Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988. Fréttir dv Kaffibaunamálið í Hæstarétti: Hver var svikinn og hver sveik hvem? - spurði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttariögmaður Valur Arnþórsson, stjórnarformaður SÍS og KA og framkvæmdastjóri KEA. Var launungin sú að hann leyndi sjálfan sig einhverju? Af hverju voru hann og stjórn SÍS ekki ákærð? Hefði þá ekkert orðið úr leyndinni? Á þessa leið spurði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður í Hæstarétti i gær. Málflutningi var framhaldiö í kaffi- baunamálinu í Hæstarétti í gær. Þetta var fjórði dagur málflutnings- ins en honum lýkur í dag. Allir verj- endurnir fimm hafa nú lokið varnar- ræðum sínum. Ragnar Aðalsteinsson talaði einn í gær. Hann er verjandi Amórs Valgeirssonar. Amór Valgeirsson hóf störf sem deildarstjóri fóöurinnflutningsdeild- ar SÍS 1. janúar 1981. Varnarræða verjandans, Ragnars Aðalsteinsson- ar, tók um 4 klukkustundir. í upp- hafi ræðunnar sagði Ragnar að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að gera grein fyrir fyrir hvað Valgeir væri ákærður. Ragnar sagöi ákær- una óglögga hvaö Valgeir varðar og sagði að óhjákvæmilegt væri fyrir ákæruvaldið að vitna til atvika um að Valgeiri hefði átt að vera ljóst að hann hefði framið refsivert athæfi. Hlutur SÍS 8,89% Ragnar Aöalsteinsson sakaði ákæravaldið um að hafa ekki kynnt sér gögn málsins nægilega. Hann sagði að framsetning ákæruvaldsins væri þannig úr garði gerð að hún gæti slegið ryki í augu verjanda og dómara. Ragnar krafðist þess aö ákæru á hendur Arnóri Valgeirssyni yröi vísað frá. Ragnar sagði að jöfn- unargjaldsgreiðslumar, sem fengust frá Brasihu, hefðu veriö gjörsamlega óskyldar viðkomandi vörukaupum. Hann tók sem dæmi að þegar fyrst var keypt kaffi fylgdi ekki avisos. Jöfnunargreiðslurnar komu síðan óreglulega til frádráttar kaffikaup- um. Hann lagði upp þannig dæmi að KA keypti kaffi áf SÍS og við þaö kæmu jöfnunargreiðslur. Síðan kæmi til annar kaupandi, sem keypti í eitt sinn af SÍS, og ætti sá kaupandi þá að njóta jöfnunargreiðslna vegna fyrri kaupa SÍS á hrákaffi? Eftir að SÍS greiddi Kaffibrennslu Akureyrar greiðslurnar sagði Ragn- ar að þóknun SÍS fyrir kaffikaupin hefði verið 8,89% af heildarinnkaup- unum. „Mörgum heildsölum hefði þótt það lítið,“ sagði Ragnar Aðal- steinsson. Ragnar fullyrti að ekki hefði verið um umboðsviðskipti milli SÍS og KA að ræða. Máli sínu til stuönings vitn- aöi hann í gamla dóma, innlendar og erlendar fræöigreinar. Öllu má nafn gefa „Öllu má nafn gefa. Ég neita aö fallast á að kalla þetta afslátt," hóf Ragnar mál sitt um hinar umdeildu avisosgreiðslur. Hann sagði að af hálfu ákæruvaldsins væri þetta tómt húmbúkk og að þaö hefði átt að leita sér aðstoðar. Ragnar deildi hart á forráðamenn Kaffibrennslunnar fyrir þekkingar- leysi. „Daginn sem ég var skipaður verjandi fór ég í eigið safn og eftir stutta stund vissi ég meira um kaffi- viðskipti en forráðamenn KA virðast hafa vitað,“ sagöi Ragnar. Hann fór þungum orðum um KA og sagði að svo virtist sem ekkert um kaffivið- skipti hefði verið til á skrifstofu fyrir- tækisins. Ragnar spurði hvort hugsanlegt væri að starfsmenn stærstu kaffi- brcnnslu á landinu hefðu komist hjá þvi aö lesa sér til um þau viðskipti sem þeir stunduðu. Ragnar sagði aö árið 1981 hefði ver- ið það besta í sögu KA. Markaðshlut- deild og hagnaður fyrirtækisins hefði aldrei staðið betur. Hann nefndi einnig að aðrir aðilar hefðu boðið KA hrákaffi en ekki verið sambæri- legir við SÍS í verði. Hverleyndi hvern? Árið 1981 var skipuð fjögurra manna nefnd á vegum SÍS til að