Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988. Viðskipti Formaður Félags fasteignasala: Seljendur íbúða greiða ekki óeðlilega mikinn kostnað AIls greiða seljendur 5.600 króna skoöunargjald til íasteignasalans og allar auglýsingar fasteignarinn- ar, fyrir utan þá fyrstu. Auk þess eru sölulaun 2 prósent af andvirði eignarinnar. Við sölu eignarinnar dregst skoðunargjaldið frá. Hafi fleiri fasteignasölur veriö með eignina til sðlu og fengið greitt skoðunargjald er ekki hægt að krefja þær um þaö til baka. Þetta er á meðal nýmæla í nýju reglunum um fasteignaviöskipti sem komu til framkvæmda í síö- ustu viku. En er hlutur seljenda ekki orðinn óeöfilega mikill í fast- eignaviðskiptum? Seljendur greiða alls staðar auglýsingarnar „Það tel ég ekki. Þaö er óþekkt fyrirbæri í fasteignaviöskiptum er- lendis að seljendur greiöi ekki aug- lýsingar á eignunum. Skoöunar- gjaldið er einnig sjálfsagt að minu mati, það er greiðsla fyrir aö skoða eignimar og meta þær,“ segir Þór- ólfur Halldórsson, formaður Félags fasteignasala. Þórólfur segir að þar sem skoð- unargjaldið dragist frá sölulaunum þeirrar fasteignasölu, sem sefji eignina, en sé óafturkræft ella sé líklegt að seljendur skipti fram- vegis við eina fasteignasölu. „Eins fækkar því fólki sjálfsagt sem setur ibúðir sínar í sölu einungis til að sjá hversu ríkt þaö er; hversu mik- ið þaö fai fyrir íbúðirnar.“ Stærrl og færri fasteigna- sölur Aö sögn Þórólfs telur hann aö Iögin hafi það í för með sér að færri eignir komi á markaðinn og eins aö fleiri veröi í einkasölu. „Ég sé þá þróun fyrir mér með lögunum að festeignasölur verði bæði stærri og færri í framtiðinni." Einhverjar mikilvægustu breyt- ingar á reglugerðinni eru ábyrgð* artryggingarnar sem fasteignasal- ar þurla nú aö setja til greiðslu kostnaðar og tjóns er viðskipta- menn þeirra kunna að verða fyrir af völdum fasteignasala. „Tryggingamar em þær hæstu og yfirgripsmestu sem um getur hjá nokkurri starfsstétt og raunar eru fasteignasalar eina stéttin sem lögum samkvæmt þarf aö setja slíkar tryggingar.“ Hverfa leppalúðarnir svonefndu? Þórólfur segist þegar vera farinn að merkja áhuga sumra fasteigna- sala á að hætta, sérstaklega þeirra sem eru orðnir eldri og hafa starfað einir. Um þaö hvort leppamir svo- nefhdu hverfi segir Þórólfur: „Það reynir á það eftir svona mánuö og fer allt eftir því hversu duglega dómsmálaráðuneytið fylg- ir lögunum eftir og kannar hvort þeir sem hafa réttindi til að stunda Easteignaviðskipti séu raunveru- lega að vinna á fasteignasölunum en það er markmið reglugerðarinn- ar,“ segir Þórólfur. Reglugerðin nýja tók gildi síðast- liðinn fimmtudag. Þeir sem höfðu sett fasteignir sínar á sölu fyrir þann tímaseljaá gömlukjömnum. -JGH Ellert Olafsson verkfræðingur, höfundur bókarinnar Multiplan. DV-mynd Hanna Hver hefur mesta peningavítið? Fáir nýta sér húsnæðis- spamaðarreikninga Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 18-20 Ab Sparireikningar 3jamán. uppsogn 18-23 Ab 6mán. uppsogn 19-25 Ab 12mán. uppsögn 21-28 Ab 18mán. uppsögn 28 Ib Tékkareikningar, alm. 8-10 Ab, Sb Sértékkareikningar 9-23 Ab Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn 4 Allir Innlán með sérkjörum 19-28 Vb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 6-6.50 Vb.Sb Sterlingspund 6,75-8 Úb Vestur-þýsk mork 2,25-3 Ab Danskarkrónur 8-8,50 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 30-3(2 Bb.Lb Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almenn skuldabréf 31-34 Bb.Lb Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaúpareikningar(yfirdr.) 33-35 Sp Utlán verðtryggð Skuldabréf 9,5 Allir Útlán til framleiðslu Isl. krónur 29,5-34 Lb SDR 7,50-8.25 Lb Bandarikjadalir 8.75-9,5 Úb Sterlingspund 9,75-10,25 Lb.Bb, Sb,Sp Vestur-þýsk mork 5-5,75 Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 44,4 3,7 á mán. MEÐALVEXTIR Óverótr. maí88 32 Verðtr. mai88 9.5 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala maí 2020 stig Byggingavísitala maí 354 stig Byggingavisitala maí 110,8 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 6% 1 . april. