Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988.
9
Utlönd
Barist við
Gullna hofið
Til haröra bardaga kom í gær milli
lögreglunnar í Punjab á Indlandi og
aöskilnaöarsinnaöra sikha við
Gullna hofið, helgasta trúarstað sik-
ha. Fjórir féllu og sjö særöust í bar-
dögunum sem stóöu í sjö klukku-
stundir.
Þetta eru langvinnustu átök sem
orðið hafa við Gullna hofið síðan ind-
verski herinn réðst inn í það fyrir
fjórum árum, með þeim afleiðingum
að um eitt þúsund manns létu lífið.
Sú árás olli mikilli reiði meðal sikha
Áframhaldandi sigrar hjá Dukakis
Fastlega er búist viö að Michael
Dukakis, fylkisstjóri Massachu-
setts, vinni sigur i forkosningum
demókrata í Nebraska og Vestur-
Virginíu í dag. Forkosningar þess-
ar eru ekki mikilvægar.
Sarakvæmt skoðanakönnunura
viröist Dukakis njóta fylgis tvöfalt
fleiri kjósenda demókrata í fylkjum
þessum heldur en Jesse Jackson,
sá eini sem enn keppir við hann
um útnefningu sem forsetaefni
deraókrataflokksins.
I þessum tvennum forkosningura
er aðeins kosið um sextíu og tvo
Jesse Jackson er tatinn ólikiegur
til afreka i forkosningunum í dag.
Simamynd Reuter
fulltrúa á flokksþing demókrata og hafa frambjóðendur ekki sinnt fylkjum
þessum mikið. Báðir einbeita sér nú að forkosningunum í Kaliforníu og
New Jersey en þaö verða síðustu forkosningamar fyrir flokksþingið.
Vopnaðir shikar á verði við Gullna hofið.
Símamynd Reuter
á Indlandi og í hefndarskyni fyrir
hana myrti lífvörður Indiru Gandhi,
þáverandi forsætisráðherra Ind-
lands, hana. Lífverðirnir voru sik-
har.
Stjórnvöld á Indlandi fullyrtu í gær
að þau hefðu engar áætlanir um frek-
ari árásir á hofið. Einn af helstu ör-
yggismálasérfræðingum indverskra
stjórnvalda kvaðst hins vegar ekki
sannfærður um að áhlaup væri ekki
í uppsiglingu. Sagði hann að mögu-
leikanum á slíkum aðgerðum væri
haldið opnum.
Lögreglan setti í gær útgöngubann
um óákveðinn tíma í borginni Am-
ritsar þar sem Gullna hofið er stað-
sett. Undanfarna daga hefur ríkt vax-
andi spenna í borginni. Vopnaðir sik-
har hafa framið fjölmörg hermdar-
verk á þessu svæöi undanfarið, með-
al annars í brúðkaupsveislu þar sem
þeir myrtu þrettán brúðkaupsgesti.
Aldagamall spá-
dómur vekur
Araia Bjamaaon, DV, Denver
Fjögurra alda gamall spádómur
Nostradamusar stjörnuspekings
hefúr að undanförnu vakið nokk-
urn ugg í Kaliforníu og þó einkum
í Los Angeles. Spádómurinn er á
þá leið að beinlínuröðun reiki-
stjarnanna muni leiða til þess að
jaröskjálftar jafhi byggð í Suður-
Kaliforníu við jörðu í mai 1988.
Sumir túlkendur sextándu aldar
spádóma töldu að þetta myndi ger-
ast einhvern tíma frá sunnudegi til
þriðjudags eða í dag, 10. maí.
Los Angelesbúar eru þekktir fyr-
ir allt annað en aö sýna hræðslu-
merki þó þeir búi á svæöi þar sem
raunvísindamenn telja víst að mik-
ill jarðskjálfti verði „einhvem tima
á næstunni“. En spádómur
Nostradamusar hins franska hefur
þó komið illa viö marga. Eitthvað
af fólki hefur kosið að vera fjarri
borginni þessa daga. Einnig liafa
kaupahéðnar útbúiö sérstaka
neyöarböggla sem innihalda vistir
til þriggja sólarhringa, vasaþós og
annan neyöarbúnað sem gott gæti
veriö að hafa við höndina. Þónokk-
ur sala hefur verið í þessum pökk-
um sem kosta 75 dollara.
ugg
Vísindamenn fuliyrða að staöa
reikistjarnanna hafi engin áhrif á
jarðskjálfta og að því leyti til sé
spádómurinn bull en samt eru
margir hræddir og ráðvilltir og fólk
hringir í opinberar stofnanir,
sjúkrahús og fleiri staði til að ræða
málin og leita ráða. Fólk hefúr tug-
um saman hringt i stjörnurann-
sóknarstöðina í borginni undan-
farna daga og spurt hvenær reiki-
stjörnurnar verði í beinni röö. Allir
fá sama svarið. „Þaö veröur ekki í
þessum mánuði og röö reikistjam-
anna orsakar ekki jarðskjálfta.“
Páfi í Bólivíu
Páfi kyssir jörð Bóliviu við komuna
þangað i gær.
