Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988.
Fréttir
Landsbankinn greiðir milljónatugi á mánuði í sektir:
Nauðarsamningar
við Seðlabankann
- vegna lélegrar lausafjárstöðu
Bankastjóm Landsbankans hefur
náð sérstökum samningum við
Seðlabankann vegna slæmrar lausa-
fjárstöðu bankans. Bankinn hefur
þurft að greiða tugi milljóna á mán-
uði í sektir vegna þess að hann upp-
fyllir ekki reglur Seðlabankans um
lágmarks lausafé. Nú hefur Seðla-
bankinn fallist á að veita Lands-
bankanum skammtímalán sem ekki
eru talin með þegar lausafjárstaðan
er reiknuð. Með þessu starfar Lands-
bankinn eftir öðrum reglum en aðrir
viðskiptabankar þar sem ekki eru
Helgi Bergs:
Landsbankinn er
traust stofnun
.JLandsbankinn er náttúrlega
geysilega traust stofnun og það er
ástæðulaus ótti ef menn halda að
hann sé í einhverri hættu. Eigið fé
bankans er 3.400 milljónir króna.
Hins vegar hefur Landsbankinn
haft afar þrönga lausafjárstöðu
mörg undantarin ár. Mér viröist
því sem Ólafur Ragnar hafi ruglað
saman efnahag bankans og lausafj-
árstöðunni,“ sagði Helgi Bergs,
bankastjóri Landsbankans.
Aðspurður sagði Helgi að sektir
bankans til Seðlabankans vegna
lausaflárstöðunnar hefðu leikið á
nokkrum tugum milljóna á mán-
uði. Hann sagði aö þessar sektir
hefðu að sjálfsögðu reynst bankan-
um þungar 1 skauti.
„Lausaflárstaðan hefur verið að
batna aö undanfómu, eins og hún
gerir alltaf á vorin, en þó minna
en á undaníornum árum. En viö
erum að komast út úrversta sekta-
vandanum aö því leyti aö við höf-
um náö sérstökum samningum við
Seölabankann. Þeir tryggja okkur
vægari sektir,“ sagði Helgi.
-gse
gerðar sömu kröfur til lausafjárstöðu
hans og annarra, að sögn Helga
Bergs, bankastjóra Landsbankans.
„Það er alveg ljóst að staða Lands-
bankans er slæm og það er alvarlegt
mál sem við verðum að fást við,“
sagði Eiríkur Guðnason, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans. „Lands-
bankinn hefur sýnt að hann er að
fást við þennan vanda með því að
draga úr útlánum sínum. Seðlabank-
inn hefur einnig aðstoðað bankann í
þessum vanda.“
-gse
Ólafur Ragnar Grímsson:
Staða Landsbankans
hefur verið feimnismál
„Það hefur verið feimnismál í pen-
ingaheiminum að staða Landsbank-
ans hefur versnað svo að ýms fyrir-
tæki sem hafa verið í viðskiptum við
hann hafa þurft að leita út fyrir land-
steinana eftir rekstrarlánum," sagði
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins.
I greinargerö um efnahagsmál, sem
lögð var fyrir miðstjóm flokksins á
sunnudaginn, segir Ólafur meðal
annars að bankakerfið sé komið í
þrot. Ólafur bætir við: „Bjarga varð
Útvegsbankanum frá gjaldþroti og
Landsbankinn - stærsti banki þjóð-
arinnar - er kominn hættulega langt
inn á sömu óheillabraut og Útvegs-
bankinn var á fyrir tveimur árum.“
„Ég geri mér fyllilega grein fyrir
að hér er alvarleg fullyrðing á ferð-
inni, en ég er jafnframt sannfærður
um að hún er rétt. Það er fullkomið
ábyrgðarleysi að fara meö versnandi
stöðu stærsta banka landsins sem
eitthvert feimnismál. í ljósi yfirlýs-
inga forsvarsmanna ýmissa þeirra
fyrirtækja, sem eru í miklum við-
skiptum við Landsbankann, um
slæma afkomu er núverandi staða
bankans alvarlegt mál. Ef þessi fyrir-
tæki fara að rúlla þá er Landsbank-
inn ekki í öruggum séssi. Þegar svip-
uð mistök voru gerð í hagstjórninni
1974 og nú þá hélt Landsbankinn
starfsemi útgerðarinar gangandi á
lánsfé í marga mánuði. Hann hefur
ekki burði til þess nú,“ sagði Ólafur.
