku syndaflóði veltur vörubíllinn og brennur til kaldra kola. Aðdáendur ljóðrænna kvik- mynda með þungum sálfræðileg- um undirtón ættu að flykkjast aö sjá þessa mynd. Aðrir ættu að sitja heima. -PLP Andlát Guðrún Guðjónsdóttir, Hrafnistu, Reykjavík, lést mánudaginn 25. apríl. Kristinn Björnsson, Ásgarði 3, Kefla- vík, andaðist 24. apríl. Eyjólfur Snæbjörnsson, Heiðargeröi 92, Reykjavík, andaöist á Borgarspít- alanum að morgni 25. apríl. Valdimar Stefánsson, lést 25. apríl á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Tryggvi Gunnarsson, Grjóta, Garða- hverfi, lést mánudaginn 25. apríl. Ólafur Ingvarsson, Vatnsnesvegi 27, Keflavík, andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur aðfaranótt 26. apríl. Sigrún Jónsdóttir frá Patreksfirði er látin. Guðbjörg Guðmundsdóttir, frá Skip- hyl, Leifsgötu 7, Reykjavík, andaðist 25. apríl í Landakotsspítala. Jóhann Sverrir Kristinsson, fyrrum bóndi, Ketilsstöðum,' síöar búsettur að dvalarheimilinu Lundi, lést að kvöldi 25. apríl. » Óskar P. Jónsson, mælitækjamaður, lést mánudaginn 25. apríl. Tapað fimdið Amor er týndur Hann er svartur með hvitan háls, bringu og loppur og hægri afturfótar hans er saumaður. Amor tapaðist í Bústaða- hverfi 18. april. Allar upplýsingar eru vel þegna í síma 33545. Jakka saknað úr Félagsgarði í Kjós Síður leðurjakki glataðist í Félagsgarði í Kjós síðasta vetrardag. Finnandi hafi vin- samlegast samband í síma 667005. Karlmannsúr tapaðist í Skjólunum á laugardag. Finnandi hafi vinsamlegast samband í síma 15198. Sýningar Málverkasýning Jón Ferdinands sýnir 10 málverk í Bóka- safhi Kópavogs. Sýnin stendur til 18. maí. Tilkyimingar Vortónleikar í Grindavík Tónlistarskóli Grindavíkur heldur sína árlegu vortónleika fimmtudaginn 28. apríl kl. 20 í Grindavikurkirkju. Að venju verður efnisskráin fiölbreytt. Forskóía- böm munu spila á blokkflautar, leikið verðm- á píanó og blásturshijóðfæri og kór Tónlistarskólans mun syngja undir stjóm Kára Gestssonar. Dráttarvélakennsla Eins og á undanfömum árum efnir Um- ferðarráð til námskeiðs í akstri og meðferð dráttarvéla. Það hefst laugar- daginn 30. apríl kl. 10.00. Kennt verður í tveimur flokkum. Annars vegar er um að ræða fomámskeið fyrir unglinga á aldrinum 13-15 ára og hins vegar rétt- indanámskeið fyrir 16 ára unglinga sem endar með prófi og veitir réttindi til akst- urs á dráttarvélum á vegum. Frekari upplýsingar em veittar hjá Umferðarráði í síma 91-27666. Starfsdagurinn í Stjórnar- ráðinu færður fram Ákveðið hefur verið að færa starfsdag í Stjómarráðinu fram um klukkutíma yfir sumarmánuðina. Verða því skrifstofur Sfiómarráðs íslands opnar kl. 8.00-16.00 mánudaga til fóstadaga frá 1. maí til 30. september 1988. Hallgrímskirkja, félags- starf aldraðra Opið hús veröur í safnaðarheimili Hall- grímskirkju á morgun,- fimmtudag, kl. 14.30. Séra Árelíus Níelssen segir frá og einnig verða kaffiveitingar. Vegna við- gerða á kirkjutami er kirkjugestum bent á inngang Iðnskólamegin. Þeir sem óska eftir bílfari hringi á fimmtudagsmorgun í síma kirkjunnar sem er 10745. Árshátíðir Árshátíð ítalsk-íslenska félagsins Árshátíð Ítalíu verður haldin fóstadag- inn 6. maí nk. að Hótel Lind við Rauðar- árstígkl. 19.30. Þarverður dansað, borðað og horft á skemmtiatriði til kl. 2.00. Skráning og nánari upplýsingar em veittar í síma 16829 og hjá stjómarmönn- um félagsins. Athugasemd frá landbúnaðarráðuneytinu - vegna ummæla Friðrfks Sigurðsson, framkvæmdastjóra Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva, í fréttaviðtali sem birtist á bls. 2 í DV16. apríl 1988 í ofangreindu viðtali setur Frið- rik fram fullyröingar sem ekki eru einungis vafasamar og í mótsögn við hverjar aðrar heldur beinlínis rangar og erfitt að sjá hver tilgang- urinn með framsetningu þeirra er. Landbúnaðarráðuneytið sér sig þess vegna tilknúið til að gera eftir- farandi athugasemdir: 1. Friðrik kvartar yfir óhóflegri miðstýringu af hálfu landbúnaðar- ráðuneytisins og heldur því fram að ráðuneytið vilji notfæra sér fisk- eldið sjálfu sér til framdráttar. Orðrétt segir í viðtalinu: „Það (fisk- eldið) er síðasta feita mjólkurkýrin sem þeir hafa til að halda uppi öllu miðstýringar-, skömmtunar- og millifærslukerfi landbúnaðarins. Og svo að sjálfsögðu landbúnaðar- ráðuneytinu sjálfu.