Simamynd Reuter
Jóhannes Páll páii U kom í gær
í opinbera heimsókn til Bólivíu og
við komuna hrósaöi hann bóli-
vísku þjóðinni fyrir styrk sinn í
baráttunni við fátækt og aöra erfið-
leika.
Viö komuna til E1 Alto flugvallar,
sem er hæst yfir sjávarmáh allra
alþjóðlegra flugvalla, sagði páfi að
þrautseigja þjóðarinnar væri þekkt
víða um heim.
Páfi mun dvelja í Bólivíu í sex
daga en heldur síðan til Perú og
Paraguay.
Flugslys í V-Þýskalandi
Lögregla og slökkvilið að störfum á slysstað við Hamborg i gær.
Slmamynd Reuter
Tvefr menn létu lífiö og flórir meiddust alvarlega í flugslysi sem varð
í Hamborg í Vestur-Þýskalandi í gær.
Slysiö átti sér staö þegar flugmaður var að æfa lendingar á flugvelli
Messerschmitt-Bölkow-Blohm flugvélaverksmiðjanna sem hafa um-
fangsmikla starfsemi við Hamborg.
Ekki er vitaö með vissu hvað olh slysinu.
Chirac segir af ser
nokkur ár þangað til stefna hans
verði kjölfest og fram hafi komið
verðugir eftirmenn.
Hvað gerist ef forsetinn hrekkur
upp af á miðju kjörtímabili? í Frakk-
landi er ekkert til sem heitir varafor-
seti heldur tekur forseti öldunga-
deildarinnar við hlutverki forseta
landsins þangað til nýjar kosningar
hafa farið fram. Þær verða að fara
fram innan 45 daga frá andláti forset-
ans. Sama á við ef forseti segir af sér.
Þetta hefur tvisvar gerst frá því
De Gaulle lét breyta stjórnarskránni
1958 á þann veg að forsetinn skyldi
kosinn í einfaldri meirihlutakosn-'
ingu af allri þjóðinni. De Gaulle sagði
af sér 1969 eftir stúdentaóeirðirnar
árið áður og Alain Poher gegndi hlut-
verki forseta í rúman mánuð þangað
til Georges Pompidou var kosinn. Sá
síðarnefndi lést eftir fimm ára setu
og enn varð Poher bráðabirgðafor-
seti. Valery Giscard d’Estaing hlaut
síðan kosningu.
í dag klukkan hálfíjögur mun Jac-
ques Chirac forsætisráðherra af-
henda Mitterrand afsagnarbeiðni
sína og búist er við að nýi forsætis-
ráðherrann verði tilnefndur í kvöld
eða á morgun. Síöasti ríkisstjórnar-
fundur Chiracs var haldinn í morgun
og ráðherrar eyddu gærdeginum við
að pakka niður í kassa.
Styrjaldarloka minnst
Bjami HiraiksBon, DV, Bordeaux;
Francois Mitterrand, nýlega end-
urkjörinn forseti Frakklands, er eng-
inn unglingur og á það var margoft
bent af andstæðingum hans meðan á
kosningabaráttunni stóð. Hann er 71
árs og á fyrir höndum sjö ára tíma-
bil í forsetastólnum. Margir stjórn-
málaskýrendur telja reyndar að Mit-
terrand ætli sér ekki að stjórna í sjö
ár. Annaðhvort beiti hann sér fyrir
því að tímabilið verði minnkað í
fimm ár eða þá að hann stjórni í
Mitterrand Frakklandsforseti ásamt Daniele, eiginkonu sinni. Margir stjórn-
málaskýrendur telja að Mitterrand ætli sér ekki að stjórna í sjö ár til viðbótar.
Simamynd Reuter
Átök vtð hústökufólk
Til nokkurra átaka kom milli lög-
reglunnar í Hamborg í Vestur-
Þýskalandi og hústökufólks í borg-
inni í gær. Er þetta í fyrsta sinn í
nokkum tíma sem til slíkra átaka
kemur.
Hústökufólkið hafði flutt inn í
fjögur hús í nánd við höfhina í
Til slagsmála kom mllll hústöku- Hamborg og krafðist þess að fá að
fólksins og lögreglu. búa þar, þar sem byggingarnar
Simamynd Reuter væru ekkert nýttar.
Sovétmenn minntust þess í gær
að þá voru liðin tjörutíu og þrjú ár
frá því herir Þjóövetja gáfust end-
anlega upp í Evrópu og síöari
heimsstyrjöldinni lauk.
Minna var um hátíðarhöld af
þessu tilefni en oft áður. Þeir her-
menn, sem börðust í síöari heims-
styijöldimú og enn lifa, komu þó
saman í fúllum skrúða og minntust
afreka sinna.
Þaö mun hafa sett nokkum svip
á samkomur hermannanna í
Moskvu að þar voru nú í bland
hermenn sem barist liafa 1 Afgan-
istan undanfarin ár. Bar því mun
meira á yngri hermönnum viö há-
tíðarhöldin en yflrleitt hefur verið
undanfarin ár.
Ungur sovéskur hermaður, sem
barist hefur i Afganistan, við hlið
striðshetju úr siðari helmsstyrjöld-
inni.
Simamynd Reuler