kanna kaffiviðskipti SÍS og KA. í málflutningi Ragnars kom fram að svo virtist sem framkvæmdastjóri KA hefði ekki haft hugmynd um að verið væri að kanna viðskiptin. Hann sagðist telja einu leyndina í viöskipt- unum hafa verið þá að stjóm KA leyndi framkvæmdastjóra fyrirtæk- isins stöðu málsins því að það hefði legið ljóst fyrir árið 1981 hvernig málum var háttað. Valur Arnþórsson er stjómarfor- maður bæði SÍS og kaffibrennslunn- ar. Auk þess er Valur framkvæmda- stjóri KEA sem á helminginn í KA á móti SÍS. Valur á sjálfur 0,5% í KA. Þegar Ragnar hafði rakiö skyldleika fyrirtækjanna og þá staðreynd að Valur vissi um allan gang mála spurði hann hver hefði svikið hvem. Valur Amþórsson tók ekki þátt í störfum fjögurra manna nefndarinn- ar sem stjómarformaður beggja fyr- irtækjanna. Nefndin komst ekki að neinni niðurstöðu. Það var SÍS sem tók einhliða ákvörðun um að greiða KA jöfnunargreiðslurnar. Af hverju var stjórn SÍS ekki ákærð? í lok ræðu sinnar vék Ragnar Aðal- steinsson aö því af hverju þeir fimm, sem eru ákærðir, voru ákærðir en ekki aðrir. Tók hann sem dæmi að Hjalti Pálsson og Amór Valgeirsson hefðu verið ákærðir. í valdastigan- um var einn maður á milh þeirra en sá var ekkí ákærður. Ragnar sagði einnig að ákæruvaldið hefði ekki getað ákært stjórn SÍS því að þá hefði kenningin um launungina fallið þar sem Valur Amþórsson er stjórnar- formaður beggja fyrirtækjanna. Ragnar. deildi hart á ákæruvaldið vegna þessa. „Arnór Valgeirsson var undirmað- ur og fylgdi fyrirmælum yfirmanna sinna. I undirrétti var hann sakfelld- ur fyrir hlutdeild en yfirmaður hans sýknaður," sagði verjandinn og lagði máhð í dóm -sme SIHnaði upp úr samninga- viðræðum ál- versmanna -annarfundurekki boðaður Um miðjan dag í gær slitnaði upp úr samningaviðræðum verkalýðsféiaganna tuttugu og forráðamanna Álversins í Straumsvík og hefur annar fund- ur ekki verið boðaöur. Guðlaugi Þorvaldssyni sáttasemjara var falið að meta það hvenær annar fundur yröi boðaður. Guðlaugur sagði í samtali við DV í gær að allt sæti pikkfast 1 þessari deilu. Það er og mat manna, sem DV hefur rætt við, að ekkert muni gerast í deilunni fyrr en nær dregur algerri stöðv- un álversins en nær tvær vikur em í þaö þótt vinnustöövun hafi byijað um síðustu helgi. S.dór Hvað kostar Seðlabanki?: „Svarið er 1273 milljónir króna“ Eitt stysta svar sem gefið hefur veriö f fyrirspumartíma á Al- þingi kom um daginn þegar viö- skiptaráðherra svaraði fyrispum frá Ólafi Þ. Þórðarsyni um kostn- aðinn við byggingu Seðlabanka- hússins. Sagði ráðherra einfald- legæ „Svariö er 1273 milljónir kr. miðaö viö síöustu áramót.“ Ólafur kvartaöi yfir því að svar ráðherra væri varla nógu ná- kvæmt og þar að auki vantaði kostnaðartölur frá síöustu ára- mótum. Albert Guðmundssson tók undir þaö. Einar K. Guðfinns- son benti á að í dagblaöinu Tim- anum heföi verið nefnt að kostn- aðurinn væri 1,7 mifijaröur og vildi Einar fá skýrari svör frá ráðherra Viðskiptaráðherra tók þá aftur til máls og sagði að fosteignamat húsa og lóöar væri 1076 milljónir og brunabótamat eignar 1105 milljónir. SMJ í dag mælir Dagfari_______________ Bíll stjómarformannsins Gula pressan hefur veriö aö velta sér upp úr þvi að Grandi hafi keypt bU undir Ragnar Júlíusson stjórn- arformann, rétt eins og það sé stór- alvarlegur glæpur þótt keyptur sé bíll. Þar að auki var aldrei meining- in að nokkur maöur kæmist að því að Grandi ætti bílinn. Ragnar var búinn að setja sitt eigið númer á bílinn og eiginlega var ætlunin ein- hvem timann á næstunni að skrá bilinn á nafn Ragnars, svona í tímans rás, þegar lítið bæri á. Þá hefði enginn