-gse
Bjórinn er kominn
Bjórfrumvarpið var samþykkt sem
lög frá Alþingi laust eftir miðnætti í
nótt. Þar með er ljóst að sala á áfengu
öli hefst hér á landi 1. mars 1989 eft-
ir að hafa verið bönnuð í 74 ár.
Atkvæðagreiðsla um málið varð
ekki eins spennandi og búist hafði
verið við en tvær breytingartillögur
við frumvarpið komu fram rétt áður
en afgreiösla málsins var tekin fyrir.
Önnur tillagan laut að forvarnar-
staríi en hin var um verðlagningu
öls. Báöar tillögunar voru felldar
með 12 atkvæðum gegn 9 en Danfríð-
ur Skarphéöinsdóttir var hlynnt
breytingartillögum. Stuðningsmenn
bjórsins sögðu við umræður um
breytingartillögurnar aö þeim væri
ætlað að hindra afgreiðslu málsins
enda mætti finna ákvæði sem þessi
í núverandi áfengislögum.
Sú tillaga sem flestir biðu eftir, um
þjóðaratkvæðagreiðslu, kom aldrei
fram enda fyrirsjánlegt að hún nyti
aldrei stuðnings meirihluta þing-
- sala bjórs hefst 1. mars 1989
Það var fjölmennt á þingpöllum þegar bjórinn var afgreiddur og hér má
m.a. sjá þá Guttorm Einarsson, eiganda Ámunnar, og Ragnar Birgisson,
forstjóra Sanitas. DV-mynd GVA
manna. Bjórfrumvarpið í heild var
því samþykkt með 13 atkvæðum
gegn 8. Þeir sem samþykktu bjórinn
voru: Danfríður Skarphéðinsdóttir,
Eiður Guðnason, Jón Magnússon,
GuðmundurÁgústsson, Guðmundur
H. Garðarsson, Halldór Ásgrímsson,
Halldór Blöndal, Jóhann Einvarðs-
son, Júlíus Sólnes, Karvel Pálmason,
Salome Þorkelsdóttir, Stefán Guö-
mundsson, og Valgeröur Sverris-
dóttir. Á móti voru: Karl Steinar
Guönason, Egill Jónsson, Guðrún
Agnarsdóttir, Jón Helgason, Margrét
Frímannsdóttir, Skúli Alexanders-
son, Svavar Gestsson og Þorvaldur
Garðar Kristjánsson.
Þaö var þungt hljóöiö í andstæðing-
um bjórsins á göngum Alþingis eftir
atkvæðagreiðsluna og þeir ekki á eitt
sáttir um hvort aö málinu væri lokið
eftir margra ára þref. Bjórstuðnings-
menn sögðu hins vegar að það væri
gott að losna við þetta eilífðar deilu-
mál úr sölum Alþingis. -SMJ
Bjorinn verður að vera dýr
- segir Jón Magnússon
„Eg tel eölilegt að sérstök lög
verði sett um bjórinn nú þegar
ákveðið hefur verið aö selja hann
hér. Þaö yrðu þá neytendalög sem
tækju á styrkleika bjórsins og eðli
hans,“ sagði Jón Magnússon en
hann hefur verið einn harðasti
talsraaður þess á Alþingi aö sala
bjórs verði leyfð og flutt lagafrum-
vörp þar aö lútandi. Jón sagði að
þaö yröi margs að gæta við sölu
bjórs hér á landi og sagðist hann
vera því hlynntur að áfengiseining-
in í bjór yrði dýr.
„Sá bjór, sem ég er hræddastur
við, er veiki bjórinn, sá sem er að-
eins sterkari en pilsner. Þaö er
nauðsynlegt fyrir fólk aö átta sig á
því að bjór er sem áfengi alveg jaSn-
hættulegurogannaðáfengi.“ -SMJ
„Bjórinn kemur aftur á Alþingi“
- segir Svavar Gestsson
„Það er bersýnilegt að máliö kem-
ur aftur fram hér á Alþingi í haust
hvort sem fluttar verða tillögur um
aö fella frumvarpið úr gildi eöa gera
breytingar, einhveijar tillögur verða
gerðar,“ sagði Svavar Gestsson, einn
harðasti bjórandstæðingurinn í efri
deild, eftir að ljóst var að bjórfrum-
varpið hafði verið samþykkt.
