Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 20
20
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAI 1988.
íþróttir
Sean Yates frá Spáni sést hér koma f mark sem sigurveg-
ari i hjólreiðakeppninni „Tour of Spain“ sem fram fór um siðustu helgi
á Spáni. Spennan var gifurleg í keppninni og Englendingurinn þurfti að
hafa mikiö fyrir sigrinum. Hér að ofan sést hann koma i mark og fagna
sigri. Yates hjólaði kilómetrana 197 á 5:36,35 klst. Símamynd Reuter
Gabriela SabatlXlX (rá Argentínu er af mörgum
talin efnilegasta tenniskona heims í dag, í þess orðs fyilstu merkingu,
og að hún eigi eftir að komast alla leið á tindinn áður en ferli hennar
lýkur. Sabatini, sem aðeins er 18 ára, sést hér með fagran verðlauna-
grlp sem hun vann sér til eignar um siðustu helgi er hún sigraði á
opna ítalska meistaramótinu í tennis. Sabatini sigraði kanadisku stúlk-
una Helen Kelesi, 6-1, 6-7 og 6-1.
I ísknattleikæu,, harkan oft farið fram úr hófi og oft
fá leikmenn að kenna á þvf hjá baráttuglöðum „hnefalelkurum". Á dög-
unum léku llð Boston Brulns og New Jersey Oevlls og lentf þá þessum
tveimur leikmönnum saman. Þaö er Lyndon Byers f liði Boston Bruins
sem hér fœr elnn vel útllátlnn frá Craig Wolanin f Uði New Jersey Dev-
Hs sem sigraðl f lelknum, 3-1. Sfmamynd Reuter
Magnús
TeHsson
tekur víð
UMFN
Magnús Teitsson, línumaður
Stjörnunnar úr Garðabæ, hefur
ákveðið aö þjálfa lið Njarðvíkinga í
annarri deildinni á næsta tímabili.
Mun Magnús leysa Heimi Karlsson
af hólmi en hann er genginn til liðs
við Víking:
„Mér líst ágætlega á að taka við
hði Njarðvíkinga og geri ráð fyrir að
þetta verði á margan hátt spennandi
verkefni," sagði Magnús Teitsson í'
samtali við DV í morgun.
Þess má geta að Magnús hefur
þjálfað kvennalið á síðustu árum
samhhða því að sinna unglingastarfi
í handknattleiknum. -JÖG
Eyjótfúr
tekurvið ÍR
Eyjólfur Bragason, sem þjálfað hef-
ur í Eyjum við góðan orðstýr síðustu
misserin, mun taka við liði ÍR-inga á
morgun. Mun hann stjórna liðinu í
annarrar deildarkeppninni á næsta
vetri og fá það verkefni að færa liðið
upp í fyrstu deildina:
„Mér finnst þetta spennandi verk-
efni og stefna okkar verður vitanlega
að koma liðinu beint upp í fyrstu
deildina,“ sagði Eyjólfur í samtali við
DV í morgun.
„Það er mikil ábyrgð lögð á herðar
strákanna sem fyrir eru í liðinu. Nú
þurfa þeir að standa undir þeim
væntingum sem til þeirra hafa verið
gerðar. - Ég ber fullt traust til þess-
ara stráka og veit að þeir munu
leggja sig alla fram í baráttunni,“
sagði Eyjólfur. -JÖG
Pjetur
í Víking
Pjetur Ámason, línumaðurinn
hpri í hði Njarðvíkinga, hefur ákveð-
ið að ganga í raðir Víkinga eftir því
sem heimildir DV herma. Mun hann
fylgja fyrrum þjálfara sínum, Heimi
Karlssyni, til Hæðargarðshðsins.
Pjetur hefur áður leikið með Vík-
ingum en hann er ahnn upp hjá fé-
laginu. -JÖG
Farið til Heysel
Samvinnuferðir-Landsýn hafa
ákveðið að efna til hópferðar á bikar-
úrshtaleikinn í belgísku knattspyrn-
unni, mihi Anderlecht og Standard
Liege, sem fram fer á Heyselleik-
vanginum laugardaginn 28. maí.
Amór Guðjohnsen mun hehsa upp á
hópinn að leik loknum og vonandi
fá ferðalangarnir tækifæri th að
fagna með honum sigri. Farið veröur
utan að morgni leikdags, þann 28.
maí, og komið heim mánudaginn 30.
maí. Ferðin kostar um 22 þúsund á
mann. -VS
Fer Olaf Ihon
til Bayem?
Sigurður Bjömsson, DV, Þýskalandi:
Olaf Thon, miðjumaðurinn mark-
sækni frá Schalke, hefur gert munn-
legt samkomulag við Bayern
Munchen um að leika með félaginu
næsta vetur. Félögin eiga eftir að
ræða fjárhagsmálin sín á milli. Allt
bendir th þess að Schalke missi sæti
sitt í úrvalsdehdinni en hðið er neöst
þegar tveimur umferðum er ólokiö.