tekið eftir því né vitað um aö Grandi hefði keypt bíhnn og ætti bílinn, enda á stjómarform- aðurinn það margfalt inni hjá fyrir- tækinu að það gefi honum bU. Stjómarformaöurinn hefur unnið lengi og dyggjlega í stjóm Granda og áður í stjóm BÚR og hefur mætt samviskusamlega á alla fundina. Líka á fundina þegar BÚR var sameinað ísbirninum af því reksturinn var á hausnum og hka þegar Grandi þurfti að segja upp sextíu starfsmönnum vegna þess að Grandi er rekinn með tapi. Stjómarformaðurinn hefur fylgst með þessu öhu og alltaf rétt upp höndina á réttum stöðum og þess vegna á hann skilið að fá bU í verð- laun. Stjómarfundir í Granda eru haldnir einu sinni í mánuði, stund- um oftar. Fundimir eru haldnir vestur í Örfirisey. Ragnar stjórnar- formaður Júhusson býr hins vegar í austurbænum og er skólastjóri í Safomýrinni. Það er löng leiö úr Safamýrinni vestur í Örfirisey og skólastjórar og stjómarformenn hafa ekki tíma til aö bíöa eftir strætó til að komast á fundi og það er heldur ekki sanngjamt að þeir aki á sínum eigin bílum á fundi fyrir aðra. Að vísu mætti greiða þeim bílastyrk en nú er skatturinn farinn aö taka skatt af bílastyrkjum og þá heföi stjómarformaðurinn tapað á því að aka á sínum eigin bíl. Þegar þetta blasti við var það ein- róma ákvörðun stjórnarinnar í Granda að kaupa bíl handa Ragn- ari. Og ekki dugir að stjórnarform- aðurinn aki á einhverri druslu. Þess vegna var keyptur bíh fyrir eina og hálfa milljón króna. Rekst- urinn hjá Granda nemur rúmlega tveim mihjörðum króna á ári og tapið er upp á sjötíu, áttatíu millj- ónir svo allir sjá að bíll fyrir eina og hálfa skiptir ekki öhu máh. Það munar ekki um einn kepp í slátur- tíðinni. Ekki er það heldur stjórnarfor- manninum að kenna þótt Grandi sé rekinn með tapi. Hann þarf ekki síður að komast á fundi þótt fyrir- tækið tapi enda verður hann að mæta á fundina til að ræða sparn- aöartihögur og uppsagnir á starfs- fólki. Starfsfólk getur reynst einu fyrirtæki dýrt þegar allt er rekiö með tapi og þetta veit stjómarform- aöurinn og réttir því upp höndina og samþykkir einróma að segja upp fólki þegar Grandi sér fram á haUa- rekstur eftir að hafa keypt bilinn handa stjórnarformanninum. Bílar handa stjórnarformönnum og for- stjórum ganga auðvitað fyrir þegar harðnar á dalnum því þá þurfa menn að vera fljótir á fundi og þurfa kannski að hlaupa út úr miðri kennslustund. Ragnar bað ekki um þennan bfl. Hann bara kom upp í hendurnar á honum, næstum því óvart, og stjórnin ákvað upp úr þurru að rétta upp hendurnar þegar allt í einu lá fyrir tiUaga um að Grandi keypti bíl handa Ragnari. Eiginlega veit hann ekkert um málið, stjórn- in ekki heídur og framkvæmda- stjórinn enn síður. í Granda eru menn svo vanir að rétta upp hend- urnar að þeir gerðu það eiginlega ósjálfrátt þegar tillagan um bíla- kaupin handa Ragnari datt af himni ofan. Svona geta hlutirnar gerst fyrir tilvUjun. Ragnar Júlíusson sat lengi í borg- arstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann er orðinn stjórnarformaður í Granda út á dyggan stuöning viö Sjálfstæðisflokkinn en sá flokkur á borgina og flokknum kemur ekki við hvort borgarbúar eða fjölmiðl- ar eru að agnúast út í borgarfull- trúa fyrir að kaupa bíla fyrir sjálfa sig, ekki frekar en flokknum kemur það viö hvort borgarbúar vUja ráð- hús eöa ekki. Ef flokkurinn á borg- ina þá á borgin flokkinn svo þaö kemur út á eitt hvor er skráður eigandi aö bílum sem flokksbundn- ir borgarfulltrúar nota til funda- halda á vegum borgarinnar. Það er sami rassinn undir þeim öUum, ekki satt? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.