“ Nú má vera að það sé skoðun Friðriks að landbúnaðarráðuney- tið vilji miðstýringu á sem flestum sviðum, sem hann telur óæskilega, og hann má að sjálfsögöu hafa þá skoðun. Hins vegar skýtur nokkuð skökku við þegar hann kvartar yfir því á öðrum stað aö landbúnaðar- ráðuneytið hafi enga stjórn á þessum málum. Um það segir hann: „Ráðuneytið hefur heldur ekki mótað neina stefnu í fiskeldis- málum. Allir sem vilja hafa getað farið í seiðaeldi. Nú stöndum við frammi fyrir offramleiðslu á seið- um.“ Þversögnin leynir sér ekki. Staðreyndin er sú að landbúnað- arráðuneytið hefur ekki viljað vera með óhóflega afskiptasemi af þess- ari atvinnugrein, heldur leyft henni að þróast og dafna í því fijálsræði sem atvinnugrein, sem keppir á alþjóðlegum markaði, er nauösyn á. Ráðuneytiö hefur jafnhhða reynt að skapa traustan grundvöll undir fiskeldið í landinu með öflugum sjúkdómavQrnum, rannsóknum og fræðslustarfi, enda lítur það svo á aö hvort tveggja sé forsenda þess að atvinnugreinin geti nýtt sér til fulls hagstæðar aðstæður hér á landi til fiskeldis. í dag byggir fiskeldið á stórum hluta á starfskrafti sem er mennt- aður frá Bændaskólanum á Hólum og sjúkdómavamir okkar eru óum- deilanlega einar þær bestu í heiminum, sem m.a. hefur haldið opnum markaöi fyrir seiði til Nor- egs, en sem kunnugt er leyfði norska landbúnaðarráðuneytið okkur að flytja þangað seiöi. 2. Friðrik setur fram þá fidlyrðingu að fiskeldismönnum sé ætlað að greiða fyrir þjónustu á Keldum sem bændur í hefðbundnum landbún- aði fái ókeypis. Hér er með rangt mál farið og heggur Friðrik þar sem síst skyldi og má helst ætla að hann þekki ekki betur til þessara mála en hér kemur fram, sem þó verður að telja vafasamt miöað við þá stöðu sem hann gegnir. Staöreyndin er sú að fiskeldis- menn hafa fengið sömu endur- gjaldslausu þjónustuna og aðrir bændur. Hins vegar hafa fiskeldis- menn fengið meiri þjónustu en aðrir og til þess kostaði landbúnað- arráðuneytið uppsetningu sérs- takrar rannsóknastofu í fisksjúk- dómum. Þar hafa m.a. verið framkvæmdar þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru til þess að innflutningsvottorð fyrir fisk til annarra landa fáist. Fyrir þessar rannsóknir hafa fiskeldismenn greitt, rétt eins og t.d. loðdýra- bændur greiða fyrir sambærilega þjónustu vegna lífdýrasölu. 3. Friðrik heldur þvi fram að „alls staðar í okkar nágrannalöndum heyri fiskeldiö undir sjávarútvegs- ráðuneyti, utan Bretlands þar sem það er undir atvinnumálaráðu- neytinu". Hér fer Friðrik frjálslega með staðreyndir. í Svíþjóð heyrir fiskeldið undir landbúnaðrarráðuneytið, í Finn- landi sömuleiðis. í Noregi heyrir það undir bæði landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið. í Banda- ríkjunum er verið að færa fiskeldið frá umhverfismálaráðuneytinu til landbúnaðarráðuneytisins. Full- yrðingar Friðriks í þessu máli standast því ekki og vekur það sannarlega umhugsun hvers vegna hann setur þær fram svo rang- ar. 4. Friðrik segir: „Nú eru allir sjóðir landbúnaðarins lokaðir fyrir fisk- eldi“. Þessi fullyröing er einnig röng. Stofnlánadeild landbúnaðar- ins, Fiskræktarsjóöur og Fram- leiðnisjóður landbúnaðarins hafa veitt lán og styrki til fiskræktar og fiskeldis og á Friðriki að vera full- kunnugt um það. Hins vegar er því ekki að neita aö megnið af fiár- magni til fiskræktar hefur komið frá Byggðasjóði og Framkvæmda- sjóði, samkvæmt ákvörðun stjóm- valda þar að lútandi. 5. Landbúnaðarráðuneytið vill enn og aftur ítreka að þaö vill náið og gott samstarf við fiskeldismenn og samtök þeirra. Það harmar því að framkvæmdastjóri L.F.H. skuli ítrekað hafa uppi gífuryrði og rang- færslur í garð landbúnaðarráðu- neytisins og ómaklega gera lítið úr því uppbyggingarstarfi sem land- búnaðarráðuneytið og stofnanir þess hafa staðið fyrir. Það verður að telja slík vinnubrögð af hálfu forsvarsmanns hagsmunasamtaka næsta óvenjuleg og verður ekki séð hvernig atvinnugreininni er gott gert með slíkri háttsemi. Landbúnaðarráðuneytið vill að- stoða fiskeldismenn í hvívetna án þess að koma á „miðstýringar-, skömmtunar- og millifærslukerfi", eins og Friörik vill halda fram. Á sama hátt er landbúnaðarráðu- neytið tilbúið að standa að upp- byggingu á eldi sjávarfiska en hefur hins vegar ekki séð ástæðu til að efna til deilna um vistun þess í stjórnkerfinu. Landbúnaðarráðuneytið, 19. apríl 1988.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.