Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988.
Jarðarfarir Fréttir
Hans Durke Hansen mjólkurfræö-
ingur andaöist í Landspítalanum 5.
maí sl. Jarösett verður frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 16. maí kl. 13.30.
Óskar Kristinn Benjaminsson,
Skúlagötu 66, lést 29. apríl 1988. Út-
förin hefur fariö fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Guðrún I. Sigurjónsdóttir, hjúkrun-
arkona, Karlagötu 9, lést þann 21.
apríl. Útför hennar hefur farið fram
í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Útför Bjarna Viggóssonar, Hafnar-
götu 13, Stykkishólmi, fer fram frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 11.
maí kl. 13.30.
Laufey Sigurgarðsdóttir veröur
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík föstudaginn 13. maí kl. 15.
Páll Kr. Pétursson stýrimaður, Ljós-
heimum 14, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 11. maí nk. kl. 15.
Sveinsína Baldvinsdóttir, Skálagerði
17, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni miðvikudaginn 11. mai
kl. 10.30.
Kristín Hjálmsdóttir, Kornsá, Vatns-
dal, verður jarðsungin frá Þingeyra-
kirkju laugardaginn 14. maí kl. 14.
Sætaferð verður frá BSÍ kl. 8.30 sama
dag.
Magnús Vilmundarson, Engihlíð 10,
Reykjavik, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 11.
maí kl. 10.30.
Steinn Egilsson, Hátúni 8, sem and-
aðist föstudaginn 29. apríl síðastlið-
inn, veröur jarðsunginn frá Stórólfs-
hvolskirkju laugardaginn 14. maí kl.
14. (Ath. ekki þriðjudaginn 10. maí
eins og áður var auglýst.)
Bríet Ólafsdóttir, Hólmgarði 21,
verður jarðsungin miðvikudaginn
11. maí kl. 15 frá Dómkirkjunni.
Útför Kristínar Árnadóttur, fyrrver-
andi húsfreyju í Hjallanesi, Land-
sveit, fer fram frá Hallgrímskirkju í
Reykjavík föstudaginn 13. mai kl.
13.30. Jarösett verður í Fossvogs-
, kirkjugarði.
Jarþrúður Bernharðsdóttir, áður til
heimilis í Básenda 3, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 11. maí 15.
Stefán Ágúst Kristjánsson, fyrrver-
andi forstjóri, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 11.
maí kl. 13.30.
Rannveig Þór lést 28. apríl sl. Hún
var fædd 10. júní 1903 á Reyðarfirði,
dóttir Jóns Ó. Finnbogasonar og
Bjargar ísaksdóttur. Rannveig giftist
Vilhjálmi Þór en hann lést áriö 1972.
Þeim hjónum varð þriggja barna
auðið. Útför Rannveigar verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Ásta Marteinsdóttir lést 1. maí sl.
Hún var fædd á Þurá í Ölfusi 16. fe-
'.brúar 1925. Foreldrár hennar voru
Svanborg A. Jónsdóttir og Marteinn
Eyjólfsson. Eftirlifandi eiginmaður
Ástu er Gestur Vigfússon. Þau hjónin
eignuðust fiögur böm. Útför Ástu
verður gerð frá Bústaðakirkju í dag
kl. 15.
Sigríður Gisladóttir lést 29. apríl sl.
Hún fæddist á Tindastöðum 7. apríl
1916, dóttir hjónanna Oddnýjar
Árnadóttur og Gísla Guðmundsson-
ar. Hún giftist Snorra Gunnlaugssyni
en hann lést fyrir einu og hálfu ári.
Þau híónin eignuðust þrjú börn. Út-
för Sigríðar verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 15.
Axel Smith lést 30. apríl sl. Hann var
fæddur 1. okóber 1949, sonur hjón-
anna Axels Smith og Svanhvítar
Smith. Axel lauk námi í pípulagning-
um mjög ungur og starfaði lengstum
við þá iðngrein en síðustu árin var
hann afgreiðslumaður og sem fag-
maður í iðn sinni í Vatnsvirkjanum.
Efitirlifandi eginkona'hans er Ásta
Egilsdóttir. Þeim hjónum varð
þriggja bama auðið. Útför Axels
verður gerö frá Hallgrímskirkju í dag
kl. 13.30.
Fiskmarkaðuiinn í Englandi:
Þokkalegt verð þrátt
fyrir mikið framboð
- íslenskur gámafiskur á markaðnum alla þessa viku
I gær voru boðnar upp um 500
lestir af gámafiski frá íslandi á
mörkuðunum í Hull og Grimsby
og að sögn Aðalsteins Finsen, um-
boðsmanns hjá Brekkes Ltd. í Hull,
fékkst þokkalegt verð fyrir fiskinn.
Minni þorskurinn fór á 52 til 53
krónur kílóið en fyrir stærri fisk-
inn fengust um og yfir 60 krónur
fyrir kílóið.
