Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 700 kr. Verð í lausasölu virka daga 65 kr. - Helgarblað 80 kr. Mitterrand forseti Francois Mitterrand var endurkjörinn forseti Frakk- lands. Munurinn varð meiri en búist var við. Jacques Chirac, frambjóðandi hægri manna, átti sigurinn vísan ef hann hefði náð til sín fylgi þeirra kjósenda sem studdu Barre og Le Pen í fyrri umferðinni. Þeir teljast báðir til hægri í frönskum stjórnmálum og Le Pen er reyndar mun lengra til hægri en Chirac sjálfur. Þetta mistókst hjá Chirac, ekki kannski vegna þess að hann sé svo slæmur frambjóðandi heldur af hinu að Mitterrand reyndist honum ofjarl. Forsetinn höfðaði sömuleiðis inn á miðjuna og það réð úrslitum. í kjölfar deGaulle hafa svokallaðir miðju og hægri menn haft meirihlutafylgi í frönskum stjórnmálum, ef undan er skihnn sigur Mitterrands og sósíalista fyrir sjö árum. Andsósíalistar hafa meirihluta á franska þing- inu og skoðanakannanir hafa ítrekað sýnt fylgisrýrnun sósíahsta síðan Mitterrand settist á forsetastól. Komm- únistar, sem lengi voru afar sterkir í Frakklandi, hafa gjörsamlega tapað fyrri styrk sínum en á það má minna að Mitterrand þurfti á stuðningi þeirra að halda fyrir sjö árum. í rauninni er það merkhegasta þróunin sem gerst hefur í frönskum stjórnmálum í tíð Mitterrands. Hver skyldi hafa trúað því þegar Mitterrand komst fyrst th valda? Eflaust hafa kommúnistar stutt Mitterrand áfram en nú er hann ekki upp á þá kominn. Nú var það Mitter- rand sjálfur sem í krafti persónu sinnar, forsetatignar og vinsælda náði kjöri og fylgi meðal meirihluta franskra kjósenda - og það þrátt fyrir aldur sinn. Mitter- rand er sjötíu og tveggja ára og verður næstum áttræð- ur þegar kjörtímabhinu lýkur. Fyrirfram hefði mátt ætla að hár aldur yrði honum Qötur um fót en Frakkar setja shkt ekki fyrir sig - ekki frekar en Bandaríkja- menn, sem kusu Reagan á áttræðisaldri, og fleiri þjóð- höfðingja mætti nefna sem hafa komist til valda á efri árum. Sagt er að Mitterrand hafi gerst vinstri sinnaðri með árunum. Þannig talar hann stundum en þróunin hefur samt sem áður verið sú í Frakklandi að frjálsræði og einkaframtaki hefur vaxið ásmegin og sósíalismi er þar aðeins að nafninu til. Að vísu er það rétt að hægri menn hafa meirihluta á þingi en áhrif forsetans í Frakklandi eru mikh og þessi þróun hefði ekki átt sér stað nema vegna þess að Mitterrand hefur látið það yfir sig ganga. Kannski sjá franskir kjósendur kosti í því ástandi sem nú ríkir, að hafa meirihlutann á þingi til hægri en sósíal- ista í forsetastól th vinstri. Þannig skapast jafnvægi og hófsemd ríkir í frönskum stjórnmálum í stað öfga- kenndra stökka th hægri og vinstri á víxl. Úrsht forsetakosninganna boða ekki miklar breyting- ar í Frakklandi. Vera kann að Mitterrand rjúfi þing og efni th kosninga th að fylgja sigri sínum eftir. Vera kann að áhrif Chiracs verði minni eftir tapið. Úr þessu fæst fljótlega skorið. En dagar óvissunnar og upplausn- arinnar 1 frönskum stjórnmálum eru taldir. Kjör Mitter- rands tryggir hann í sessi og tryggir stöðugleikann í sessi; Það hefði einhvern tíma þótt saga th næsta bæjar að kosning sósíahsta, og það kosning Mitterrands, væri trygging fyrir stöðugu stjórnarfari. Mitterrand hefur reynst eindreginn fylgismaður Efnahagsbandalagsins, Atlantshafsbandalagsins og Evrópusamstarfs. Hann hefur verið eindreginn málsvari þeirra stjórnmála sem hafa gert Frakkland að öruggu athvarfi lýðræðislegra stjórnarhátta. Hann er vel að sigrinum kominn. Ehert B. Schram Um hvað snúast sljómmál? Einhvem tíma var sett fram sú skilgreining, að stjórnmál væru fólgin í því að leysa vanda með því að búa til annan vanda. Sé þetta rétt verður að líta svo á, að núver- andi ríkisstjórn viti svo sannarlega um hvað stjórnmál snúast. Ríkisstjómin hefur verið fádæma lánlaus á sínum skamma ferli. Skopleg upphlaup, nöldur og nagg einkenna samskipti ráðherra og stjórnarsinna og taka upp mestall- an tíma þeirra og orku. Vinnubrögðin eru slík, að það heyrir til undantekninga, ef stjórn- arfmmvörp em vandlega undirhú- in, og jafnvel ágæt mál, sem horfa til heúla, fá ekki þann heiman- mund, að þau nái tílætluðum ár- angri. Slíkur er ílumbrugangurinn, og oftar en ekki kemur í ljós, að KjaHaiinn Kristín Halldórsdóttir þingkona Kvennalistans störfum eða þeir láta sér sæma að stunda óheiðarlegan málflutning. Mjúku málin Óg hver eru svo þessi svokölluðu mjúku mál, og hvers vegna skyldu þau nú vera vinsæl? Þau varða okkar daglega líf. Þau varða aðbúnað bamanna okkar. Þau varða möguleika okkar til aö