„Þetta er dapurleg lífsreynsla fyrir
mig, bæði sem foreldri og þingmann,
og ég tel að mikið óhappaskref hafi
verið tekið hér.“ Svavar sagði að það
hefði ekki komið til greina að þvæla
málið með þingtæknilegum brögðum
enda hefði það verið vilji bjórand-
stæðinga að afstaða Alþingis í þessu
máh kæmi fram. Svavar sagöi að
ljóst hefði verið aö sala bjórs hefði
verið mikil hér á landi, bæði í gegn-
um fríhafnarinnflutning og með
skipum. -SMJ
Togararallið:
Yngstu áigangar
þorsksins era
undir meðallagi
Niöurstöður togararallsins sem
fram fór á vegum Hafrannsókna-
stothunar dagana 6. til 23. mars
síðastliðinn eru þær að tveir
yngstu árgangar þorsksins, 1986
og 1987 árgangarnir, séu undir
meðallagi og þvi telur Hafrann-
sóknastofnun að á næstu árum
verði aö draga úr þorskveiðinni.
Þá virðist stofnstærð steinbíts,
ýsu og karfa hafa dregist saman
milhára.
Það voru 5 togarar sem Haf-
rannsókn tók á leigu til rallsins
og toguðu þeir á mismunandi
stöðum á miðunum umhverfis
landiö, eins og gert hefur verið
undanfarin ár.
í ljós kom aö vaxtarhraði flög-
urra og fimm ára fisks sé góður
og umtalsverö þyngdaraukning
hjá þessum árgöngum, sem eru
uppistaðan í þorskaflanum um
þessar mundir. Skýrslu um
ástand fiskistofna í hafinu um-
hverfis ísland er aö vænta frá
Hafrannsóknastofnun í næsta
mánuöi. -S.dór
Vestmannaeyjadeilan:
Fara með tilboð
til Eyja í dag
Á samningafundi hjá sátta-
semjara í nótt lögðu atvinnurek-
endur fram tilboð til verkalýös-
félaganna í Vestmannaeyjum og
samningamenn þeirra munu fara
með það til Vestmannaeyja í dag
og bera undir félagsfúndi. Þó
gæti verið að drægist til morguns
aö halda fund því tæpt er aö hægt
verði aö fljúga til Eyja í dag.
,JÉg ætla hvorki aö játa því né
neita því aö þetta nýja tilboð sé
innan ramma Akureyrarsam-
komulagsins, Eyjamenn veröa að
reikna þaö út sjálfir,“ sagði Þór-
arinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins, í samtali við DV í
morgun.
Samkvæmt heimildum DV er
um nýja útfærslu innan ram-
mans að ræöa. Hún er þannig að
ekki þótti annað fært en að bera
hana upp á félagsfundum í Snót
og Verkalýðsfélagi Vestmanna-
eyja. -S.dór
Þjófur tekinn að
störfum í nótt
Lögreglan handtók þjóf að
störfum í nótt. Klukkan rúmlega
eitt var tilkynnt til lögreglu um
grunsamlegt athæfi manns í bíl
nærri Landspítalanum. Þegar
lögregla kom á vettvang var þjóf-
urinn í óða önn að losa hflóm-
flutningstæki úr bíl sem hann
haföi brotist inn í.
Aö sögn lögreglunnar er mikið
um slíka þjófhaði og má segja að
varla falli úr dagur svo að ekki
sé tilkynnt um þjófnað á hflóm-
flutningstækjum úr ökutækjum.
Eðhlega eru þeir sem þessa at-
vinnu stunda hrifiiastir aö ólæst-
um bílum.
Þjófurinn, sem handtekhm var
í nótt, svaf í fangageymslu og
verður afhentur Rannsóknarlög-
reglu til frekari yfirheyrslu.
-sme
Mikil flöldi laga var samþykkt-
ur á Alþingi í gærkvöldi. Þar má
helst nefna framhaldsskólafrum-
varp menntamálaráöherra,
kaupleiguibúöafiumvarp félags-
málaráöherra og breytingar á
lögum um ríkisendurskoðun.
Einnig vom samþykkt lög um
Listasafn íslands, lög um bann
gegn viðskiptum við S-Afríku og
Namibíu, og lög um bifreiöagjald.
I dag verður afgreiðslu mála
lokið á Alþingi en þingsht verða
ekki fýrr en á raorgun. -SMJ