Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988. — LífsstOI Skemmtilegt að drullumalla segir Sveinbjöm Jónsson „Mér þykir mjög skemmtilegt í skólanum og þá kannski skemmti- legast í frímínútunum. Þá.vil ég helst vera í fótbolta eöa handbolta en þaö er líka gaman að drullu- malla,“ sagði Sveinbjörn Jónsson, sex ára snáði sem var að drullu- malla í frímínútunum í Breiðagerð- isskóla um daginn. „Ég fer í sveit um leið og skólinn er búinn. En svo fer ég lika til út- landa í sumar. Ég verð í tvær vikur í Danmörku með pabba og mömmu. Þaö er ofsa gaman í útlöndum, ég hef verið einu sinni á Mallorca, en það er'líka gaman að vera í sveit,“ sagöi Sveinbjöm. Hann mátti eigin- lega hvorki vera að þvi að tala við blaðamann né að hlusta á skóla- bjölluna þegar hún hringdi inn í tíma. Svo upptekinn varhannaf- drullumallinu. -ATA Fátt er skemmtilegra en að drullumalla. DV-mynd BG Sveinbjörn Jónsson hafði ekki áhyggjur af því þótt búið væri að hringja inn. DV-mynd BG Elva Tryggvadóttir er hrifnust af því að verpa eggjum. DV-mynd BG Skemmti- legast að verpa eggjum - segirElvaTryggvadóttir „Það er margt skemmtilegt hægt að gera í frímínútunum en mér finnst skemmtilegast að verpa eggjum,“ sagði Elva Tryggvadóttir, ellefu ára nemandi í Breiðagerðisskóla. „Ég ætla að ferðast um ísland í sumar með foreldrum mínum. Við verðum með tjald og mér finnst mjög gaman að fara í útilegu. Ég hef einu sinni farið til útlanda með mömmu og pabba. Það var mjög skemmtilegt en mér finnst þó skemmtilegra að ferðast um hér á landi og sofa í tjaldi," sagði Elva sem ekki ætlar að nýta sér þá valkosti sem boöið er upp á hjá borginni fyrir krakka. -ATA Snú-snú er alltaf jafnvinsælt hjá krökkunum þó svo að stelpurnar séu nánast einráðar í leiknum. DV-mynd BG Dægradvöl Snú-snú ennþá vinsælt - Hark dottíð út af vinsældalistanum en drullumallið alltaf áhugavert Krakkar eru almennt að ljúka próf- um um þessar mundir enda er vor í lofti. í skólunum eru vorleikir ofar- lega á baugi, knattspyrna, hand- knattleikur, körfubolti og eltingar- leikur eru vinsælastir hjá strákun- um, en parís, snú-snú, skotbolti og teygjutvist er vinsælast hjá stelpun- um. Teygjutvistið er nú orðiö vin- sælla hjá yngri stelpunum en þeim eldri og það sama má segja um leiki í klifurgrindum og rólum sem eru til staðar í flestum skólununum. Yfir og hark! Hér í gamla daga fórum við krakk- arnir í leiki eins og „yfir“ og síðasta- leik. Strákarnir fóru gjarnan í hark og voru þá notaðir lítils metnir flmm- eyringar. Nú er þetta fjárhættuspil sem betur fer ekki í hávegum haft en heyrst hefur aö það sé stundað með tíköllum. Þar er greinilega spil- að upp á stórar fjárhæðir. Hvað er skemmtilegast? En hvað er vinsælast að leika í frí- mínútum? Það er enginn sammála um það. Og svo virðist líka sem krakkar ætli sér lítið að notfæra sér það sem borgin og bæjarfélögin ætla að bjóða upp á í sumar. Viö spurðum nokkra krakka í Breiðageröisskólan- um, sex til tólf ára, hvað þau ætluðu sér að gera í sumar og hvað þeim fyndist skemmtilegast aö gera í frí- mínútunum. -ATA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.