lifa farsælu íjölskyldulífi. Þau varða jafnrétti til orðs og æðis, húsnæðis, fæðis og klæða, menningar, menntunar og mann- sæmandi launa. Þau varöa vemdun umhverfis og virðingu fyrir lífinu. Um þetta eiga stjórnmál að snú- ast aö dómi mikils hluta þjóðarinn- ar. Og þeir sem þannig hugsa em ekki tilbúnir að bíða eftír því að rööin komi að þessum málum, þangað til búið er að leysa efna- hagsvandann og vanda atvinnu- veganna. Þeir vita nefnilega, að slíkur vandi hefur alltaf verið til staðar í einu eða öðru formi, og hann verður alltaf til staðar. Þeir vita hka, að hluti af lausn þess vanda er fólginn í breyttri for- gangsröðun og áherslu á málefni, sem standa fólki næst - mjúku máhn - vegna þess aö helsta auð- hnd okkar er fólkið sjálft, og heil- brigður, vel upplýstur og ánægður einstakhngur er þjóðfélaginu meira virði en sjúkur, fákunnandi og vansæll. Hverjir kunna að baka? Um þetta eiga stjórnmál aö snú- ast, og þetta er sú uppskrift, sem húsmæðumar í eldhúsi Kvenna- hstans baka eftir. En það er ekki nóg að hafa góða uppskrift. Það þarf að kunna handtökin við bakst- urinn. Annars verður kakan ónýt. Þetta er því ekki síöur spurning um vinnubrögð, og shk vinnubrögð Mjúku málin. - Þau varAa okkar daglega líf, aðbúnað barnanna okkar, möguleika á farsælu fjölskyldulífi og jafnrétti til orðs og æðis, segir m.a. í greininni. ,,Þaö eru tímamót í íslenskum stjórn- málum. Fólk hafnar í æ ríkari mæli firringu og sambandsleysi hefðbund- inna stjórnmálaforingja.“ tæpast er hægt að tala um stjórnar- frumvörp, því einn er móðgaður, annar dregur lappirnar og þriðji þvær hendur sínar. Ágreiningur um lausnir veldur þvi, að ekki er tekið á vandamálum, fyrr en í algjört óefni er komið. Mánuðum saman horfa menn að- gerðahtíir á gengisstefnu og eyðslustefnu grafa undan þeim at- vinnugreinum, sem þjóðfélagiö hvíhr á. Ráðstafanir í ríkisfjármál- um eru gerðar annað veifið og fel- ast helst í því að taka aftur fyrri ráðstafanir. Vandinn vex úr öllum viöráðan- legum böndum og oftar en ekki koma aðgerðir harðast niður á þeim, sem bera þyngstar byrðar fyrir. Um það geta stjórnarflokk- amir helst sameinast í sundur- þykkju sinni. Láglaunastefnan er orðin trúar- atriði, og ríkisstjómin er haldin þeim misskilningi, aö þaö megi bæta kjör lágtekjufólks með því að taka af því aukna skatta og skila síðan broti af þeim til baka í bóta- formi. Slík em vinnubrögð og úrræði þeirra, sem telja sig eina vita, um hvaö stjómmál snúast. Á sterku nótunum Tvívegis með fárra daga millibih hefur þjóðin átt þess kost að hlýða á almennar stjórnmálaumræður á Alþingi í hljóðvarpi og sjónvarpi. Vafalaust finnst mörgum hlustand- anum hann htlu eða jafnvel engu nær. Fullyrðingarnar em á sterku nótunum, flest er sett fram í svörtu og hvítu. Ásakanir ganga á víxl, stjómar- andstæðingar saka ríkisstjórnina um óstjórn og úrræðaleysi, stjóm- arsinnar væna stjórnarandstæð- inga um ábyrgðarleysi. Oft er sú nóta slegin alveg sérstaklega, að kvennalistakonur séu kjarklausar og ábyrgðarlausar, gott ef ekki al- gjörlega stikkfrí, reki bara eins konar þykjustupólitík og velti sér upp úr mjúku málunum til þess aö afla sér vinsælda. Kvennahstakonur þurfa ekki að biðjast afsökunar á neinu. Við leggjum metnað okkar í það að taka málefnalega afstöðu í öllum málum og vinna að þeim að fullum heihnd- um. Viö höfum ekki skotið okkur undan því að benda á leiðir til tekjuöflunar eða taka afstöðu í óþægilegum málum. Viö höfum stutt af heilum hug mál, sem við höfum talið til heilla, án tillits til þess hvaðan þau ber að. Þeir sem halda öðm fram hafa annaðhvort hreinlega ekki fylgst með þing- virðast ekki nærtæk stjómmála- mönnum af gamla skólanum. Það vantar ekki, að þeir telja sig hafa úrræði við hverjum vanda. Öll höfum við reyndar úrræði uppi í erminni, hugmyndir og beinar til- lögur. Meinið er hins vegar það, að úrræði á úrræði ofan em einskis virði, ef fólk treystir ekki þeim, sem eiga að framkvæma þau. Og þannig er nú komiö fyrir rík- isstjóminni. Fólkið treystir henni ekki til að ráða'fýrir sameiginlegu búi okkar ahra. Það biður um ný efnistök, ný vinnubrögð. Þaö em tímamót í íslenskum stjómmálum. Fólk hafnar í æ rík- ari mæli firringu og sambandsleysi hefðbundinna stjómmálaforingja. Það hafnar spilhngu og samtrygg- ingu. Það hafnar valdbeitingu og hroka. Stjórnmálaforingjar gamla tímans grafa sér sína eigin gröf í gmnnum ráðhúsbragga og íþrótta- monthalla. Þeir hlusta ekki á fólk- ið, og fólk nennir ekki lengur að hlusta á þá. Krístín Halldórsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.