Frétta-
stúfar
Telja sig sigraða
Helstu stjörnur ítölsku meist-
aranna Napoli sögðu eftir ósigur-
inn gegn Fiorentina á sunnudag-
inn að úrslit væru ráðin, AC
Mhano væri öruggt með meist-
aratitilinn. Diego Maradona, sem
lék ekki með vegna meiðsla, grét
þegar Fiorentina komst í 3-1 og
sagði eftir leikinn að hjarta sitt
væri brostið. Brasilíumaðurinn
Careca sagði: „Við höfum tapað
titlinum, þetta er vonlaust," og
Salvatore Bagni: „Við eigum
stærðfræðhega möguleika, en
látum það ekki blekkja okkur.
AC Mhano er búið að tryggja sér
sigurskjöldinn og verðskuldar
hann.“ Napoli á möguleika á að
verja skjöldinn með því að vinna
Sampdoria næsta sunnudag, ef
AC Milano tapar fyrir Como, sem
þykir mjög ósennilegt.
Af skautum á hjól!
Tvær stúlkur, sem kepptu í
skautahlaupi á vetrarólympíu-
leikunum í Calgary fyrr í vetur,
stefna að því að verða einnig
meðal þátttakenda í sumarleik-
unum í Seoul - sem hjólreiða-
knapar! Þær Erwina Rys-Ferens
frá Póhandi og Christa Luding-
Rotherburger hafa báðar æft
hjólreiðar árum saman og koma
sterklegá til greina með að verða
fuhtrúar landa sinna í þeirri
grein.
Strachan í landsliðið
Gordon Strachan frá Manch-
ester United hefur verið vahnn á
ný í skoska landsliðið í knatt-
spyrnu, eftir átta mánaða fjar-
veru. Hann er í 22ja manna hópi
sem útnefndur hefur verið fyrir
Rous-keppnina síðar í þessum
mánuði, en þar mæta Skotar Eng-
lendingum og Kólumbíumönn-
um.
Smolarek til Feyenoord
Hohenska knattspyrnuliðið
Feyenoord fékk í gær pólska
landshðsmanninn Wlodimierz
Smolarek frá Eintracht Frank-
furt. Smolarek, sem hefur leikið
60 landsleiki fyrir Pólland, skrif-
aði undir þriggja ára samning, en
Feyenoord þarf ekki að greiða
Frankfurt neitt fyrir kappann.
Dynamo Berlin efst
Dynamo Berhn náði um síð-
ustu helgi forystu í austur-þýsku
1. dehdinni með 2-2 jafntefli í
Erfurt á meðan skæðustu keppi-
nautarnir töpuðu. Lokomotiv
Leipzig lá 3-2 fyrir Stahl Brand-
enburg og Dynamo Dresden tap-
aði 1-0 fyrir Vorwaerts Frank-
furt. Dynamo Berhn og Leipzig
eru meö 32 stig en Dresden 30.
Dynamo Berhn hefur orðið aust-
ur-þýskur meistari síðustu 10 ár-
in.
Besti heimstíminn
Jackie Joyner-Kersee frá
Bandaríkjunum, heimsmethafi í
sjöþraut og langstökki kvenna,
náði um helgina besta tíma ársins
í 100 m grindahlaupi. Hún sigraði
á 12,7 sekúndum á móti í Kali-
forníu.
Porto nánast öruggt
Porto þarf aðeins tvö stig úr
síðustu fimm leikjunum th að
tryggja sér portúgalska meistara-
titihnn í knattspyrnu. Liðið gerði
þó aðeins markalaust jafntefli við
Penafiel um helgina, en Benfica
hlaut sömu örlög gegn Braga.
Porto er með 56 stig en Benfica
47 og þeir síðamefndu hafa gefið
meistaratitihnn upp á bátinn en
leggja aht kapp á að sigra PSV
Eindhoven þann 25. maí og verða
þar með Evrópumeistarar í stað-
inn.
• Hér sést vel hvernig brautin á V«
steinn Óskarsson, framkvæmdastjót
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Guðmundur Torfason varð fyrir
meiðslum í leik Winterslag gegn Charl-
eroi í 1. dehd belgísku knattspymunnar
sl. laugardag og hann getur ekki leikið
með í næstsíðustu umferð deildarinnar
um næstu helgi. Guðmundur stefnir að
því að vera með gegn Lokeren í lokaum-
feröinni en það gæti orðið hreinn úrshta-
leikur mhh hðanna um áframhaldandi
sæti í dehdinni.
„Ég fékk spark aftan í hælinn eftir 15
mínútna leik með þeim afleiðingum að
hðbönd í ökklanum tognuðu. Ég beit á
jaxhnn og ætlaði að leika fram að hálf-
leik en varð síðan að láta skipta mér út
af þegar tíu mínútur vom eftir af hálf-
leiknum. Maður er lurkum laminn þessa
dagana, fyrst tábrotið og síðan þetta,“
sagði Guðmundur í samtali við DV í gær
en þá var hann nýkominn úr sprautu-
meðferð vegna meiðslanna.
Waterschei í 3. deild!
Waterschei, félagið sem Láms Guð-
Guðmu
næstal