Aðalsteinn sagðist eiga von á því
að verðið færi lækkandi í dag og á
morgun, en þá verða boðnar upp
hvom dag um 600 lestir af gáma-
fiski. Enn verða boðin upp um 600
tonn á fimmtudag. Þá sagði Aðal-
steinn að verðið gæti farið upp aft-
ur, vegna þess að engir gámar
koma frá íslandi í þessari viku og
menn verða því farnir að huga að
fiski fyrir næstu viku á fimmtudag-
inn.
Mikið framboð hefur verið á ís-
fiski í Englandi undanfarið og er
þar ekki bara um fisk frá íslandi
að ræða. Skotar hafa aflað mjög vel
að undanförnu og hefur komið stór
og góður þorskur frá þeim á mark-
aðinn.
Eins og skýrt hefur verið frá í
DV verður enginn gámaútflutning-
ur leyföur frá íslandi þessa viku
og gildir bannið frá því í gær og til
mánudagsins 16. maí. Þetta er gert
til að sporna við offramboði og þá
um leiö verðhruni á fiskmörkuðum
í Evrópu.
-S.dór
Halldór mótmælti
tilkynningu PLO
Halldór Asgrímsson, settur utan-
ríkisráðherra, átti stuttan fund í gær
með Eugen Makhlouf, sendifulltrúa
PLO í Stokkhólmi. Sagðist Halldór
hafa komið á framfæri mótmælum
vegna fréttaflutnings Makhloufs eft-
ir fund hans og Steingríms Her-
mannssonar í vetur.
Að öðru leyti sagði HaUdór að fund-
urinn hefði verið fróðlegur og form-
legt boð heföi komið frá PLO til Stein-
gríms um að koma til fundar við
Yasser Arafat. Halldór sagði að ekki
heföi verið ákveðinn fundarstaður
né fundartími en samkvæmt upplýs-
ingum frá Makhlouf hefur Túnis ver-
ið nefnt til sögunnar.
Þess má geta að Makhlouf mætti á
þingflokksfund alþýðubandalags-
manna í gær og skýrði siónarmið sín
þar.
-SMJ
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra:
Get ekkert um
þetta boð sagt á
þessari stundu
Andlát
Pétur Ágúst Árnason, Silfurteigi 3,
Reykjavik, andaðist á öldrunardeild
Landspítalans laugardaginn 7. maí.
össurína Bjarnadóttir frá Bolungar-
vik lést í Vífilsstaðaspítala 8. maí.
Guðmundur Thorberg Kristjánsson,
Suðurhólum 16, lést á Hvítabandinu
sunnudaginn 8. maí.
Svavar Jóhannsson, fyrrv. útibús-
stjóri Samvinnubankans á Patreks-
firði, Víöihvammi 7, Kópavogi, lést í
Borgarspítalanum að morgni 6. maí.
Björg Sigurðardóttir frá Hofstaðaseh
andaðist 5. maí.
Helgi Árnason, Lyngbrekku 13,
Kópavogi, andaðist 7. maí í Borgar-
spítalanum.
Margrét Einarsdóttir, Skólavörðu-
stíg 35, lést í Borgarspítalanum
sunnudaginn 8. maí.
Þorgils Haukur Sigurðsson, Hlíðar-
vegi 55, Kópavogi, lést í Borgarspítal-
anum 8. maí.
Guðrún Pálsdóttir frá Rifshalakoti,
dvalarheimilinu Lundi, Hellu, lést í
Sjúkrahúsi Suðurlands laugardag-
inn 7. maí.
Halldóra Waldorff frá Neskaupstað
lést í Landspítalanum föstudaginn 6.
maí.
Jón J. Fannberg, til heimihs í Garða-
stræti 2, lést að morgni laugardags-
ins 7. maí.
Guðrún Jónsdóttir frá Súðavík and-
aðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á
ísafirði 7. maí.
Marvin Jónas Gunnarsson kaup-
maöur, Akurgerði 34, lést í Vífils-
staðaspítala 8. maí.
Guðleif Sigurðardóttir frá Horni,
Homafirði, lést að dvalarheimilinu
Skjólgarði, Höfn, laugardaginn 7.
maí.
Jónea Helga ísleifsdóttir andaðist á
Vífilsstööum laugardaginn 7. maí.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Opið hús í Sigtúni, Goðheimum, í dag,
þriðjudag. Kl. 14 félagsvist, kl. 17 söngæf-
ing.
„Ég get á þessari stundu ekkert
sagt um þetta boð, til þess veit ég of
lítið um það. Ég veit hvorki hvort
hér sé um að ræða opinbera heim-
sókn né hveija ég ætti að hitta, þann-
ig að það er fjarri því tímabært að
segja nokkum hlut um þetta,“ sagði
Steingrímur Hermannsson utanrík-
isráðherra þegar hann var inntur
álits á boði því sem upplýsingafull-
trúi PLO í Stokkhólmi, dr. Mak-
hlouf, flutti í heimsókn sinni til ís-
lands um síðustu helgi.