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávöxtunarbréf 1,5273 Einingabréf 1 2,763 Einingabréf 2 1,603 Eimngabréf 3 1,765 Fjolþjóöabréf 1,268 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2.803 Lifeyrisbréf 1 389 Markbréf 1,460 Sjóðsbréf 1 1.363 Sjóðsbréf 2 1,272 Tekjubréf 1.383 Rekstrarbréf 1,0977 HLUTABRÉF Soluverð að lokinni jófnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 128 kr. Eimskip 215 kr. Flugleiðir 200 kr. Hampiðjan 144 kr. Iðnaðarbankinn 148 kr. Skagstrendingurhf. 189 kr. Verslunarbankinn 105kr. Útgeróarf. Akure. hf. 174 kr. Tollvörugeymslan hf. 100kr Athyglisverð bók fyrir fólk í at- vinnulífinu, t.d. skrifstofumenn og stjórnendur fyrirtækja, hefur séö dagsins ljós. Hún heitir Multiplan og er fyrst og fremst kennslubók í notk- un töflureiknisins Multiplan. í bók- inni em ennfremur leyst fjölmörg hagnýt verkefni sem algeng eru í-at- vinnulífi og í skólastarfi. Þaö er Ell- ert Ólafsson verkfræðingur sem hef- ur samið bókina. Af hagnýtum æfingum sem leyst em í bókinni má nefna Arðsemi fjár- festinga, Hver hefur mesta peninga- vitið?, Vaxtaútreikningur, Mallorca: kemst ég í vor?, Arðsemisathugun fyrir veitingastaðinn Hamborgarann og fjárhagsáætlun fyrir Blaðsölu- turninn hf. Allar æfingamar í bókinni eru í formi reiknilíkana, en þau eru á diskhngi og fylgja bókinni. -JGH Þrátt fyrir skattalegar ívilnanir húsnæöissparnaðarreikninga hafa fáir nýtt sér þá. Á árinu 1985 stofn- uöu aðeins 98 einstaklingar hús- næðissparnaðarreikninga, en 134 á árinu 1986. Heildarsparnaður þess- ara reikninga á árinu 1985 var um 4,1 milljón en um 10,9 milljónir árið 1986. Met var sett á sjávarútvegssýning- unni Fishing 88, sem haldin var í Glasgow 14. til 16. apríl síðastliðinn. Aldrei fyrr hafa jafn mörg íslensk fyrirtæki verið með sameiginlegan sýningarbás. Tuttugu framleiðendur tæknivöm til sjávarútvegs kynntu Hlöðver örn Olason. Nýir deildarstjórar hafa verið ráðnir hjá Eimskip. Hlöðver Örn Ólason, áður deildarstjóri flutninga- tæknideildar, hefur veriö ráðinn deildarstjóri gámadeildar. Hlöðver er rekstrartæknifræðingur frá Aal- borg Teknikum og hóf störf hjá Eim- skip í júní 1984. Þegar lög um þessa reikninga voru sett var tilgangurinn að hvetja til sparnaðar áður en hafist yröi handa um.öflun íbúðarhúsnæðis og auka við fjölbreytni á sparnaöarformum fyrir almenning. Reikningarnir hafa skapað rétt til skattaafsláttar er nemur íjórðungi innleggs á ári. -JGH vörur sínar í sérstakri 600 fermetra íslenskri sýningardeild, auk sex ann- arra sem voru með sérstaka bása annars staðar á sýningunni. Það var Útflutningsráð íslands sem skipu- lagði sameiginlega þátttöku íslensku framleiðendanna. -JGH Eyjólfur Sigurösson. Eyjólfur Sigurðsson, áður sölufull- trúi í Norðurlandadeild, hefur verið ráðinn deildarstjóri farmskrárdeilar. Eyjólfur er rekstrartæknifræðingur frá Odense Teknikum. Hann hóf störf hjá Eimskip á síöasta ári. -JGH Metþátttaka Islendinga á vörusýningu erlendis Nýir stjórar hjá Eimskip Þýskaland: íslenski fiskunnn komst ekki á blað (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. íslenskur fiskur var ekki nefndur á nafn í skoðanakönnun sem GFM Institut í Hamborg gerði á meðal 5 þúsund húsmæðra víðs vegar um Vestur-Þýskaland en spurt var í könnuninni hvaðan besta matvaran kæmi. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi Útflutningsráös íslands. í könnuninni var spurt um brauð, osta, ávexti, grænmeti, kjöt, egg og ferskan fisk. Ennfremur voru nokk- ur lönd nafngreind í leiðinni þegar spurt var um hvaðan besta matvaran kæmi. ísland var ekki með í þeirri upptalningu heldur undir liðnum önnur lönd. Þannig má segja aö könnunin hafi veriö svolítiö leiðandi. En það er sama. Alls 63 prósent húsmæðranna tölu að besti fiskurinn kæmi frá Þýskalandi, 9 prósent að hann kæmi frá Danmörku, 8 prósent frá Hollandi, 3 prósent frá Nýja Sjá- landi, 1 prósent frá Frakklandi, önn- ur lönd minna og 10 prósent höföu ekki skoðun á málinu. „Þrátt fyrir að ísland sé ekki eitt af þeim löndum sem nefnd eru í inn- gangi könnunarinnar, veldur þaö nokkrum vonbrigðum aö íslenskur fiskur skuli ekki vera betur þekktur meðal þýskra húsmæðra en hér héf- ur komið framsegir í fréttabréfi Útflutningsráðs. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.