Steingrímur Hermannsson er
staddur í Portúgal og hitti því ekki
dr. Makhlouf, sem ræddi þess í stað
við Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra sem gegnir utanríkis-
ráðherraembætti hér heima í fjar-
veru Steingríms. -S.dór
Fundir
Veitingafólk hefur samið
ITC deildin Irpa
heldur fund í kvöld, 10. maí, kl. 20.30 að
Síðumúla 17, Reykjavík. Allir velkomnir.
Starfsfólk hótela og veitingastaða
hefur skrifað undir nýja kjarasamn-
inga sem byggðir eru á Akureyrar-
samkomulaginu.
Kjaradeila þess fór til sáttasemjara
í síðustu viku og samkomulag tókst
eftir fáa fundi í Karphúsinu.
-S.dór
Kvikmyndir
Hjartanlegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýjan vinarhug í veikind-
um og við útför
Svanhildar Þorleifsdóttur
og heiðruðu minningu hennar á saknaðar stundu.
Guð blessi ykkur öll.
Ragnar Þórarínason
Þorleifur Ragnarsson, Hanna Kristín Jörgensen og bðrn
Slgurlaug Ragnarsdóttir, Þóröur Pálmi Þóróarson og börn
Þórunn Ragnarsdóttir, Birglr Gestsson og börn
Ragnhildur Ragnaradóttir og böm.
Bíóborgin/Sjónvarpsfréttir:
Hreint afbragðs fréttir
Framleiðandi, handritshöfundur og leik-
stjóri: James U. Brooks
Myndataka: Michael Ballhaus, A.S.C.
Tónlist: Bill Conti
Aðalhlutverk: William Hurt, Albert
Brooks, Holly Hunter
Síðasta mynd James L. Brooks,
Terms of Endearment, var firna-
góð, einlæg og fyndin, öðruvísi en
flestar myndir. Af hverju var það?
Jú, hann er einstaklega góður
handritshöfundur, næmur og
skondinn í allri tragedíunni. Hann
er framúrskarandi leikstjóri og
hefur einstakt auga fyrir hlut-
verkaskipan og nær upp góðri per-
sónusköpun. Næmi hans minnir
óneitanlega á Woody Allen þegar
honum tekst best upp.
Broadcast News stendur hvergi
aö baki Terms of Endearment. Hún
er jafnvel enn betri ef eitthvað er.
Þetta er saga þriggja fréttamanna
á stórri sjónvarpsstöð, nær frá
bamæsku fram á fullorðinsár en
greinir þó sérstaklega frá miklu
umbrotatímabih í lífi þeirra. Aron
Altman (Albert Brooks) og Jane
Craig (Holly Hunter) hafa unnið á
sjónvarpstöð um árabil er þangað
er ráðinn Tom Grunick (Wilham
Hurt), ungur og myndarlegur daðr-
ari. Jane og Tom heillast strax
hvort af öðru en vegna staðlaðs lífs-
munsturs hennar og flaðurs hans
gengur þeim heldur illa að ná sam-
an. Hins vegar em Jane og Aron
einlægir vinir sem geta grátið
hvort við annars öxl.
Það má eiginlega segja að í þess-
heilaga þrenning", Holly Hunter, William Hurt og Albert Brooks.
ari mynd sé verið að sýna líf frétta-
mannanna frá hinu sjónarhorninu,
laust við glansmyndina sem snýr
út til Bandaríkjamanna.
Lífþessa fólks gengur ekki átaka-
laust fyrir sig og til tíðinda dregur
þegar fyrirtækið þarf að segja upp
fjölda starfsfólks. Jack Nicholson
stendur sem aðalþulurinn frammi
fyrir því auma hlutverki og er frá-
bær fantur eins og ævinlega.
Hugmyndin að þessari mynd er
einstök og ekki spillir sá þáttur aö
sýna persónueinkenni þeirra á
unga aldri. James L. Brooks er
greinilega ekkert mannlegt óvið-
komandi og sýnir það sig í ein-
stakri glöggskyggni á smáa letrið í
daglegri hegðun fólks. Ótal mörg
dæmi þess er aö finna í myndinni
en þar verður aö segjast að handrit-
ið standi fremst meðal jafningja í
annars frábærri mynd.
Leikurinn er afbragð, Holly
Hunter fer á kostum (sérstaklega í
grátköstunum) og William Hurt og
Albert Brooks eru sem sniðnir í
hlutverkin.
Að öðrum myndum ólöstuöum,
sem hingað til lands eru komnar,
er þessi sú skemmtilegasta, hreint
afbragð. -GKr